Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1982, Side 33
DAGBLAÐIÐ& VtSIR. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sólarferð á Homafirði
SlgurOur öm Hannesson og Unnur Garöarsdóttir I hhitvarkum sínum,
sam hjónin i leikriti Guðmundar Stelnssonar, Sólarfarð.
Leikfélag Hornafjarðar er nú að
æfa leikritið Sólarferð eftir
Guðmund Steinsson. Leikstjóri
verksins er Ingunn Jensdóttir og var
hún nýlega spurð að því út á hvað
leikritið gengi.
„Þetta er léttur gamanleikur,”
sagði hún „sem ætti auðveldlega að
láta menn gléyma vetrardrunganum
eina kvöldstund.
Leikurinn er ádeila á þetta inni-
Ingunn Jensdóttir, Mkstjóri Sólarferðarinnar, sem Laikfólag Homa-
fjarðar mun taka tHsýninga á næstunni. DV-myndir Júlía Imsland.
haldslausa líf sem viðgengst í sólar-
landaferðunum. Menn eru eirðar-
lausir nema þeir séu með glas í hend-
inni og heilan hóp af fólki í kringum
sig.
Þetta er saga hjóna sem fara í
sólarlandaferð. Þau hafa lifað hvort í
sínum heimi og þegar þau fara að
vera tvö ein saman eins og fram kem-
ur í leiknum, þá kemur berlega í ljós
að þau eiga hreint ekkert sameigin-
legt - og þegar þagnir verða þá er
gripið til glassins og drukkið í botn
og annað pantað.”
Leikendur í uppfærslu Ingunnar á
Sólarferð eru 9 og þar af hafa þrír
þeirra leikið áður og sagði Ingunn
það ekki síður skemmtilegt að stjórna
þessum nýja hópi en ef um þaul-
reynda leikara væri að ræða: „Þá get
ég mótað eins og leir”, segir hún.
Frumsýning á verkinu verður 19.
marz. Með hlutverk hjónanna fara
þau Unnur Garðarsdóttir og Sig-
urður Örn Hannesson og er þetta
frumraun þeirra á fjölunum. Þess má
geta að Ingunn hefur áður fært upp
Sólarferðina og var það á Reyðar-
firði fyrir fáeinum árum.
Áætlað er að fara með Sólarferð-
ina i leikferð eitthvað um Suðurland
á komandi vormánuðum.
—SER.
Arnoldo Krumm Hell-
er, 58 ára gamall mexi-
kanskur st jörnuspeking
ur, hefur spáð þvi, að
heimsendir muni verða
árið 1982. Og hann er svo
nákvæmur,að hann segii;
að klukkan 4 að nóttu til
(að mexlkönskum tíma)
þann 10. júli 1982 muni
heimsendir verða.
Rétt fyrir klukkan fjögur á
kjarnorkustyrjöld aö brjótast
út á milli stærstu heimsveld-
anna, og eftir 12-15 minútur
mun Iif vera burrkaft út.
Þetta hefur Heller lesift úr
stjörnunum, en hanr. hefur t.d.
skrifaö um 120 bækur um (
stjörnulræói og þá hluti, sem
hann hefur séö fyrir.
Heller hefur unniö viö |
stjörnufræöi i 30 ár. og hann
segist hafa séö fyrir dauöa
John F. Kennedy fyrrum
Bandarikjaforseta.
Vinir hans og starfsbræöur
segja, aö yiirleitt komi þaö
frarn,sem hann sér Í stjörnun-
um Sjálfur segist hann ekki
veröa á lifi áriö 1982. Hann sér
fyrir sinn eigin dauöa. ,.Eg
mun látast úr hjartaslkgi i lok
þessa árs.”
-EA-
„Heimsendir
þann tíunda
júlí árið 1982
Þessia ágætu klausu sem hér getur að
lita á siðunni rákumst við DVmenn á í
gömlum Vísi. Eins og hún ber með sér
er heimsendi spáð með vorinu og er rétt
að benda auðtrúa fólki á það hvort
ekki sé hyggilegt að færa sumarfríið
aðeins framar á árið — svona til vonar
og vara. Hvað sem því liður fer klausan
héróstytt áeftir.
n
Sextett Ólafs Gauks var að sjéff-
sögðu mættur i staðinn og lék
nokkrar af sínum kunnustu
ballöðum fri árum áður. Svan-
hildur og Ólafur Gaukur höfðu
greinilega engu gleymt hvað
túlkun laganna tilheyrði og átti
slíkt einnig við um aðra meðlimi
sextettsins.
Afmælishátíð Félags
Islenzkra hljómlistarmanna
lauk um síðustu helgi með við-
eigandi hljómleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskóla-
bíói, en hátíðin hófst eins og
kunnugt er mánudaginn 22.
febrúar.
Það er ekki ofsögum sagt að
mikið hafí verið um að vera
alla daga afmælishátiðarinnar.
Tónlistin og hverskonar hljóm-
listarflutningur bar dagskrána
uppi eins og raunar eðlilegt má
telja og var hún hvort tveggja
fjöibreytt og fræðandi um sögu
íslenzkrar tónlistar hér á landi
síðustu fimmtíu ár.
Fjölmargar gamlar grúppur
voru endurvaktar og spiluðu af
sömu innlifun og snerpu og
bær gerðu þegar þær voru og
Af tónaflóði FÍH.
Gamla kempan Bjöm R. Einarsson lét sig ekki vanta á hótiöina, heldur tróð upp ásamt hljómsveit sinni sem
sveiftaði einhver kunnustu„swing" siðariára við ómeelda hri fhingu tilheyrenda.
hétu hér á árum áður. Ekki var arinnar fylltist ljúfsárum trega hljómsveita á borð við Hljóma,
laust við að andrúmsloft hátíð- þegar gamalkunnir tónar Tempó, Roofs Tops og
Raggi Bjarna og Jón bassi Sig-
urðsson tóku gamla slagarann „í
Hamborg", með sóriegri innlifun
og tiffallandi sverfiu og eftir
viðtökunum að dæma er Ijóst að
þeim hefur sjaldan tekizt eins vel
upp i þessu gamla en sígilda
dægurlagi.
Náttúru hljómuðu um sali— og
gömlu strákarnir sem voru
hvað virkastir í bransanum fyr-
ir þetta fimm til tíu árum virt-
ust engu hafa gleymt þótt gráu
hárin væru eilítið færri þá en
nú er.
Meðfylgjandi myndir tók
Friðþjófur Helgason af hátíð-
inni síðastliðið miðvikudags-
kvöld, en þá mátti heyra í
hljómsveitum á borð við
Sextett Ólafs Gauks, Hljóm-
sveit Björns R. Einarssonar,
K.K. Sextettinn og Ragnar
Bjarnason og hljómsveit. Og
þótt flestir meðlimir þeirra
væru nokkuð komnir til ára
sinna virtust þeir engu hafa
gleymt og síztir manna vera
komnir útaf laginu.
—SER