Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982. Út um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og r?-i, — —Y ~mrH APOWES TO Þmgsáfyktunartíllaga um bindindi þingmanna borin upp. Svíar móðgaöir? Ybona Pricas ar takaénmgS mmð nmgkwnar og HáMmstína. Klippir aldrei negtfur sínar Ekki er öll vitleysan eins. Kona nokkur í Englandi, Ybona Prices, strengdi þess heit sem táningur að klippa aldrei neglur sínar. Af hverju hún gerði svo fylgir ekki sögunni, nema hvað að nú er Prices orðin 47 ára og hefur ekkí klippt neglur sínar síðan. Neglurnar geta orðið býsna langar, þar til þær brotna af sjálfu sér vegna eigin þunga. Til þess að halda þeim sem lengst setur Prices hvert lagið af naglalakki á eftir öðru á neglurnar en þeim sem brotna heldur hún saman og býr til hálsfesti fyrir sig og sína beztu vini og kunningja. Gæti verið að hátt hlutfall sjálfsmorða í Svíþjóð orsakist af því að Svíar eru ekki í Efna- hagsbandalaginu? Einn af ráðherrum Margrétar Thatcher, Norman Tebbit, mun hafa varpað þessari tilgátu fram í umræðum á brezka þinginu nýlega. Flokksbróðir Tebbits og samþingmaður, Teddy Talyor, gat sér þess til að Svíþjóð og önnur Evrópu- lönd sem ekki eru í Efnahags- bandalaginu byggju við betri þjóðarhag einmitt vegna þess þau eru ekki í EBE. Tebbit svaraði þá án þess að hugsa sig tvisvar um: Hvað um þetta háa sjálfsmorðahlutfall? Það skyldi þó aldrei vera að Svíar fremji fleiri sjálfsmorð en aðrir vegna þess að þeir eru utan bandalagsins! Þetta þótti ekki fallega sagt í garð Svía og einn þingmanna Jafnaðarmannaflokksins hefur þegar sent sendiherra Svíþjóðar í London afsökunarbeiðni fyrir hönd brezka þingsins. JJonum þótti svona tal ekki sæma móður allra þinga veraldar, Parliment. Pht ældi í Thames. Svo er hér önnur frétt frá vöggu lýð- ræðisins eins og Englendingar kalla stundum þingið sitt: Mikill fjöldi þing- mannanna ákvað að hætta að drekka um áramótin. Að sögn The Sunday Times er allt óvitað um það enn hvaða áhrif bindindið mun hafa á lýðræðið. Þeir ákváðu að fara í bindindi þrátt fyrir að í þinghúsinu eru einir átta barir. Flestir þessara nýju bindindis- manna eru úr röðum íhaldsins — ,,lík- lega vegna þess að íhaldsflokkurinn þarf mest á því að halda,” sagði einn þingmanna Verkamannaflokksins. Bindindisæðið mun hafa valdið nokkrum usla meðal embættismanna ráðuneytanna. John Patten — vara-ír- landsmálaráðherra sagði í viðtali við fyrrnefnt dagblað, „starfsfólkið mitt er síður en svo hrifið af því hvað ég er ævinlega skýr í kollinum núna. Það er alltaf að spyrja mig hvort ekki megi bjóða mér eitthvað að drekka.” Annar þingmaður, Sir Anthony Fell (íhald líka). sagðist alls ekki vera hættur að drekka, heldur aðeins vera hættur að drekka whisky, uppáhalds- drykkinn sinn. „Sjáðu til,” tjáði þing- maðurinn blm. ST, „þetta er á milli mín og Guðs. Guð er ekkert hrifnæmur fyrir því hversu MIKIÐ magn fólk drekkur ekki, heldur því, hvað það er, sem ekki er! drukkið.” Sir Anthony lýsti einnig yfir harmi sínum vegna þess að einn kollega hans hafði þegar sprungið tvisvar og fengið sér gin og tonic fyrir matinn. „Vonandi kemur slikt ekki fyrir mig en þú getur vart ímyndað þér hversu erfitt þetta er.” Sumir þingmannanna hættu að reykja líka. Það skal tekið fram að bindindið á aðeins að ná fram til páska en þrátt fyrir skammtíma þess finnst blm. Sunday Times mikið til um fregn- irnar og lýkur frásögn sinni af þurrki þingsins á því að rifja upp þegar Pitt yngri varð að stökkva úr ræðustól í miðjum umræðum til að gubba í Thamesána og að Asquith þurfti iðu- lega á aðstoð að halda til að komast á milli sala í þinghúsinu. Viðurnefni Asquiths, segir Sunday Times, var „Svampurinn” . Snjókorn Snjókorn Snjókorn Snjókorn Snjókorn Góðurfólagi Einn ágætur vinur minn, við getum kallað hann Andrés Templar frá Alkóhóli, hefur eignazt skáktölvu. Andrés lætur vel af tölvunni, segir hana góðan félaga. „Hún er ekki með neitt nöldur sú, það er ekki nuddið í henni. