Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1981, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1981, Blaðsíða 40
Hagfræðideild Seðlabankans: Verðbólgan er nú komin í nær 50% Að áliti hagfræðideildar Seðlabanka fslands er verðbólgustigð hér á landi nú nálægt 50%, en var fyrir þrera mánuðum metið 40.2%. Þessar upplýsingar koma fram i yfirliti um stöðu og horfur í peninga- málum, frá 4. desember, sem hag- fræðideildin lét f]árhags- og viðskiptanefnd efri deildar AJþingis í té í sambandi við meðferð fjárlaga- frumvarpsins. í þessu yfirliti er skýrt frá því, að enda þó innlán í peningastofnunum hafi hækkað um 73% frá nóvember- byrjun 1980 til októberloka 1981, hafi útlán hækkað um 72% og því næstum étið innlánsaukninguna upp. Útlánaaukning á síðasta ári varð 58% og segir í yfirliti hagfræðideild- ar Seðlabankans um orsakir þessarar miklu aukningar f ár: „Líklega stafar þessi breyting að verulegu leyti af því, hve rekstrar- og greiðsluafkoma fyrirtækja er léleg, einkum i út- flutnings- og samkeppnisgreinum. En eftir mitt ár jókst almenn lánsfjár- eftirspum að líkindum einnig vegna ótta við væntanlegar gengisbreyting- ar og verðlagshækkanir. Raunvextir hafa verið of lágir til að viðhalda jafnvægi á peningamarkaði, enda eru nú horfur á að verðbólgustig sé nálægt 50%, en fyrir þrem mánuðum var það metið 40.2%.” Þá er einnig gerð grein fyrir því, að vaxandi huti af útlánaaukningu stafi af sjálfvirkri hækkun án þess að nýjar lánveitingar komi til, vegna aukinnar verðtryggingar. Slíkar sjálf- virkar hækkanir hafi numið um 20% af hækkuninni á fyrrgreindu tíma- bili. -HERB. Harður árekstur varð á milli létts bifhjóls og fólksbifreiðar á horninu á Réttarholtsvegi og Bústaðavegi um kl 23.00 í gœrkvöld. Tvennt var á bifhjólinu og slösuðustþau nokkuð, þó ekki alvarlega aðþvíer talið var. -ELA/DV-myndS. Jólakorf í pósf í dag „Þetta er svipað hjá okkur núna og verið hefur fyrir undanfarin jói. Þó virðist bögglapósturinn vera meiri og þyngri en oft áður,” sagði Árni Þór Jónsson póstrekstrarstjóri í Reykavík i viðtali viö DV í morgun. Síðasti dagurinn til aö koma frá sér jólapóstinum er í dag og eru öll póst- hús opin til kl. 20.00 i kvöld. ,,Þessi takmörk eru sett til að hægt sé að tryggja að jólapósturinn verði borinn út í tækatíð,” sagði Árni. Byrjað veröur að vinna við útburö í Reykjavik nú síðar i vikunni. Ungl- ingarnir sem vinna að jafnaði i póst- inum fyrir jól eru að koma til starfa í dag og á morgun en um 200 manns fá aukavinnu við jólapóstinn f ár. -klp- Albert Guðmundsson lagði fil á Alþingi: Dagblaðasfyrkur verði afnuminn — en biblíuúfgáfan fái aukinn ríkissfyrk Við 2. umræöu um fjárlagafrum- 2.550.000 krónur. Hin um að styrkur varpið fyrir 1982 lagði Albert Guð- til Hins islenzka bibliufélags yrði mundsson fram tvær breytingartil- hækkaður um 285.000 krónur. lögur. önnur var um að felldur yrði Báðar tillögurnar voru felldar. niður styrkur til dagblaða að upphæð -HERB. LUS FMNST A B0RNUM f SKÓUIM Á AKUREYN — Foreldrar hvaffir f il að leifa lúsa á börnum sínum Hárlús fannst á 8 börnum i tveim grunnskólum á Akureyri sl. þriðju- dag. Við athugun