Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neyter Jólaklippingin í mörgu er að snúast þessa siðustu daga fyrir jól, og minnislistinn orðinn langur. Eitt af því sem taliðer nauðsyn- legt að ekki gleymist og það er jóla- klippingin. Þorgeir Ástvaldsson, sem alltaf er á leiðinni að „fara í fríið” er einn þeirra er ákvað að lála snyrta sig og snurfusá í tæka tið. Hann brá sér á dögunum inn á Rakarastofuna við Laugaveg 178 og þar sem frægur maður var á ferð, smellti Einar Ijós- myndari af þessari mynd. Meistari staðarins, Þorberg Ólafsson, var ánægður með fyrirhyggju Þorgeirs og lét þau orð falla að vonandi kæmu fleiri í jólaklippinguna í tæka tíð eins og Þorgeir. Á nrorgun verða rakarastofur opnar til klukkan sex og næsta laugardag (19. des.) til kl. 21. Á Þorláksmessu verða rakarar svo með klippurnar á lofli fram eflir kvöldi. Eflir því sem næst verður komizt kostar herraklipping frá sjötíu krónum og allt að eitt hundrað krónum. Innifalið í verðinu er þvottur og einhver ilmefni fyrir herra. Drengja- klipping er um sextíu krónur. Þá er að bæta jólaklippingunni á minnisblaðið. -ÞG. Hinn fyrirhyggjusami Þorgeir Ástvaldsson brá sér með góðum fyrirvara í jólaklipp- inguna til Þorbergs Ólafssonar. DV-mynd-Einar Ólason. Raddir neytenda Léttverk aöbúa tilsperðla Við birtum fyrir nokkru brél' frá konu á Akureyri, þar sem hún sagði frá því, að hún byggi sjálf til sperðla, sem kallast reyndar bjúgu hér fyrir sunnan. Nú hafði samband við okkur kona i Reykjavík, sem sagðist líka hafa gerl þella árum saman. Þella væri bæði lélt verk og löðurmannlegt og ætli að vera á færi flestra. Konan sagðist yfirleill nota ærkjöt i sperðlana. Hún tekur mestu fituna frá og hendir henni, en hakkar afganginn. Í stað fitunnar setur hún svo svínaspik, sem hún sagði að gæfi miklu beira bragð. Þetta er hrærl saman með salti og pipar og ögn af kartöflumjöli. Reykjavikurkonan sagðist fyrir mörgum árum hafa keypt sérstaka plasthólka utan um sperðlana sina og dygðu þeir sér enn. En hún mundi ekki hver það var, sem seldi henni þá, aðeins að þeir voru innfluttir. Hún tróð inni- haldinu i pokana á þann hátt að hún setti sérstakt stykki framan á hakkavél- ina sína. Upp á það stykki voru síðan plasthólkarnir þræddir. Kjötinu var síðan skcllt í hakkavélina og það kom beint í pokana. Áður borgar sig samt að taka hnifinn úr vélinni. Þetta sérstaka stykki sagði hún að hefði fylgt hakkavélinni sinni. En ekki var henni kunnugt um hvorl hægt væri að fá það keypt sérstaklega. Ef ekki, má reyna að troða með höndunum einum. Að því loknu er svo tölt með sperðl- ana í reyk. -DS. Ekkihægtaðfá nýjanfiskf sjávarplássinu „Það er hálfótrúlegt, en það er mikið nýnæmi að fá hér nýjan fisk,” segir í bréfi frá húsmóður á Akranesi. „Maður á ekki völ á öðru en frosn- um fiskbitum hér i matvöruverzlunum. Fiskbúð er ekki í rúmlega 5 þúsund manna bæ.” Ja, Ijólt er, ef satt er. Ég héll að Akurnesingar væru annálaðar aflaklær í sínu plássi . Það er undarlegt með marga staði úti á landi, sem standa bókstaflega alveg við sjávarsíðuna að þar er aldrei nýr fiskur á boðstólum. Fiskinum er ekið beint í frystihús og hann frystur. Eftir það getur fólkið náðarsamlegast fengið að kaupa hann. Þá hefur verðið auðviiað hækkað og fiskurinn misst hluta af bragðinu og er