Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Síða 22
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981.
Hvað er á seyðs um helgina
Hvað er á seyði um helgina
Plötur helgarinnar:
ÞRJÁR NÝJAR JÓLAPLÖTUR
Komnar eru á markaðinn þrjár
plötur sem helgaðar eru jólunum; eru
það Jólaboð með Hauki Morthens
sem Steinar gefa út; Fálkinn gel'ur úl
Við jólatréð með Gunnari Þórðarsyni
og fleirum og Sjálfsbjörg gefur úl
Jólaplötu Sjálfsbjargar þar sem flult
eru lög eftir Jóhann Helgason.
Á .lólaboð syngur Haukur
Morthens 13 jólalög og eru þau flest
á meðal þekktustu og vinsælustu
jólalaga okkar. Þar eru m.a. lögin
Göngum við i kringum, Hvít jól,
Snæfinnur snjókarl, Hún Þyrnirós
var bezta barn, Aðfangadagskvöld,
Jólaklukkur, Heims unt ból og Í
Betlehem. Af nýjum lögum plötunn-
ar má nefna Hans og mitt, en það lag
er samið við sálm eftir dr. Sigurbjörn
Einarsson fyrrum biskup.
Það eru meðlimir Mezzoforte sem
annasl hljóðfæraleikinn á plötunni
en auk þeirra koma blásararnir
Andrés Helgason og Þorleifur Gísla-
son einnig við sögu. Ellen Kristjáns-
dóttir syngur bakraddir og einnig
syngja þrjár ungar stúlkur, þær Nini
De Jesus, Ásta Kristjana Sveinsdóttir
og Margrét Birna Garðarsdóttir í
nokkrum laganna ásamt Hauki.
Það var Eyþór Gunnarsson sem
annaðist útsetningar og upptöku-
stjórn og Ernst J. Backman hannaði
umslagið. Upptaka fór fram í stúdíó
Stemmu.
Það eru margir sent koma við sögu
á jólaplötu Fálkans Við jólatréð. Má
þar nefna Gunnar Þórðarson, Þor-
geir Ástvaldsson, Magnús Ólafsson,
Björgvin Halldórsson, Helgu Möller
og Pál Ó. Hljálmtýsson ásml börnum
og jólasveinum.
Niu lög eru á plötunni og byrjar
platan á syrpu af vel þekktum jóla-
lögum undir heitinu Við jólatréð, þá
koma lögin Afi sem Magnús Ólafs-
son syngur ásamt barnakór, Hurða-
skellir og Stúfur, lag og texti eftir
Þorgeir Ástvaldsson og sungið af
Hurðaskelli, Stúf og barnakór.
Koma jól er sungið af Þorgeiri Ást-
valdssyni og barnakór. Þegar plöt-
unni er snúið við er fyrst Dönsum,
dönsum kringum tréð, sem þau
Helga Möller, Páll Óskar og barna-
kór syngja, þá er nýtt lag eftir Björg-
vin Halldórsson, Jólakveðjur heini,
Björgvin syngur. Jólin í Kina er nýtt
lag eftir Gunnar Þórðarson og þar
syngja þau saman Björgvin Halldórs-
son og Helga Möller. Platan endar á
annarri jólasyrpu sem einnig heitir
eftir plötutitli og eru þar einkum lög
sem ætluð eru yngstu hlustendunum.
Stjórn upptöku og útsetningu
annaðist Gunnar Þórðarson.
Í tilel'ni af ári fatlaðra hcTur Sjálfs-
björg sent frá sér jólaplötu með 11
nýjum lögum eftir Jóhann Helgason
við texta sem tengjast jólunum og gaf
Jóhann Sjálfsbjörg útgáfurétt á lög-
unum. Flytjendur eru margir, bæði
einsöngvarar, kórar og aðrir tónlist-
armenn. Platan heitir Nálgast jóla —
Lífsglöð læti.
Meðal flytjenda má nefna Harlald
Sigurðsson (Halla), Jón Sigurbjörns-
son, Signýju Sæmundsdóttur, Róbert
Arnfinnsson, Kór Langholtskirkju
og fl. Textahöfundar eru: Steingrim-
ur Thorsteinsson, Hinrik Bjarnason,
Jóhannes úr Kötlum, Þorsteinn
Erlingsson, Þorsteinn Ö. Stephensen,
Valdimar Hólm Hallstað, Ómar
Ragnarsson, Sigurbjörn Sveinsson,
Matthías Jochumsson.
Útsetningar voru í höiidum
Jóhanns Helgasonar og Sigurðar
Rúnars Jónssonar, umslag hannaði
Pétur Halldórsson.
HK
túni). Borðapantanir i sima 11690. Opið kl. 11.30—
14.30 og 18—22.30. Vínveitingar.
HOLLYWOOD, Ármúla 5. Boröapantanir i stma
83715. Matur framreiddur kt. 21—23 öll kvöld vik-
unnar. Vinveitingar.
HORNIÐ, Hafnarstræti 16. Simi 13340: Opið kl.
11—23.30. Eldhúsinu iokað kl. 21. Léttar vinveit-
ingar.
HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Ðorðapantanir I
slma 21011. Opið kl. 12—14.30 og 19—23.30. vtn-
veitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavikurflugvelli.
Borðapantanir i stma 22321: Blómasalur er opinn kl.
8—9.30 (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vínveitingar. Veitingabúð Hótels Loftleiða opin alla
dagakl.5—20.
HÓTEL SAGA við Hagatorg. Borðapantanir i
Stjörnusal (Grill) I sima 25033. Opið kl. 8—23.30.
Matur framreiddur kl. 12—14.30 og 19—22.30. Vin-
veitingar. Borðapantanir í Súlnasal í slma 20221. Mat-
ur er framreiddur föstudaga og taugardaga kl. 19—21.
Vlnveitingar.
KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Simar 12509 og
15932. Opið kl. 4 eftir miðnætti til kl. 23.30. Vínvcit-
ingar.
KRÁIN við Hlemmtorg. Simi 24631. Opið alla daga
kl. 9—22.
LAUGAÁS, Laugarásvegi 1. Slmi 31620. Opið 8-24.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR, Uugavegi 116.
Simi 10312. Opið kl. 8—21 virka daga og 9—21
sunnudaga.
NAUST, Vesturgötu 6—8: Borðapantanir I sima
17759. Opið alla daga kl. 11—23.30.
NESSÝ,’Austurstræti 22. Simi 11340. Opið kl. 11 —
23.30 alla daga.
ÓÐAL viö Austurvöll. Borðapantanir í sima 11322.
Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til fimmtu-
daga, kt. 21 —03 föstudaga og laugardaga.
SKRlNAN, Skólavörðustig 12. Simi 10848. Opiðkl.
11.30— 23.30. Léttar vlnveitingar.
VESTURSLÓÐ, Hagamel 67. Simi 20745. Opið kl.
11—23 virka daga og 11—23.30 á sunnudögum. Létt-
ar vínveitingar.
ÞÓRSCAFÉ, Brautarholti 20. Borðapantanir I sima
23333. Matur framreiddur föstudaga og laugardaga
kl. 20—22. Vlnveitingar.
KÓPAVOGUR
VERSALIR, Hamraborg 4. Simi 41024. Opiðkl. 12—
23. Léttar vinveitingar.
HAFNARFJÚRDUR
GAFL-INN, Dalshrauni 13. Simi 54424. Opið alla
daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn
veizlusalur með heita og kalda rétti og vínveitingar.
SNEKKJAN og SKÚTAN, Strandgötu 1-3. Borða-
pantanir í síma 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu-
daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og laugar-
daga. Matur er framreiddur 1 Snekkjunni á laugardög-
um kl. 21—22.30.
AKRANES
STILLHOLT, Stillholti 2. Sími 93-2778. Opið kl.
9.30— 21 virka daga og 9.30—22 laugardaga og
sunnudaga. Léttar vínveitingar eftir kl. 18.
Skemmistaðir
HREYFILSHÚSIÐ: Gömiu dansarnir laugardags-
kvöld samba, rúmba og „tsja-tsja-tsja.”
ÓÐAL: Diskötekið í umsjá Siggu, Fanneyjar og
Dóra. Bob Darch Ragrham spilari leikur á píanó lög
frá gömium og góðum dögum.
LINDARBÆR: Gömlu dansarnir iaugardagskvöld,
spor í rétta átt.
BROADWAY: Hljómsveitin Matsbox leikur fyrir
dansi í glæsilegum húsakynnum, tízkusýning og
skemmtiatriði.
SIGTÚN: Opið föstudags- og laugardagskvöld, kl.
14.30 laugardag verður spilað bingó.
ÞÓRSCAFfe: Að þessu sinni verður lokaö sunnú-
dagskvöld, en Galdrakarlarnir mæta föstudags- og
laugardagskvöld, eldhressir meö sín beztu lög.
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi
Grétar Laufdal hamast í diskótekinu.
HÓTEL SAGA: föstudags- og laugardagskvöld
hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Á Mimisbar leikur
Bob Darch á píanó. Hann leikur hressileg lög frá
gamla tímanum.
Matsölustaöurinn SKÚTAN: Opinn föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
SNEKKJAN: Föstudags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Dansbandið.
KLÚBBDRINN: Hljómsveitin Hafrót spilar sin
beztu lög, bæði föstudags- og laugardagskvöld.
Ekki má gleyma diskótekinu, þar er hægt að fá
„hristiútrás með tilheyrandi dillibossagangi”.
MANHATTAN: Opið föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Logi Dýrfjörð vcrður í
diskótekinu, hann drifur alla í dansinn. Frákl. 120
laugardagskvöld verða tilbúnir rjúkandi réttir.
Sunnudagskvöld verður tízkusýning.
laugardagskvöld verða tilbúnir rjúkandi réttir. Gra-
ham Smith kynnir plötu sína.
HÓTEL BORG: Föstudags- og laugardgskvöld
verður diskótek, en sunnudagskvöld gömlu
dansamir, hljómsveit Jóns Sigurðssonar.
