Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1981, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981.
Ragnar Amalds fjármálaráðherra um verðbólguspána:
„ÉG TRIÍIEKKIA ÞESSA
VERÐBÓLGUSPÁ ÞÐRRA”
„Þessi verðbólguspá þeirra er
háð mikilli óvissu og ég trúi ekki á
hana. Þeir reikna til dæmis
áreiðanlega með ákaflega stórri
gengisfellingu nú um áramótin, sem
ekki kemur til greina. Forsendurnar
eru að ekkert nýtt gerist í málinu, en
nú er verið að athuga ýmis úrræði til
þess að draga úr áhrifum
fiskverðshækkunar, sem er þunga-
miðjan nú,” sagði Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra um spá Þjóðhags-
stofnunar, sem gerir ráð fyrir 55%
verðbólgu að jafnaði næsta ár eins og
Steingrímur Hermannsson um verðbólguspána:
„Viljum halda áf ram
niðurtalningunni”
„Þarna er ekki gert ráð fyrir
neinum ráðstöfunum umfram þær,
sem þegar liggja fyrir. Við
Framsóknarmenn höldum okkur við
niðurtalningarleiðina og ég vona að
þær athuganir sem nú fara fram,
leiði tii þess að verðbólgan hækki
ekki aftur, neldur lækki áfram,”
sagði Sleingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra um 55%
verðbólguspá Þjóðhagsstofnunar
fyrirnæstaár.
„Næsta mál er fiskverðsá-
kvörðunin, sem er auðvitað ákaflega
stór liður í þessu. Ég skil vel afstöðu
sjómanna, sem vilja fá það sama og
fólk í landi, en ég vona að það dugi
•eitthvað minna. Við höfum notið
þess að dollarinn hefur sigið, en nú
ríkir óvissa í þeirri þróun og þjóöar-
tekjurnar gefa ekki mikið svigrúm til
kauphækkana. Það sem kaupið
hækkar umfram eykur allt
verðbólguna.” -herb.
JÓN STENPUR Un
AÐBAKIOMARI
Jón R. Ragnarsson varð öruggur
sigurvegari í rallýcrossi Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavikur á laugar-
dag. Rallýcrossið var haldið á Leir-
tjörn og sýndi Jón þar að hann stend-
ur lítt að baki bróður sinum Ómari í
ökukúnstunum. Hann hafði mikið
vald á bílnum, án þess að taka óþarfa
áhættu.
Jón keppti á Renault Alpine 5 bíln-
um, sem fært hefur þeim bræðrum
margan rallsigurinn. Tími hans var
3.38 mínútur. Annar varð Sigurður
Skagan á Fiat 131 á 4.09 mínútum og
þriðji Eyþór Birgisson á Fiat 850 á
4.16minútum.
I rallýcrossinu keppa fjórir bílar
samtimis í braut og er um hreinan
kappakstur að ræða. Pústrar sjást
tíðum og menn velta gjarnan bílum
sínum í hita leiksins. En allir bílarnir
sem þátt tóku í rallýcrossinu á laugar-
dag héldu sig þó á fjórum hjólum.
Jón S. Halldórsson fslandsmeistari
í rallýcrossi frá því í fyrra gat ekki
verið með nú, þvf vélin í bíl hans gaf
sig.
Sjö bílar tóku þátt í akstrinum. í
fjórða sæti varð Birgir Þór Bragason
á Datsun, en hann varð fyrir því í úr-
slitaakstrinum, að vírar í rafkerfí
flæktust í viftuspaðanum i bílnum. f
fimmta sæti varð Páll Grímsson á
Volkswagen, í sjötta sæti Birgir Jóns-
son á Skoda Pardus og í sjöunda sæti
Þórður Valdimarsson á Volkswagen.
-JH
DV skýrði frá í gær.
, „Það er ekkert lögmál.að sjómenn
og útgerðarmenn fái alltaf sömu
hækkanir og láglaunafólk í landi, og
það koma til greina ýmsar aðgerðir
til'þess að bæta hag sjómanna, án
þess að fiskverð hækki í sama mæli,
svo sem breytingar á skiptum
.varðandi oliugjald og Stofnfjársjóð
fiskiskipa.
Á sama tíma í fyrra spáði
Þjóðhagsstofnun 70% verðbólgu
fyrir þetta ár og þá var vandinn
miklu meiri eftir miklar launa-
hækkanir. Það er áreiðanlega hægt
að hnekkja spánni nú með þeim að-
gerðum, sem verið er að undirbúa.”
-herb.
Jón R. Ragnarsson við Renault-bílinn
væna á Leirtjöm.
DV-mynd Árni Bjarrva
HEUH
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
KJartan GunnMMOn vMI
ekkl royklngamenn.
Sjálfstæöisflokkurinn
gengst þessa dagana fyrir
happdrætti sem er i sjálfu sér'
ekki í frásögur faírandi. Mik-
ið lið var fengið tii þcss að
hringja út til þeirra sem feng-
ið höfðu miða heimsenda.
Hafði hringingarliöið aðselur
í Vaihöll og fékk inni í skrif-
stofum starfsmanna
flokksins. Segir sagan hins
vegar að Kjartan Gunnarsson
framkvæmdastjóri flokksins
hafi lánað skrifstofu sína með
því skilyrði að þangað inn
færi aðeins fólk sem ekki
reykti þvi hann vildi koma að
hreinu lofti til vinnu á
morgnana.
Pottablómafaraldur gengur
nú meöal húsmæðra borgar-
innar. Er ýmsum ráðum beilt
til þess að verða sér óti um
blóm og ekkí öllum jafnvönd-
um. Hafa opinberar stofnanir
oröiö býsna hart úti ef þær
hafa viljað lífga upp á um-
hverfiö með lifandi blómum.
sem leiö átt hiá
«ru vinicofir í
oplnberum ttöðum.
orðiö býsna fingralangir viö
að krækja sér í „afleggjara”.
