Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1981.
13
Ncytendur
Neytendur
Neytendur
Nýjasta nýtt íörbylgjuofnum:
Bæði hægt að grí/J!a og
eUa með örbylgjum
Það nýjasta í örbylgjuofnum eru
ofnar sem bæði nota örbylgjur og grill.
Þeim er ætlað að sameina þá kosti ör-
bylgjuofna að elda matinn fljótt og
venjulegra ofna að fá á hann góða
skorpu. Hún fæst ekki í venjulegum
ofnum. í nýjastahefti bandaríska tíma-
ritsins Consumers Report er grein um
þessa ofna.Þær tegundir sem til eru á
bandarískum markaði eru prófaðar og
þeim gefnar einkunnir. Ekki veit ég
hvort þær eru allar til hér.
Þetta eru ofnarnir Amanda, Pana-
sonic, Quasar og Sharp. Ég veit að
minnsta kosti að sá síðastnefndi er tif
hér.
Helzta niðurstaða bandarísku grein-
arinnar er sú að vissulega sameini þessir
nýju ofnar ýmsa kosti eldri ofna og ör-
bylgjuofna. En þeir hafi líka ýmsa galla
úr báðum kerfunum. Sá helzti er verð-
ið. Þessir ofnar eru dýrari en venjulegir
örbylgjuofnar. Annað er fyrirferð.
Bæði eru ofnarnir stærri um sig en ör-
bylgjuofnar og þeir þurfa meir af
auðu plássi í kringum sig til kælingar.
En helztu kostirnir eru þeir að fá
má safaríkan kjúkling sem jafnframt er
með fallegri og góðri skorpu. Sama
gildir um til dæmis nautasteik. Aftur á
móti heppnast kökur ekki eins vel í
þessum ofnum og venjulegum ofnum.
Grænmeti og matarleifar sem hitaðar
eruuppásamt mat sem er þíður er hins
vegar allt til fyrirmyndar.
í stuttu máli eru niðurstöður greinar-
innar þær að þeir sem eiga örbylgju-
ofna af venjulegri gerð fyrir skuli ekk-
ert vera að skipta. Hinir geri margt vit-
lausara en að kaupa til dæmis ofn frá
Sharp sem fær áberandi bezta dóma á
flestum sviðum. DS
Gestgjafinn: r
ANANASKJUKUNGUR
Fjórða tölublað Gestgjafans er ný-
komið út. Ritið, sem er mjög vandað
að venju, ber keim af jólahátíðinni,
undirbúningi jólanna, fjölskylduboð-
um og fleiru tilheyrandi jólunum. Eina
uppskrift ætlum við að birta úr tímarit-
inu sem tengist öðru efni síðunnar í
dag, greininni um örbylgjuofninn.
Uppskrift Gestgjafans er: Réttur fyrir
örbylgjuofn:
Ananaskjúklingur
Fyrir fjóra
1 bolli ananasbitar
1/4 bolli sojasósa
1- 2 msk. vinedik
2- 3 tsk. sinnep
1 tsk. engifer
2ca 750 g kjúklingar
2 bollar niðursneiddir sveppir
I lítill piparávöxtur (rauður eða grænn)
söxuð stcinselja til skrauts.
Blandið fyrst saman ananasnum, soj-
unni, edikinu, sinnepinu og engifernum
í skál. Sjóðið áFull Power þar til kom-
ið er að suðu. Bragðbætið ef nauðsyn-
legt þykir.
Hlutið kjúklingana niður og setjið i
eldfast fat, stærstu stykkin yzt. Hellið
sósunni yfir og þekið vel með henni öll
stykkin. Lokið fatinu með pappír og
sjóðið á Full Power í ca 10 min. Snúið
kjúklingastykkjunum við og smyrjið
með sósunni. Bætið sveppunum og pip-
arnum, sem hlutaður hefur verið niður
í bita, út í og sjóðið á Full Power í aðr-
ar 12—15 mín. Skreytt með saxaðri
steinselju og borið fram með til dæmis
hrísgrjónum.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Dagskóli:
Valdagur verður fimmtudag 17. desember. Einkunnir
afhentar kl. 8.30. Vali lýkur kl. 12.45.
öldungadeild:
Einkunnir afhentar föstudag 18. desember kl. 17.20—
19.00. Innritun núverandi nemenda fyrir vorönn verður
fimmtudag 17. desember og föstudag 18. desember kl.
16.00—19.00. Innritunargjald 600 krónur.
Brautskráning stúdenta:
Laugardag 19. desember kl. 14.00.
Verðandi stúdentar komi í skólann föstudag 18. desember
kl. 19.00.
Rektor
Verðkr. 1.150.-
IVilberg & Þorsteinnl
lLauqavegi 80 símar 10259-126221
0HITACHI
MONO
ferðatæki
með kassettu
Karlmannaskór
Litur: Svart
Tegund: 1
Stærðir: 7-12
Verð kr. 239,-
Utur: Brúnt
Tegund: 2
Stærðir: 7—12
Verðkr.239,-
Litur: Svart
Tegund: 3
Stærðir: 7-10
Verðkr.269,-
Litur: Brúnt
Togund: 4
Stærðir: 7-101/2
Verðkr.298,-
Litur: Svart
Tegund: 5
Stærðir: 7-101/2
Verð kr.378,-
Litur: Svart
Tegund: 6
Stærðir: 8—11
Verð kr. 342,-
Litur: Svart
Tegund: 7
Stærðir: 8—11
Verð kr. 342,-
Litur: Brúnt
Tegund: 8
Stærðir: 7-101/2
Verð kr. 378,-
Litur: Svart
Tegund: 9
Stærðir: 7 -10 1/2
Verð kr. 378,-
Litur: Brúnt
Tegund: 10
Stærðir: 7-11
Verð kr. 473,-
Pó
Skósalan
Laugavegi 1 — Sími 1-65-84
póS
tscn'