Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Blaðsíða 18
DV — HELGARBLAÐIÐ -
DF.SBMBER 1981
Venusargjörðin gefur merki
um kyntöfra þína og venusar-
hæðin lýsir þínum líkamlegu \
löngunum. Hjarta- og höfuð- 3
iínurnar sýna afstöðu þína til
kynlífs. Því breiðara sem
er á milli þeirra þeim mun
frjáisiegri ertu kynferðislega.
Samfeiid venusargjörð er
merki um ótakmarkaða kyn-
töfra og tvöföld iífiína tákn
um óseðjandi kynþörf. Makar,
gætið að, ef Hfiínan iiggur
mjög nærri þumalfingrinum,
er fuii ástæða til að halda vel á
spöðunum.
- þvíþar má lesa um
allar þínar leyndustu þrár
Nú ku vera búið að fínna upp einfalda og pottþétta aðferð til að lesa sína eigin kynþört,
hjónabandshæfíleika og viðhorf tii ástarinnar út úrþvi einu að rýna í línur lófans. Og hver
villekki vita a/tt um þaumál.
Línur lófans eru mjög mismunandi og einmrtt það veldur leyndarttómsfullri vitneskju
þeitrra. Aðallínurnar eru fjórar: Hfíínan, hjartafínan, höfuðlínan og venusargjörðin. Þær eru
a/drei eins á báðum höndum, en sú hœgri segir til um stöðu þina í dag, á meðan sú vinstri
sýnirþá möguleika sem þú átt. Fyrir örvhenta snýst dæmið alveg við.
Kynfíf
Til aö kanna kynferðislegu hliðina
skaltu beina athyglinni að tveimur
stöðum, venusargjörðinni og
venusarhæðinni.
Ef venusargjörðin er samfelld, leikur
enginn vafi á kyntöfrum þinum. Vanti:
þessa línu í lófann, virðist þennan
áhrifaþátt alveg skorta í persónuleika
þinn. Og venusarhæðin, því minni sem
hún er, þeim mun meiri erfiðleika áttu
við að stríða í kynlífinu.
Ertu feiminn I rúminu? Þessi spurning
er einföld og svarið blasir við í lófanum.
Ef bilið milli þumalfingurs og vísifingurs
á hægri hendi er stærra en á þeirri
vinstri, mun losna um allar hömlur eftir
þvi sem aldurinn færist yfir. Sé þessu
öfugt farið, verðurðu fálátari með
árunum.
Eftirmáfí
Svona mætti lengi halda áfram
Boginn litli fingur sýnir að lítið annað
þarf til að plata þig í bólið, en fallegt
andlit og lögulegan kropp. Því skýrari og
lengri sem hjartalínan er, þeim mun
rómantískari ertu og sé venusarhæðin
holdmikil og mjúk, gætirðu jafnvel
kallast þræll nautna þinna, svo miklu
máli skiptir kynlífið.
Nú, fyrir þá, sem velta vöngum yfir
hvaðan þessar upplýsingar séu komnar,
þá eru þær úr bók sem nýlega kom út í
Bretlandi um þessi mál. Ekkert er hér
fullyrt um sannleiksgildið og vonandi að
lestur þessarar greinar valdi engum
óvæntum uppgötvunum eða orsaki
dramatískar ákvarðanir.
(Þýtt og endursagt JB)
HNEFANN
STRAX...
GOÐAR ^UPPSKRIFTIRd
Súkkulaðidrykkir Krem fyrir tertur og kökur
^MEÐ MÓNU
TERTCI
HJClP
1.
1 líter mjólk
100 |r. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað saman, gott að láta aðeins sjóða,
einnig má drýgja mjólkina með vatni, salt
eftir smekk.
2.
I líter mjólk
150 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað á sama hátt og no. 1, en þeyttur rjómi
borinn með, eða látinn í hvérn bolla.
Bræðið TERTU HJÚP við vægan hita og
hrærið stöðugt í á meðan. (Ekki er nauðsyn-
legt að nota vatnsbað).
SÚKKULÍKI
500 GR.
1.
100 gr. smjör
100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt.
4 eggjarauður hrærðar út í, ein í einu og
60 gr. flórsykur, hrært vel, má þeyta.
2.
I00.gr tertu-hjúpur
2 eggjarauður
2 matsk. rjómi
2 matsk. flórsykur
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman,
bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í.
Súkkulaðibráð.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega, hrært
stöðugt í, síðan er I matskeið af smjöri
(mjúku) hrært saman við (má vera meira),
látið volgt á kökuna.
Skreytikrem.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við vægan hita,
síðan er 1/4 teskeið af vatni hrært vel
saman við. Síðan er þetta látið í sprautu
eða sprautupoka, og er þá tilbúiðti! skreyt-
inga, látið ekki bíða.
mona
SÆLGÆTISGERÐ
STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIRÐI
SlMI 50300 - 50302
Mynd4