Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1981, Síða 40
íslenzkur flugmaö-
ur i fangelsi íUbýu
Þotuflugmaður hjá Arnarflugi
situr nú í fangelsi í Líbýu. Þar hefur
hann verið i um eina viku.
Ástæðan mun vera sú, eftir þvi
sem DV kemst næst , að hann ók
ölvaður á vegg.
Líbýumenn taka mjög strangt á
Kosninga-
aldur
lækkaður
um leið og þingmönnum
verðurfjöígaö Í70
Stefnt er að hví að stjómarskrár-
nefnd gangi frá tillögum um ýmsar
veigamiklar breytingar á starfsemi
Alþingis og kosningalögum, sent Al-
þingi fjalli um fyrir næstu reglulegu
kosningar. Eins og Vísir skýrði frá fyrir
tveim mánuðum er samstaða milli
stjórnmálaflokkanna um að þing-
mönnum verði fjölgað í allt að 70 og
jafnframt um að finna nýjar reglur um
úthlutun uppbótarsæta, sem komi þétt-
býlinu til góða til jöfnunar á raunveru-
legum kosningarétti.
Líkur hafa nú aukizt á samstöðu um
að Alþingi verði breytt í eina málstofu i
stað þriggja og loks um að kosninga-
aldur verði lækkaður úr 20árum í 18.
Þær breytingar sem Alþingi kann að
samþykkja fyrir næstu kosningar verða
siðan bornar undir næsta kjörið
Alþingi. Nái breytingarnar enn fram,
verður kosið á ný og þá samkvæmt
hinum breyttu lögum. -HERB.
Séra
Þórhallur
kosinn
Talningu í prestskosningu til Akur-
eyrarprestakalls lauk um klukkan 17 í
gær.
Kosningin var lögmæt þar sem 4020
af 6403 sem á kjörskrá voru, greiddu
atkvæði.
Sér Þórhallur Höskuldsson, prestur
að Möðruvöllum í Hörgárdal náði
kjöri með 2206 atkvæðum. Séra Jón
Aðalsteinn Baldvinsson hlaut 1786 at-
kvæði.
Auðir seðlar voru 27 og 1 ógildur.
Ekki er ákveðið hvenær hinn nýi
prestur Akureyringa verður settur inn í
embættið.
Vonir stóðu til að í morgun tækist að
hefja talningu til Glerárprestakalls. Þar
hefur staðið á alkvæðum frá Grímsey,
sem ekki hafa borizt sökum ófærðar.
slíkum brotum. Innfæddir geta átt
von á hörðum refsingum en
útlendingum er hins vegar sýnd
einhver miskunn. Er vonast til að
hægt verði að fá flugmanninn lausan
fljótlega gegn greiðslu fjársektar.
Utanrikisráðuneytið hefur verið
beðið um aðstoð í máli þessu. Að
sögn Þorsteins Ingólfssonar sendi-
ráðunautar er ekkert stjórnmálasam-
band milli íslands og Líbýu. Hefur
því verið farið fram á það við danska
sendiráðið að það annist fyrir-
greiðslu í máli flugmannsins.
Fjórar áhafnir Arnarflugs eru nú
úti í Líbýu. Eru tvær Boeing 707
þotur félagsins í fragtflugi frá
Evrópu til Tripóli.
Starfsmenn Arnarflugs úti vipna
að þessu máli í samvinnu við danska
sendiráðið. -KMU.i
Loðnunót skipa er engin smásmíði, enda eru skipin fljót að fylla sig, komist þau í torfu. Það er þó
e.t.v. betra að tala um slíktíþátíð, því loðnuveiðibann ríkir og menn eru uggandi um loðnustofninn.
Myndin var tekin við Reykjavíkurhöfn í gær, þegar nótin var tekin upp ár Hákoni ÞH-250. Þeir á
Hákoni náðu að fylla sinn kvóta ísíðustu veiðiferðinni, fengu alls 12.400 tonn. D V-mynd S.
Eftir næturlangan f und:
SAMK0MULAGI
BSRB-DEILUNNI
-JB.
Erlend lán til
skipakaupa
innanlands?
Tveir þingmenn Vestfirðinga, Sig-
hvatur Björgvinsson og Matthías
Bjarnason, Itafa lagt fram fyrirspurn á
Alþingi til viðskiptaráðherra um það
hvort hann hafi heimilaö erlendar lán-
tökur vegna kaupa á nskiskipum inn-
anlands. Samkvæmt heimildum DV er
tilefnið kaup Hraðfrystihúss Patreks-
fjarðar hf. á Sigurey frá Siglufirði.
