Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Síða 14
14 DAGBLADID & VÍSIR. FÖSTUDAOUR 11. DESEMBER 1981. HMEBlAÐWMmm ————■—1fyýálst, áháð dagblað Útgáfuféiag: Frjéia fjölmiðkin hf. Stjórnarformaflurjog útgéfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvœmdastjóri og útgáfustjórí: Hörflur Einarsson. Ritstjórar: Jónas Krisljánsson og Eliert B. Schram. Aflstoðarritstjórí: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Saomundur Guflvinsson. Auglýsingastjórar: Páll Stafánsson og Ingólf ur P. Steinsson. Ritstjórn: Siflumúla 12—14. Auglýsingar: Sfflumúla 8. Afgreiösla, áskriftir, smáouglýsingar, skrifstofa: Þverholti 11. Simi 27022. Sfmi rítstjómar 88611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerfl: HUmir hf., Sfflumúla 12. Prantun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Askríftarverfl á mánufli 100 kr. Verfl f lausasölu 7 kr. Helgarblað 10 kr. Prófraun stjómarsamstarfs í hönd fer mesta prófraun á stjórnarsamstarfið, síðan ríkisstjórnin var mynduð. í innsta hring stjórnarliðsins ríkir sú skoðun, að erfiðara verði að finna leið út úr vandanum en var á sama tíma fyrir ári. Ágreiningur milli stjórnarliða sé meiri. Efnahagsvandinn ætti þó í sjálfu sér að vera minni en var í fyrra. Þá náðist samkomulag fyrir gamlársdag, eins og alkunna er. Þjóðhagsstofnun spáir nú 55 prósent verðbólgu á næsta ári. Þetta þýddi, að óðaverðbólgan yki hraðann. Verðbólgan í ár verður rúm 40prósent. Margir forystumenn í Framsóknarflokknum fara ekki dult með, að þeir telja, að flokki sínum verði ekki stætt á að vera áfram í ríkisstjórn í vaxandi verðbólgu. Framsóknarmenn sögðu í haust, að stefna ætti að áframhaldandi minnkun verðbólgu, niður i 25—26 prósent á næsta ári. Alþýðubandalagsmenn tóku ekki undir þetta. Eftir spá Þjóðhagsstofnunar er ljóst, að vandinn er meiri en virtist í haust. Við það hafa framsóknarmenn hörfað. Þeir segjast nú munu sætta sig við 30—35 prósent verðbólgu á næsta ári. En þeir muni ekki una við 55—60 prósent verðbólgu. í spá Þjóðhagsstofnunar er ekki gert ráð fyrir neinum grunnkaupshækkunum á næsta ári. Spáin þýðir því að líkindum, að nú stefni í meira en 55 prósent verðbólgu. Vandinn var þó meiri að þessu leyti fyrir réttu ári. Þá komu fram spár um 70—80 prósent verðbólgu á árinu 1981. Einnig þá risu stjórnarandstæðingar úr sætum í þingsölum og sökuðu ríkisstjórnina um að ætla að senda þingið heim, svo að hún gæti komið fram efna- hagsaðgerðum með bráðabirgðalögum ,,í friði”. En einnig þá var ekki til samkomulag milli stjórnaraðila um neinar efnahagsaðgerðir, þegar þingmenn fóru í jólaleyfi. Þeir, sem þá stóðu í eldlínunni, lögðu nótt við dag um jól og nýár til að finna samkomulagsleiðir, svo að stjórnin gæti setið áfram. Minnstu munaði, að stjórnin spryngi. Á gamlársdag varð þó til samkomulag um aðgerðir. Það bar svip skammtima,,íeddinga”. En fyr- ir vikið hefur þó tekizt að koma verðbólgunni niður á þessu ári. Vandinn nú getur reynzt stjórnarsamstarfinu hættulegri. Svartsýnir menn í stjórnarliðinu eru farnir að tala um hugsanlegt þingrof og kosningar á næsta leiti. Aðrir stjórnarliðar halda í þá von, að enn takist að finna samkomulag, líklega eftir mikið puð um jólaleytið en hugsanlega ekki fyrr en líður á janúar. Enn megi brúa bilið eftir áramót, verði þess