Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 32
við mér” áAkureyri — segir Stefán Gunnlaugsson deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu — segir Jósteinn Kristjánsson ,,Maður er að heyra alls konar sögusagnir en það hefur enginn maður rætt um þetta við mig úr flokknum,” sagði Jósteinn Kristjánsson í viðtali við DVígær. Við spurðum hann þá að þvi hvort um það hefði verið rætl að hann tæki eitthverl annað sæti en það þriðja á lista framsóknarmanna i borgar- stjórnarkosningunum í vor. Jósteinn varð í þriðja sæti í prófkjöri framsóknarmanna en nú hel'ur heyrzt að stjórn fulltrúaráðsins i Reykjavík ætli að bera fram tillögu um að saman- lögð atkvæðatala í prófkjörinu verði látin ráða röð manna á listanum. Mun það þýða að Jósteinn hrapar niður í níunda sæti. „Ef það verður hróflað við mér úr því sæti sem ég vann i prófkjörinu hætti ég öllum afskiptum af flokknum. Ég var ekki að leika mér að því að fara í prófkjör. Það var lögð mikil vinna í þetta af mér og mínu stuðningsfólki innan flokksins og við látum ekki einn eða tvo menn, sem telja sig hafa liags- muna að gæta með því að fá mig færðan neðar á listann, setja fólinn fyrir mig úr þessu.” -klp- Spáin hagstæð skíðamönmim sunnanlands Veðurspáin er hagstæð þeim sem hyggjast skreppa í skíðalönd i nágrenni höfuðborgarinnar um helgina. Spáð er norðaustanált um allt land, bjartviðri sunnanlands en éljum norðan heiða. Skiðafólk i Seljalandsdal í Skutuls- firði, Hlíðarfjalli fyrir ofan Akureyri og Oddsskarði gæti hins vegar þurft að búa við él. Ólag hefur verið á rafmagnsmálum Bláfjalla en því hef.ur nú verið kippt í liðinn. Var mikill fjöldi fólks i Bláfjöllum í gær og renndi sér í veðurblíðu. -KMU. Bikarkeppni SKÍ Skákmenn brugðu sér til Hveragerðis Frídagur var hjá skákmönnunum á Reykjavíkurmótinu í dag. Notuðu margir af þeim erlendu tækifærið og brugðu sér austur i Hveragerði til að skoða þ ar hveri og gróðurhús. Var myndin tekin er hópurinn var að leggja af stað frá Loftleiðahótelinu. — En ekki áttu allir frí. Biðskákir og ótefldar jskákir úr fyrstu umferð voru tefldar. íSkák hins rússneskættaða Banda- ríkjamanns; Gurevic, og Elvars Guðmundssonar, sem þrisvar hafði farið í bið, lauk loks í gær eftir að kapparnir höfðu setiðað tafli í tæpa 13 tíma og leikið 125 leiki. Féll Elvar á tínia i tapaðri stöðu. — Gurevic er nú efstur á mótinu með þrjá vinninga ei fimm skákmenn hafa tvo og hálfai vinning, þeir Helgi Ólafsson, Schneide frá Sviþjóð, Ivanovic frá Júgóslavíu Forintos frá Ungverjalandi og Kinder mann frá Vestur-Þýzkalandi. — Fjórði umferðin hefst í dag kl. 14. -KMU/DV-mynd: Bjarnleifur Engin ákvörðun veríö tekin um verðlækkun grásleppuhrogna: „Lágmarksverðkerfíð ósk útflytjendanna” Kleppsspítali og Kópavogshæli: Stofnanimar ganga á auknu álagi manna —um helmingur þeirra er lögðu niður vinnu á Kópavogshæli eru byrjaðir aftur, enenginnáKleppi ,,Um 50% þeirra er lögðu niður vinnu i fyrradag hafa hafið störf aftur,” sagði Eyjólfur Melsteð, að- stoðarforstöðumaður á Kópavogs- hæli, er DV hafði samband við hann síðdegis í gær. Sagði Eyjólfur að stofnuninni hefði verið haldið gangandi með auknu álagi á það starfsfólk sem verið hefði kyrrt og þá sem hefðu mætt aftur til vinnu sinnar. Eyjólfur var spurður hvort rétt væri sem fram hefði komið að þeim er gengu út hefði verið hótað að þeir fengju ekki endurráðningu, misstu barnaheimilispláss sín og fleira í þá áttina. ,,Það fýkur margt á milli fólks þegar svona stendur á,” sagði Eyjólfur. ,,Mér vitanlega hefur engum verið hótað að ekki yrði um endurráðningu að ræða. Hins vegar geta þeir sem ganga út ekki haldið hlunnindum sínum hér á staðnum, svo sem plássum á barnaheimilinu. Þetta var stúlkunum sagt áður en þær gengu út.” Eyjólfur sagði að ekki hefði verið ráðið í störf þeirra er gengu út. Slíkt yrði ekki gert fyrr en séð yrði hvernig málið þróaðist. Þórunn Pálsdóttir hjúk runarfor- stjóri á