Hraðfrystihúsið er eign samvinnu-
fyrirtækja og er raunar alveg nýtt. Var
það mikil fjárfesting og skipakaup
sömuleiðis. Reynis't það rétt, að erlent
lán hafi fengizt vegna kaupanna á
Sigurey og leyfi verið veitt til þess að
taka það, ntun slíkt vera nýjung í fjár-
mögnun á skipakaupum milli staða
innanlands.
-HERB.
—3,25% kauphækkun. Gildistími til 31. júlí — leiðrétting á
persónuuppbót og breytt launaf lokkaröðun
Samkomulag náðist milli samninga-
nefndar BSRB og fulltrúa ríkisins um
aðalkjarasamning á ellefta tímanum i
morgun. Höfðu deiluaðilar þá setið á
fundi i alla nótt. Samkværht upplýs-
ingum blaðsins var samið um 3,25%
hækkun grunnlauna og gildistimi
samnings er frá 1. nóvember til 31. júli.
Sem fyrr sagði höfðu deiluaðilar
setiö á fundi í alla nótt, að undangengn-
um fundi stóru samninganefndarinnar.
Þar höfðu orðið harðvitugar deilur um
samningsdrög 8 manna nefndar og
samninganefndar ríkisins.
Samkomulagið sem fyrir lá i morgun
var á grundvelli ASÍ-samningsins. Að
auki var samið um leiðréttingu á
persónuuppbót. Einnig var samið um
breytingar á röðun í launaflokka. Sam-
kvæmt þeim hækkar starfsmaður nú
um einn flokk eftir 13 ár i starfi í stað
15 ára áður.
Að loknum samningafundinum 1
morgttn, aulaði Ragnar Arnaids fjár-
málaráðii; ,t að leggja samkomulagið
fyrir rík; .stjornina til ,. ;,.þ> *ktar.
Veröur geigið til ..Jirskriftar
samnmgst i-...4ídag. -JSS.
irjálsi, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR11. DESEMBER1981.
Kærði 19 ára
piltfyrir
líkamsárás
45 ára gamall maður kærði í gær-
kvöld 19 ára pilt fyrir líkamsárás er
hann varð fyrir á Hlemmtorgi.
Mennirnir tveir voru báðir nokkuð vel
við skál en sá yngri mun hafa slegið
þann eldri i andlit. Lögreglan kom á-
vettvang og voru þó nokkrir áverkar á
manninum. Hann var fluttur á slysa-
deild, en vegna ölvunar hans var
aðgerð látin bíða þar til í dag.
Mennirnir voru því báðir fluttir í
geymslu lögreglunnar en ekki reyndist
unnt að yfirheyra þá í gærkvöld. Eldri
maðurinn mun nokkrum sinnum áður
hafa átt saman við lögregluna að
sælda. Nokkur vitni urðu að slags-
málunum og verða þau yfirheyrð í dag.
-ELA.
Akureyri:
ElduríhúsiKEA
Eldur kom upp á fjórðu hæð hússins
nr. 95 við Hafnarstræti á Akureyri um
hálffjögurleytið í gærdag. Húsið er
aðalhús KEA. Á fjórðu hæðinni var
geymsla þar sem allnokkurt rusl var
geymt. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn og urðu ekki teljandi skemmdir
áhúsnæðinu. Eldsupptök eruókunn.
-ELA.
Beinútsending
BBCá
aðfangadagskvöld
„Það hefur verið ákveðið að falast
eftir beinni útsendingu frá BBC á
aðfangadagskvöld,” sagði Hinrik
Bjarnason hjá Sjónvarpinu i samtali
við DV.
„Þetta er þáttur með jólaefni frá
einum sjö löndum, þar á meðal
Betlehem í Landinu helga. Efni þetta er
ekki hægt að fá á annan hátt og
kostnaður við það er tiltölulega lítill,
ekki meiri en við fréttir.”
Áformað er að þessi jóladagskrá
verði sýnd klukkan 21 á aðfangadags-
kvöld. Tekur útsendingin á bilinu 60 til
90minútur. -JB.
Þaö er ekki lengur hœgt að
segja um prentara og mjólk-
urfrœðinga að þeir sóu eíns
og svart og hvftt.
hressir betur.