LEIKHÚSKJALLARINN: Þægileg tónlist. Opið
föstudags- og laugardagskvöld.
HOLLYWOOD: Föstudagur: Þeim sem koma fyrir
kl. 12 er boðið upp á léttar veigar. Villi er í
diskótekinu. Laugardagur: Villi í diskótekinu.
Sunnudagur: Skemmtidagskrá. Kynnt verða úrslit
úr 3. riðli skemmtikraftavalsins. Módel ’79 með
tizkusýningu. Plötukynning. Villi í diskótekinu.
Matsölustaðir
REYKJAVlK
ASKUR, Laugavegi 28 B. Símar 18385 og 29355:
Opið kl. 9—24 alla daga. Vinveitingar frá kl. 18 virka
daga og allan daginn á sunnudögum.
Undir álminum, Jói og
Ofvitinn um helgina
—næsta sýning verður 10. janúar
gert Slefán Baldursson og Þorsteinn
Gunnarsson.
En í kvöld sýnir Leikfélagið leikrit-
ið Undir álminum eftir Eugene
O’Neill. Undir álminum fjallar um
mann að nafni Efraim Caboi. Hann
býr ásamt þremur uppkomnum son-
um sínum og þriðju eiginkonu sinni,
sem hann er nýkvæntur.
Ekki líður á löngu uns ástir lakasl
með yngsta syninum og ungu konu
föður hans. Samband þeirra hefur
hinar afdrifaríkustu afleiðingar i för
með sér og einmitt þær eru uppistaða
leikrilsins.
Með aðalhlutverk í leikritinu fara:
Ragnheiður Steindórsdótlir, Gísli
Halldórsson, Karl Ágúst Úlfsson,
Jón Hjartarson, Sigurður Karlsson.
Á laugardagskvöld verður leikritið
Jói sýnl í Iðnó, en það er eins og
fleslir vita eftir Kjartan Ragnarsson.
Og ennþá eru sýningar á Ofvitanum
og verður hann sýndur enn á ný á
sunnudagskvöld. Þá má minnast
miðnætursýninganna I Austurbæjar-
bíói á revíunni Skornir skammtar.
-ELA
Þá er komið að jólaleyfum leikhús-
anna. Um þessa helgi er síðasla sýn-
ingarhelgi hjá Leikfélagi Reykjavíkur
fyrir jólin og verður engin sýning þar
fyrr en 10. janúar. Þann dag heldur
Leikfélagið upp á 85 ára afmæli sitl
með því að frumflytja Sölku Völku
eftir Halldór Laxness. Leikgerð hafa
Úr leikrili Leikfélagsins Undir álminum. Ragnheiður Steindúrsdóttir og Gisli
Haltdórsson i hlulverkum sinum.
ASKUR, Suöurlandsbraut 14. Simi 81344: Opið kl.
11—23.30.
BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, við Óðinstorg. Slmi 25090:
Opið kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 á sunnu-
dögum.
ESJUBERG, Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2. Sími
82200: Opið kl. 7—22. Vlnveitingar.
HLÍÐARENDI, Brautarholti 22 (gengið inn frá Nóa-
AKUREYRI
BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22. Sími 96-
21818. Bautinn er opinn alla daga kl. 9.30—21.30.
Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og miðviku-
daga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30. Vínveit-
ingar.
HÓTEL KEA, Hafnarstræti 87—89. Sími 96-22200.
Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl. 21.45.
Vinveitingar.
Leikbrúduland styttir bömunum
stundimartiE jóla:
Sýna hátíð dýranna
og eggið hans Kiwi
fyrstu sýningar um helgina
Leikbrúðuland tekur nú til starfa
áltunda veturinn i röð. Hefjast sýn-
ingar á morgun og verða um helgar
fram að jólum. Hallveig Thorlacius
og Helga Steffensen annast sýning-
una. Sýndir verða tveir leikþættir,
Hátíð dýranna og Eggið hans Kiwi.
Helga Steffensen hefur samið tón-
list Saint Saént Carnival dýranna, að
leikþættinum Hátið dýranna. Hún
hefur einnig gert leikbrúður og tjöld.
Raddir eiga þau Bríet Héðinsdóttir,
Viðar Eggertsson og Sigriður
Hannesdóttir.
Eggið hans Kiwi er eftir Hallveigu
Thorlacius sem einnig hefur gert
brúður og leiktjöld. Helga Steffensen
og Hallveig sjá um stjórnun brúð-
anna.
Sýningar verða að Fríkirkjuvegi 11
en þar sem þegar er uppselt á sýning-
una á morgun er um að gera að flýta
sér fyrir sunnudaginn. Sýningar hefj-
ast kl. 15.00. Miðasala stendur yfir
sýningardagana og er síminn 15937.
-ELA
Leikbrúöuland er hvað þckktasl fyrir
hrúðuhilinn sem heimsækir leikvelli á
sumrin. Börnin þekkja hrúðubílinn
og Leikbrúðuland. Nú fá þau nýtl
lækifæri með brúðunum að Erí-
kirkjuvegi 11.