Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 31
DAGBLAÐIÐ &VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981.
31
Smáauglýsingar
Nýjar bækur
Ferðadiskótekið Rocky auglýsir:
Já, þið vitið að þar sem Rocky leikur er
fjörið mest og tónlistin ávallt bezt,
ásamt því sem diskótekinu fylgir
skemmtilegur og fullkominn ljósabúnað-
ur sem hentar vel fyrir hvers kyns tón-
leika- og skemmtanahald. Sem sagt til
þjónustu reiðubúið fyrir ykkur, dans-
unnendur, hvenær sem er. Grétar Lauf-
dal sér um tónlistina. Upplýsingasíminn
er 75448.
Diskótekið Dollý.
býður öllum viðskiptavinum sínum 10%
afslátt fram á „þrettánda” dag jóla um
leið og við þökkum stuðið á árinu sem er
að líða í von um ánægjulegt samstarf í
framtíðinni. Allrahanda tónlist fyrir
alla, hvar sem er, hvenær sem er. Gleði-
leg jól. Diskótekið Dollý, simi 51011.
Diskótekið Donna
býður upp á fjölbreytt lagaúrval við allra
hæfi. Spilum fyrir félagshópa, skólaböll,
árshátíðir, unglingadansleiki og allar
aðrar skemmtanir, erum með fullkomn-
asta ljósasjó ef þess er óskað,
Samkvæmisleikjastjórn. Fullkomin
hljómtæki, hressir plötusnúðar sem
halda uppi stuði frá byrjun til enda.
Uppl. og pantanair í síma 43295 og
40338 á kvöldin en á daginn í síma
74100.
Jólasveina- og söngvaþjónusta.
Útvegum jólasveina og tónlist fyrir jóla-
trésskemmtanir, stærri og smærri.
Vinsamlegast pantið tímanlega, fjöldi
jólasveina og tónlistarmanna eftir
óskum yðar. Uppl. í símum 66650 og
66684.
Diskótekið Dísa.
Elzta starfandi ferðadiskótekið er ávallt í
fararbroddi. Notum reynslu, þekkingu |
og áhuga, auk viðeigandi tækjabúnaðar,
til að veita 1. fl. þjónustu fyrir hvers
konar félög og hópa er efna til dans-
skemmtunar sem vel á að takast.
Fjölbreyttur ljósabúnaður og sam-
kvæmisleikjastjórn, þar sem við á, er
innifalið. Diskótekið Dísa. Heimasími
66755.
Tökum að okkur
einangrun á kæli- og frystiklefum, svo
og viðgerðir á þakpappa, einnig nýlagnir
á þakpappa í heitt asfalt. Pappalagnir sf.
Uppl. í síma 71484 og 92-6660.
Glugga- og hurðaþéttingar.
Tökum að okkur að þétta opnanlega
glugga, úti- og svalahurðir með innfræst-
um þéttilistum. Varanleg ending. Uppl. i
síma 39150.
2 málarar geta bætt við sig
verkum fyrir jól, vandvirknir menn
tímavinna eða tilboð Uppl. 1 síma 23017
og 29275 eftir kl. 17.
Verktök vantar þig aðstoð.
Tek að mér allskonar smærri verkefni,
og handtök fyrir einstaklinga, fyrirtæki
og stofnanir, sími 11595.
Tökum að okkur
að hreinsa teppi í íbúðum, stigagöngum
og stofnunum, erum með ný, fullkomin
háþrýstitæki með góðum sogkrafti,
vönduð vinna. Leitið uppl. í síma 77548.
Tökum að okkur
alls kyns trésmíðavinnu úti sem inni.
Uppl. í sima 22681. Geymið auglýsing-
una.
Takið eftir:
Ef þið hafið vandamál út af læsingum,
bíla-, húsa-, peningaskápa-, hringið þá í
síma 86315 og ég mun leysa þann vanda
á ódýrasta og hagkvæmasta hátt sem völ
er á. Geymið auglýsinguna. Er einnig
við um helgar, Guðmundur H. Jónsson.
