Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 16
16 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981. DV á blaðamannafundi með Reagan Bandaríkjaforseta íWashington BROSANDIOG PÍREYGUR □NS OG ROY ROGERS Rúmum klukkutima áður en forset- inn var væntanlegur á staðinn var setu- stofan i blaðamannaklúbbnum i Washington troðfuil af fólki. Þar voru útvarps- og sjónvarpsmenn með tæki sin og tól, Ijósmyndarar með fjórar og fimm vélar hangandi framan á sér og blaða- og fréttamenn af öllum stærðum og gerðum. að standa undir ræðunni. Þetta hleypti illu blóði i suma í þvögunni: þetta end- ar með því að það verður ekkert pláss eftir handa okkur, sagði hraustlega vaxin kona með blátt hár, merkt Houston Post í bak og fyrir. Aðrir tóku undir þetta. öryggisverðirnir létu þetta sem vind um eyru þjóta og ráku fólk aftur. Fimm skref aftur á bak, hrópaði ist hvað olli bungnum. Þeir horfðu haukfránum augum yfir salinn og sýndu engin svipbrigði. Af og til sté skriffinnslegur maður í ræðupúltið og taldi: 1—2—3—4—5, 5—4—3—2—1. Það minnti mig á söguna af nýja Ijár- málaráðherranum hér, sem átti að sitja fyrir svörum í sjónvarpi. Útlit var fyrir að hljóðnemi hans væri eitthvað bilað- Reagan Bandaríkjaforseti bendir á mörk sovéskra kjarnorkufíauga í Nationa! Press Club í Washington. ur, svo hann var beðinn að telja upp að 25 og síðan aftur á bak niður að einum. — Þetta kann ég, sagði hann. — Þetta er sama prófið og ég var látinn taka áð- ur en ég varð fjármálaráðherra! Á slaginu klukkan tíu sló þögn á hópinn og valdsmannsleg rödd sagði: Herrar mínir og frúr, forseti Banda- ríkjanna. Um leið gekk í salinn, um- kringdur lífvörðum, Ronald Reagan, 40. forseti USA, sólbrúnn og sæliegur, píreygður eins og Roy Rogers og gleið- brosandi eins og Hollywoodstjarna. Allir risu á fætur og klöppuðu hraust- lega. Bláhærðu konurnar teygðu sig og reigðu til að sjá höfðingjann sem best og ég tók eftir að fjölmargir kinkuðu kolli í viðurkenningarskyni. Fattur og frískur Því er ekki að neita, að Ronald lítur vel út og ber ekki með sér að vera kom- inn yfir sjötugt. Hvergi er að sjá grátt hár á höfði hans (enda mun það vera opinbert leyndarmál í Washington að hann láti lita á sér hárið). Hann er fatt- ur og frískur að sjá, röskur i hreyfing- um og glaðlegur. Hann ávarpaði hópin stuttlega og fékk aukaklapp þegar hann gat þess að nú væri hann „einn af ykk- ur” — samkvæmt venju er forseti Bandaríkjanna félagi I blaðamanna- klúbbnum, National Press Club, og Reagan hafði fengið skírteini sitt núm- er 2907 afhent skömmu áður um morg- uninn. Það kemur ekki á óvart að Ronald er líka góður ræðumaður. Hann kann all- ar sínar replikkur, eins og góðs leikara er von og vísa, og aðeins örsjaldan leit hann niður fyrir ræðupúltið, þar sem texti ræðunnar rann eftir sjónvarps- skjá. Efnið er nú öllum kunnugt til- lögur Bandaríkjastjórnar um fækkun kjarnorkuvopna í Evrópu, þar sem fólk býr við stöðuga ógnun kjarnorkustríðs yfir höfði sér, eins og Ronald sagði. Myndavélahaglél Allan tímann á meðan Bandaríkja- forseti talaði klikkuðu myndavélarnar stöðugt. Ljósmyndararnir hafa greini- lega hlustað með sömu athygli og aðrir, því um leið og forsetinn sagði eitthvað afgerandi magnaðist „skothríðin” til muna. Og þegar hann benti með vísifingri á línurit yfir fjölgun sovéskra kjarnorkuvopna í Evrópu og kort af álfunni, þar sem sýnt var að frá kjarn- orkustöðvum Kremlverja í Úralfjöllum er hægt að skjóta kjarnorkubombum langt vestur fyrir ísland, varð mynda- vélaklikkið eins og dúndrandi haglél.i Það kom því ekki á óvart daginn eftir,1 að öll helztu blöð voru með sömu myndina — þá sömu og fylgir hér með. Ronald fór