Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982. fijálsl, áháð dagblað Útgáfufólag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Hörður Einarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram. AÖstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Auglýsingastjórar: Páll Stefánsson og Ingólfur P. Steinsson. Ritstjórn: Síðumúla 12—14. Auglýsingar: Slðumúla 8. Afgreiðsla, éskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: Þverholti 11. Simi 27022. Simi ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: Hilmir hf., Siöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skerfunni 10. Áskriftarverð ó mónuði 100 kr. Verð í lausasölu 7 kr. Helgarblaö 10 kr. Hnútur i Helguvík Helguvíkurmálið er í hnút. Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra hefur farið sínu fram án þess að spyrja Alþýðubandalagið eins cða neins. Það er vel, að neitunarvaldi Alþýðubandalags- ins sé hnekkt á þessu sviði varnarmálanna. í stjórnar- sáttmálanum er ekki tekið fram, að allir aðilar ríkis- stjórnarinnar þurfi að vera sammála um aðgerðir í þessu efni. Sá skilningur utanríkisráðherra er því rétt- ur, að hann geti á eigin spýtur úrskurðað um það. Hitt er lakara, að lítil sátt er um síðustu gerðir ráð- herra. Keflvíkingum er málið vissulega skylt, og þeir hafa nú nokkuð aðrar skoðanir en utanríkisráðherra virðist hafa. Ólafur Jóhannesson hefur sent bandarískum stjórn- völdum sínar hugmyndir um framkvæmdir í Helgu- vík.Þar mun umaðræða aðolíugeymar verði á Helgu- víkursvæðinu og þar verði gerð olíuhöfn fyrir varnar- liðið. Ekki mun i ráði að geymarúm verði stækkað frá því sem nú er. Með því er slegið á áróður alþýðu- bandalagsmanna um, að stefnt sé að stórauknum hernaðarframkvæmdum með mikilli stækkun geyma- rýmis. Hugmyndir Ólafs voru ekki afgreiddar í ríkisstjórn- inni og óvíst, að þær hafi verið kynntar í þingflokki Framsóknarflokksins. Gert er ráð fyrir, að Helguvíkursvæðið verið eftir þessar framkvæmdir afgirt varnarsvæði. Meirihluti bæjarstjórnar í Keflavík hafði löngum verið hlynntur framkvæmdum við Helguvík. Mikil mengunarhætta stafar af olíugeymunum þar sem þeir eru og brýn nauðsyn á að flytja þá. En meirihlutinn í Keflavík virðist hafa hugsað sér viðtækari lausn en Ól- afur Jóhannesson. Njarðvíkingar hafa hafnað sameiningu við Keflavík. Augljóst er því, að byggðin í Keflavík hlýtur við aukningu næstu ára að færast í áttina til Helguvíkur, sem er steinsnar frá. Samkvæmt tillögurp Ólafs yrði þar fyrir afgirt varnarsvæði. Enn frekar leggja Keflvíkingar áherzlu á, að höfn i Helguvík verði meira en olíuhöfn fyrir varnarliðið. Þeir vilja, að þar verði gerð fullbúin út- og upp- skipunarhöfn. Flutningar varnarliðsins fari til dæmis um þessa höfn og Keflavíkurkaupstaður fái drjúgar tekjur af. Þessir flutningar flytjist að mestu frá Reykjavíkur- höfn til Helguvíkur. Keflvíkingar sjá fram á stóraukna atvinnu við stór- framkvæmdir í Helguvík. Þeir vilja, að Bandaríkja- mtnn greiði framkvæmdir að fullu. Þeir stefna að nýjum tekjustofni, sem renni stoðum undir rekstur bæjarfélagsins. Margt er hæft í þessari „aronsku” Keflvíkinga. Réttmætt er, að Bandaríkjamenn taki mun meiri þátt en nú er í ýmsum framkvæmdum við samgöngumann- virki, ekki sízt þegar aðstaðan er þeirra eigin hagur. Þessari umræðu blandast einnig vangaveltur um höfn fyrir sjóefnavinnsluna á næstu árum. Sagt er, að sumt af framleiðslu hennar muni fara illa saman við olíu og þurfi annars konar höfn. Því er til athugunar að byggja enn eina höfn á þessu svæði. Keflvíkingar hafa þannig ekki sætt sig við þær hug- myndir, sem utanríkisráðherra hefur lagt fram. Erfitt verður að ganga alveg framhjá óskum þeirra. Ólafi nægir því ekki að snúa Alþýðubandalagið af sér. Hann þarf enn að glima við að leysa hnútinn. Haukur