Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982.
Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós
99
ÞETTA ER NOGU G07T
/ NEGRAHEL VÍTIN"
- Rýnt í skreiðarútflutning íslendinga til Nígeríu
Skreiðarútflutningur íslendinga til
Nígeríu hefur verifl sú grein sem hef-
ur verið þjóflarbúinu hvað hagstæð-
ust undanfarin ár. Skreiflarfram-
leiflsla hefur slóraukizt. Æ fleiri hafa
lagt meiri rækt vifl þá grein en minna
vifl freflfiskframleiflslu.
Til marks um hve skreiðin er mikil-
væg íslendingum má geta þess að ár-
ifl 1981 keyptu Nígeríumenn skreið
og þorskhausa fyrir 910 milljónir
króna sem eru um 15 prósent af
heildarútflutningi. Á sama tima
fluttum vifl út tilbúnar ullarvörur fyr-
ir 166 milljónir króna.
Bara þorskhausarnir, sem Nígeríu-
menn keyptu af okkur , voru að verð-
mæti 97 milljónir króna. Til saman-
burflar var öll niflursufluvara, sem
flutt var út, 64 milljónir króna virði.
En eru íslendingar of gráflugir?
Efasemdir hafa verið uppi um að
allt væri með felldu í sambandi við
skreiðina. Vifi vitnum í mann sem
þekkir mál þessi :
,,Eg álit að þetta sé komið í öng-
þveiti. Hér þarf að gera stórt átak.
Það er ekki hægt að halda uppi
markaði í landi og segja: Þafl er nógu
gott í negrahelvítin. Það getur ekki
gengið endalaust.
Þetta er stórmál . Eg vil helzt ekki
koma nálægt þcssu. Ég á fullt af
kunningjum sem standa i þessu og ég
nenni ekki afl þrasa við þá.”
-KMU
Svissneskt
fyrirtæki hreiiir
skreiöarframieiðendur
Alþjóðlegt ' vöruskoðunarfyrir-
læki, með höfuðstöðvar i Sviss, hef-
ur hrellt islenzka skreiðarframleið-
endur og storkað Framleiðslueftirliti
sjávarafurða, hinu opinbera gæða-
eftirliti, frá því á sl. sumri.
Societe Generelle de Suveillance,
skammstafað SGS, heilir þetta fyrir-
tæki. Umboðsfyrirtæki þess hérlend-
is heitir einfaldlega Alþjóðleg vöru-
skoðun.
SGS liefur sanming við Nígeriu-
stjórn um eftirlit með öllum vöru-
kaupuni til Nigeríu. Skreiðin islenzka
fellur þar undir.
Hljótt hefur verið um starfsemi
SGS á ísiandi þar til á sl. sumri að
umboðsaðilar þess fara að stöðva
skreiðarútflutning héðan í stórum
mæli. Hafa SGS-menn sagzt ein-
göngu fara eftir reglugerðum Fram-
leiðslueftirlitsins um lágmarksgæði
skreiðarinnar og stöðvað útflutning
vegna undirvigtar, of tnikils raka,
ýldtt og maðks, ennfremur vegna slæ-
legs frágangs á umbúðum.
Samkvæmt lögum er öðrum en
Framleiðslueftirliti sjávarafurða og
framleiðendutn sjálfum óheimilt að
skoða sjávarafurðir. Útflytjendur fá
hins vegar ekki greitt fyrir skreið til
Nigeríu sem SGS hefurdæmt óhæfa.
Frá því á sl. sumri hafa margir
árekstrar orðið á milli SGS-manna og
Framleiðslueftirlitsins. SGS-menn
munu hvað eftir annað hafa stöðvað
skreið þrátt fyrir opinbera gæða-
stimpla Framleiðslueftirlitsins og
þannig i raun ómerkt þá stofnun.
Munu forráðamenn
Framleiðslueltirlitsins skiljanlega
vcra lítt hrif'nir af starfsemi SGS-
manna. Hefur jafnvel heyrzt að lög-
banni hali verið hótað.
Viðkvæmt og
erfhtmái
DV hafði tal af einum SGS-manna
hérlendis, Gunnari Skaptasyni. Hann
vildi ekki ræða þessi mál að sinni,
taldi þau viðkvæm og erfið viður-
eignar.