mörgum orðum um frið- arvilja Bandarikjanna og hernaðarupp- byggingu Sovétríkjanna og lýsti þvi samúð sinni með „óraunhæfum” hug- myndum nýju friðarsinnanna í Evrópu. Einhliða afvopnun Bandarikjanna og NATO kæmi ekki til greina. Forsetinn talaði um frelsi mannsins eins og póli- tíkusum á íslandi er tamt að gera á 17. júní og jólunum. Af og til varð hann hreinlega væminn eins og löndum hans er tamt — en trúa mín er sú, að enginn hafi lagt þann skilning í það nema ég sjálfur. Ronald, Roy og Trigger Það var að ntinnsta kosti ekki að sjá og heyra á sjónvarpsfréttunum um kvöldið og blöðunum daginn eftir. Ekki ómerkari pappír en Washington Post kallaði ræðuna og flutning forset- ans „meistaraverk” og hver „frétta- skýrandinn” á fætur öðrum taldi ræð- una sögulegan viðburð, eins og forset- inn sagði raunar sjálfur um hana. Ronald Reagan lauk máli sínu með þvi að vitna í John F. Kennedy heitinn forseta, sem talaði um friðinn á Alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna fyrir tuttugu árum. Ég vonast til að þjóðir heims sameinist Bandaríkjunum í að efla friðinn, sagði Ronald. Hann veif- aði nýja blaðamannaskírteininu sínu og hvarf á braut, sömu leið og hann hafði komið, vinkaði til sjónvarpsvélanna um leið og hann gekk út, rétt eins og Roy Rogers var vanur að veifa af baki Triggers i lok bíómyndanna þar sem góðu mennirnir unnu réttlátan sigur. Omar Valdimarsson Allt þetta fólk stóð og tvísté Iraman við málmleitartækin, lögregluþjóna og leyniþjónustumenn með sólgleraugu og hlustunartæki í eyranu. Innan við málmleitarhliðin — rétt eins og á fiug- völlum — voru nokkrir sterklega byggðir og vopnaðir náungar með illi- lega úlfhunda sem haldið var frá öllum upphlaupum með grönnum stálkeðj- um. Sem sagt: öryggisráðstafanir í há- marki. Þær hafa aukist til mikilla muna síðan reynt var að skjóta forset- ann hér i borginni í vor. Einn af stjórn- armönnum klúbbsins, Hugo Perez frá Guatemala, sagði síðar frá því að alla nóttina áður hefðu leyniþjónustumenn verið í húsinu með hunda og leitartól af ýmsum gerðum til að tryggja að hvergi væri að finna nokkuð — eða nokkurn — sem gert gæti forsetanum mein. Ströng vopnaleit Klukkan rúmlega níu var farið að hleypa fólki inn i salinn, þar sem for- setinn ætlaði að flytja ræðu sina. Mikil eftirvænting var í hópnum — það lá í loftinu að hér væri eillhvað merki- legt um það bil að gerast. Fyrst fóru sjónvarps- og útvarpsmenn inn, siðan Ijósmyndarar — allir þeir sem þurftu einn þeirra. Fyrr verður engum hleypt inn. Enginn hreyfði sig um tommu — þetta var eins og að vera í Breiðholts- strætó. Loks var þó almennum blaða- mönnum hleypt inn í salinn. Fyrst voru menn látnir tæma vasa sína áður en gengið var í gegnum málmleitarhliðin og tveir og tveir öryggisverðir með sex- hleypur sér við mjöðm grannskoðuðu hvert kvenveski og hverja skjalatösku. Inni í salnum, þar sem alla jafna eru haldnar veizlur og matarboð, hafði lið- lega 200 stólum verið raðað upp. Á þrjá vegu í kringum sætin höfðu sjón- varps- og útvarpsmenn komið sér fyrir í frumskógi myndavélá, rafmagnssnúra og hljóðnema. Blaðamannahópurinn var ærið mislitur — þar voru svartir, hvítir, gulir og brúnir, bláhærðar kon- ur í blómaskóm, virðulegir eldri menn með pressumerki hangandi um hálsinn, uppgjafahippar i gallabuxum, gamlir fréttahundar og villuráfandi útlendir blaðamenn. Hæfileikapróf fjár- málaráðherrans Uppi við ræðupúltið var hópur hraustlegra manna með hlustunartæki í eyrum og búlgandi jakka; engum duld- Smurbrauðstofan BJORISJINN Njálsgötu 49 — Simi 15105 $mu3S&? Norskar skíðapeysur margar gerðir dömu- og herraslærðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.