ekki nærri eins safa- ríkur. Undarlegt að allir þeir alhafna- menn, sem í svona plássum búa, skuli ekki drifa upp fiskbúðir og verzla beint við skip og bála. Ég bara Irúi því ekki, að viðskiptavinir fengjust ekki nægir. DS. JÓLAHJÓUÐ SNÝST HRAÐAR OG HRAÐAR Þá er hjólið farið að snúast á fullum hraða. Hvarvetna sem Iveir koma saman heyrast hin fleygu orð . . . fyrir jól . . . fyrir jól. Verður þessu lokið fyrir jól . . .? Verður þetta til fyrir jól . . .? ... alveg áreiðanlega fyrir jól? Þessi árvissi lagstúfur hljómar sem sagt alls staðar. Auglýsingar i sjónvarpi, út- varpi og dagblöðunt slinga misjafnlega í augu og eyru, og hafa margar hverjar þau áhrif að blóðþrýstingur neytenda hækkar ósjálfrátt. Við erum minnt á að nú þurfi að baka, úr bezta fáanlega sntjörlíkinu eða hveitinu, svo að baksturinn heppn- ist. Við erum minnl á, að aðeins með þessu eina sanna hreinsiefni getunt við gert allt heimilið gljáandi spegilfagurt og aðeins þannig sé mönnum boðlegt að halda jólin og halda andlitinu. Við erum minnt á, að aldeilis frábært hljóti lífið að verða ef innihaldið í jóla- pakkanum verði akkúrat svona og alls ekki neitt annað. Hjólið snýst hraðar og hraðar eftir því sem dögunum fækkar, flestir snúast mcð og kaupa, baka, skúra og fá svima vegna snúningshraða hjólsins. Aðrir l'ara í baklás, gela einfaldlega ekki staðizt þennan hraða snúningsins eða vilja alls ekki vera þátttakendur. Þeir sem geta haldið blóðþrýstingn- um nokkurn veginn eðlileguin i önnum jólaundirbúningsins, gela frekar en hinir notið þess að líla í kringum sig og metið andrúmsloft aðventunnar. Þeir geta notið þess að finna til- hlökkunina seytla inn fyrir skinnið, og virða fyrir sér mannlífið, sem tekur heljarstökk í skamntdeginu. Þeir geta notið þess að finna ilm jólanna taka sér bólfeslu i hug og hjarta. Var það annarsekki tilgangurinn? Eða var tilgangurinn, að allar hús- mæður landsins hrapi niður úr hrein- gerningarstiganum á aðfangadagskvöld jóla og allar fyrirvinnur landsins heim- ila kaffærðust í gluggaumslögum á milli jóla og nýárs? Hver var annars upphafilegi lilgangurinn með þvi að hjólið var sett af stað? .þq. ÆVINTÝRAMAÐURINN LOFTIIR RÍKI - OG MAGNÚS BJARNFREÐSSON ÁRITA BÓK SÍNA í PENNANUM Loftur Einarsson hefurfyrir löngu fengið viðurnefhið hafði á hendi margvíslega fyrirgreiðslu fyrir íslenzka Loftur „Ríki”. Það hefur þó ekki alltaf verið sann- sjómenn á stríðsárunum, stofnaði naglaverksmiðju nejhi, þar sem fáir hafa verið snauðari af veraldlegum með Halldóri E. í Borgarnesi og tók sér sitthvaðfyrir auði en hann á köflum. En Loftur er sannarlega maður hendur, sem engum öðrum hefði dottið í hug. Frá öllu œvintýranna. Þegar þau hafa ekki komið til hans af þessu segir Loftur í bók sinni: ÞÁ LÆT ÉG SLAG sjálfsdáðum hefur hann bókstaflega leitað þeifra, og STANDA en bókin er skráð af hinum vinsæla sjón- fáir menn hafa reynt hið sama og hann. Loftur var á sín- varpsmanni Magnúsi Bjarnfreðssyni. Þeir Magnús og um tíma í iandhelgisgœzlunni en skömmu síðar var Loftur verða í bókadeild Pennans við Hallarmúla frá hann landhelgisbrjótur. Hann rak hótel á Akureyri og kl. 16.00—17.00 laugardaginn 12. desember og árita á Spáni og hvort tveggja endaði með ósköpum. Hann þar bók sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.