Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ& VfSIR. FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1981. 39 Sjónvarp Upptökur á áramótaskaupi standa nú sem hæst — Gísli Rúnarer höfuðpaurinn „Næst á dagskrá er kvikmyndin um Snorra sturlaða. . .” sagði Edda Björgvinsdóttir. Hún er sjónvarpsþula í árpmótaskaupinu tilvonandi, sem verið er að taka upp þessa dagana. Mjög samviskusöm, en dálítið tauga- óstyrk, sem ekki er að furða. Hún verður nefnilega fyrir ótrúlegustu skakkaföllum í starfi sínu. Áramótaskaupið er ævinlega það atriði i sjónvarpsdagskránni, sem beðið er með mestri eftirvætingu. Og um fáa þætti er rifist meira á eftir. Það er Gisli Rúnar leikari, sem ber aðalábyrgð á skaupinu þetta árið. Hann er leikstjóri og einn af þrem höfundum handrits. Hinir eru Randver Þorláksson og Sigurður Sigurjónsson. Gisli leikur ekki í þættinum. Það gera hins vegar Randver, Sigurður og Edda. Ennfremur þeir Bessi Bjarnason, Guðmundur Klemensson og Laddi. Hljómsveitin Galdrakarlar tekur að sér tónlistarhliðina. Vilhjálmur Guðjónsson útsetur og stjórnar. Sviðsmynd er hönnuð af Baldvin Björnssyni, en upptökustjóri er Egill Edvarðsson. -ihh. Gisli Rúnar lciðbeinir sjónvarpsþulunni (Eddu Björgvinsdóttur). Hún er með tannbursta i hægri hendi — tilbúin að fara siðustu yflrferð yfir stellið. DB-mynd Friðþjófur. FRÉTTASPEGILL-sjónvarps íkvöld kl. 21.40 Rýmkun á einkarétti til út- varps- og sjónvaipsreksturs? „Fyrir fáum mánuðum virtist enginn efast um óskoraðan rétt Ríkisútvarpsins tii að reka útvarp og sjónvarp”, sagði Guðjón Einarsson, þegar við spurðum hann, hvað yrði efni fréttaspegils í kvöld. ,,En þessi viðhorf hafa skyndilega breytzt og nú virðist mörgum sjálfsagt Nýjar bækur að rýmka þessar reglur. Við reyndum að ræða þetta mái frá ýmsum hliðum. Er eðlilegt að rýmka þennan rétt, og þá hvernig? Á að gefa ntálið algjör- lega frjálst, eða á að setja upp lands- hlutadeildir?” Guðjón sagðist mundu fá Hallgrím Thorsteinsson, fréttamann, til að liðsinna sér í þessum þætti. Hann tók fram, að þetta efnisval gæti breytzt á siðustu stundu, ef einhver óvænt stór- tíðindi gerðust. -ihh. Samtalsbók við Lek Waless Etttr Júilu Gottíi -Kltnk Fyrir fáum mánuðum virtist einkaréttur Rikisútvarpsins óskoraður... Stækkunarlampinn Samstaða nú eftir Julin Gatter Klenk Fjölvaúlgáfan hefur sent frá sér samtalsbók við pólksa verkalýðsleið- togann Lech Walesa. Höfundur bókar- innar er þýzk blaðakona, Júlla Gatter Klenk. Af einskærri tilviljun var hún stödd í sumarleyft í Gdansk I ágúst 1980, þegar hún frétti af því að verka- menn I Lenin-skipasmiðjunni hefðu byrjaðsetuverkfall. Þetta vakti forvitni hennar og hún fór á stúfana og varð fyrst vestrænna blaðamanna inn á verkfallssvæðið og átti fyrsta viðtalið við Walesa. Síðan dvaldist Júlia á staönum, deildi kjörum með verkfallsmönnum og varð náinn trúnaðarmaður Walesa. Eftirmála skrifar Haukur Már Haraldsson, fræðslufulltrúi ASÍ, um heimsókn sína til Walesa I Gdansk. Þýðandi bókarinnar er Þorsteinn Thorarensen. Hún er 208 blaðslður, prentuð I Prentstofu B. Benedikts- sonar en bundin I Arnarbergi. * | í) /\nf7 \ SUÐURLANDSBRAUT LjV *?> Ob: SÍMI 84488 - PÓSTSENDUM Veðrið Veðurspá dagsins +. * Veður verður óbreytt um alltl I land. Fyrir norðan er él og 8—101 I stiga frost en á Suðurlandi bjart og| I 6—7 stiga frost. Veðrið hér og þar I Kl. 6 i morgun Akureyri skýjað —9, Bergen I heiðskirt —14, Helsinki heiðskírt I —14, Kaupmannahöfn alskýjað 0, Osló snjókoma —9, Reykjavík I heíðskírt —6, Stokkhólmur skýjað | — 12. Kl. 181 gær Aþena léttskýjað +13, Berlín | skýjað —1, Chicago léttskýjað —2, Feneyjar þokumóða +14, Frank- furt skýjað —1, Nuuk snjókoma — f 6, London þoka —2, Luxemborg I f snjókoma —1, Las Palmas létt- skýjað +20, Mallorka hálfskýjað + 17, Montreal snjókoma —6, New York léttskýjað +2, París skýjað + 5, Róm léttskýjað +14, Malaga | |,léttskýjað +17, Vín skýjað +2, ’ Winnepeg alskýjað —6. Gengið I GENGISSKRÁNING NR. 237 - ■ 11. DESEMBER 1981 KL 09.15. lEiningkl. 12.00 Kaup Jrertim ------ mnnna S«la gjaideyrir Benderfltjadollar 8,180 Steriingspund 16,454 Kanadadottar Dönek króna Norsk króna Saensk króna Fkmsktmark Franskur franki Balg. franki Sviesn. franki HoHenxk florina V.-þýzkt mark Itötek Ifra Austurr. Sch. Portug. Escudo Spánskur peseti Japansktyen I IrsktDund SDR (aérstðk dréttarréttindi) 01/08 6,896 1,1180 1,4184 1,4752 1,8693 1,4318 0,2125 4,4437 33164 3,6347 0,00678 03180 0,1264 0,0846 0,03742 12,912 2,0621 1,5791 9,5032 8,204 9,024 15,499 17,048 6,916 7,607 1,1213 1,2334 1,4226 1,564í 1,4795 1,8274 13748 1,4360 03131 0,234- 4,4669 4,902 33282 3,658 3,6454 4,009 0,00680 0,007 0,5195 0,571 0,1268 0,139 0,0849 0,093 0,03753 0,0412 12,950 143 9,5312 Sfcnsvari vagna genglsskréningar 22180.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.