Gunnar tók þó fram að skýrslur
sem þcir tækju af skreið við útskipun
létu þeir viðkomandi menn staðfesta,
svo sem matsmenn á staðnum og
jafnvel bilstjóra á vörubílum, sem
flutt hefðu farm sem athugasemdir
væru gerðar við.
Hryiiingssögur
afskreið
„Maðkurinn skreið af skreiðar-
böllunum. Maðkurinn skreið um alla
bryggjuna. Útlendingarnir horfðu á
þetta. Einn jreirra spurði hvur
djöfullinn það væri sem þarna
skriði.”
Þetta er ekki lýsing úr fslandssög-
unni af matvælum sem bjóða átti ís-
lendingum á einokunartímabilinu.
Þetta er lýsing sjónvarvotts, sem
fylgdist með því er verið var að skipa
út skreið í Keflavíkurhöfn sl. haust.
Vörubíll með skreiðarfarm stóð á
bryggjunni. Allt umhverfið var mor-
andi í maðki.
Skreiðarfarmurinn beið þess nú að
verða skipað um borð í erlent flutn-
ingaskip sem sigla átti til Nígeríu.
En farmurinn fór ekki lengra.
Starfsmenn Alþjóðlegu vöruskoðun-
arinnar, SGS, voru á staðnum ogi
gátu engan veginn skrifað upp á vöru
þessa.
Þremur vikum síðar sást þessi sami
skreiðarfarmur í Hafnarfjarðarhöfn.
Nú átti að reyna að koma honum um
borð í annað erlent flutningaskip og
að þessu sinni var eigandinn með
vottorð frá Framleiðslueftirliti sjáv-
arafurða. En fulltrúar SGS voru aft-
ur á staðnum og komu í veg fyrir að
farmurinn færi um borð.
Þar með var sagan ekki öll. I þriðja
sinn var reynt að koma þessari sömu
skreið frá íslandi og nú var reynt í
gegnum höfn á Norðurlandi. Þá kom
eigandinn með þá afsökun að búið
væri að flokka möðkuðu skreiðina
frá.
Blaðið þekkir sögu þessa skreiðar-
farnts ekki frekar. En ekki þarf að
koma á óvart þó hann hafi að lokum
komizt ofan í maga fólks i Nígeríu.
Hér mun ekki vera um neitt eins-
dæmi að ræða, því miður. Blaðinu
hefur tekizt að afla upplýsinga af
fleiri dæmum af sama toga. Til að
lesendur átti sig á um hve stórt og al-
varlegt mál er að ræða skulu tilgreind
hér nokkur dæmi, sem óhætt er að
segja að séu hrikaleg.
Seint á sl. sumri sigldi italskt skip á
hafnir víðs vegar um landið og tók
skreið. Því var ætlað að taka þrjátíu
þúsund balla af skreið. Fulltrúar SGS
fylgdu skipinu og mun þetta hafa ver-
ið fyrsta verkefni þeirra af þessum
toga hérlendis.
Samkvæmt heimildum, sem DV
telur traustar, höfnuðu SGS-menn
átta þúsund böllum af þeim þrjátíu
þúsund, sem um borð áttu að fara,
vegna undirvigtar, bleytu, ýldu eða
maðks.
Ennþá meiri
hryllingur
Annaðerlent flutningaskip sigldi
umhverfis landið skömmu siðar í
sömu erindagjörðum og hið fyrra.
Því var einnig ætlað að taka um
þrjátíu þúsund skreiðarballa. Að
þessu sinni var engu hafnað vegna
undirvigtar en sex til sjö þúsund böll-
um vegna raka, ýldu eða maðks.
Þá hefur blaðiðhaft spurnir af ný-
legri dæmum um maðkétna skreið þó
áð maðkur hafi ekki fundizt í henni.
Kunnáttumaður sagði blaðinu að
hin svokallaða sumarupphenging
skreiðar hefði gjörsatnlega mistekizt.
Skreið hefði verið hengd upp á sumri
og ekki tekizt að halda maðki frá.
Það einkennilega við fyrrgreind
dæmi er að matsmenn Framleiðslu-
eftirlits sjávarafurða höfðu gefið
skreiðinni gæðastimpla sína, gefið út
vottorð þess efnis að hér væri um út-
flutningshæfa vöru að ræða.
