Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ & VfSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Fermingar nálgast: 1 B( 1 D i D U PPA K ;ai FFI II :Ð >A H IEI 11 rA N E DA KA LD IAI N M IAT —beztað skoða velíbudduna áðuren slíkterákveðið Ostapinna má búa til sjálfur en þá er einnig hægt að kaupa tilbúna hjá Osta- og smjörsölunni. Klassiskt fermingarborð. Heimabakaðar tertur og smurt brauð, ýmist heimasmurt eða aðkeypt. Það er að styttast í fermingarnar. Fyrsti fermingardagurinn í ár er 4. apríl. í þetta sinn verða fermd um 1600 börn á Reykjavíkursvæðinu, þ.e. í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarnar- nesi. Fjöldinn í landinu í heild er því eitthvað rúmiega 2 þúsund börn. Sú venja hefur skapazt að halda upp á fermingardaginn með veizluhöldum. Ekki skal á það lagður dómur hér hvort beinlínis er ástæða til veizluhalda. En hitt held ég að allir geti verið sammála um að víða eru þessar veizlur gengnar út í algjörar öfgar. Fólk steypir sér jafnvel i stórskuldir til þess eins að halda veizlu sem fljót er að líða úr minni. Kaffiboð upp á gamla móðinn eru liklega enn sem komið er algengasta form á fermingarveizlu. Þá bakar heimilisfólkið sjálft kökur með annarra hjálp, sinyr jafnvel brauð og lagar kaffi. Erli:i er að gizka á hvað slíkar veizlur kostar þegar allt er reiknað. Aðrir kaupa sitthvað að. Oft eru keyptar snittur og jafnvel ostapinnar í viðbót við kökurnar. Stundum er keyptur heitur matur en oftar þó kaldur. Stundum jafnvel sambland af hvoru tveggja. Við höfðum samband við nokkra aðila og spurðum þá að því hvað svona lagað kostaði. Fara svör þeirra hér á eftir. Athuga ber að þegar verðið var gefið upp átti víða eftir að reikna inn í það vísitöluhækkunina sem kom núna um mánaðamótin. Einhverri hækkun má því jafnvel búast við. Kaup þeirra sem við þetta vinna hækkaði um 7% rúm og má búast við svipaðri hækkun á öllu öðru fljótlega. Ostur Ostapinnar: Hjá Osta og smjör- sölunni er svo hægt að fá tilbúna ostapinna. Þeir kosta 2 krónur og 50 aura stykkið. Þá er um fjölbreyttar ostategundir að ræða ásamt kokkteil- berjum, vínberjum, agúrkum og lauk, olífum og skinl io< aspas ef vill. Nóg á að vera að panla nokkrum dögum, jafnvel deginum áður. Fyrir fermingar- veizlu á sunnudegi er afgreitt á laugar- degi það vel frágengið að ekkert á að skemmast. Snittur. Björninn: Þar kostar hver snitta 7 krónur og 50 aura. Á sneiðunum er roast beef, steik, hangikjöt, skinka, reyktur lax, rækjur og egg og síld. Einnig kann að vera möguleiki á að fá snittur með nautatungu. Vissara er að panta með viku eða hálfsmánaðar fyrirvara ef mikið er pantað. En ef lítið er pantað nægir að gera það deginum áður. Brauðborg: Snittur eru í tveim verðflokkum. Þær ódýrari kosta 8 krónur og 50 aura. Á þeim er skinka, hangikjöt, reyktur lax, egg og síld, egg og sardínur, rækjur og steik. Dýrari tegundirnar kosta 11 krónur og 60 aura. Þær eru með sama áleggi nema í viðbót eru humar, hamborgarhryggur, nautatunga og roast beef. Ekki var unnt að gefa upp með hve miklum fyrirvara þyrfti að panta. Venjulega nægir dags fyrirvari en þegar mikið verður að gera í kring um fermingarnar er hann eitthvað lengri. Brauðbær: Hver snitta kostar þar 7 krónur og 80 aura. Á þeim er skinka, hangikjöt, roast beef, reyktur lax, rækjur og egg og síld. Vissara er að panta með viku fyrirvara. Gafl-inn: Þar kostar snittan 9 krónur. Á snittunum eru rækjur, roast beef, skinka, hangikjöt, egg og sild og oft á tíðum lamba-eða svínasteik. Vissara er að panta sem allra fyrst. Veizlumiðstöðin: Hver snitta kostar 7 krónur og 60 aura. Á snittunum eru rækjur, lax, skinka, roast beef, hangikjöt, síld og egg og spægipylsa. Fyrsti fermingardagurinn er upppantaður, en enn er hægt að fá á hina ef keypt er strax. Kokkhúsið: 7 krónur og 50 aura er verðið fyrir hverja snittu. Á þeim er roast beef, hangikjöt, rækjur, skiníca og egg og síld. Vissara er að panta sem fyrst. Veitingamaðurinn: Snittan kostar 7 krónur og 50 aura. Álegg er skinka, hangikjöt, roast beef, rækjur, egg og lax. Panta þarf strax. Árberg: Hver snítta kcstar 7 krónur og 50 aura. Álegg e; roast beef, hangikjöt, rækjur, ‘skinka og egg. Panta þarf sem fyrst. Rán: Hversnitta kostar 7,80. Álegg