Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Side 36
36
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981.
Andlát
Ingi Halldórsson lézt á sjúkrahúsi
Akraness 28. nóvember. Hann var
fæddur 15. ágúst 1895 að Burstabrekku
i Ólafsfirði. Ingi var kvæntur
Guðlaugu Erlendsdóttur; þau eign-
uðust þrjár dætur. Hann lærði
bakaraiðn í Kaupmannahöfn og rak
siðan brauðgerð að Vesturgötu 14.
Síðustu árin var Ingi til heimilis að
Skúlagötu 21, Borgarnesi. Hann verður
jarðsettur í dag frá Fossvogskirkju kl.
15.00.
Karl Magnússon, Nökkvavogi 38,
Reykjavík, andaðist að morgni 9.
desember.
Kristín Guðmundsdóttir, Sólheimum
27, lézt í Borgarspítalanum 2.
desember. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
María Anna Kristjánsdóttir, Urðarstig
16 Reykjavík, lézt i Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund, miðvikudaginn 9.
desember.
Kirkjustarf
Jólavaka við
kertaljós í Hafnar-
fjarðarkirkju
Þriðja sunnud. í Aðventu, 13. des., kl. 20.30 verður
hin árlcga Jólavaka við kertaljós haldin í Hafnar-
fjarðarkirkju. Nú sem endranær verður vakan með
fjölbfeyttu sniði og mjög til hennar vandað.
Háskólakórinn, undir stjórn Hjálmars H.
Ragnarssonar tónskálds, flytur aðventu- og jólalög
og valin kórverk.
Slgurflur A. Magnússon rithöfundur heldur ræðu.
Guflrún Sigurflardóttir leikur einleik á Cello.
Margrét Pálmadóttir, sópran, syngur kirkjuleg
einsöngslög og Páll Kr. Pálsson, organisti kirkj-'
unnar, leikur orgelverk og stjórnar kirkjukórnum
sem leiðir safnaðarsöng.
Jólavakan hefur nú þegar unnið sér fastan sess á
jólaföstu í Hafnarfirði. Hún er hvort tveggja í senn
menningarviðburður og augljós vottur þess að hin
helga hátíð jóla er senn i vændum. Hún laðar fjöl-
margt í heilagt hús m eiga þar góða og hrífandi
stund.
Aðventukvöld í
Laugarneskirkju
Sunnudaginn 13. des. kl. 20.30 verður aðventu-
kvöld í I.augameskirkju.
Biskup Í-.lands, herra Pétur Sigurgeirsson verður
ræðumaður kvöldsins. Belcanto-kórinn úr Garða-
bæ syngur undir stjórn Guðfínnu Dóru Ólafsdóttur.
Kórinn flytur Kantötuna: Lobet Christen eru en
Heiland eftir Buxtehude og nokkur jólalög. Undir-
leikarar með kórnum verða Sigrún Eðvaldsdóttir,
Hildigunnur Halldórsdóttir og Sigurður Halldórs-
son ásamt organista kirkjunnar Gústaf Jóhannes-
syni sem einnig leikur einleik. Upplestur annast
Pálmi Hjartarson kennari og börn úr barnastarfí
Laugarneskirkju flytja helgileik undir stjórn
Margrétar Hróbjartsdóttur safnaðarsystur. Sam-
komunni lýkur með almennum safnaðarsöng.
Helgihald þessa dags verður að öðru leyti með
hefðbundnu sniði þ.e. barnaguðsþjónusta kl. 11 og
messa kl. 14.
Hafnarfjarðarkirkja
Jólavaka við kertaljós kl. 20.30 sunnudagskvöld,
Háskólakórinn syngur undir stjórn Hjálmars H.
Ragnarssonar. Sigurður Magnússon rithöfundur
flytur ræðu. Einleikur á selló, einsöngur og fleira.
Sóknarprestur og sóknarnefnd.
Tilkynningar
Kveikt á jólatré í Hafnarfirði
Fyrir hverja jólahátið í tæpa þrjá áratugi hafa íbúar
Frederiksberg vinabæjar Hafnarfjarðar i Danmörku
gefið Hafnfirðingum jólatré.
Bæjarstjórn Frederiksberg hefúr nú sent veglegt
tré, sem komið hefur verið fyrir á Thorsplani við
Strandgötu.
Ljós verða tendruð á jólatrénu kl. 16.00 sunnu-
daginn 13. desember nk. Danski sendiherrann,
Janus Paludan, afhendir tréð og dönsk stúlka kveik-
ir Ijósin á því. Einar I. Halldórsson bæjarstjóri veitir
trénu viðtöku.
Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar og
Karlakórinn Þrestir syngur jólalög.
Lúðrablástur
og kökusala
Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts leikur jólalög
og fleira við Glæsibæ laugardaginn. 12. desember
klukkan 15 ef veður leyfír/
Síðastliðið sumar tók lúðrasveitin þátt í afar
fjölmennu móti skólalúðrasveita í Heradsbygd i1
Noregi og hlaut þar mikið lof fyrir leik sinn. Nú geta
Rcykvikingar fengið að hlusta á lúðrasveitina og
komast i jólaskap.,
Foreldrafélag lúðrasveitarinnar mun vera með
kökusölu i Glæsibæ sama dag til styrktar ferðasjóði
sveitarinnar.
Jóla-helgarblöðin
koma út laugardaginn 19. des.
Vegna síaukins álags
í prentsmiðju eru
auglýsendur vinsamlegast beðnir
að panta auglýsingar
hið allra fyrsta.
Auglýsendurl
Við aðstoðum við gerð auglýsinga,
ykkur að
kostnaðarlausu,
og því fyrr sem við fáum
verkefni til að vinna úr, ^
því betra fyrir ykkur og okkur.
Hafiö samband!
iBIAÐIÐi
1 írjálst, úháð ríaghlað
■ AUGL
H SKRII
AUGLÝSINGADEILD SÍÐUMÚLA 8 SÍMI 27022
SKRIFSTOFA ÞVERHOLT111 SÍMI27022
I gærkvöldi I gærkvöldi
„Hún Þyrnirós var bezta
bam”- að sögn
Af dagskrá gærkvöldsins valdi ég
mér að hlusta á leikritið, Þyrnirós
vaknar, og síðan æskuljóð Baldurs
Pálmasonar. Þau fengum við ekki að
heyra, fremur en í „Mezzoforte”,
vegnatímahraks RUV.
Leikritið átti að hefjast kl. 21.10
en 35 mínútna seinkun varð á
flutningi þess. Vesalings þula mátti
láta sig hafa að biðjast „innilega” af-
sökunar á því, enda full ástæða til.
Þessu sinni var um að kenna beinu
útvarpi frá tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands.
Það er svo sannarlega fyrir neðan
allar hellur hversu illa útvarpinu —
og sjónvarpinu raunar líka —gengur
að halda sig við auglýsta dagskrár-
tíma. Erlendis tekst þetta alveg ágæt-
lega. Hvað er að hjá okkur? Kunnum
við ekki að telja, eða er það samlagnj
ingin, sem reynist svo tor-
veld? Síðan er útvarpsrás 2 sögð vera
á næstu grösum — til þes að við get-
um klúðrað henni líka, vænti ég.
Þá var það leikritið og blessunin
hún Þyrnirós. Ævintýrið er ósköp
fallegt, svo sem ævintýrum oft er
lagið, en margar eru hliðar þess, ef
grannt er skoðað. Ætla ég mér ekki
að ræða leikritið, heldur leggja út frá
því.
Óskhyggjan og raunveruleikinn er
sitt hvað. Er Þyrnirós þeim undra-
kostum búin að geta steypt sér í iðu
nútíma þjóðfélags á augabragði, eftir
„100 ára dvala”? Er nóg að vera
„ung, falleg og sérlega glæsileg
kona” sem ekki getur gert að því —
trúi því hver sem getur — að hún
hefur verið geymd „eins og skraut-
fugl í búri”?
Aldrei dytti mér til lifandis hugar
að kjósa Þyrnirós á þing; til eins eða
neins. Og aldrei myndi ég kjósa neinn
af hennar hirð, því allt kvikt innan
hallarmúranna svaf með henni. Að
mínu mati ætti þetta fólk í mesta lagi
erindi í hrotusamkeppni.
Utan hallarmúranna gekk lífið
sinn vanagang. Þegar Þyrnirós
vaknaði var hún orðin þó nokkrum
kynslóðum á eftir. En þetta var ekki
henni að kenna, því hún stakk sig á
snældunni. Þarfaþing þessi snælda
og ómissandi á hverju heimili.
Trúir nokkur heilvita manneskja
því, að karlmaðurinn hafi
„undirokað” konuna án þess að
hún, sem helmingur þjóðfélagsins,
beri nokkra ábyrgð á þeirri þróun
mála? Hvaða tilgangi þjónar það
síðan að velta okkur upp úr af-
leiðingum þess að stinga sig á
snældunni? Er ætlunin að koma í veg
fyrir að slysið endurtaki : sig? Ég er
nefnilega alls ekki viss um það. Sum-
ar Þyrnirósir róa að því öllum árum,
að prinsinn verði næsta fórnarlamb
snældunnar. Oft býr flagð undir
fögru skinni. Þetta nafn, Þyrnirós er
því dálítið fyndið.