Helgason. Mcðal annarra orða „Þú kastar ekki skít, nema að óhreinka sjálfan þig” Við íslendingar státum okkur oft af miklum afrekum á sviði íþrótta og er þá gjarnan vísað til hinnar frægu höfðatölu. Ein er þó sú grein sem við eigum víst litla möguleika á að keppa í. Er það kannski miður að sumu leyti, því ekki þyrfti að efast um árangur okkar í slíkri keppni. Þessi grein er okkar eina og sanna þjóðar- sport, nefnilega að slúðra um náung- ann. Kannist þið við fyrirbæriö? Þessi merkilega árátta okkar er oft afsökuð með því að hér sé fámennið svo mikið, að fólk hreinlega komist ekki hjá því að vita allt, um allt og- alla. En hvílíkt bull. Vissulega má viðurkenna að oft á tíðum er auðveldara að afla sér upp- lýsinga um næsta mann, þar sem fjarlægðir eru minni og fáir búa. En það furðulega er, að allar sögurnar og allt slúðrið eiga það sameiginlegt, að draga fram allt það versta og nei- kvæðasta við náungann. Þrátt fyrir fámennið, reynist það álíka örðugt að hlera eitthvað gott og jákvætt um næsta mann, eins og að leita að lítilli saumnál í stórum heystakk, svo not- uð sé gömul og gild samlíking. Að vinna á dagblaði er í sjálfu sér upplifun á þessu sviöi. Sá fjöldi fólks sem fær útrás í þvi að lepja sögur og óhróður um menn, málefni eða fyrir- tæki í blöðin, er hreint ótrúlegur. Framundan er fengsæl tíð fyrir þetta fólk, í væntanlegum kosningum til bæjar- og sveitarstjórna hér á landi. Gildir þar einu hvar i flokki fórnar- lömbin standa og hversu sundurleit þau eru að öðru leyti. öll eiga þau það sammerkt, að hafa afrekað eitt- hvað misjafnt, orðið fótaskortur í einkalífínu eða misnotað aðstöðu sína. Hvergi heyrist hvað þeir hafa til síns ágætis, enda ekki við hæfi. Slíkt væri aðeins hrein og klár auglýsinga- mennska, eða hvað? örfáir eru það sem ekkert heyrist um. En það er ekki af því að þeir séu neitt skárri. Nei, aldeilis ekki. Þeir hafa bara fariö svo fínt í misfellurnar, að ekkert fréttist. Það er löngu viðurkennd staðreynd að slúðurdálkar blaðanna eru vinsæl- asta lesefni þeirra. Því svæsnari sem þeir eru og því meira sem níðzt er á einkalifi náungans, þeim mun fleiri lesa, þeim mun meira spennandi. Og það þarf svo ekki frægt fólk til. Hvar sem er í þjóðfélaginu, jafnt hjá háum sem lágum, alls staðar er ein- hver Gróa á Leiti í startstöðu, tilbúin að grípa það sem gefst, hversu ómerkilegt sem það kann að vera. Og Gróa lætur ekki þar við sitja, heldur bætir um betur, svo útkoman verður oft á tíðum stórkostleg. Enda varla annað sæmandi bókaþjóðinni miklu, þar sem skáldskapargáfan hefur um aldaraðir verið tilbeðin sem æðsta dyggð. En hvað er það sem veldur? Hvaða hvatir eru það sem við fáum útrás fyrir í rógburðinum? Rógur og lygi eru aldrei ein á ferð. Þau eiga sér óaðskiljanlega félaga, sem eru öfund, vanmáttarkennd og heimska. Allir þessir eiginleikar eru órjúfanlega tengdir. Ekkert getur án hins verið. Að rækta með sér öfund stafar af heimskulegri vanmeta- kennd, vanþekkingu og vantrausti á sjálfum sér. Gamaldags hugsun i sjálfu sér, nú þegar allir eru í raun jafnir og enginn talinn öðrum æðri. Að vísu vegnar fólki misjafnlega í Iíf- inu. Sumum tekst vel upp á einu sviði, á meðan aðrir njóta sín á öðru. Að ætla sjálfum sér þann ofmetnað að vera fremstur á öllum sviðum, er heimska og merki um ótrúlega van- þroskaða hugsun. En hverju er öfundarmaðurinn bættari, þó hann dragi náungann niður í svaðið? Gerir hann nokkuð annað en að opinbera eigin heimsku og vanmáttarkennd? Eða sá sem leggur eyrun við og bætir kannski um betur. Ekki er hans andlega fötlun minni. Og ekki hagnast sá sem rægð- ur er, því það eru hans hugsanir, til- finningar og gerðir sem troðið er á, hans mannorð sem sparkað er í. Hvilík þjóðaríþrótt! Einn góður vinur minn og kennari frá unglingsárum, lét