Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIDVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981.
29
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
Bætti heims-
metið um
fimm kfló!
TÓNHEIMAR
Tökum í umboðssölu:
hljóðfæri, hljómtæki, videotæki, videóspólur, sjónvörpog kvikmyndavélar.
Opið frá kt 10—18 alia virka daga og á laugardögum frá kl. 13—16.
TÓNHEIMAR
Höfðatúni 10, sími 23822.
Andrés
kemur ekki
heim f rá
Svíþjóð
Andrés Kristjánsson, landsiiðs-
maður i handknattleik úr Haukum
sem leikur nú með sænska liðinu
GUIF — og hefur staðið sig vel að
undanförnu í „Allsvenskan”,
kemur ekki til íslands i jólafrí eins
og til stóð. Andres verður þvi ekki i
landsliðshópnum, sem mætir Dön-
um.
-SOS
® Hilmar Björnsson sést hér stjórna iandsliðsæfingu. Þorgils Ottar nær að skjóta sér fram hjá Hilmari og Hauki Geirmundssyni og
skora mark hjá Einari Þorvaldssyni. DV-mynd: GVA
—Undraverður árangur 18 ára pilts í
Sovétríkjunum
„Danir hafa alltaf
verið íslendingum
erfiðir”
—segir Hilmar Bjömsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik
Danir verða ekki auðveld
bráð. Þeir hafa alltaf verið
íslendingum erfiðir i gegnum
árin, sagði Hilmar Björnsson,
landsliðsþjálfari i handknattleik,
þegar DV leit inn á landsliðsæf-
ingu í gær. Hilmar sagði að Dan-
ir kæmu beint til íslands frá A-
Þýzkalandi, þar sem þeir hafa
verið I keppni með Svium, A-
Þjóðverjum og Tékkum. — Þeir
koma þvi hingað i mjög góðri
samæfingu, sagði Hilmar.
Hilmar sagði að Danir væru nú
að undirbúa sig af fuilum krafti
fyrir HM-keppnina í V-Þýzka-
landi — og þeir kæmu ekki til
Islands til að sætta sig við töp.
Danir hafa aldrei sætt sig við að
tapa fyrir íslendingum.
— Við munum að sjálfsögðu
gera allt okkar bezta til að leggja
Dani að velli, því að hvað er
skemmtilegra en vinna sigur yfir
Dönum? sagði Hilmar.
íslenzka landsliðið leikur sinn
fyrsta leik gegn Dönum í Laugar-
dalshöllinni 27. desember — kl.
21. Leikurinn hefst þetta seint,
þar sem Danir koma til landsins
samadag.
Landsliðið mun æfa á fullum
• Hilmar Björnsson,
landsliðsþjálfari.
krafti yfir jólin, nema á aðfanga-
dag — þá fá landsliðsmennirnir
frí frá æfingu.
— Hefurðu sett upp matseðil
fyrir strákana?
— Nei, það hef ég ekki gert.
Þeir mega borða rjúpur og steikur
REYNOLDS AFTUR
TIL AKUREYRAR
— 2. deildaiiiðin í knattspyrau hafa ráðið þjálfara
Douglas Reynolds
Englendingurinn Douglas
Reynolds, sem þjálfaði Akureyr-
arliðið Þór 1976 og 1977, tekur
aftur við stjóminni hjá Þórsurum
i sumar og verður hann eini er-
lendi knattspymuþjálfarinn, sem
þjálfar 2. deildariið.
Nú er orðið ljóst hvaða þjálfar-
ar verða með 2. deildarliðin, en
það eru:
FH: — Albert Eymundsson
Þróttur R.: — Ásgeir Eliasson
Einherji: — Ólafur Jóhannesson
NJarðvik: — Mile
Fylkir — Lárus Loftsson
Skallagrimur: — Einar
Friðþjófsson
Reynir S.: — Kjartan Másson
Völsungur: — Hörður Helgason
Þór: — Douglas Reynolds
Þróttur N.: — Guðjón
Þórðarson.
Þess má þó geta, að þeir
Guðjón og Ólafur eru ekki endi-
lega búnir að ganga frá samning-
um sinum við Austfjarðaliðin.
-sos
á aðfangadagskvöld og jóladag,
en síðan er æskilegt að þeir taki
sér hvíld frá miklu áti. Þeir verða
látnir hlaupa af sér steikurnar á
jóladag og annan i jólum, sagði
Hilmar og brosti.