þörf. Kannski yrði það, eftir að flotinn stöðvaðist. Almenningurlýsti ánægju með efnahagsaðgerðir síðustu áramóta í skoðanakönnun Dagblaðsins. Greinilega höfðu flestir skilið, að aðgerða var þörf og ýmsa hagsmuni þurfti að skerða. Ein meinsemdin nú er, að margir stjórnarliðar voru farnir að hugsa með tilhlökkun til þess, að nú gætu þeir í makindum stært sig af árangri í baráttu við verðbólguna. Þess í stað er kominn upp harðasti ágreiningur frá myndun ríkisstjórnarinnar. Menn voru ekki við því búnir. Almenningur mun ætlast til þess af ríkisstjórninni, að hún hleypi verðbólgunni ekki aftur á fulla ferð Fátt varanlegt liggur eftir þessa ríkisstjórn, en óséð er, að aðrir skárri kostir séu til staðar. Haukur Helgason 0RKUIÐNAÐUR KREPPU j hópi glæsilegustu fyrirtækja okkar íslendinga eru orkufyrirtækin. Það á við um raforkuverin, hitaveit- urnar og dreifiveitur rafmagns. Þessi fyrirtæki hafa byggst upp um langt árabil en í mismunandi stórum stökk- um. Þau hafa gegnt mjög mikilvægu hlutverki í því að gera okkur betur kleift að komast í gegnum þann krappa sjó sem leitt hefur af hinni gífurlegu hækkun oliuverðs í heimin- um. Orkufyrirtæki okkar hafa og öll skilyrði til frekari uppbyggingar ef rétt er á málum haldið. Það er því alvarlegt til þess að vita að helstu orkufyrirtæki okkar eru í verulegri kreppu. Ástæða þess er mjög skammsýn stefna sem ríkt hefur hjá rikisvaldinu varðandi verðlagn- ingu á orku. Svokölluð verð- stöðvunarlög, sem hér hafa verið Kjallarinn Birgir ísl. Gunnarsson meira og minna í gildi um tíu ára skeið, hafa tekið ákvörðunarvaldið um verðlagningu orku úr höndum eigenda orkufyrirtækjanna og sett það í hendur verðlagsyfirvalda. Oft hafa ríkisstjórnir átt síðasta orðið í þeim efnum. Sjónarmið ríkisins við þessa verðlagningu hafa yfirleitt á hverjum tíma verið bundin við skammtímasjónarmið og miðast við að halda vísitölu niðri næsta vísitölu- tímabil. Hagsmunir orkufyrirtækj- anna eða orkuiðnaðarins í heild hafa þá oft verið látnir víkja. Mikil uppbygging hefur átt sér stað i orkumálum undanf^rinn áratug. Þrátt fyrir það hefur orkuverð frá stærstu orkuveitunum lækkað miðað við vísitölu byggingarkostnaðar. Afleiðingar þess eru lítil eiginfjár- mögnun en miklar erlendar lántökur í K0KDILUB0ÐI Það er ýmislegt sem okkur vantar í sveitinni. Fyrir utan þjóðleikhús, háskóla, refubú og annað smáræði skortir okkur hérna einna helst svonefnd kokdilliboð, en við höfum verið frámunalega lausir við slíkt alveg frá landsnámsmorgni til þessa dags. Það má öllum vera Ijóst hvað þetta er bagalegt fyrir afkomendur Gunnars, Grettis og Njáls, svo ekki sé minnst á afkomendur Snorra, en samkvæmt nýjum fréttum hefur Iíf hans verið eitt allsherjar kokdilli- partí með viðeigandi kvennafari i sundlaug. Ég fæ ekki betur séð en þessi boð séu okkur sveitamönnum jafn- nauðsynleg og þéttbýlisbúum og varð því harla feginn þegar mér var boðið í slíkan fagnað um daginn. Að vísu fannst mér hálf súrt að þessi skemmtun skyldi haldin í Reykjavík, en þó bætti það örlítið úr skák að hún var haldin í höfuðvígi íslenskrar bændamenningar og á þeim bar sem Að loknum samningum bætt sérstaklega. Ég hef alltaf haldið því fram í alvöru, að það ætti að semja um lágmarkslaun. Nú bregður hins vegar svo undarlega við, að hörðustu mótmælin gegn