Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Síða 9
Laugardags pistill DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982. Sagan segir, að íslenzku þingmenn- irnir hafi ekki látið kné fylgja kviði, þegar þeir tefldu við hollenzka starfs- bræður sina á dögunum. Hinir ís- lenzku hafi, hver af öðrum, sætt sig við jafntefli með unna stöðu. Þeir hafi treyst því, að Friðjón skrifstofustjóri alþingis mundi sigra andstæðing sinn og tryggja íslenzkan sigur, sem og varð. Þetta hafi hinir ís- lenzku gert af góðmennsku sinni. Nú má vera, að hér sé á ferðinni saga, sem eigi að efla hróður þing- manna okkar í landinu en sé eitthvað ýkt. En víst eru Hollendingar mikil skákþjóð og ekki til lítils að sigra þá, fulltrúar hvaða starfsgreina sem þar takast á. Sem betur fer eru íslenzku keppend- urnir á Reykjavikurskákmótinu ekki fylltir slíkri manngæzku. Við vitum, að þeir munu láta kné fylgja kviði og sækja til vinnings, hvenær sem minnsta færi gefst. Óhætt er að mæla með heimsóknum á skámótið. Þar ríkir góður andi með áhorfendum, og þurfa menn ekki að vita mikið um skák til að njóta. Sjaldan komast menn langt frá krumlu pólitikurinnar jafnvel ekki við saklausa skemmtan og íþrótt. Heimspólitíkin spillti fyrir þessu skákmóti þegar Sovétmenn ákváðu að hundsa það, sennilega til að svekkja Friðrik. Stoðaði þá lítið, þótt andstæðingar Ingimars, forseta skák- sambandsins, hefðu kallað hann út- sendara Rússa i hörðum kosningaslag fyrir skömmu. Tryggingum ábótavant Margur skelfdist í vikunni, þegar veðurfræðingar spáðu ofsaveðri. Hver sagði öðrum, að búast mætti við einhverju álíka og var í febrúar í fyrra, þegar skemmdir urðu gífurleg- ar. Þá hafði verið sagt, að áratugir yrðu í næsta veðurofsa af því tagi, ef líkindareikningur gengi upp. Svo fór, að lítið varð úr því ofviðri, sem fólki fannst, að verið væri að spá, enda skyldu menn helzt engu spá um fram- tíðina, ef hjá því verður komizt. Hag- fræðingar fást mikið við það verk- efni að skýra, hvers vegna þessi og hin spá þeirra hafi ekki rætzt. Veður- fræðingar eru auðvitað i sömu súpu, en í sjónvarpinu tala þeir gjarnan ekkert um spá fyrri dags, þótt hún hafi verið fjarri lagi. Allra veðra er von á okkar landi, Manntafl og mannréttmdi má verða að einhverju.gagni, hversu litið sem er. Ekkert er við að athuga, þótt íslenzkur forsætisráðherra komi fram i þessu við hlið Iýðræðissinna. Spyrja má hversu vel Reagan Banda- ríkjaforseti hafi sómt sér i þessu blut- verki. í þann mund var Bandarikja- stjórn að uppgötva, að ríkisstjórnin í E1 Salvador hefði stigið stórt skref í að auka mannréttindi þar í landi. Aðrir en Bandaríkjastjórn höfðu ekki veitt þeirri mannúð athygli. Á þeim forsendum ákvað Reagan að stórauka hernaðaraðstoð við stjórn E1 Salvador. Amnesty International og aðrir hlutlausir aðilar telja, að svivirðileg brot á mannréttindum eigi sér stað í El Salvador. Morðsveitir fara um landið. Þar eiga sök bæði útsendarar stjórnarinnar og uppreisnarntenn, og mun sök stjórnarinnar sizt minni. Þessa rikisstjórn kúgunar styður Reagan Bandaríkjaforseti með oddi og egg. Þvi var spáð, þegar hann var kjörinn forseti, að honum mundi hætta til að púkka undir fasista- stjórnir í Rómönsku Ameríku og víðar um heim. Því er eðlilegt að efast um, hversu vel þessi maður sómir sér í hópi þeirra, sem mæla fyrir mannrétt- indum. Hver hemlar Reagan? Reagan hefur verið í fleiri fréttum í vikunni. Nú vill hann, að Banda- rikjamenn auki forða sinn af eituraf- urðum til hernaðarnota. Reagan segir sem svo, að njósnir hafi borizt af því, að Rússar eigi forða af slíkum eitur- efnum. Reagan hefur einnig látið til sin heyra með tillögur um frekari aukn- ingu framlaga til hernaðar en niður- skurð til félagsmála. Bandaríkjunum hefur verið þörf á niðurskurði ríkisútgjalda eins og fleiri ríkjum. Margir munu efast um, að Reagan og hans menn kunni að skera þau niður á réttum sviðum. Auk þess hyggst hann auka hernaðar- útgjöld á móti og endar líklega með hallarekstur á