Það er mikill hugur í leikmönn-
um landsliðsins og æfa þeir nú
stift undir stjóm Hilmars og
Gunnsteins Skúlasonar,
aðstoðarmanns Hilmars. -SOS.
Deehanmeð
fjögur mörk
— þegar Norwich
skellti Ipswich 5:1
Norwich hefur fengið John
Dechan að láni frá WBA — og ef
félagið ætlar að kaupa hann,
verður það að borga Albion 200
þús. pund. Forráðamenn
Norwich eru mjög spenntir að
kaupa Deehan, eftir að hann
sýndi snilldarleik í vináttuleik
gegn Ipswich f gærkvöldi. Deehan
skoraði þá fjögur mörk, er
Norwich vann stórsigur — 5—1.
Þá má geta þess að Manchester
'United hefur lánað Sunderland
Jimmy Nicholl, bakvörð. -SOS.
Haukar unnu
íBorgaraesi
Haukar sigruðu Skallagrim 90-
76 i 1. dcildinni i körfuknattleik i
Borgarnesi um helgina. Við sig-
urinn komust Haukar i annað
sætið í deildinni.
Allir leikmenn Hauka skoruðu
i leiknum, Webster stigahæstur
með 32, Pálmar 24 og Birgir 10. i
liði Skallagríms var Carl Pearson
stigahæstur með 37 stig og
Guðmundur Guðmundsson með
16.
#- David Moyse. . . „Bezti maður á vellinum.”
Davíð yngrí stór-
stjama hjá Celtic
— David Moys, strákurínn sem allir islenzkir strákar í knattspymu þekkja,
gerir það gott í skozku knattspymunni
David Moyse — þúsundir íslenzkra:
knattspymumanna þekkja það nafn
vel. Það er ekki vinsælla skozkt nafn
til á íslandi. En nú eru tveir menn
bakvið nafnið, sem frægir eru á Skot-
landi, feðgarnir David Moyse eldri og
yngri.
Um langt árabil hefur David Moyse
eldri skipulagt ferðir ungra íslenzkra
kanttspyrnumanna til Skotlands og
skozkra til Íslands. Þeir skipta mörgum
þúsundum, sem farið hafa i keppnis-
ferðir milli landanna fyrir milligöngu
Moyse. David hefur komið hingað til
lands mjög oft. Ákaflega vinsæll
maður og allt stendur sem stafur á bók,
sem hann segir. Gegnum árin hafa
íslenzku strákarnir kynnst syni hans,
David Moyse yngri, allt frá þvi hann
var smástrákur með föður sínum i
keppnisferðum íslenzku strákanna á
Skotlandi — eða þegar þeir hafa komið
hingað til lands.
Og nú er David Moyse yngri kominn
í hóp beztu leikmanna á Skotlandi,
aðeins 19 ára. Leikur með Celtic þó
faðir hans hafi alltaf verið Rangers-
aðdáandi. Hann skipti sér hins vegar
ekki af því hvaða félag sonurinn valdi.
David vann sér fast sæti í aðalliði
Celtic í haust sem bakvörður og
framtíð hans sem knattspyrnumanns
virðist ákaflega björt. Skozku blöðin
eiga varla nógu sterk lýsingarorð til að
lýsa hæfni hans. Þegar Rangers og
Celtic gerðu jafntefli 3—3 á dögunum í
æsispennandi leik að viðstöddum
48.600 áhorfendum á Parkhead, leik-
velli Celtic, átti David Moyse snilldar-
Yurí Zakharevich, Sovétríkj-
unum, setti nýtt heimsmet í
snörun í 100 kg flokki á móti í
Donetsk í gær. Hann snaraði
192.5 kg.
Zakharevich, sem að sögn
fréttastofu Reuters er aðeins 18
ára, bætti heimsmet tékkneska
ólympíumeistarans Ota Zar-
leik. Skozki landsliðsbakvörðurinn
Danny McGrain gat ekki leikið með
Celtic en sagði eftir leikinn.
„Eftir þessa frammistöðu Davids
verður erfitt fyrir mig að komast aftur í
liðið. En annars, hann hefur staðið sig
frábærlega vel sem hægri bakvörður
eftir að ég slasaðist”.
„Þetta var frábært og tveir yngstu
leikmennirnir beztir, David Moyse,
Celtic, og Gordon Dalziel hjá Rangers.
Þeir áttu sinn þátt í öllum mörkun-
um”, sagði stjóri Celtic, Billy McNeil.
