Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 2
2 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981: Út um hvippinn og hvappinn — Ut um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og Hrísgrjónabúðing eða ekki hrísgrjónabúðíng? (SJltyÍM Laugavegi 21 (LiMa Ijóta húsið) Vesturgötu 4 — Sími 19260 Þýzkursiður? „Fyrstu heimildir, sem þekktar eru um einhvers konar jólatré, eru frá Strassborg og þar um kring á 16. öld. Undir lok 17. aldar finnast æ fleiri ummæli varðandi jólatré í Þýska- landi. Hinn fyrsti sem getur um ljós- um prýtt tré er Goethe, í sögu frá 1774. Og fyrsta mynd af jólatré er frá Sviss árið 1799. Og til Norðurland- anna berast þau eftir 1800.” Hingað heim munu fyrstu trén hafa borizt í kringum 1850 og segir í Bók daganna að það muni hafa breiðzt út frá dönskum heimilum, afar hægt en þó markvisst. Samt er þeirra enn ekki getið í neinum ævi- minningum frá því fyrir 1900 en upp úr aldamótum fara þau að vera fastur þáttur í jólahaldinu. Eins og nærri má geta var það þó ekki á allra færi að ná sér í grenitré hér í landinu og var á mörgum heimilum gripið til þess ráðs að búa þau til úr viði. Viðurinn var málaður grænn og prýddur lyngi og eini. Þá tíðkuðust alvörukerti og heimatilbúnir pokar undir sælgæti eða kökur. En nú mun sú öld önnur eins og aðrar. -Ms. í heimahúsum fæöist maður inn í jólasiöi, ef svo má segja: mamma gerði þetta alltaf svona og svona hlýtur það að eiga aö vera svo jólin verði söm við sig. Fjölskylduboðin þurfa alltaf að falla á sama daginn, maturinn verður alltaf að vera sá sami alls staðar, og þannig fram eftir götunum. Amma sagði alltaf þegar spilin voru dregin fram á jóladag: ,,það á ekki að spila á jóladag.”Loft- kökurnar hennar Maddýar, jóla- boðið hjá Friðu og Guðmundi, sultan með rjúpunum — ómissandi hlutar jólanna í eina tið. Allt í einu eru jólin svo ekki lengur heima hjá mömmu og pabba heldur með manni sem kemur frá heimili meö allt aðra siði og venjur. Hann er t.d. ekkert vanur því að jólatréð sé alltaf skreytt á Þorláksmessukvöld. Hann er ekkert vanur þvi að fá alltaf hrísgrjónabúðing með möndlu og möndlugjöf á aðfangadagskvöld. Honum þykir ekki einu sinni góður hrísgrjónabúðingur. Satt bezt að segja er það eitt af þvi versta sem hann fær. Það sem verra er, hann hefur ekki hugmynd um að jól eru ekki jól nema það sé hrísgrjónabúð- ingur! Og þegar stelpurnar okkar fara að slást vegna þess að þær vilja báðar sitja í sama stólnum þá veit hann ekki að amma sagði alltaf: ,,Það á ekki að rífast á jólunum” og að það er þess vegna sem ég segi það núna. Það minnir hann ekkert á ömmu og afa og jólin eins og þau eiga að vera! Hann heldur að hann viti hvernig jól eiga að vera! Annars er þetta verst fyrst, svo fer maður smátt og smátt að skapa sér sín eigin jól handa sínum krökkum að fara með að heiman. Það sem skiptir mestu máli er kannski það að láta svona vangaveltur ekki verða hefðbundinn jólasið! Gleðilegjól -Ms. PS. Hrísgrjónabúðingurinn? Ég þori ekki aðsegja frá því! Jólin koma, jólin koma. Og enn fer um mig fiðringur við þá einustu tilhugsun að jólin séu að koma. Jóla- ljós og jólamúsík, jólagjafir og jóla- boð, súkkulaði með rjóma og sætum lummunum og jólanóttin yfir beztu bókinni fram undir morgun með epli og sælgæti á rúmstokknum. Og jóla- siðirnir. Því eitt er það við jólin sem alls ekki má missa sig, það eru jólasið- irnir; einhver viss dagskrá sem ska! ekki skeika því án hennar eru engin jól! Hvert heimili hefur sína dagskrá. Hjá sumum er það hefð að þeysast rafmagnsbúðanna á milli rétt undir hádegi á aðfangadag til að bjarga peru i jólatréseríuna, svo dæmi sé nefnt og eins og það getur verið leiðinlegt, þá væru jólin varla komin án þess. Annar algengur siður mun vera að láta nýja tréð ekki passa í gamla jólatrésfótinn og þá þarf að fara að saga og jafnvel negla til þess að hægt sé að ryksuga á síðustu stundu. Ekki satt? Og m.a.s. það sem ég lofaði sjálfri mér að vera nú búin að gera í tæka tíð í fyrra kemur án efa til með að sitja enn á hakanum í ár og víst eins gott því annars vantaði þessa sælutilfinningu sem hríslast um mig þegar klukkan byrjar að slá rétt fyrir sex og friður færist yfir. Ljósm. Hilmar Kartsson Hvers vegna berum við heilt tré inn í stofu 1 tilefni fæðingar Krists? Oftar sem áður snýr hvippur sér til Bókar daganna sem veit næstum því allt um árstíða- og dagbundna siði. Þar segir um jólatré: ,,Um uppruna þeirra er flest á huldu. Vafalítið má rekja elstu rætur þess til einhvers konar trjádýrkunar. f Róm og víöar var t.d. siður allt frá fornöld að skreyta hús um nýárið grænum greinum eða gefa þær hver öðrum og þótti það gæfumerki. Sama er að segja um mistilteininn í Englandi. Hið sigræna tré hefur löngum vakið furðu manna og aðdáun og þótt búa yfir leyndar- dómum. Kristnar hugmyndir um skilnings- tré góðs og ills kunna og að hafa blandast hinum eldri. Frá því um 1100 var tekið að sýna helgileiki innan kirkju og utan, þar á meðal söguna um sköpun mannsins, synda- fallið og burtreksturinn úr aldingarð- inum Eden. Stóð skilningstréð þá tíð- ast á miðju sviðinu. Það var grænt og héngu á því epli og borðar. Líktist þaö talsvert jólatré, nema kertin vantaði, en svo var einnig um þau jólatré, sem fyrst eru spurnir um.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.