Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Side 20

Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Side 20
20 - Þriðjudagur 31. desember 1996 jJlagur-ÍEmmm Umsjonarmaður Magnús Geir Guðmundsson Poppgetraun Nú þegar áramótin nálgast óðfluga, bregður Poppsíða Dags-Tímans á leik með lesendum sínum í formi lítils og létts spurningaleiks. Engin verðlaun eru í boði og fylgja svörin með hér annars staðar, en vonandi er hœgt samt að hafa gaman af tiltœkinu. Spumingarnar eru bœði um innlent og erlent efni og œttu flestir fjölskyldumeðlimir að geta spreytt sig á þeim. 1. Meðal þeirra viðurkenninga sem Björk „okkar“ Guðmunds- dóttir hlaut á árinu, var ein sem nokkuð óvenjuleg taldist. Hver var hún? 2. Snemma á árinu kom hingað til lands erlend hljómsveit, sem í kynningu í íjölmiðlum var sögð spila „ostapopp". Við hverja er átt og hvaðan er þessi hljómsveit? 3. Hver syngur um „Villta morgna“ á sinni fyrstu plötu? 4. Pessi söngvari kom hingað til lands í sumar með sinni þekktu hljómsveit. Hvað heitir hann? 5. David Bowie kom sem kunn- ugt er hingað til lands í sumar og spilaði á Listahátíð. Hann valdi sjálfur eina íslenska hljómsveit til að koma fram á undan sér. Hver var hún? 6. Hvað eiga söngkonurnar heimsfrægu Alanis Morrisette og Celine Dion sérstaklega sam- eiginlegt hvað varðar uppruna þeirra? 7. Með hvaða tveimur hljóm- sveitum söng Emilíana Torrini áður en hún fór sjálf að gefa út eigin plötur? 8. Fyrirbærið Los Del Rio varð heimsfrægt á þessu ári. Hvers vegna? 9. Garpurinn dugmikli úr Kefla- vík, hann Rúnar Júlíusson var einu sinni sem oftar áberandi á þessu ári. En hvað heitir hann fullu nafni? 10. Þessi fornfræga gítarhetja frá mektardögum breska blúss- ins, kom nokkuð óvænt aftur fram á sjónarsviðið í ár og hef- ur stofnað nýja rokkhljómsveit. Hver er hann? 11. Bæði útgáfufyrirtækin Skíf- an og Smekkleysa fögnuðu merkisafmælum á árinu. Hve gömul eru þau? 12. Á hvern hátt tengdist Jimi heitinn Hendrix við íslenskt leikhússtarf í sumar? 13. Á Akureyri er starfrækt fyr- irtaks hljóðver í eigu lands- þekkts gítarleikara. Hvert er nafn hljóðversins og hver er þessi landsþekkti gítarleikari? 14. Ein af framvarðarsveitun- um í dansheiminum breska hef- ur komið einum þrisvar sinnum til íslands til tónleikahalds. Við hverja er átt? 15. Orðið fólk kemur fyrir í nöfnum á tveimur plötum sem komu út fyrir jólin. Hjá hverjum? 16. Frá hvaða borg í Englandi kemur hljómsveitin gríðarvin- sæla, Oasis? 17. Árið 1990 kom til íslands danskur tónlistarmaður af frægari gerðinni og hélt tón- leika m.a. á Akureyri. Við hvern er átt? 18. Með hvaða hljómsveit hefur „sjónvarpsstjarnan" úr Óinu, Selma Björnsdóttir, sungið? 19. Hvaða bandaríska rokk- hljómsveit söng um Buddy Holly við miklar vinsældir árið 1995? 20. Nefnið að minnsta kosti þrjár hljómsveitir sem Andrea Gylfadóttir hefur sungið með. 21. Nefnið þó nokkuð þekkta „Teknó“ danssveit sem kom hingað til lands í sl. vetur. 22. Hljómsveitin Farísearnir kvaddi sér hljóðs á árinu. Hver er hinn umdeildi söngvari hennar? 23. Hvaða landsþekkti tónlist- armaður gaf annars vegar út sína eigin plötu ásamt öðrum slíkum en söng hins vegar með karlakór á plötu sem kom út fyrir jólin? 