„David Moyse var bezti maður á vellin-
um,” skrifaði Gerry McNee í Daily
Express Já, David Moyse er orðinn
stórgóður knattspyrnumaður og það
veit ég að gleður marga Islendinga.
-hsim.
emba um fimm kíló! Það var
187,5 kg, sett í júní sl. -hsím.
Gfsli Felix í
landsliðshópinn
Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari,
valdi Gísla Felix Bjamason, markvörð
úr KR, í landsliðshópinn i handknatt-
leik í gærkvöldi. Gisli Felix er þvi
fjórði markvörðurinn í hópnum.
Hilmar gerði þetta vegna þess að
Eyjamaðurinn Sigmar Þröstur Óskars-
son úr Þór, hefur verið veikur — hann
veiktist í HM-keppninni í Portúgal á
dögunum. -SOS.
Þeir leika
gegn Dönum
Landsliðshópurinn í handknattleik,
sem æfir nú af fullum krafti fyrir
landsleikina gegn Dönum, er skipaður
þessum leikmönnum:
Markverðir:
Kristján Sigmundsson, Víkingi
Einar Þorvarðarson, HK
Gísli Felix Bjarnason, KR
Sigmar Þröstur Óskarsson, Þór
Aðrir leikmenn:
Ólafur Jónsson, Víkingi
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Víkingi
Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi
Alfreð Gíslason, KR
Gunnar Gíslason, KR
Haukur Geirmundsson, KR
Sigurður Sveinsson, Þrótti
Steindór Gunnarsson, Val
Þorbjörn Jensson, Val
Bjarni Guðmundsson, Nettelstedt
Þorgils O. Matthiesen, FH
Kristján Arason, FH
Eins og við sögðum frá i gær, þá
leikur Þróttarinn Páll Ólafsson ekki
með gegn Dönum, þar sem hann hand-
arbrotnaði i leik gegn FH.
Börkur til
Svíþjóðar?
—3. deildarlið Alingsas IS hefur áhuga
aðfáhanntilsín
Það bendir nú allt til að Börkur Ingv-
arsson, knattspyrnumaður úr KR, farí
til Svíþjóðar og leiki þar knattspymu
með 3. deildarliðinu Alingsas IS, sem
hefur mikinn áhuga á að fá Börk til liðs
við sig.
Alingsas IS er mjög stöndugt félag
og hafa forráðamenn félagsins mikinn
hug á að styrkja liðið. Börkur leikur
stöðu miðvarðar og kæmi hann til með
að styrkja vörn liðsins.
Börkur er nú að kanna málið og eru
miklar líkur á því að hann fari til Sví-
þjóðar fljótlega eftir áramót, til að
kynna sér aðstöðuna hjá félaginu og
ræða við forráðamenn Alingsas. Hann
hefur mikinn hug á að stunda nám í
Svíþjóð.
-sos
• BÖRKURINGVARSSON.
Seljaútibú
BÚNAÐARBANKANS
tók til starfa 11. desember
Afgreiöslutími mánudaga til föstudaga kl. 09.15—16.00
Síðdegisafgreiðsla fimmtudaga kl. 17.00—18.00
★ Við bjóðum Seljahverfinu alla innlenda bankaþjónustu
★ Við reynum að miða aðbúnað og þjónustu fyrst og fremst
við einstaklinga og fjölskyldur
★ Starfsfólk reynir að sýna viðskiptamönnum lipurð og
skilning í öllum afgreiðslum
★ Við bjóðum björt og notaleg húsakynni án hefðbundinnar
formfestu
★ Við bendum á, að Búnaðarbanki íslands er annar stærsti
viðskiptabanki þjóðarinnar og einn traustasti hornsteinn
íslenzkra peningamála
★ Athygli er vakin á því, að útibúið starfar til bráðabirgða í
núverandi húsnæði og bíður eftir aðstöðu í verzlunar- og
þjónustumiðstöð Seljahverfis
★ Við bendum á, að Skógarsel hefur nýlega verið gert að
aðalbraut og biðjum viðskiptamenn að gæta varúðar í
umferðinni
★ Loks bjóðum við viðskiptamenn velkomna í útibúið. Það
verður heitt á könnunni í skammdeginu.
Jón Sigurðsson
útibússtjóri
Sigurður Karlsson
gjaldkeri
Gerður Daníelsdóttir
bókari
Sigríður Stefánsdóttir
bókari
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
SELJAUTIBU
Stekkjarseli 1 (á horni Stekkjarsels, Stokkasels og Skógarsels)
Sími78855
PRENTSMtOJAN OOOI HF.