Athugið að læsingar eru dýrar í dag og
það sem þið teljið ónýtt er ekki ónýtt
mínum höndum. Breyti einnig kerfum.
Þjónusta
Hreingerningar
Hreingerningaþjónusta
St^fáns Péturssonar tekur að sér hrein-
gerningar á einkahúsnæði, fyrirtækjum,
heimilum og stofnunum. Menn með
margra ára starfsreynslu. Sími 11595.
Hrein jól.
Tökum aö okkur hreingerningar á
íbúðum og fyrirtækjum, 13 kr. á fm.
Uppl. í síma 15785 og 23627.
Þrif, hreingerningaþjónusta.
Tek að mér hreingerningar og gólfteppa-
hreinsun á íbúðum, stigagöngum og
stofnunum, er með nýja háþrýstidjúp-
hreinsivél og þurrhreinsun fyrir ullar-
teppi ef með 'þarf, einnig húsgagna-
hreinsun. Vanir og vandvirkir menn.
Uppl. hjá Bjarna í síma 77035.
Utbeining — Útbeining.
Tökum að okkur útbeiningu á naula-
folalda- og svínakjöti. Hökkum, pökkum
og merkjum. Utbeiningaþjónustan,
Hlíðarvegi 29., sími 40925 milli kl. 19 og
!21, einnig í símum 53465 og 41532.
Blikksmiði.
Önnumst alla blikksmíöi, t.d. smíði og |
uppsetningu á þakrennum, þakköntum,
ventlum og fleiru, einnig þröskuldahlífar |
og sílsalistar á bifreiðir. Blikksmiðja
G.S.,sími 84446.
Múrverk flisalagnir, steypur.
Tökum að okkur múrverk, fl.salagnir,
viðgerðir, steypur, nýbyggingar. Skrif-
um á teikningar. Múrarameistarinn,
sími 19672.
Píanóstillingar
fyrir jólin. Ottó Ryel. Sími 19354.
ALFRED SHEINWOLD
stytt leið til
vinnings, _
bridge 15
íslenska brldgesafnld*2
Stytt leið til
vinnings bridge
eftir Alfred Sheinwold
„Stytt leið til vinnings bridge” er eft-
ir hinn heimsfræga bridgespilara og rit-
höfund, Alfred Sheinwold, í þýðingu
Sigurjóns Þórs Tryggvasonar. í bók-
inni tekur Sheinwold hundrað atriði í
bridge fyrir í hundrað og einu spili og
hann kemur beint að kjarna þess
vanda, sem fyrir hendi er. 20 spil eru
um útspil í grandi, 20 um útspil í lit, 20
um varnarspil, 20 um blekkibridge og
20 fjalla um sagnavandamál.
Utgefandi er íslenzka bridgesafnið.
Nýjar bækurGordon Stowell.
Skjaldbökubækurnar heita: Allra
fugla fremstur, Bjalla bætir ráð sitt,
Broddi og boðorðin, Leyndardómur
Kalla, Speki Salómons og Stökkfimur
snýr aftur.
Bækurnar eru gefnar út í samvinnu
við Angus Hudson í London. Setning
texta fór fram hérlendis en prentun
þeirra í Bretlandi í samvinnu margra
þjóða.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Ég er alkohólisti
Gólfteppahreinsun — hreingerningar.
Hreinsum teppi og húsgögn i íbúðum og
stofnunum með háþrýstitækni og sog-
afli. Erum einnig með sérstakar vélar á
ullarteppi. Gefum 2 kr. afslátt á ferm.
tómu húsnæði. Erna og Þorsteinn sími
20888.
Hreingerningarfélagið Hólmbræður.