24. Þrír bræður hafa á undan- förnum árum verið áberandi í íslensku poppi. Hvað heita þeir? 25. Hverjir báru ábyrgð á „Plútó“ sl. sumar? Svör við Poppgetraun Plötur ársins 1996 Eins og löngum áður meðan Dagur var og hét, birtir umsjónarmaður Poppsíðu hér lista sinn yfir 10 bestu innlendu og erlendu plötur ársins að hans dómi. Hvað best telst er reyndar alltaf teygjanlegt, en þetta er nú meira gert til gamans en í alvöru, Sem fyrr fylgja stuttar skýringar með íslensku plötunum, en með þeim erlendu er slíkt látið liggja á milli hluta. Að því sögðu óskar umsjónarmaður lesendum Dags-Tímans gleðilegs nýs árs og gœfu á nýju árl 10 bestu íslensku plötumar 1. Fjall og fjara - Anna Pálína Ámadóttir og Aðalsteinn Ás- berg Sigurðsson (Einkar hrífandi og áheyrileg tónlist með afbragðstextum. Þau Anna og Aðalsteinn eru tví- mælalaust með fremstu tónlist- armönnum þjóðarinnar) 2. Ómissandi fólk - Magnús Ei- ríksson og KK (Tveir heiðursmenn sem svo sannarlega kunna sitt fag og er útkoman eftir því) 3. Fólk er fífl - Botnleðja (Frískasta rokkplata ársins með þremur ungum mönnum, hörð- um og áræðnum, sem ekkert víla fyrir sér. íslenskt rokk á ís- lensku og það á heimsmæli- kvarða.) 4. Köld eru kvennaráð - Kol- rassa krókríðandi (Líkt og með Botnleðju, fram- sækið íslenskt rokk, sem fylli- lega stenst samanburð við það besta erlendis. Stelpurnar okk- ar geta þetta jú líka) 5. Jæja, vinur! - Texas Jésús (Bráðskemmtileg og „flippuð“ plata hljómsveitar, sem því mið- ur er hætt) 6. Late Night Cult Show - Stripshow (Kraftmikil og velsamin rokk- tónlist. Eitt dæmið til um ís- lenskt rokk í hágæðaflokki) 7. Perlur og svín - Todmobile (Todmobile snýr aftur með gæðaverk sem fyrr, reyndar ekki sú besta frá sveitinni, en góð samt og sumpart öðruvísi) 8. Crush - Dead Sea Apple (íslenkt rymrokk sem verður betra og betra eftir því sem oft- ar er hlustað) 9. Sumar á írlandi - PKK (Afbraðsgóð meðferð á írskri þjóðlagatónlist, með frumsömd- um stemmum í sama anda sem krydd. Gerist vart betra á slíku sviði) 10. Allar áttir - Bubbi Morthens (Bubbinn er enn á meðal þeirra bestu, á plötu sem endurspegl- ar hans mörgu hliðar.) 10 bestu erlendu plöturnar 1. American Standard - Seven Mary Three 2. Leadbetter Heights - Kenny Wayne Shepard 3. Load - Metallica 4. Congratulation I’m Sorry - Gin Blossoms 5. Roadhouse Rules - Lonnie Brooks 6. Dust - Screaming Trees 7. Stoosh - Skunk anansie 8. Regular Urban Survivors - Terrorvision 9. Border Town Legend - Long John Ilunter 10. Rub Mihael Katon 1. Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2. Cardigans frá Svíþjóð 3. Anna Halldórsdóttir 4. Jarvis Cocker, söngvari Pulp 5. Lhooq 6. Þær eru báðar fransk-kanadískar 7. Tjalz Gizur og Spoon 8. Los Del Rio ber ábyrgð á laginu Mac- arena, sem samnefndur ofurvinsæll dans er kenndur og svo stiginn við. 9. Guðmundur 10. Peter Green 11. Skffan 20 ára, Smekkleysa 10 ára 12. Nafn á einu af hans frægu iögum, Stone Free, er jafnframt nafnið á söngleiknum vinsæla eftir Jim Cartwright, sem slegið hefur öll að- sóknarmet. 13. Studió Hljóðlist og Kristján Edel- stein 14. Prodigy 15. Magnús Eiríksson og KK og Botn- leðja 16. Manchester 17. Kim Larsen 18. Fantasía 19. Weezer 20. Hún hefur t.d. sungið með Grafík, Todmobile, Tweety, Blúsmönnum Andreu o.fl. 21. Drum Club 22. Davíð Þór Jónsson 23. KK, Kristján Kristjánsson 24. Grétar, Atli og Karl Örvarssynir 25. Vinir vors & blóma

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.