Samkvæmt reglugerð Framleiðslu-
eftirlitsins er fiskur, sem maðkur hef-
ur komizt í, ekki útflutningshæfur.
Hvað segir
forstjóri
Framleiðslu-
eftiriitsins?
„Kvörtun vegna skreiðar hefur
ekki borizt okkur síðan ég kom hing-
M
Mynd þessi var tekín í Hafnarfirði i júií 1980. iferiö var aö skipa út skreiö
og hausum. Vakti það athygli aö hvhir maðkar lágu eftír á bryggjunni i
talsverðum mæli. Ef vel er skoðað má greina maðkana á myndinni.
DV-mynd: Sigurður Þorri.
að fyrir sex árum. Eg held að það sé
ekki hægt að segja að slæmt ástand
sé þegar aldrei hefur komið kvörl-
un,” sagði .lóhann Guðmundsson,
forstjóri Framleiðslueftiriits sjávar-
afurða.
„Að skreiðarmatið sé í einhverju
óskaplegu ólagi er af og frá. Skreiðin
er af ýmsum gæðaflokkum en það
verður að telja að hún hafi fallið
kaupendum vel i geð því þeir hafa
aldrei kvartað. En við verðum að
gera okkurgrein fyrir því að kvartanir
geta komið. Það verður aldrei sett
upp þannig eftirlitskerfi að það sé
útiiokað að kvartanir komi,”- sagði
Jóhann.
Hann var spurður um samskipti
Framleiðslueftirlitsins við SGS-menn
og þá sérstaklega um hvort árekstrar
hefðu orðið. Ennfremur um hvort
Framleiðslueftirlitið hefði á einhvern
hátt reynt að hindra afskipti SGS-
mann.
„Ef kaupandi óskar eftir að skoða
vöruna, hann sjálfur eða fulltrúi
hans, þá er það allt i lagi. Þá skoða
þeir vöruna með okkar mönnum. Við
getum ekki gert athugasemdir við það
ef fulltrúi kaupenda vill skoða vör-
una.
Við höfum haft sainband við SGS-
menn og rætt um það hvernig þeir
skoða. Það er fullt samkomulag um
það. Við höfum rætt við þá um það
hvernig þeir hagi sínum skoðunum —
fari með okkar mönnum.”
— Var ágreiningur í upphafi um
starfsaðferðir SGS-manna?
„Það held ég ekki. Þetta er alþjóð-
legt fyrirtæki og þegar þeir byrjuðu
hérna höfðu þeir nú ekki mikla þjálf-
un í skreið. Við höfum upplýst þá um
ýmsa hluti.
Mér finnst eins og það sé verið að
reyna að mála skrattann á vegginn.
Mér finnst eins og þú sért að reyna að
Ieita að einhverri áesifregn.
En það hefur aldrei komið kvörtun
og menn geta velt því fyrir sér hvort
það segi ekki eitthvað.”
— Hafa SGS-menn stöðvað gall-
aða skreið, jafnvel ormétna, sem
matsmenn Framleiðslueftirlitsins
hafa verið búnir að hleypa í gegn?
„Það held ég að hafi nú ekki kom-
ið fyrir. En okkar yfirmatsmenn hafa
stundum stöðvað skreið sem aðrir
hafa metið. En miðað við það heild-
armagn sem flutt er út er þetta ekki
mikið. En þegar yfirmat er þá getur
slíkt gerzt.”
— DV hefur fengið upplýsingar
um að SGS-menn hafi stöðvað veru-
legan hluta af farmi sem erlent skip
átti að taka í sumar, jafnvel allt að
þriðjung. Er þetta rétt?
Bölvuð vitieysa
„Þeir stöðva ekki. Það erum við
sem stöðvum. Það kemur fyrir að yf-
irmatsmenn Framleiðslueftirlitsins
stöðvi afurðir, bæði skreið og annað.
Þá hafa þessir menn bent okkur á
það, hafi eitthvað verið. En að það
hafi verið stöðvaður þriðjungur i
skipi er alveg af og frá. Hvaðan hefur
þú þessa bölvuðu vitleysu?
