Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. ftalskar Savanelle reykjarpípur og pípustatíf í fjölbreyttu úrvali. Heildverzlun Eiríks Ketilssonar Vatnsstíg 3. — Símar 23472 og 19155 A Bílbeltin hafa bjargað tfaæER“" vandaAar veggsamstœður úr hnotu og bæsaðri eða sýrðri eik. Úrval af borðstofuhúsgögnum úr bæsaðri eða sýrðri eik. Greiðsluskilmálar við allra hæfi. Opið í dag til kl. 22. Opið á morgun sunnudag kl. 14—17. □ V F O Reykjavíkurvegi 66 - Hafnarfirði - Sími 54100 Menning Menning Menning Mátfrióur Einarsdóttír skrífar Steinunni. Mátfríður Einarsdóttir skrifar vinkonu sinni hug- renningar sínar „afieitiega langar og teygðar" Ýmist er hún í bezta skapi eða hinu versta, en œvinlega fyndin. Ný og bráð- skemmfileg bók effir Málfríði Gierhimnarnir níu, sem varnajörðinni kulda „Ekki er auðvelt að buga heilbrigða konu unga . . . hún finnur ráð út úr öllum ógöngum,” segir Málfríður Einarsdóttir í nýrri bók, sem út kom í þessari viku, „Bréf til Steinunnar.” Hún hefði eins getað sagt: ,,konu á níræðisaldri.” Að minnsta kosti ef hún miðaði við sjálfa sig. Hún er 82ja ára gömul Á síðustu fimm árum hefur hún sent frá sér fjórar bækur og er nú með tvær nýjar í smiðum. Ekki eru elliglöp á þessum verkum, heldur eru fáar bækur á jóla- markaðnum skrifaðar á betri (og fyndnari) isienzku en „Bréf til Steinunnar”. Málfríður er ættuð frá Þingnesi í Borgarfirði. Hún fluttist ung til Reykjavíkur. Skólaganga hennar var ekki mikil. í Kvennaskólanum hætti hún vegna þess hvað henni leiddist að hræra „frúmasíur”. í Kennara- skólanum varð hún að hætta vegna berklaveiki. Skriftir hóf hún ekki að ráði fyrr en á miðjum aldri, þegar Magnús Ásgeirsson hældi henni fyrir þýðingu á frönsku ljóði. Og þangað til fyrir skömmu var fátt eitt prentað eftir hana utan helzt slíkar þýðingar, gjarnan á torskildustu skáldum eins og Ezra Pound og T.S. Eliot. mismunandi kenningum um lögun veraldarinnar, þar á meðal gler- himnunum níu og fýlunni, sem hljóp í páfa, þegar ekki var lengur stætt á því að halda fram, að jörðin væri flöt. Nauðungargiftingar, draugar og hestastrákar Álíka rúm i bókinni og bréfið taka kaflarnir „Fyrrum og nú” og „Fyrsti áratugur”. Þetta eru lýsingar á lífs- kjörum íslendinga á seinustu öld og fram á þessa. Þær eru hliðstæðar samskonar köflum í fyrri bókum Málfríðar. Þarna segir frá heilsuleysi, moldareldhúsum, nauðungargift- ingum, draugum, draumum, horfn- um þjóðfélagsstéttum eins og förumönnum og hestastrákum. „Framsóknarflokkurinn var þá ekki nema órar gáfaðra manna,” segir Málfríður. En ungir menn voru hressir, töluðu fornmál og lærðu að synda. Af öðru tagi er stutt ýkjusaga: „Ferðin að Gráglettingi”. Þar segir frá einstaklega gáfuðu skáldi, sem lendir í svaðilför um mýrlendar sveitir. Er mikil skemmtan að þessari frásögn, enda fáir íslendingar, sem ná þessum stíl, kölluðum burlesq á útlendum málum. Varla nokkur síðan Benedikt Gröndal var og hét. Loks eru í bókinni minningarbrot um föður höfundar og nokkur vinar- bréf á dönsku. í einu þeirra segir hún frá því, að hún sé allt í einu orðin fræg „Naar jeg endelig i mit iivs vandring en naaet til gravens rand, faar jeg saadan en smuk oprejsning . . ” ( = þegar ég er loksins komin fram á grafarbakkann veitist mér svona fögur viðurkenning . . .) Mér finnst „Bréf til Steinunnar” heillandi bók. Og hún er ómissandi fyrir alla sem njóta þess að sjá listilega farið með okkar kæra, en stundum stirða, móðurmál. -ihh Bókin „Bréf til Steinunnar” skiptist í nokkra kafla. Nær bréfið, sem bókin heitir eftir, yfir næstum heiming hennar. Steinunn sú, sem það er stilað til, er Sigurðardóttir, skáldkona og fréttaritari útvarpsins í- Stokkhólmi og góð vinkona Málfríðar. „Hér sit ég með hugrenningar mínar afleitlega langar og teygðar,” yrðir Málfriður á hana í október 1980. Allan veturinn er hún svo að bæta viðbréfið. Stundum, já, ósjaldan, er bréfrit- ari yfirkominn af ergelsi og emjan. Eins og lesendur fyrri bóka Málfríðar þekkja, þá kveinar enginn jafn skemmtilega og hún (nema ef vera skyldi Jón Helgason prófessor). Og eins og hún segir sjálf: „Til þess er kvein að það lækni volæði” — fyrr en varir snýst ólundin upp í lifsgleði. Sárkvalin önd skáldkonunnar flögrar þá upp í ljósið frá Kristi, Rembrandt og öðrum dýrðarinnar mönnum. Hún skemmtir ungu vinkonunni sinni með fróðleik um merkilega hluti úr öllum áttum. Heldur betur tekst henni upp þegar hún lýsir Steinunn Sigurðardóttir situr í Stokkhólmi og bíður brófa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.