Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Page 6
6 DAGBLADIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981. Spurningin Finnast þér veður- fréttirnar í sjónvarpinu mega missa sín? Jón Sigurflsson: Nei, alls ekki. Þær mega engan veginn missa sín. Anna María ReynisdóKir: Nei, þær verða alltaf að vera á sínum stað. Otló Sturluson: Nei, ég held nú siður. Þær eru öllum íslendingum mikil nauðsyn. Árni Skarphéðinsson: Það fínnst mér ekki. Vpðurfarið er manni svo mikil- vægt. Það er alveg nauðsynlegt að fá að vita hvernig það er og verður. Kristín Bergsdóllir: Mér er nokkurn veginn alveg sama. Auflur Haralds: Nei, náttúrlega ekki. Þær eru hað eina sem ég horfi reglulega á í sjónvarpinu. Lesendur Lesendur Lesendur w. Askorun til dagblaða og sjónvarpsins: Birtiö myndirafsíbrotamönnum — svofólkgeti varað sigáþeim Frá 9 manna slarfshópi á endurskoð- unarskrifstofu í miðbænum: Við viljum þakka ykkur fyrir að birta myndina af manninum, sem framdi þetta hryllilega ódæði á stúlk- unni í Þverholti (DV 8. des. sl.). Jafnframt skorum við á fjölmiðla og sjónvarpið að birta myndir af sí- brotamönnum, því fólk á kröfu á því að geta varað sig á þeim. Hingað til hefur því verið haldið fram að taka bæri tillit til aðstand- enda þessara manna, en hvað um fórnarlömbin og aðstandendur þeirra? Haldið áfram að birta myndir, þegar sibrotamenn eiga í hlut, eða þegar afbrot eru eins svívirðileg og þetta. im----------------------► Myndin sem birtist á baksiðu DV 8. des. sl. Innfellda myndin er af Hall- grími Inga Hallgrimssyni, sem gerði hrottalega aðför að 15 ára stúlku í Þverholti, föstudagskvöldið 4. desem- ber. Um tollstjóraembættið: Óréttmætir starfshættir? Bifreiðaeigandi kvartar undan þvi, að tollstjóraembættið skuli ekki endurgreiða bifreiðagjöldin, þótt farartæki verði ónýtt og afskráð eftir fáeina daga af timabilinu. DV-mynd: Ragnar Th. Bifreiflaeigandi hringdi: Mig langar til þess að benda á ósanngirni í sambandi við innheimtu tollstjóraembættisins á bifreiða- gjöldum eðasköttum. Það er gert í upphafi hvers árs og þar er innifalið skoðunargjald og sitt- hvað annað. Verði bíll síðan ónýtur og afskráður, fæst þetta alls ekki endurgreitt, þótl bíllinn hafi kannski einungis verið notaður örfáa daga af tímabilinu. Upphæðin, sem hér er um að ræða, er að vísu ekki há, en það breytir engu um óréttmæti slíkra starfshátta. V.S. telur verð á vetrarferðum til Kaupmannahafnar vera óþarflega hátt og vill auk þess láta lengja helgar- ferðir til útlanda um einn dag. Áskorun til Flugleiða ogferðaskrifstofa: Lengið- helgar- ferðir til útlanda V.S. skrifar: Flestir, sem ég hef talað við, fagna því, að ferðaskrifstofurnar hafa tekið upp þá nýbreytni a^vera með helgar- ferðir til Norðurlanda og Luxem- borgar, að ég tali ekki um London. Flestum finnst samt að þetta æltu að vera 4-daga ferðir. Þær gætu sem bezt hafizt á fimmtudögum, þvi að vissulega er um helgarferð að ræða, þótt farið sé einum degi fyrr. Flestum finnst 3 dagar vera of naumur tími. Vonandi athuga ferðaskrifstofurnar þetta mikilvæga atriði sem mörgum finnst skipta öllu máli. Annað atriði er, að dýrast er til Kaupmannahafnar — of dýrt, að mínu áliti. Til dæmis ætti vetrarflug að vera ódýrara og allir vita að hót- elin í Kaupmannahöfn eru hálftóm á þessum tíma. Þar er hægt að fá hótel- herbergi mjög ódýrt, ef um er samið. Hótelin vilja fá gesti og verð getur farið allt niður í 100 kr. á góðu hóteli, að þeim ógleymdum sem bjóða miklu lægra verð. Ég skora á Flugleiðir, sem ég óska alls hins bezta, eins og vonandi allir íslendingar, og ferðaskrifstofurnar, að lækka nú Kaupmannahafnarferð- irnar eins og mögulegt er. Til dæmis mætti reyna þetta í tvö skipti og aug- lýsa sem tilraun. Ég er ekki í vafa um að fullskipað yrði í þær ferðir, eða nálægt því. Betra er að fljúga með marga far- þega en fáa, ekki satt? Vegna skrifa HannesarHólmsteins Gissurarsonar: „Sagnaþulur Sjálf- stædisflokksins” Gyða Magnúsdöttir skrifar: Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar um „bókmenntir” í Morgun- blaðið þ. 3. þessa mánaðar. Ber greinin yfirskriftina „Nýr og betri Stefnir” og á að fjalla um 3. tölublað (1981) rits þessa, sem Samband ungra siálfstæðismanna gcfur út. Þegar ritsmíðin er lesin koma í Ijós þvílikir sleggjudómar, að undrun sætir. Hannes heldur því nefnilega fram að lítið hafi verið bitastætt í blaðinu, nema þegar einn núverandi og annar fyrrverandi ritstjóri Morg- unblaðsins hafi ritstýrt Stefni. Einnig segir Hannes að deyfð hafi hvílt yfir starfi SUS árin 1977—1981. Gengur þessi staðhæfing þvert á staðreyndir, þar sem SUS voru þá einu samtök sjálfstæðismanna sem sýndu lífsmark. Hannes Hólmsteinn heldur sig við sama heygarðshornið alla greinina á enda og gefur mönnum persónulega einkunn sína. Hann slær botninn i tunnuna með þvi að hrósa sérstaklega þeim ritstjóra Moprgunblaðsins sem hann hafði ekki áður nefnt. Ef umfjöllun Hannes Hólmsteins um sögu Sjálfstæðisflokksins verður svona lituð hans persónulegu skoðunum, þá er betra að láta þá sögu vera óskráða. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sagnfræöingur, á ekki miklum vinsæld- um að fagna hjá Gyóu Magnúsdóttur um þessar mundir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.