Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Blaðsíða 36
36
DAGBLAÐIÐ &VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Ævi Ingrid Berg-
man
Alan Burgess skráði
Rauðskinna hefur gefið út bókina
„Ingrid Bergman — ævi leikkonu.”
Það er Alan Burgess sem skráir ævi-
sögu Ingrid Bergman, en Guðni Kol-
beinsson íslenzkaði.
Ingrid Bergman er ein mesta leik-
kona okkar tíma. Hún hefur þrivegis
hlotið óskarsverðlaun á ferli sínum,
auk fjölmargra annarra verðlauna og
viðurkenninga. Þegar hún hefur leikið
á sviði, hefur hún að jafnaði hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda.
Ævi leikkonu segir sögu Ingrid Berg-
man hreinskilnislega og undan-
bragðalaust. Lesandinn fær að skyggn-
ast inn í heim stjörnunnar og sjá kon-
una, sem þar býr.
Bókin er 475 blaðsíður og prýdd
fjölda mynda. Prentsmiðja Hafnar-
fjarðar prentaði.
íslenskir nátt-
úrufræðingar
eftir Steindór Steindórsson
frá Hlööum
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur
_gefið út ritið íslenzka náttúrufræðinga
'eftir dr. Steindór Steindórsson frá
Hlöðum, en það hefur að geyma yfirlit
um lif og störf átján íslenskra náttúru-
fræðinga sem allir voru brautryðjendur
hver á sínu sviði allt frá 16. öld og fram
á 20. öld. Inngangur bókarinnar fjallar
um frumherjana Odd Einarsson
biskup, Gísla Oddsson biskup, Jón
Guðmundsson lærða og Þórð Þorkels-
son Vidalín rektor. Síðar koma ritgerð-
ir um náttúrufræðingana Eggert Ólafs-
son skáld, Bjama Pálsson landlækni,
Ólaf Olavius, Svein Pálsson lækni,
Odd Hjaltalín lækni, Jónas Hallgrims-
son skáld, Benedikt Sveinbjarnarson
Gröndal skáld, Þorvald Thoroddsen,
Ólaf Davíðsson fræðimann, Stefán
Stefánsson skólameistara, Bjarna
Sæmundsson fiskifræðing, Helga
Jónsson grasafræðing, Helga Pjeturs
jarðfræðing og Guðmund G. Bárðar-
son jarðfræðing. Hverri ritgerð fylgir
skrá um helstu heimildarrit.
Bókin gefur glögga hugmynd um
þróun hinna ýmsu greina náttúrufræð-
anna á umræddu skeiði, auk þess sem í
henni er að finna rnikinn fróðleik um
líf og hagi íslendinga fyrr á tímum. Rit-
ið er aðgengilegt aflestrar en veitir jafn-
framt leikum sem lærðum merka inn-
sýn í náttúruvísindin sjálf.
íslenzkir náttúrufræðingar er 339
bls. að stærð. Bókin er sett, prentuð og
bundin í prentsmiðjunni Odda.
Kamelíufrúin
eftir Alexander Dumas
Sögusafn heimilanna hefur gefið út
bókina „Kamelíufrúin” eftir Alexand-
er Dumas, í þýðingu Karlsísfeld.
Fyrir nokkrum árum hóf Sögusafn
heimilanna útgáfu á bókaflokki undir
heitinu Grænu skáldsögurnar. Þetta er
sígildar skáldsögur, sem margar hverj-
ar hafa komið út áður en eru nú ófáan-
legar í upprunalegri útgáfu. Alls eru
komnar út 12 bækur i þessum bóka-
flokki.
Kamelíufrúin er 180 blaðsíður að ‘
stærð. Hólar hf. prentaði.
Þjóðsögur og
þættir
í samantekt Einars
Guömundssonar
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði,
hefur gefið út bókina Þjóðsögur og
þættir, I. bindi, í samantekt Einars
Guðmundssonar kennara.
Einar Guðmundsson, skrásetjari
þessa safns, er einn afkastamesti maður
á síðari tímum við söfnun sagna og
varðveizlu þjóðlegs fróðleiks hvers
konar. Þjóðsögur og þættir verða tvö
væn bindi, heildarútgáfa áður prent-
aðra sagna Einars, sem út komu í átta
misstórum heftum og hafa verið ófáan-
leg um langt skeið á almennum bóka-
markaði. í þessu fyrra bindi heildarút-
gáfunnar eru íslenzkar þjóðsögur, sem
upphaflega komu út I fimm heftum, en
í siðara bindinu verða sagnaheftin
Gambateinar, Nýtt sagnakver og Dul-
heimar.
Hér er að finna hið fjölbreytta úrval
þjóðlegs fróðleiks í bundnu og óbundu
máli, sagna og kveðskapar, sem lifað
hefur á vörum fólksins í landinu, sumt
um langan tíma, annað skemur. Margt
er hér sagna af Vestfjörðum og úr Ár-
nes-, Rangávalla- og Skaftafellssýslum,
en minna annars staðar frá, enda þótt
sögur og sagnir séu af nánast hverju
Iandshorni.
