Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Qupperneq 25
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981.
25
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
sambýlishúsi ásamt mömmu sinni og
pabba. Mamma vinnur í kjólabúð,
pabbi er kennari, Jóakim er hræddur,
því krakkarnir í götunni eru stundum
vondir og Sara segir honum frá ýmiss
konar hryllilegum alburðum sem eiga
að hafa gerst ihúsinu.Og svo er Jóa-
kim hræddur við náttfuglana svörtu
og vondu í klæðaskápnum.
Náttfuglarnir er 124 blaðsíður.
Prentrún prentaði.
Jörvagleði
eftir Guðmund Halidórsson
Bókaútgáfan örn og örlygur hf.
hefur gefið út skáldsöguna „Jörva-
•gleði” eftir Guðmund Halldórsson frá
Bergsstöðum. Guðmundur er löngu
landsþekktur rithöfundur og hafa
áður komiö út eftir hann bæði skáld-
saga og smásagnasöfn. Siöasta skáld-
saga hans á undan þessari var „Þar
sem bændurnir brugga i friði”, en
hún kom út árið 1978.
í Jörvagleði fjallar Guðmundur um
umbrotatfma i íslensku sveitalífi og
þau nýju viöhorf, sem skapast þegar
stóriðja og stórvirkjanir kpma til um-
ræðu og álita. Þessi mál eru nú mjög
ofarlega á baugi á íslandi og sýnist
sitt hverjum, rétt eins og söguhetjun-
um í Jörvagleði.
Bókin Jörvagleði er sett og um-
brotin hjá Leturvali sf., filmuunnin
hjá Formi sf., prentuð hjá Prenttækni
hf. og bundin hjá Arnarfelli hf.
Káputeikning er eftir Pétur Haildórs-
son.
Flökkulff
œskusaga Hannesar Sígfús-
sonar
Iðunn hefur gefið út bókina „Flökku-
líf”, sem er æskusaga Hannesar Sig-
fússonar skálds. Hann er eitt af helstu
ljóöskáldum sinnar kynslóðar og
hefur gefið út fimm ljóöabækur með
frumortum ljóðum. Auk þess hefur
hann þýtt stórt safn norrænna nú-
timaljóða og eina bók í óbundnu
máli hefur hann gefið út, skáldsöguna
Strandið.
Flökkulif greinir frá æskuárum höf-
undar. Sagt er frá æsku- og uppvaxt-
arárum hans í Reykjavík, fjölskyldu-
högum þar sem á ýmsu gengur, enda-
sleppri skólavist og fjölbreytilegri
æskureynslu. Hannes varð skálda
yngstur til aö lesa úr verkum sínum í
útvarp, og litlu síðar hélt hann til
Noregs til að læra refarækt.
Um bókina segir í forlagskynningu:
„Hannes varð eitt helsta skáldið í hópi
þeirra, sem nefnd hafa verið atómskáld
og frásögn hans er fróðleg um mótun-
arár þeirra höfunda, sem báru fram
nýjan ljóðstíl í bókmenntunum undir
miðbik aldarinnar.”
Don Kfkóti
eftir Cervantes
Út er komið hjá Almenna bókafélag-
inu 1. bindið af Don Kikóta eftir
Cervantes Saavedra i þýðingu Guö-
bergs Bergssonar rithöfundar.
Leiðangrar þeirra tvímenninga víðs-
vegar um Spán hafa siöán haldið áfram
að vera frægustu feröir heimsins og
ennþá er sagan um þá Don Kikóta og
Sansjó Pansa aðalrit spænskra bók-
mennta. Er þvf vonum seinna aö fá
þetta sigilda rit út á islensku.
Don Kikóti er upphafsrit i nýjum
bókaflokki sem Almenna bókafélagið
er að hefja útgáfu á. Nefnist hann Úr-
valsrit neimsbókmenntanna og má ráöa
af nafninu hvers konar bækur forlagið'
hyggst gefa út í þessum flokki.
Þetta fyrsta bindi af Don Kikóta er
206 bls. aö stærð og er unnið i Vikings-
prenti og Félagsbókbandinu.
Sunnlenskir
sagnaþættir
— frósagnir frá liðinni tíð
Frá Hildi er nýkomin bókin Sunnlensk-
ir ‘rgnaþættir, en í henni er safn frá-
sagna frá liðinni tíð, skrifað af ýmsum
þekktum höfundum frá fyrri tímum.
Af frásögnum í bókinni má nefna:
Skipsströnd, þjóðlífsþætti, náttúru-
hamfarir, sagnaþætti, einkennilegir
menn, þættir af Kambsráni, þjóö-
sagnaþættir o.fl. Bókin er skreytt
teikningum.
Áætlað er framhald af þessum bóka-
þáttum, er ná muni yfir allt landið.
Verða þá teknir fyrir hver landsfjórð-
ungur fyrirsig.
er örlaga saga tveggja einstaklinga, en hún er
ekki síður þjóðlifssaga, skrifuð til að sýna,
hversu ríkur þáttur ástin var í lífi þjóðarinn-
ar í fábreytni og fásinni fyrri tíma eða eins og
segir á einum stað í bókinni:
Hvert gat fólkið flúið í þennan tíma undan
tstinni? Ekki í ferðalög, skemmtanir, aðra
atvinnu né hugsjónir. Það bjó með ástinni og
hafði engin ráð til að
sár, stundum vildi það ekki eyða henni, þó
hún væri sár, hún var það eina sem það átti.
Ef hún á hinn bóginn var lukkuð, þá varð hún
lífsfylling í baslinu og fyllti kotið unaði.
Hinn sæli morgun, er ekki hefðbundin ástar-
saga, hún er annað og meira.
Verð kr. 197,60
ÞJÓÐSAGA
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510