Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982.
15
AFUTANFÖR
FORSETA ÍSLANDS
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, fer eins og kunnugt er í opinbera
heimsókn til Bretlands á þriðjudaginn
kemur í boði ríkisstjórnar hennar
hátignar, Elisabetar II.
í föruneyti forsetans verður utan-
ríkisráðherra, Ólafur Jóhannesson, og
kona hans, Dóra Guðbjartsdóttir,
Hörður Helgason, ráðuneytisstjóri og
kona hansOg ýmsum
kann að leika forvitni á hvað haft verð-
ur fyrir stafni í þessari opinberu heim-
sókn og því tæpast úr vegi að segja frá
þvi nokkuð náið.
Móttaka á f lugvellinum
Gert er ráð fyrir að farkostur Flug-
leiða lendi á Heathrow - flugvelli um
hádegisbilið á þriðjudag. Þar taka á
móti forsetanum Lord Skelmersdale,
The Queen’s Lord in Waiting eða yftr-
hirðmaður drottningarinnar og Sir
Edwin Arrowsmith, fulltrúi brezka
utanríkisráðuneytisins. Móttakan fer
fram í VIP (very improtant persons) sal
í flugstöðvarbyggingunni.
Forsetlnn mun einnig heimsækja fæöing-
arbæ Shakespeares, Stratford-on-Avon.
Ekkert er á dagskránni síðdegis,
þriðjudag, en þó er vitað að bæði
blaðamenn og útvarps- og sjónvarps-
stöðvar hafa farið fram á viðtöl við
forsetann þann dag.
Rætt viö ráðamenn
og farið á safn
Forsetinn og föruneyti hennar mun
búa á Hyde Park hótelinu og þar tekur
forsetinn á móti gestum fyrri hluta
miðvikudags. Lord Carringdon, utan-
ríkisráðherra Bretlands kemur fyrstur
til viðræðna, þá viðskiptaráðherrann.
Að þessum fundum loknum koma
björgunarmenn þeir, sem aðstoðuðu
skipbrotsmenn Tungufoss í Ermasundi
og má gera ráð fyrir að þeim verði
sýndur hjartanlegur þakklætisvottur
fyrir afrek sín.
Um hádegisbilið fer forsetinn síðan á
fund forsætisráðherra Breta,
Margaret Thatcher og snæða frúrnar
saman hádegisverð í Downing Street
nr. 10. Ekki vitum við hverjir verða
aðrir í því boði en forsetinn ásamt föru-
neyti.
Eftirmiðdeginum verður eytt i því
merka safni, The British Museum sem
er margt í senn, bókasafn, fomleifasafn
o.fl. og eitt risavaxnasta safnhús sem
líta getur. Er þó aðeins gert ráð fyrir
klukkustundar dvöl þar og þaðan
verður farið í Þjóðleikhús þeirra Breta,
The National Theatre - sem er marg-
slungin bygging á syðri bakka Thames-
árinnar. Þar eru leiksviðin öllu fleiri en
eitt og nóg að skoða fyrir áhugafólk
um leiklistina. Ekki hefur komið fram
að forsetanum gefist kostur á að sjá
leiksýningu þarna.
Og þá tekur við kvöldverður á
Savoy-hótelinu, verður þar eflaust
mikið um dýrðir og margt um góðan
bita.
í höllinni
Snemma morguns á fimmtudag
heimsækir forsetinn skóla í úthverfi
Lundúna og þaðan er ferðinni heitið í
sjálft höfuðvigi konungdæmisins,
Buckingham Palace, heimili Breta-
drottningar. Þar verður hádegisverður í
boði drottningarinnar.
Eftir niatinn heimsækir forsetinn
þinghcim Bretaveldis, hittir þar að máli
Ensk-i ienzku nefndina svonefndu, en
það . nefnd þingmanna, sem láta sig
málefni og tengsl landanna sérstaklega
varða. Þessi fundur verður jafnframt
te-boð og formælandi nefndarinnar er
James Johnson, sem mun vera þing-
maður vina okkar í Grimsby.
Að kvöldi fimmtudagsins fer siðan
fram mikil veizla í boði borgarstjórnar
Lundúna.
Út á land
Eldsnemma á föstudag verður farið
til Oxford, háskólabæjarins. Þar verð-
ur heimsóttur spítali The Radcliffe In-
firmary og skoðaðar deildir hans en há-
degismatur verður snæddur i Green
College í boði Sir Richards Doll og
frúar hans Lady Doll.
Frá Oxford liggur svo leiðin til
fæðingarbæjar Shakespeare, Stratford
við Avonfljót og þar skoðuð leikhús og
annað sem heldur minningu skáldjöf-
ursins i heiðri. Að lokinni tedrykkju er
aftur haldið til höfuðborgarinnar.
Þorrablót í þokkabót
Á laugardag er opinberri heimsókn
því sem næst lokið og ekki annað eftir
en að sitja Þorrablót með íslendingum
búsettum í Englandi. Forsetinn verður
þar heiðursgestur kvöldsins.
Og á sunnudaginn flýgur Vigdís
Finnbogadóttir aftur heim til íslands i
flugvél Flugleiða, og mun vélin frá
Kaupmannahöfn leggja sérstaka lykkju
á leið sína um London til að færa
ferðafólkið heim á ný.
Ms
Downing
Street nr. 10.
Forsetinn mun
hitta Marga-
ret Thatcher
að máli þar á
miðvikudag.
■Kvenskór — Ný sending
Teg. 6436
Litur: Svart rúskinn,
leðurfóðraðir
Stærðir: 3 1/2—7
Verðkr.519,
Teg. 6430
Liturgró
bronse leður,
leðurfóðraðir
Stærðir: 31/2—7
Verðkr.519,-
Teg. 6408
Litur: grátt, bordó
svart rúskinn,
leðurfóðraðir
Stœrðir: 3 1/2—7.
Verð kr. 460,-
Teg. 4407
Litur. bordó og ðrapp
rúskinn með stungnum
bol, loðfóðraðir
Stærðir: 3 1/2-7
Verðkr.520,-
Te
Lii
brúnt rúskinn
Stæræðir: 3 1/2—7
Verð kr. 495,-
PÓSTSENDUM
Utur: kaki og dökk-
blitt leður, stangaðir
aðofan
Stærðir: 3 1/2—7
Verð kr. 485,-
*mrttawiiKicaK»iiiAiintf;
Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795
KOSNINGASKRIFSTOFA
stuðningsmanna
SIGURÐAR
E. GUÐMUIMDSSONAR
BORGARFULLTRÚA
íprófkjöri Alþýðufíokksins íReykjavík
helgina 13.—14. febrúar verðurí veitíngahús-
inu Giæsibæ (kaffíteria 2. hæð) við Álfheima
KOSNINGASÍMAR:
82782 - 82784
STUÐNINGSMENN