Þjóðsögur og þættir I var sett og
prentuð í Steinholti hf. og bundin í
Bókfelli hf. Kápu gerði Auglýsinga-
stofa Lárusar Blöndal.
Minnisverð tíöindi 1551-1600
öldin sextánda
—sfðara bindi
Hjá Iðunni er komið út seinna bindi
„Aldarinnar sextándu—minnisverð
tíðindi 1551 —1600”. Jón Helgason rit-
stjóri tók saman. Jón lauk handriti
bókarinnar fáum vikum áður en hann
lézt á síðasta sumri, og varð það siðasta
ritverk hans. Bindi í flokknum eru nú
orðin alls ellefu talsins.
Síðara bindi Aldarinnar sextándu
fjallar um þann tíma, sem hinn
lútherski siður er að festa sig í sessi í
landinu, eftir að mótspyrna kaþólskra
kirkjuhöfðingja hafði verið brotin á
bak aftur með aftöku Jóns biskups
Arasonar og sona hans. í bókinni segir
margt af athöfnum frömuða þjóðarinn
ar meðal siðaskiptahöfðingja. Ber þar
hæst Guðbrand biskup Þorláksson,
sem sat á biskupsstól síðasta aldar-
þriðjung sextándu aldar og fram á
þriðja tug hinnar sautjándu.
Mikill fjöldi mynda er í Öldinni
sextándu, ýmsar þeirra harla fáséðar.
Bókin er 233 blaðsiður. Oddi hf. prent-
aði.
Yves frændi —
íslandssjómaður
eftir Jacques Dubois
Út er komin á vegum Steinholts og
Iðunnar bókin „Yves frændi — ís-
landssjómaður”. Höfundur er Jacques
Dubois, en bókina skráði hann eftir
frásögn Yves le Roux, gamals sjó-
manns í Paimpol á Bretagneskaga á
Frakklandi. Hann stundaði forðum
veiðar í íslandsmiðum.
Bókina um Yves frænda þýddi Jón
Óskar en Vigdís Finnbogadóttir ritar
formála. Um bókina kemst hún svo að
orði:
„Þessu bók sem hér hefur verið þýdd
af frönsku á íslensku er, auk þess að
vera merk ævisaga einstaklings, drjúgt
heimildarrit um siglingar Frakka á ís-
landsmið og samskipti þeirra við ís-
lendinga á siðasta skeiði 500 ára
siglingasögu.”
í bókinni er fjöldi gamalla ljós-
mynda, sem tengjast efni hennar, sum-
ar frá Bretagne, aðrar frá Austfjörðum
þar sem frönsku duggararnir komu
einkum. Yves frændi er 207 blaðsiður.
Auglýsingastofa Kristínar sá um útlit
og hannaði kápu en Steinholt prentaði.
Hrannarek
eftir Bergsvein Skúlason
Víkurútgáfan hefur sent frá sér bók-
ina „Hrannarek — þættir frá Breiða-
firði”, eftir Bergsvein Skúlason. Berg-
sveinn er löngu orðinn þjóðkunnur rit-
höfundur. Hann er fæddur og uppal-
inn á Breiðafirði og var bóndi þar um
árabil. Bækur Bergsveins eru allar
tengdar æskustöðvunum meira og
minna og hafa að geyma allskonar
þjóðlegan fróðleik.
Hrannarek hefur að geyma ýmsa
þætti frá Breiðafirði. Þar er alllangur
og fróðlegur kafli um eyjar á Breiða-
firði, brot úr byggðasögu, um ísár og
grasleysi og ýmsar sagnir, t.d. hið eft-
irminnilega slys við Skeley í október
1828.
Hrannrek er 163 blaðsíður. Hólar
prentaði.
| INDKH>1 III I SSON
Geiri „glerhaus"
eftir Indrifia Úlfsson
Geiri „glerhaus” er ný barna- og
unglingabók eftir Indriða Úlfsson.
Aðalsöguhetjan er strákurinn Geiri,
sem hefur lítinn áhuga á skólanáminu
en þeim mun meiri á kanínunni Sóta,
sem hann tekur miklu ástfóstri við.
Þeir fara saman í svéit yfir sumarið og
lenda í ýmsum ævintýrum.
Þaðer Skjaldborg sem gefur út.
Tilkynning frá Póst-
og símamálastofnuninni
Talsambandið við útlönd verður lokað fyrir handvirka
afgreiðslu frá kl. 18.00 á aðfangadag til kl. 08.00 á jóla-
dag og frá kl. 18.00 á gamlársdag til kl. 08.00 á nýársdag.
Sjálfval til útlanda verður með eðlilegum hætti og er sím-
notendum bent á að upplýsingar þar að lútandi eru á bls.
10—13 í símaskránni.
Jólaljósin
í Hafnarfjaróar-
kirkjugarði
verða afgreidd frá og með miðvikudeginum
16. desember kl. 10—19
til og með 23. desember.
Lokað sunnudag.
Guðrún Runólfsdóttir og fjölskylda.
Gjafavörur, glæsilegt úrval.
Jólakort
Jólaskraut, allar fáaniegar íslenskar bækur.
og að sjálfsögðu allar jólabækurnar
EYMUNÐSSON
Austurstræti 18