Unnið á öllu Stór-Reykjavlkursvæðinu
fyrir sama verð. Margra ára örugg þjón-
usta. Einnig teppa- og húsgagnahreins-
un með nýjum vélum. Símar 50774,
51372 og 30499.
FILIVIUR QG VELAR S.F.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
Ég er alkóhó-
listi
eftir Ragrtar Inga
Aðalstein
Ljóðhús hefur sent frá sér ljóðabók-
ina ,,Ég er alkóhólisti” eftir Ragnar
Inga Aðalsteinsson frá Vaðbrekku.
Þetta er þriðja bók höfundar, áður
hafa komið út „Hrafnkela” og „Undir
Hólmatindi”.
„Ég er alkóhólisti” skiptist í þrjá
þætti. Fyrst er Reynsla, síðan koma
Spor, og að lokum Ganga.
Bókin er 48 blaðsíöur að stærð,
káputeikningu gerði Þorbjörg
Höskuldsdóttir. Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði.
Ef hátt lét í
straumnið
Héraðsvatna
Á vegum Iðunnar er komin út bókin
„Ef hátt lét í straumnið Héraðsvatna”.
Minningar, þættir og brot. Höfundur
er Ólína Jónasdóttir (1885—1956).
Ólína var Skagfirðingur að uppruna og
ól allan aldur sinn í Skagafirði. Hún
bjó á Sauðárkróki síðari hluta æv-
innar. Ólína sendi frá sér bókina „Ég
vitja þín æska” árið 1946.
Minningar sínar skráði Ólína í næsta
Nýjar bækur
ÓLÍNA JÓNASDÓTTIR
sjálfstæðum þáttum, frásögnum af
mönnum og mannlífi. Þó eru i sfðara
handríti hennar veigamiklir viðaukar
um Kúskerpi, þar sem hún dvaldist all-
mörg ár í æsku, og Laxamýri í Þing-
eyjarsýslu, en þar var hún um skeið, og
hafa þeir verið felldir að fyrri frásögn.
Broddi Jóhannesson og Frímann
Jónasson önnuðust útgáfu bókarinnar.
Bókin er 200 blaðsíður, prýdd
myndum. Oddi prentaði.
Kristjana F.
Dýragarbs
börnin
Dýragarðsbörnin
eftir Kristjönu F
Fjölvaútgáfan hefur sent frá sér bókina
„Dýragarðsbörnin”, sem tveir þýzkir
blaðamenn. Horst Riec og Kai
Hermann skráðu eftir frásögn ungrar
stúlku, Kristjönu F. Bókin heitir á
frummálinu Die Kinder von Bahnhof
Zoo og kom fyrst út 1979 og vakti
mikla athygli.
í bókinni ræðir stúlkan opinskátt um
þá ógn og þjáningu eiturlyfjahætt-
unnar, sem vofir yfir nútímaæsku.
Hún bendir á hve værukær og afskipta-
laus stjórnvöld eru — þau vilja helzt
ekkert vita af þessum vanda og
bregðast þannig skyldum sinum.
Dýragarðsbörnin er frásögn
Kristjönu F. af því hvernig hún leiddist
niður í þjáningu, hvernig umhverfi,
félagsskapur og einkennilegt stolt dró
börnin fram á glötunarbarm. Inn á
milli koma kaflar með viðhorfum
móður hennar og ýmissa annarra.
Dýragarðsbörnin er um 260 blaðsíð-
ur, með fjölda mynda. Þýðandi er Sól-
veig Thorarensen. Hún er unnin í
prentsmiðjunni Odda hf.
BOKun var sett i prentsmiðjunni
Ásnin, prentuð í Skemmuprenti og
bundin hjá Nýja bókbandinu.
Vigcflís forseti
eftir Guðjón Friðriksson
og Gunnar Elísson
Bókaútgáfan Örn og örlygur hf.
hefur gefið út bókina Vigdís forseti —
Kjör hennar og fyrsta ár í embætti,
eftir Guðjón Friðriksson og Gunnar
Elísson. Er hér um að ræða aukna og
endurbætta útgáfu bókarinnar
„Forsetakjör” sem Bókaútgáfan örn
og Örlygur gaf út í fyrra, en sú bók
seldist þá upp á skömmum tíma og
hefur verið ófáanleg síðan.