Við skulum styðja þær konur,
sem voru utan hallarmúranna og
fylgdust með þróun tímans, en vara
okkur á nývöknuðum, „bláeygum”
preinsessum með stírurnar i
augunum. Stuðlum að jafnrétti og
vinnum að því afsanngirni. •
Franzika Gunnarsdóttir.
Jólasveinar í Hafnarfirði
Laugardagana 12. og 19. des mun JC Hafnarfjörður
standa fyrir skemmtun um allan Hafnarfjörð. Ekið
verður á 5—6 vörubílum um öll hverfi bæjarins með
lögregluna í broddi fylkingar.
Á vörubílunum verða jólasveinar, Grýla og
Leppalúði. Fyrirhugað er að stoppa á 8 stöðum víðs
vegar um bæinn og mun hljómsveitin Dansbandið
leika jólalög og jólasveinarnir syngja með, og gefa
börnum sælgæti. Um leið og ekið verðum um hverf-
in munu jólasveinarnir kynna verzlanir og fyrirtæki í
bænum sem vilja taka þátt i þessari skcmmtun, jafn-
framt sem þeir munu spila jólalög (þessi kynning fer
fram gegnum hátalarakerfi). Á hliðum vörubílanna
verða hengd stór auglýsingarspjöld sem minna
Hafnfírðinga á hinar ýmsu verzlanir í bænum JC
Hafnarfjörður hefur gengizt fyrir miklum áróðri i
þá ált að hvetja Hafnfírðinga til að verzla ailt til jól-
anna i Hafnarfirði. í þessu sambandi hefur JCH gef-
ið út og hengt upp í allar verzlanir í bænum miða
sem á stendur:
„HAFNFIRDINGAR. GERHJ JÓLAINNKAUP/N Í HAFNARfíRDF'
Síðan 1978 hefur JC Hafnarfirði gefíð út Jóla-
gjafahandbók sem inniheldur frekari kynningar á
verzlunum með auglýsingum o.fl. Mælzt er til þess
að foreldrar taki börn sín með sér i verzlunarlciðang-
urinn laugardagana 12. og 19. des. á milli kl. 13.30
og 17.00 og lofi þeim að sjá jólasveinana koma í bæ-
inn i fyrsta skiptið í ár.
Dansklúbbur
Heiðars Ástvaldssonar
Jólagleðin verður laugardaginn 12. des. að Brautar-
holti 4 og hefst kl. 21.00. Jólamatur og ýmislegt til
Ég eyöi aldrei peningunum i
neitt sem tengist hjátrú. En þar
fyrir utan er ég heldur ekki með
annað en lukkupeninginn minn
á mér núna.
Afmæli
Baháíar kynna trú sína
Bháiar verða með skuggamyndasýningu o.fl. í
félagsmiðstöðinni Fellahelli i Breiðholti, sunnu-
daginn 13. desember kl. 15.00. Allir velkomnir.
Jólamarkaður
Goðatúni 2
við Hafnarfjarðarveg í sömu byggingu og Blóma-
búðin Fjóla. Opið alla daga vikunnar frá kl. 13.00.
Sýningin tekur um 1 1/2 klst. og flytur Guðlaugur
skýringar með myndinni, en fyrir og eftir síðari
sýninguna verða veitingar á vegum hússins.
Aðgangurer40kr.
Þetta er stórmerkileg heimildarmynd sem vakið
hefur verulega athygli og ánægju þeirra er hana
hafa séð. Hún fylgir smölunum eftir dag frá degi frá
því þeir leggja upp í byggð á hestum sinum og
þangað til safnið er réttað í Landréttum viku síðar.
Milli 20 og 30 manns táka þátt i smöluninni, með
50—60 hesta.
60 ára afmæii á i dag, 11. desember,
Vilberg Skarphéðinsson, Steinagerði 4
hér í bæ. Hann er erlendis um þessar
mundir.
Guðlaugur TrygRvi Karlsson
Kvikmynd um
Landmannaleitir
Rangæingafélagið boðar til kvikmyndasýningar
föstudaginn II. desember. Þann dag verður kvik-
mynd Guðlaugs Tryggva Karlssonar, Landmanna-
leitir, sýnd í Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi
109—111 (gengiö inn að vestanverðu). Myndin
verður sýnd tvívegis þennan dag, kl. 17.00 og kl.
22.00, en húsið verður opnað kl. 16.30 og 21.00.