reyndist kunnings- skapur milli þeirra einstaklinga sem lúsin fannst á. Hafa foreldrar barna í skólum Akureyrar verið hvattir til að leita lúsar á börnum sínum, því hún berst auðveldlega á milli manna, án þess að hún sé afleiöing óþrifnaðar. Að sögn Hilmis Jóhannssonar, héraðslæknis á Akureyri, er ógern- ingur að segja til um hvaðan þessi lús hefur borizt. Trúlegt væri að hún hefði borizt frá öðrum löndum, en hún gæti allt eins blundað einhvers staöar, t.d. i híbýlum manna, á milli þess sem hún hefur fundizt. Síðast varð vart við lús í skólum Akureyrar í októbersl. Að sögn Hilmis er um höfuðlús að ræða, sem bezt fyndist i kollvikum og hnakkagróf. Lúsin væri gráleit, um 1 1/2—2 mm að stærð, því vel greinan- leg með berum augum. Lúsin berst auðveldlega á milli manna við snert- ingu, og ekki þarf alltaf snertingu til, þvi lúsin er gjörn á að skipta um flík þar sem tækifæri er til, t.d. þar sem húfur og treflar hanga saman i fata- hengjum. SagðiHilmar því ástæðu til að hvetja foreldra til að vera á varð- bergi gagnvart lús, því ógerningur væri fyrir skólahjúkrunarfólk að leita af sér allan grun. Sérstaklega væri ástæða til að leita lúsar, ef við- komandi sýndi merki um óeðlilegan kláða i hársverði. Yrði lúsar vart, þá væri hægt að fá lyf gegn henni í apó- tekum. -GS/Akureyri. m frjálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 16. DES. 1981. Lof tað úf á Alþingi Fjárveitinganefnd Alþingis flytur breytingartillögu við fjárlaga- frumvarpið fyrir 1982 um nýjan stofnkostnaðarlið vegna sjálfs Alþingis, að upphæð krónur 3.280.000. Við það hækkar skrifstofu- og alþingiskostnaður í rúmlega 19,1 milljón króna. Þessi viðbótarfjárveiting á að sjálf- sögðu að fara til þarflegra fram- kvæmda. í fyrsta lagi er nefnd endur- nýjun loftræstikerfisins í Alþingis- húsinu en einnig endurnýjun síma- kerfisins og aðrar ótilgreindar lag- færingar. Loks á hluti þessa fjár að ganga til undirbúnings vegna fyrir- hugaðrar samkeppni um húsakost Alþingis á Tjarnarsvæðinu, sem þessi æðsta samkunda þjóðarinnar hefur nú eignazt að stórum hluta, við norðurendaTjarnarinnar. -HERB. Vonasftilað flugmaðurinn losniívikunni „Við eygjum iausn í sjónmáli. Við vonumst til að hann losni í þessari viku,” sagði Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, er hann var inntur eftir hvernig mál þotuflug- mannsins sem setið hefur i fangelsi í Líbýu í hálfan mánuð stæði. Starfsmenn Arnarflugs í Líbýu, hafa, í samráði við danska sendiráðið, unnið að lausn málsins. Búizt er við því að flugmaðurinn verði látinn greiða einhverja sekt. -KMU. Mjólkurfræðingar samþykkfu Mjólkurfræðingar samþykktu í gær- kvöld kjarasamning þann sem þeir gerðu við vinnuveitendur á mánudags- morgun. Féllu atkvæöi þannig að 29 greiddu atkvæði með samkomulaginu, 7 voru á móti og 5 seðlar auðir. Samkvæmt samningnum hefur ágreiningsatriðum mjólkurfræðinga og vinnuveitenda verið vísað til kjara- dóms, sem skipaður verður á næstu dögum. -JSS. Loki Þingmenn iótu sig ekki muna um að taka 3,3 miiijónir úr vasa ai- mennings tH að bœta and- rúmsloftið 6 Alþingi. hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.