Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1981. Útlönd Útlönd Sendiráð íraks í Beirút sprengt í lrfn## linn“Ekkertvitaðum ■ "OTl Upp örlögsendiherrans í gær var sendiráð íraka í Beirút, líbanon, sprent f loft upp og er enn ókunnugt um örlög sendiherrans. Sagt er að a.m.k. 18 manns haft farizt og 95 hafi særzt í sprengingunni. Björgunarmenn sem vinna að því að hreinsa svæðið hafa bjargað rúmlega 36 manns úr rústunum. Ekki hefur þó sézt neitt til sendiherrans, Abdel-Razzak Mohammed Lafta eða tveggja annarra æðstu manna sendiráðsins. Fólk í Beirút telur sprenginguna eina þá mestu sem nokkurt sendiráð hefur orðið fyrir í borginni, en árásir á erlend sendiráð og erlenda sendimenn eru þar uaglegt brauð. Enn er ekki vitað hvað spreng- ingunni olli en fréttastofa íraka, sem var í sendiráðsbyggingunni, segir að bíll hafi ruðzt inn á svæðið og síðan sprungið í loft upp. Líbanskir öryggisverðir telja þó að sprengiefni hafi verið komið fyrir í burðarstoðum á bakhlið bygging- arinnar, sem var venjulega vandlega gætt. íraskir og íranskir embættismenn hafa orðið fyrir tíðum árásum f Beirút eftir að stríðið við Persaflóa brauzt út fyrir 15 mánuðum og hafa margir verið drepnir. Rannsókn á árás Seychelles eyjar — Skaðinn álitinn 30 milljónir dala öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að koma á laggirnar þriggja manna nefnd til að rannsaka uppruna, bakgrunn og fjármögnun árásar sem málaliðar gerðu á Seychelles eyjarnar í síðasta mánuði. Nefndin á að skila áliti sínu fyrir 31. janúar 1982. Hún á einnig að meta þann fjárhagslega skaða sem varð af árásinni 25. nóvember. Tóku í henni 40 vopnaðir menn. Þeir náðu einnig á sitt vald indverskri farþegaþotu og skipuðu áhöfninni að fljúga henni til S-Afríku. öryggisráðið fordæmdi bæði árásina og flugránið og staðfesti að virða ætti sjálfstæði Seychelles eyja. Fulltrúi Seychelles eyja, Giovinella Gonthier, sagði að árásin hefðir kostað mörg mannslff auk þeirra sem særðust eða liðu á einhvern hátt fyrir árásina. Einnig urðu miklar skemmdir á flug- ve|linum. Er skaðinn álitinn nema 30 milljónum dala. Lrtir: Ijósblátt, vínrautt oghvítt Verú kr. 260,- Litírhvítt mosagrænt ograutt' Verökr. 1.080,- (sett 3 hlutír) Litír: vinrautt, mosagrænL Verökr. 1.190.- (sett, 3 hlutír) Utur.hv/tt Verðkr.910.- (sattí Lrtír: rautt ogsvart Póstsendum Blússa verO kr. 250,- Utír: hvitt/gylH og svart/gylH Buxur verð kr. 370,- Efni: rifflaö flauel. Utír: blátt, rautt, grænt, guH og hv'rtL Þingho/tsstræti 1 — Simi29030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.