er hangikjöt, roast beef, uxatunga, lambakjöt, rækjur og skinka. Panta verður með 4 daga fyrirvara. Kalt borð Brauðbær: Ef keypt er fyrir 25 manns eða fleiri kostar það á mann 175 krónur. Á því er lax, rækjur, síld, roast beef, hamborgarhryggur, kjúklingar, hangikjöt, lambakjöt, nautatunga á- samt rófum og salati. Vissara er að panta með hálfs mánaðar fyrirviara. Gafl-inn: Þar kostar kalda borðið kr. 138 á mann. í því er hamborgar- hryggur, svinasteik, hangikjöt, kjúklingar, roast beef, nýr eða grafinn lax, fiskikabarett, síld, sósur, salöt og brauð. Orðið er of seint að panta fyrir fermingar 4. apríl, en ennþá er hægt að panta fyrir hina dagana sé það gert strax. Veizlumiðstöðin: Verðið fer eftir fjölda veizlugesta. Ef keypt er fyrir 15—25 kostar það 140 krónur á mann. Ef hins vegar er keypt fyrir 25—50 kostar það 130 krónur á mann. Á kalda borðinu eru blandaðir sjávarréttir, roast beef, kjúklingur, steik, hangikjöt, hamborgarhryggur, salöt og sósur, ásamt brauði. Fyrsti fermingar- dagurinn er upppantaður. en enn er hægt að fá á hina ef pantað er strax. Kokkhúsið: Kalt borð kostar 140 krónur á mann. Á því eru kjúklingar, hanborgarlæri, grísasteik, hangikjöt, lambakjöt, soðinn lax með rækjum og skinku, roast beef, síld, salat, sósur, brauð og smjör. Vissara er að panta sem fyrst. Hægt er að skipta og fá einn heitan rétt t.d. í staðinn fyrir lamba- steikina fyrir svipað verð. Veitingamaðurinn: Býður sérstakt fermingarborð. Á því er roast beef, kjúklingar, hamborgarlæri, úrbeinaður lambahryggur f sneiðum, graflax, síld, rækjur, sósur, salöt og brauð. Mat- urinn kostar 140 krónur á mann. Hon- um fylgir ábætir. Panta þarf strax. Árberg: Kalda borðið kostar 144 krónur á mann eftir marzhækkunina. Á því er roast beef, kjúklingar, lamba- steik, hangikjöt, svínakjöt, kaldur lax, heilagfiski, rækjur, síld, salat, sósur, kartöflur, brauð og smjör. Yfirleitt nægir að panta með 4 daga fyrirvara. En þá fermingardaga sem mest er að gera er vissara að vera fyrr í því. Rán: Kalda borðið kostar I40krónurá mann. Á því er hangikjöt, hamborgar- hryggur, kjúklingar, lax.lambalæri, uxatunga, síld, rækjur, sjávarrétta- salat, kartöflur, sósur, salöt og brauð Hægt er að fá heitan pottrétt í staðinn fyrir einhvern af þessum köldu réttum fyrir sama verð. Panta þarf með fjögurra daga fyrirvara. Blandað borð af heitum og köldum réttum Brauðbær. Matur á slíkt borð kostar 175 á mann ef keypt er fyrir 25 eða fleiri. Hægt er að velja nokkuð um réttina, en á slíku borði er til dæmis graflax, roast beef, buff stroganoff, innbökuð lifrarkæfa, skelfiskur og fleira. Vissara er að panta með hálfs mánaðar fyrirvara. Veizlumiðstöðin: Þar er boðið upp á þrjár tegundir af blönduðum heitum og köldum réttum. Sá ódýrasti kostar 125 krónur á mann. Þá er boðið upp á roast beef, léttreykt lambalæri, kjúklingapott, sjávarréttapott, salat, brauð, grjón og sósur. Miðgerðin kostar 145 krónur á mann. Þá eru á borðinu blandaðir sjávarréttir, kjúklingar, fyllt lambalæri, reykt aligrisalæri, buff stroganoff, brauð, grjón, sósur og salöt. Dýrasta gerðin kostar síðan 170 krónur á mann. Þá er graflax í boði, heilagfiski, lambapottur, sjávarréttir, nauta- mörbráð hamborgarhryggur og fleira ásamt heitum og köldum sósum, kartöflum, brauði og fleira. Þegar er orðið uppselt fyrir fyrsta fermingar- daginn, en panta má fyrir hina sé það gert strax. Árberg: 138 krónur kostar slíkt borð á mann. Á því eru fjórar kjöttegundir kaldar. Hægt er að velja úr hangikjöti, lambasteik, roast beef, kjúklingum og svínasteik. Síðan fylgir heitur pott- réttur með. Bezt er að panta sem fyrst. Heitir réttir Gafl-inn. Mikið er gert af því að selja hvers konar heita rétti með súpu og öllu saman. Svínahryggur kostar 132, roast- beef 151, lambalæri 102, hamborgar- hryggur 148 og kjúklingar og londonlamb 119 krónur á mann. Þegar er orðið uppselt í fyrstu fermingarnar en enn er hægt að fá í hinar ef pantað er strax. Veizlumiðstöðin: Þar er þó nokkuð selt af pottréttum i fermingarveizlum. Pottréttir með kjúklingum, stroganoff- buffi og lambakjöti kosta 85 krónur. Blandaður sjávarréttapottur er hins vegar dýrari, kostar 95 krónur. Fyrsti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.