Kjarni málsins er sá að það eru
nratsmenn sem meta, síðan fara yfir-
matsmenn yfir það og það kemur fyr-
ir að þeir stöðva. SGS-mennirnir
hafa farið í þetta með okkar mönn-
um. Kaupanda er leyfilegt að skoða
vöruna, að sjálfsögðu. En að þeir
hafi stöðvað einhver lifandis feikn er
alveg fráleitt.
Þegar skreið er hengd upp yfir
sumarið er hætta á að skreiðin
maðki. Það kemur fyrir. Sú skreið er
dæmd frá. Það höfum við gert og
það oftar en einu sinni. Ef við viljum
hindra að maðkur komist I skreið
verðum við að hætta að hengja Itana
upp í marga mánuði á ári. Þetta er
valkostur. Maðkur kemst alltaf í eitt-
hvað af skreið og hún er stöðvuð, í
flestum lilfellum af matsmönnum.
Það hefur stundum eitthvað aðeins
komizt í gegn en ef þú ert að halda
því fram að við flytjum í stórum stíl
út maðkaða skreið þá er það bara
hreinlega ekki rétt.”
Fjöldi
skreiðarframleiðenda
án vinnsluleyfa?
— Hvað er hæft í sögusögnum
þess efnis að fjöldi manna, jafnvel
60—70, verki skreið án vinnsluleyfa?
„Þú ættir að tala við þann sem
hefur upplýst þig um þetta. En ég
held að þetta sé ekki rétt. Það getur
verið að einhverjum manni detti allt í
einu í hug að fara að verka skreið og
átti sig ekki á því að hann þarf leyfi.
En við komuinst alltaf að því fljót-
lega. Það er t.d. ekki hægt að flytja
skreið út án þess að við vitum það,
það er hreinlega ekki framkvæman-
legt. Og ef um einhverja framleiðslu ,
að ráði er að ræða þá komumst við
mjög fljótt að því. Það hefur komið
fyrir að menn liafi farið í gegn en það
hefur aldrei verið í stórum stíl.
Skreiðarverkendum hefur fjölgað,
sem leiðir af því að hagstætt hefur
verið að verka skreið undanfarið.
En að verið sé að flytja út
skemmda vöru í stórum stíl er frá-
leitt. Vissulega hafa orðið slys, sam-
anber fréttir um freðfiskinn. En þá
kemur spurningin: Hvers vegna fáum
við 40 prósent hærra verð heldur en
aðrir? Ég held að það svari spurning-
unni: Það er vegna þess að okkar
fiskur er beztur.
Eins er þetta í skreiðinni. Þar er að
vísu framleitl fyrir allt annan niark-
að. Þelta er í Alríku þar sem allt ann-
ar smekkur er og allt aðrar aðstæður.
Við höfum flutt út þangað mikið
magn á undanförnum árum og senni-
lega hefur skreiðarframleiðsla sex-
faldazt á tveimur árum. Þannig að
það má alveg búast við að verði ein-
hverjir erfiðleikar. Slíkt væri ekki
nema eðlilegt. En það hefur engin
kvörtun komið, ekki ein einasta. Ég
held að það svari öllum fullyrðingum
um að við séum að flytja út maðk-
aða, úldna og blauta skreið.”
— Er ríkiseftirlit nauðsynlegt þeg-
ar stór sölusamtök eru komin með
eigið gæðaeftirlit?
„Já, ég myndi telja það. En ég sé
ekki rökin fyrir því að það eigi ein-
göngu að vera ríkiseftirlit. Það eru
um hundrað frystihús á íslandi og
mér finnst alveg sjálfsagt að þau hafi
eigið gæðaeftirlit.”
Hversvegna
Fiskmatsráð?
— Hvers vegna er verið að skipa
sérstakt Fiskmatsráð?
„Þetta er ráð til að vera okkur til
ráðleggingar, mér og ráðuneytinu, og
það er ekki nema gott um það að
segja.
— Er Fiskmatsráðið komið til
vegna þess að mönnum þykir Fram-
leiðslueftirlitið ekki standa sig?
„Það þykir sjálfsagt sitt hverjum,
býst ég við. Stofnun eins og Fram-
leiðslueftirlitið verður alltaf umdeild
og þarf ekki að búast við öðru,”
sagði Jóhann Guðmundsson, for-
stjóri Framleiðslueftirlitsins. -KMU.