Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Side 2
2 ■ DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982. Veirusjúkdómur í minkum hérlendis: „Þaö getur fariö svo aö öll- um dýrunum veröi fargað” —segir Hjalti Gestsson, formaður búfjárræktarnefndará Búnaðarþingi „Það hefur komið upp veiru- |sjúkdómur i minkum, sem fluttir hafa verið til landsins, er valdið hefur [ófrjósemi. Þessi sjúkdómur hefur að ollum líkindum borizt hingað með dýrunum, þegar þau voru flutt inn,” sagði Hjaiti Gestsson, fulltrúi Bún- [aðarsambands Suðurlands og for- :maður Búfjárræktarnefndar, en mikið hefur verið rætt undanfarna daga á Búnaðarþingi, hvernig jbregðast skuli við þessum mikla vanda. „Ljóst er að aðgerða er þörf, en spurningin er, hverjar þær eiga að vera. Þó hefur verið rætt um tvær leiðir einkum á þinginu. Er önnur sú, að farga öllum dýrunum og hreinlega skipta um stofn, en hin að sótthreinsa öll dýrin. Mér heyrist þó, að menn séu hlyntari fyrrnefndu aðferðinni því að hér er um áhættusama búgrein að ræða og ekkert grín, ef illa tekst til.” Hjalti sagði ennfremur, að reynsl- an sýndi að ísland væri gott loðdýra- ræktarland og vel kæmi til greina að hefja refarækt hér á landi, en það mál væri þó enn allt á umræðustigi. Þá sagði Hjalti, að einnig hefði nokkuð borið á góma á þinginu, hvort bændur sjálfir ættu ekki að bera kostnað af þinghaldinu og borga úr eigin vasa allt uppihald. Sagði hann skiptar skoðanir vera um þetta, en þó væru allmargir þeirrar skoð- unar, að sú tilhögun væri heillaráð. — Ert þú sjálfur flutningsmaður einhverra mála á þinginu? ,,Já, ég er með tvö mál á rninni könnu. Það er annars vegar varðandi könnun á ástandi mýraræsingar og hins vegar tillögur um fjölbreytni i vöruframboði landbúnaðarvara. Þar eigum við svo langt i land miðað við aðrar þjóðir, en þar á ég einkum við kjötrétti ýmiss konar.” — En er einhver árangur af Búnaðarþingi sem slíku? Er þetta ekki bara einhver kjaftasamkunda? „Nei, það er langt frá því. Ég er ekki í nokkrum vafa um árangur þessara þinga. Hér hittast menn og ræða málin, orð eru til alls fyrst, eins og þar stendur, svo að ég tel Búnaðarþing þjóna tilgangi sínum,” sagði Hjalti Gestsson. Hjalti Gestsson. Krókur á móti bragði: Útsýn býður helm ingsafslátt af innanlands- fargjöldum Ferðaskrifstofan Útsýn undirritaöi í gær samning við Flugleiðir hf. um leiguflug utan af landi til Reykjavíkur fyrir væntanlega farþega sína í sólar- landaferðum. Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar, forstjóra Útsýnar, er álitið að með þessu takist að lækka þennan við- bótarferðakostnað fólks utan af landi um helming. Enn hefur framkvæmd þessara flutninga ekki verið ákveðin og verður beðið þar til Ijóst er hversu margir hyggjast nýta sér afsláttinn. Þetta tilboð gildir frá öllum áællunarstöðum Flugleiða innanlands og verður leitað eftir hliðstæðum samningum við Arnarflug. Nær tilboðið til allra leiguflugsfarþega, það er þeirra sem ferðast til Ítalíu, Spánar, Mallorca og Júgóslavíu með Útsýn. -JB. „ Akvörðun um fram- boð bíður betri tíma” „Þetta er bæði sætt og súrt fyrir mig,” sagði Sigurður J. Sigurðsson, sem varð í 4. sæti i prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri. Sigurður hefur verið bæjarfulltrúi undangengin tvö kjörtímabil og skipaði 2. sætið á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins við síðustu kosningar. „Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fékk og vissulega verður 4. sætið baráttusætið i komandi kosn- ingum. Það eru Ijósu punktarnir. Hitt skal ég viðurkenna, að það veldur mér vonbrigðum að falla úr 2. sæti í 4. Hvort ég verð í framboði vil ég ekkert um segja á þessari stundu. Ákvarðanir um það verða að bíða betri tíma. -G.S/AK. Unnur Scheving Thorstmnason, formaOur KvennadeHöar Raykjavlkurdeildar Rauöa kross ísiands, afhendir Sveini indriðasynl, formannl Olgtarfélags íslands, gjafabróf aO upphæO 600 þúsund kr. til tækjakaupa I Glgtimkninga- stöOinni. (DV-mynd S). NÝ FRYSTIGEYMSLA BÚR BRÁTT TILBÚIN Bæjarútgerð Reykjavíkur er nú að byggja 2 þúsund tonna frystigeymslu úti á Granda. Hefur framkvæmdum við hana miðað vel áfram og er reiknað með að hún verði tilbúin í byrjun næsta mánaðar. Frystigeymslan stendur aö baki verbúðanna og þarf að brjóta eina þeirra niður til að skapa aðkomu að geymslunni. Björgvin Guðmundsson, forstjóri BÚR, sagði að það hefði verið brýnt verkefni hjá fyrirtækinu að eignast stærri frystigeymslu. Þegar mest hefði legið fyrir af frystum fiski hefði orðið að leigja frystirými og jafnvel þurft að senda fisk til Hafnarfjarðar og til Suðurnesja þegar ástandið var sem verst. -ÓEF. Rauða kross-konur í Reykjavík stórtækar - gáf u 600 þúsund kr. til Gigtlækningastöðvar Gigtarfélagsins Stórgjöf Kvennadeildar Reykja- víkurdeildar Rauða kross íslands mun flýta mjög fyrir því að Gigtlækninga- stöðin að Ármúla 5 geti tekið til starfa.. Skýrt var frá því á aðalfundi Gigtar- félagsins á laugardaginn að Kvenna- deildin gæfi Gigtlækningastöðinni 600 þúsund krónur. Þessi upphæð rennur til tækjakaupa til sjúkra- og iðju- þjálfunar í stöðinni. Gjöfin er i raun mun stærri því að Kvennadeildin mun flytja tækin inn án aðflutningsgjalda. Aðalfundur Gigtarfélagsins var fjöl- sóttur enda fer félögum fjölgandi. Þeir eru nú á fimmtánda hundrað. í skýrslu- stjórnarinnar kom fram að fram- kvæmdum við innréttingu Gigt- lækningastöðvarinnar miðar allvel. Húsnæðið er 530 fermetrar að stærð. Innréttingin hefur verið félitlu félagi erfið, en gjafaféð hefur bjargað miklu. Reiknað er með því að innréttingu húsnæðisins ljúki á næstu mánuðum og ræður stórgjöf Rauða kross- kvenna þar miklu. Brýn þörf er fyrir Gigtlækninga- stöðina því að hundruð gigtsjúkra manna bíða eftir því að stöðin taki til starfa. -JH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.