Bókin Vigdís forseti kemur einnig út
á ensku og ber enska útgáfan heitið:
President Vigdís — Her Election and
First Year in Office. Þýðinguna önn-
uðust Sonje Diego, Paul Richardson og
Bogi Ágústsson.
í bókinni er fjallað ítarlega i máli og
myndum um hinn sögulega viðburð er
Vigdís Finnbogadóttir var kjörin for-
seti íslands 29. júní 1980, en hún var
jafnframt fyrsta konan sem kjörin var
þjóðhöfðingi í lýðræðislegri kosningu,
og vakti kjör hennar heimsathygli.
Bókin skiptist i átta kafia: Forseta-
embættið; Kosningabaráttan; Kosning-
arnar; Viðbrögð: Æviágrip; Embættis-
takan; Hrafnseyrarhátíð og Fyrsta
árið. Er síðasti kaflinn viðbót við fyrri
útgáfuna og er þar fjallað um fyrsta
starfsár Vigdisar Finnbogadóttur í for-
setaembættinu. Þar er m.a. greint frá
heimsókn Vigdisar Finnbogadóttur til
Danmerkur, sögulegum blaðamanna-
fundi hennar og Margrétar Dana-
drottningar í Hótel Skandinavíu, frá
ferðalögum Vigdísar innaniands, m.a.
um Dalasýslu, Strandasýslu, Þingeyjar-
sýslu og Eyjafjörð og eru fjölmargar
myndir, bæði litmyndir og svart-hvitar
myndir frá þessum ferðum forsetans.
Bókin Vigdís forseti — Kjör hennar
og fyrsta ár í embætti er sett, umbrotin,
filmuunnin, prentuð og bundin i
Prentsmiðjunni Odda hf.
Benni
eftir Einar Loga Einarsson
Skemmuprent hefur gefið út
unglingasöguna „Benni” eftir Einar
Loga Einarsson. Þetta er fjórða barna-
og unglingabókin eftir Einar Loga, auk
þess sem margar sögur eftir hann hafa
verið fluttar i útvarpi og birzt í blöðum
og tímaritum.
Um efni bókarinnar segir meðal
annars á bókarkápu:
Erla er fráskilin móðir með Benna,
tiu ára son sinn. Hún ræður sig til
Djúpafjarðar sem ráðskona hjá Jónasi,
sem er ekkjumaður og á einnig son,
Jonna, tíu ára. Benni og Jonni verða
mestu mátar. Þetta er bók um knáa og
kappsama stráka, svolitla prakkara, en
græskulausa og gamansama.
Káputeikning er eftír Sigriði Péturs-
dóttur.
Ævintýraheimar
Viðrœðusagnasafn Sigurðar
Gunnarssonar .
ísafoldarprentsmiðja hefur nú sent
frá sér aðra bókina i viðræðusagna-
safni Sigurðar Gunnarssonar fyrrver-
andi skólastjóra. Nefnist hún
Ævintýraheimar. Ræðir frændi þar
einkum við börnin um villtu spendýrin
á heimaslóðum hans og segir ýmsar
sögur í sambandi við þau.
Forlagið telur að hér sé um að ræða
einkar athyglisvert viðbótarlescfni í
náttúrufræði til ánægju, fróðleiks og
samræðna milli kennara, foreldra og
nemenda á grunnskólastigi og vill vekja
sérstaka athygli skólastjóra, kennara
og skólabókavarða á því,
Ævintýraheimar er 152 blaðsíður i
stóru broti með fjölda mynda. Kápu-
mynd og ýmsar myndir í lesmáli gerði
Bjarni Jónsson listmálari.