samkomu- laginu eru gegn lágmarkslaununum. Því hefur beint ogóbeint verið haldið fram, að vissar starfsstéttir fengju enga kauphækkun. Þetta er vísvit- andi blekking. við fáum öll 3,25% á alla flokka og þótti engum mikið. Hins vegar fá til dæmis þeir, sem taka laun eftir 9. launaflokki 10,9% hækkun við hvað sem þeir vinna. Þessi hækkun er of lítil, lægstu launin eru svo smánarlega lág, en þetta er þó spor í rétta átt. Vonandi verður tíminn til 15. maí notaður vel og vonandi taka menn ekki of mikið mark á hvað nú sé allt í kalda koli. Ef menn líta í kringum sig, sjá þeir auðvitað að engum dettur í hug að stöðva bruðlið, Íúxusflakkið og flott- rænisháttinn, sem við erum svo rik af. Nei, þegar á að spara er alltaf byrjað á þeim, sem minnst bera úr býtum. Gakktu um ríkisstofnanir og Þá er búið að semja — eða hvað? Sjálfsagt finnst flestum eins og mér, að hlé hafi verið gert á samningum og verkafólki gefnar nokkrar sárabætur til vorsins. Sumir eru kokhraustir að samkomulagi loknu og kenna 20 manna nefndinni um. Það er orðin tízka í verkalýðs- hreyfingunni eins og annars staðar í þjóðfélaginu að kenna öðrum um án þess að leggja til nokkur úrræði sjálfir. Það er sannleikur að stór hluti verkalýðshreyfingarinnar reyndist ckki tilbúinn til átaka á þessum árstíma. Þá var um tvennt að velja; gera bráðabirgðarsamkomulag eða að veltast í samningum í nokkra mánuði aðminnsta kosti. Hvorugur kosturinn var góður. Sá seinni þó öllu verri. Á meðan setið er við samninga gildir gamla kaupið. Dýrtiðin stendur ekki í stað. Það er sama hvort samið er um mikið eða lítið eða ekkert, alltaf dynja yfir okkur hækkanir, ekki sízt frá opinberum aðilum. Vísvitandi blekking Ég játa það, að ég var ekki of hress Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir yfir því samkomulagi, sem gert var í nóvember. Þó sé ég i því tvo Ijósa punkta. Annars vegar að samið skyldi frá fyrsta nóvember og svo hins vegar, að lægstu launin skyldu kenndur er við Mími, en ef ég man rétt var hann aðalhvatamaður og stofnandi viskubrunnsins sem nú hefur verið fluttur að Hótel Sögu góðu heilli. Þegar ég kom vestur á Sögu, eins og þeir segja i höfuðborginni, var þar fyrir múgur og margmenni og lenti ég því í erfiðleikunt með að finna húsbændurna en kokdilliglaður kunningi minn hafði sagt mér að það þætti kurteislegra að heilsa gest- gjöfum áður en maður færi að leita að konu með bakka. Eftir skamma stund kom ég auga á húsbændurna en þeir voru þá á tali, eins og símadömur segja þegar maður hringir í opinberi fyrirtæki og þarf að tala við einhvern hátt settan. Þetta kom sér afar illa fyrir mig því á meðan á talinu stóð missti ég fram hjá mér tvær bakkakonur og þegar ég komst loks að, til að taka i hendurnar á gestgjöfum, höfðu allar konur með bakka skyndilega gul'að upp og fannst mér þvi ástandið nokkuð ískyggilegt. Ég fór nú að reyna að mjaka mér innar i salinn og tókst það jafnt og þétt, þrátt fyrir ntikinn troðning, og viti menn, þegar ég var að því kominn að gefast upp á þessu rangli, sem ekkert var annað en pústrar og olnbogaskot, opnuðust skyndilega dyr rétt hjá mér og út • „! sveitinni skortir einna helst svonefnd kokdilii- boð, segir Ben. Ax. i grein sinni, og þótti honum fýsilegt að komast í eitt slíkt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.