ríkisbúinu fyrir vikið. Reagan hefur haldið þingmönnum skelfdum, siðan hann vann sinn mikla kosningasigur. Fáir hafa þorað að rísa gegn honum. Vonandi fara nú fleiri að þora, svo að maðurinn fái það aðhald þingsins, sem bráðnauð- synlegter. Haukur Helgason. sem leiðir hugann að því, að trygg- ingum er hvergi nærri nógu vel fyrir komið. Þessu verður að breyta hið fyrsta. Viðlagatrygging gæti til dæm- is tekið við meiri viðfangsefnum, ef hún fengi tekjur til þess. Réttmætt er, að við greiðum öll eitthvað meira til slíkra trygginga, svo að bæta megi úr sameiginlegum sjóðum það tjón, sem verður af náttúrunnar völdum. Dauðinn og skatturinn Og í vikunni sveittumst við yfir skattframtölunum flest hver. Allt er óvíst í lífinu nema dauðinn — og skatturinn, hefur verið sagt. Þó er ekki vonlaust, að einhvern tíma get- um við komið af okkur tekjuskattin- um til ríkisins, ef dyggilega er að unn- ið, þótt nóg verði þá auðvitað eftir af sköttum. Undir það hafa margir tek- ið, og sú kenning er sannarlega ekki út í bláinn. Tekjuskatturinn hefur fyrir löngu orðið ranglátur launþegaskattur. Ekki þarf að rekja fyrir fólki, hvernig margir vel efnaðir komast undan tekjuskattinum. Þau dæmi þekkir hver borgari af viðskiptum sjálfs sín við þá, sem ,,ráða skattgreiðslum sín- um sjálfir”. Upphaflega átti stighækkandi tekjuskattur að vera til að jafna lífs- kjör t þjóðfélaginu. Þetta er orðið öfugmæli, þótt fjármálaráðherrar ýmissa tíma grípi til slíkra fullyrð- inga. Tekjuskatturinn er, vegna skattsvikanna, löngu orðinn ein helzta uppspretta ranglætis í okkar þjóðfélagi. Ekki nóg með það. S vaxandi mæli er viðurkennt, að sanngjarnt er, að skattborgararnir ákveði sjálfir, hvað þeir gera við tekjur sínar, í þeim mæli Láglaunafólk, sem eyðir tiltölulega miklu af tekjum sinum i brýnustu nauðsynjar, greiðir þá einnig lægra hlutfall í skatta. Vantaði Khomeini á skjáinn? Sjónvarpið sýndi í vikubyrjun bandaríska þáttinn um Pólland, „Let Poland be Poland” eða „Lifi Pól- land”. Sýningin var nokkuð um- deild. Leiðtogar ýmissa þjóða fjölluðu um harmlcikinn i Póllandi. Þar var margt satt og rétt sagt. Geti eitthvað slíkt orðið Pólverjum að liði i baráttu þeirra fyrir lífi og frjálsræði, svo sem ef meira safnast fyrir vikið, er sjálf- sagt að reyna það. Þrýstingur að vestan á stjórnirnar í Kreml og Varsjá kann að hafa eitt- hvert gildi. En ekki má gleymast, að Kremlverjar eru ekki líklegir til að sleppa krumlunni af Pólverjum. Frjálsræðið þar var að þeirra dómi orðið meira en þeir gátu við unað í leppríki. Margir hafa lengi spáð inn- rás Sovétmanna og ekki að ástæðu- lausu. Einu má gilda, hvort einhverjir Hollywoodleikarar tóku sig illa út í slíkum þætti eða ekki. Margir stóðu sig þokkalega, en aðrir voru leikara- skapurinn uppmálaður. Meira skipt- ir, að auðvitað átti mönnum að vera ljóst, að fráleitt var að láta einræðis- herra í Tyrklandi koma þarna fram við hlið annarra og gagnrýna ástand- ið í Póllandi. Það var guðlasti líkast. Hví þá ekki „þjóðarleiðtogi” E1 Salvador? Chile? íran? Vantaði Khomeini á skjáinn? Afstaða íslendinga á auðvitað að vera sú að mæla fyrir málstað pólsku þjóðarinnar, þegar færi gefst og það sem slíkt er unnt. Skerða þarf vald ríkisins til að gera eigur manna upp- tækár og ganga á þær tekjur, sem launbegar afla sér. Því er sú skatt- heimta eðlilegust, sem byggist á óbeinum sköttum á eyðslu fremur en stighækkand> tekjusköttum.Neytand- inn ákveður því með kaupum á skatt- lögðum vörum og þjónustu, hverju hann eyðir. Ríkið tekur ekki fram fyrir hendur hans í því. Með óbeinum sköttum getur rikið að sjálfsögðu náð þeim skatttekjum, sem landsfeðurnir telja sig þurfa til sameiginlegra þarfa, hvort kerfið, sem gildir. Munurinn er sá, hvert vald einstaklingurinn hefur. Auðvitað má beita óbeinum skött- um til tekjuöflunar, til dæmis þann- ig, að hærri skattur sé á vörum, sem teljast ekki til brýnustu nauðsynja. HaukurHelgason aðstodarritstjóri skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.