Svo langt hefur þetta gengið
að á einu sjúkrahúsanna hef-
ur veriö sett upp skilti við
blómapotta þar sem á stend-
ur: „Þettaerekki afieggjari”.
áDalvík
í Degi er greint frá þvi að
trébryggja ein á Dalvik sé orð-
in mönnum þar i bæ áhyggju-
efni mikið. Eru staurarnir I
henni orðnir svo maðkétnir
að einungis virðist vera tíma-
spursmál hvenær þeir grotna
endanlega niður. Á fundi 1
hafnarnefnd Dalvíkur létu
menn hafa eftir sér aö engu
líkara væri en bryggjan stæði
uppi af gömlum vana og engu
öðru. Gaman væri ef fleira í
heimi hér hefði sömu afstöðu
til lifsins og bryggjan á Dal-
vík.
•
Auglýst eftir
flokksgæóingum
Umfangið í Sjálfstæðis-
flokknum hefur heldur aukizt
undanfarna daga með smölun
í flokkinn og að sögn þeirra,
sem bezt til þekkja, hafa á
annað þúsund manns látið
skrá sig i flokkinn — flestir til
þess eins aö geta tekið þátt í
misheppnuðu prófkjöri um
helgina.
Okkur þótti hins vegar um-
fangið vera heldur betur tekið
að færast i aukana þegar við
rákumst á auglýsingu i Mogg-
FlokkigiBflinour?
anum í gær undir titlinum
Félagsstarf Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þar var auglýst uppboð á
hestum, sem eru í óskilum.
Var þeim lýsl sem rauðstjörn-
óttum, glófextum og með
fjöður aftan hægra og fleira í
þeim dúr. Það skyldi þó
aldrei vera að hér væru á ferð-
inni flokksgajðingar, sem
ekki skiluðu sér I prófkjörlnu.
Pétur Bjömsson, Koma-
bnjarforsljóri, komlnn f
ferðabbnlssinn.
Bissnesstoppar
í ferðabransa
Enn harðnar samkeppnin i
ferðaskrifstofubransanum
eins og DV skýrðifrá í fyrra-
dag. Ný feröaskrifstofa,
ferðaskrifstofan Saga, hefur
starfsemi eftir áramótin. Þar
er stýrimaöur Jón sonur
Guðna í Sunnu og Guðni
verður aöalráðgjafi Sögu.
Guðni verður þó ekki hlut-
hafi.
Hluthafar auk Jóns Guöna-
sonar verða sex og hefur
Sandkorn komizt að þvi
hvaða menn ætla að skelia sér
í slaginn með Jóni. Þeir eru
Pélur Björnsson og Bjarni
Stefánsson í Karnabæ, Þor-
valdur Jónsson og Guðmund-
úr Ásgeirsson hjá Nesskipum,
Magnús Vigfússon prentari
og Ágúst Sigurðsson i
Stykkishólmi.
Sósíalhetjunum
hampað
Afkoma dagblaðanna er
likast til jafnmisjöfn og þau
eru mörg. Ekki mun þó neitt
launungarmál að Þjóðviljinn
hefur um langt skeið átt undir
högg að sækja.
Arlega hefur blaðið gengizt
fyrir happdrætti lil þess að
auövelda reksturinn og svo
mikið gengur á í þetta skiptið
að blaðiö lætur sig ekki muna
um að fórna rúmi á for- og
baksíðu. Er þeim skilvisustu
og þeim, er flesta miðana
kaupa, hampað sem meiri
háttar sósial-hetjum sem
leggja hvaðeina á sig til aö
málgagnið nái að komast á
götuna. Út af fyrir sig göf-
ugur hugsunarháttur en likasl
til bjargar það Þjóðviljanum
frá því að vera uppfullur af
fréttum af fólki, sem greitt
hefur miðana sína, að þeir eru
fáir sem endast tii ölmusu-
gjafa allt til banalegunnar.
Umsjón: Sigurður Sverrisson
Verkalýðsfélagið
VíkinguríMýrdal:
Styðurkröfur
Vestfirðinga um
jöfnunlífskjara
-jöfnun húshitunarkostrv
aðar og raforkuverðs
Almennur fundur, sem haldinn var í
verkalýðsfélaginu Víkingi í Vík í
Mýrdal á dögunum, lýsir yfir
eindregnum stuðningi við kröfur
Alþýðusambands Vestfjarða um
jöfnun lífskjara í landinu, svo sem með
.jöfnun á húshitunarkostnaði, raf-
orkuverði og afnámi söluskatta á
fiutningum.
í ályktun sinni bendir fundurinn
einnig á að Vestur-Skaftafellssýsla
er eitt mesta láglaunasvæði landsins
svo að þeir þættir sem fyrr voru
nefndir vega þungt um lífskjör hins al-
menna launþega. Telur fundurinn að
leiðrétting á þessum útgjaldaliðum
myndi færa íbúum þessara byggðarlaga
miklar kjarabætur.
-KMU/Kristmundur, Vík í Mýrdal.
Karl Þorsteins
tefliríRio
Karl Þorsteins, hinn ungi, snjalli
skákmaður, mun halda til Rio de
Janeiro í Brasilíu milli jóla og nýárs og
tefla þar á sterku unglingamóti sem
haldið verður dagana 1 .-21. janúar nk.
Mótið verður skipað unglingum frá
ellefu þjóðum. Ástæðan fyrir því að
Karli Þorsteins var boðin þátttaka mun
einkum vera sú að hann sigraði á
Barnaársmóti Sameinuðu þjóðanna á
Puerto Rico 1979. -KMU.