Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Björgvin Halldórsson stillti sér upp viö Isuzu Gomini, sem dregið verður um 27. janúar. Verðmæti um 102 þúsund krónur. DV-getrauninniýttúr vör: Þrír bílar / vinning Vinningarnir í DV-getrauninni eru hver öðrum glæsilegri og ekki vafi á að áskrifendur blaðsins fagna því mjög að geta átt þess kost að laka þátl i skemmtilegum getraunaleik meðslikum vinningum í boði. Bílarnir þrír eru að heildarverð- maeti 319 þúsund krónur, það er að segja þegar þetta er skrifað. En miðað við þá uppsveiflu verðalgs sem hér rikir má hiklaust búast við að verðmætið hafi aukist til muna. Fyrsli vinningurinn er notalegur fjölskyldubíll af gerðinni Isuzu Gemini. Fólk er eflaust farið að ruglasl í nöfnunum á þessum japönsku bílum, en þessi er nýr á markaðinum. Traustur og sterk- byggður bíll sem eyðir aðeins sjö lítrum á hundraðið. Kostar um 102 þúsund krónur. Næti vinningur er Suzuki jeppi, lítill og nettur, ódýr í rekstri, en kemst það sem þarf. Verðið á honum nú er um 85 þúsund krónur. Loks er það svo Opel Kadett, veg- legasti vinningurinn. Þetta er rúm- góður fjölskyldubíll, sparneytinn og vandaður og kostar nú 132 þúsund krónur. Það hefur enginn áskrifandi efni á að sleppa þátttöku í DV-get- rauninni og við minnum á, að nýir áskrifendur eru að sjálfsögðu vel- komnir i hópinn. Getraunaseðill verður birtur I blaðinu miðvikudaginn 30. desember. -SG. Magnús Ólafsson kynnir Suzuki joppann sem dregið veröur um 28. aprfl. Verðmæti bflsins er um 85 þúsund krónur. Pétur knattspyrnukappi Pétursson er með Opel Kadettinn, sem er að verðmæti um 132 þúsund krónur og verður dregið um hann 28. júlí. Vidbrögð Pósts og síma við tékkamisferlinu: Verður einn banki frystur? „Allar okkar reglur um ávísanavið- skipti hafa verið ítrekaðar um allt land. Afgreiðslufólk okkar á að hringja í banka og reyna að fá upplýst, þegar um óþekktar persónur er að ræða, hvort innistæða sé fyrir viðkomandi upphæð,” sagði Jón Skúlason póst- og símamálastjóri er hann var inntur eftir þvi hvernig brugðist yrði við misferli því sem upp kom um síðustu helgi. Tveir menn um tvitugt símsendu innistæðulausar ávísanir og sviku með þeim hætti meira en tuttugu þúsund krónur frá Pósti og síma, eins og skýrt hefur verið frá í DV. Yfirmenn Póst- og síma héldu sér- stakan fund í framhaldi af máli þessu. Á þeim fundi var upplýst að einn banki hefur neitað að gefa upplýsingar um innistæður á ávísanareikningum. „Við höfum rætt um það að taka ekki við ávísunum frá þeim banka. Slíkt gæti orðið einhver vörn. Við höfum nú ekki beitt þeirri hörku ennþá en það er til athugunar. En þetta getur verið mat bankans að tryggja sem best öryggi sinna viðskipta- vina, þetta getur verið liður í þeirri fyllstu tryggingu sem bankinn vill veita, að það komist enginn að því hvort það sé innistæða eða ekki. Þetta getur verið mat og við getum alls ekki gert kröfur til þess að þeir breyti sínu öryggiskerfi. Það er rétt að það komi fram að svona nokkuð kemur afskaplega sjald- an fyrir. Við höfum ekki lent í þessu í langan tíma, ekki í nokkur ár. Tékka- viðskipti eru gífurlega mikil, þetta eru háar upphæðir sem fara í gegnum stofnunina. Við þekkjum það erlendis frá að póstþjónustan reiknar með vissum afföllum vegna mála af svona tagi. Það kostar oft meira að taka ekki vissa áhættu heldur en að hafa eitthvað flókið kerfi með miklum mannafla,” sagði Jón Skúlason póst- og símamála- stjóri. -KMU. Fyrsta ointak bókarinnar var afhont Svavari Gestssyni heilbrigðisððherra milli funda í jólaönnum þingmanna. Á myndinni eru frá vinstri: Stefán Frið- bjarnarson formaður ritnefndar, Svavar Gestsson, Pétur J. Jónasson sem hefur haft stjórn á útgáfu bókarinnar og Davíð Á. Gunnarsson forstjóri ríkis- spítalanna. Landsspítalabókin komin út: Sjúkrasaga tveggja alda Landspítalabókin er komin út, í samantekt Gunnars M. Magnúss. Bókin er rituð í tilefni fimmtíu ára starfs Landspítalans. Hún er í stórum dráttum sjúkrasaga þjóðarinnar síðustu tvær aldirnar, eins og segir í til- kynningu frá ríkisspítölunum. Þar er að finna greinargóða lýsingu í máli og myndum á þeirri fjölþættu starfsemi, sem nú fer fram á Landspítalanum. Jafnframt er vikið að fortiðinni og þeim stórstígu framförum sem orðið DV-BÍÓ Leikhúsbraskararnir, nefnist gaman- mynd I litum með íslenskum texta sem sýnd verður í DV bíói á morgun klukkan 13 í Regnboganum. hafa I heilbrigðismáluin þjóðarinnar undanfarna áratugi. Bókinni er skipt í 27 kafia, sem skreyttir eru rneð 210 myndum. Ríkis- spítalarnir gefa bókina út en Almenna bókafélagið annast dreifingu hennar. JSS. Tvö launaumslög týndust, líklegavið Fossvogskirkju Tvö launaumslög töpuðust i gær. i hvoru eru um 2.500 krónur. Umslögin virðast hafa fokið úr vasa eigandans eftir að hann hafði verið við jarðarför í Fossvogskapellu. Hann gekk síðan í kirkjugarðinn. Skilvís finnandi er vin- sainlega beðinn að tilkynna fundinn til lögreglunnar í Reykjavik eða í síma 44891. Fundarlaunuin er heitið. Tómar Árnason viðskiptaráðherra: „Araktingi villgræda á íslendingum” í tilefni ummæla Alberts Guðmundssonar i DV 17. des. sl. vill viðskiptaráðherra taka fram, að Araktingi, sem mun vera frá Líbanon, óskaði eftir bréfi frá honum og for- sætisráðherra til forsætisráðherra Saudi-Arabíu og olíumálaráðherra, þar sem óskað væri eftir að ísland fengi úthlutað 20 þús. tunnum af hráolíu á dag frá Saudi-Arabíu. Þessi maður, sein DV kallar Dr. Tingi en samkvæmt- nafnspjaldi hans heitir hann Araklingi með búsetu í London og Kanada, liafði enga hráolíu á hendinni, en vildi fá umboð íslendinga til að útvega hráolíú eins og fjöldinn allur af kaupsýslu- mönnum hefur óskað eftir. Að athuguðu ináli taldi viðskipta- ráðherra ekki koma til mála að afhenda óþekktum erlendum manni slíkt erindisbréf til að annst viðskipti með jafnlífsnauðsynlega vöru og olían er. Löngu áður hafði viðskiptaráðherra óskað eftir því við utanríkisráðherra að komið yrði á stjórnmálasambandi við Saudi Arabiu og í kjölfar þess yrðu kannaðir möguleikar til viðskipta við þá. Stjórnmálasamband er ekki að fullu komið á enn. Milliliðalaus samskipti eru miklu æskilegri en milliganga kaupahéðna. Auk þess var Araktingi sagt í des. 1980, að þá væri búið að semja um kaup á olíuvörum til næsta árs. Nú er komið á daginn, að hefðum við keypt óhreinsaða olíu á þessum tírna hefðu slík viðskipti leitt til stór- fellds taps. Ekki dregur viðskiptaráðherra í efa góðan vilja Alberts Guðmundssonar um hagkvæm viðskipti, en veit að hann hefir ekki fengist við olíuviðskipti og ummæli hans bersýnilega byggð á ókunnugleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.