oft ýmis spak- mæli falla við bráðlynda og óþolin- móða nemendur sína. Eitt af þvi sem hann sagði við okkur var: „Þú kastar ekki skit í náungann, nema að óhreinka sjálfan þig í leiðinni.” Fleyg orð og ótrúlega full af sannindum. Jóhanna Birgisdóttir, blaðamaður. Þorstainn Kristjánsson, bróðir Vigdísar, og systurdœtur hennar, Rannveig og Unnur, viO vefstóiinn sem sýndur ermoð verkum iistakonunnar. (Ljósm. Bjarnierfur). Vef naður í Listasaf ni ASÍ I dag verður opnuð í Listasafni Al- þýðusambands Íslands sýning á verk- um Vigdísar Kristjánsd., myndlistar- konu en þessa dagana er liðið eitt ár frá þvi að listakonan lézt. Hún var þá 78 ára að aldri. Það eru þau Þorsteinn, bróðir Vigdísar, og systurdætur hennar, Rannveig og Unnur, sem í samvinnu við listasafnið hafa unnið að uppsetn- ingu sýningarinnar sem er yfirlitssýn- ing. Þar eru 28 myndvefnaðarverk, 10 vatnslitamyndir og skissur að vefnaði. Á sýningunni verða einnig litskyggnur um listferil Vigdísar og hefur Hrafn- hildur Schram listfræðingur unnið þann þátt auk þess sem hún valdi verk á sýninguna sjálfa. Eini salurinn.., Myndir Vigdísar njóta sin mjög vel í sal Listasafnsins enda er hann vel til vefnaðar fallinn. Á blaðamannafundi, sem haldinn var í tilefni opnunar sýn- ingarinnar, gat Hrafnhildur þess að raunar væri þessi salur sá eini í Reykja- vík sem hentaði slíkum sýningum, enda hefur það sýnt sig að veflista- menn nota hann gjarnan. Eins og fram kom er hér um yfír- litssýningu að ræða og eru elztu verkin frá árinu 1930 — en flest þó frá 1968 eða þar um bil. Þarna getur m.a. að líta vefjamyndir Vigdísar um landnám Ingólfs og Hallveigar sem nú eru báðar í eigu Reykjavíkurborgar. Myndirnar voru ofnar fyrir tilstuðlan Bandalags kvenna i Reykjavík ‘ eftir fyrirmynd Jóhanns Briem listmálara. Gat Hrafnhildur þess, er hún sýndi blaðamönnum myndirnar, að mikið hefði breytzt frá því Vigdís var beðin um að vefa þessi tjöld árið 1961 í því að nú fengist varla nokkur vefari til að vinna eftir teikningum annarra. En í þá daga var enn litið á vefnað sem túlk- unarmáta — ekki sköpun í sjálfu sér. '^P i I Iwm Vigdís Kristjánsdóttir vefíistakona. Þoiinmæöi þrautir vinnurallar Þá er á sýningunni skemmtilegur vef- stóll, norskur að uppruna, og hefur Vigdis keypt hann og flutt með sér heim. Stóllinn er málaður og stendur á honum smíðaárið, 1889 og „God taalmod faar gærne god ende” eða þolinmæði þrautir vinnur allar sem mun ekki slæmt heilræði vefara. í stólnum er slðasta myndin sem Vigdís byrjaði á og er af sólarlagi. Hjá honurn liggja í körfu hnyklarnir sem hún hugð- ist nota, nátturulitaðir af henni sjálfri. Vigdis Kristjánsdóttir var braut- ryðjandi á sviði veflistar hér á landi. Hún fæddist árið 1904 og stóð hugur hennar snemma til listnáms. Hún lærði á píanó í tónlistarskóla Páls ísólfssonar og síðar i Þýzkalandi og jafnhliða þessu námi sótti hún tíma i teiknun hjá Stefáni Eiríkssyni, Ríkharði Jónssyni, Finni Jónssyni og Mugg. Síðan fór hún í Handiða-og myndlistarskólann. Og 42 ára gömul, gift kona orðin, siglir hún til Kaupmannahafnar til að læra við Konunglega akademíið þar. Hingað til hafði hún málað og teiknað, nú tek- ur hún til við vefínn. Kennari hennar í Danmörku veitti því athygli að hið smáa myndform hentaði vel mynd- hugsun Vigdísar og stakk upp á að myndvefnaður væri e.t.v. hennar rétti miðill. Eftir það virtist ekki aftur snú- ið, þótt fram hafi komið að hún hafi séð dálítið eftir að hafa hætt að mála. Vigdís sýndi vefnað í fyrsta ski pti árið 1952. Síðasta sýningin sem hún tók þátt í var „Listiðn íslenzkra kvenna” að Kjarvalsstöðum árið 1980. Vigdís Kristjánsdóttir lézt þ. 11. febrúar árið 1981. Yfirlitssýningin varir til 6.marz og er opin alla daga frá kl.14—22. Ms

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.