Kleppsspítala sagði að það hefði enginn þeirra er gengu út í fyrradag mætt til vinnu á ný. Væri spítalanum haldið gangandi með auknu álagi á starfsfólkið sem fyrir væri. -JSS „Eglæt ekki hrófla Bikarmót Skíðasambands fslands á Akureyri, Hermannsmót, fer fram um helgina. Allir beztu skiðamenn landsins eru skráðir til leiks, alls 41 keppandi. Þar á meðal er Árni Þór Árnason sem hefur dvalizt erlendis við æfingar og keppni. Bíða eflaust margir eftir að fylgjast með viðureign Árna og Sigurðar H. Jónssonar sem sigraði með yfirburðum á Húsavík. Sigurður er efstur karla í Bikarkeppni SKÍ í alpagreinum með 50 stig. lngigerður Júlíusdóttir er efst kvennameð28stig. -SG „Það hefur engin ákvörðun verið lekin enn en það er verið að kanna það mál hvernig hægt er að losna við þessar birgðir á sem hæstu verði,” sagði Stefán Gunnlaugsson, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, er DV bar undir hann hvort ákvörðun héfði verið tekin um tillögu sem Ólafur Jónsson, að- stoðarframkvæmdastjóri SÍS, hefur lagt fyrir ráðuneytið um að fá að lækka verð á útfluttum grásleppuhrognum úr 330 dollurum á tunnuna í 252 dollara. Stefán sagði að um 5700 tunnur væru nú eftir óseldar af birgðum síðasta árs og þar af væri SÍS með um 4500 tunnur af þvi magni i umboðs- sölu. Verðlækkunartillaga SÍS hefur vakið reiði margra útflytjenda sem tek- izt hefur að selja á hærra verðinu síð- ustu mánuði. En í sölusamninga þeirra hefur verið sett ákvæði um að verðið muni lækka ef ráðnuneytið muni gefa öðrum leyfi til verðlækkunar. „Það er nú reiknað með því að ef það þarf að lækka verðið, sem auðvitað er ekki víst að þurfi, þá verði gengið þannig frá hlutunum að kaupendurnir falli frá þessum verðlækkunarfyrirvörum. Aðalatriðið er að koma þessum óseldu birgðum í verð því að það eru margir aðilar sem eiga allt sitt undir því að þessi vara selj- ist. Hvort það þurfi að lækka verðið til þess að selja vöruna er ekki ljóst enn,' — þetta er allt í skoðun hér í ráðuneyt- inu. Ég vil taka það fram að þetta lágmarksverðkerfi er við lýði vegna eindreginna óska útflytjendanna.en er ekki upp fundið hér í ráðnuneytinu,” sagði Stefán Gunnlaugsson að lokum. ÓEF frýálst, óháð dagblað Samið um sölu á salt- f iski fyrir milljarð Sölusamband íslenzkra fiskfiamleið- enda hefur samið við ríkisfyrirtækið Reguladora í Portúgal um sölu á salt- fiski fyrir um einn milljarð króna á nú- gildandi gengi. Er söluverðið um 5% lægra í Bandaríkjadölum en í samsvar- andi samningi sem gerður var fyrir tæpu ári. Um er að ræða sölu á 31.500 t. til 41.250 t. af saltfiski en íslendingar ráða magninu sjálfír innan þessa ramma. Frá því sölusamningar voru gerðir á síðastliðnu vori hefur gengi Banda- ríkjadals hækkað mjög verulega. Hefur það gert markaðsstöðu íslend- inga erfiða á þeim mörkuðum þar sem keppt er við lækkandi gengi, t.d. norskrar og danskrar krónu, að því er segir í fréttatilkynningu frá Sölusant- bandi íslenzkra fiskframleiðenda. Sala Islendinga til Portúgals hefur aukizt mjög á síðustu árum og cr landið nú meðal mikilvægustu viðskiptalanda okkar. -KMU. För Danadrottningar engináhrrfáhlut- verkforsetaíslands „För Margrétar Danadrottningar er komin til vegna eindreginna óska frá fólki af dönskum uppruna þar vestra og hefur engin áhrif á það hlutverk sem á sínuni tíma var farið fram á við for- seta íslands að hún gegndi að hálfu Norðurlandanna,” sagði Ólafur Egils- son, sem nú gegnir starfi forsetaritara í ársleyfi Halldórs Reynissonar, er borin var undir hann frétt sænsks dagblaðs sem DV skýrði frá í gær. „Forsetaskrifstofunni var kunnugt um þessa för Margrétar áður en fréttin var birt um hana og kemur ekkert á óvart í því sambandi. Þessi frétt í þessu sænska dagblaði er því algerlega á mis- skilningi byggð,” sagði Ólafur Egils- son. -KMU. LOKI Eftir því sem oliuverðið lækkar í Rotterdam hækkar bensínverðið hórlendis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.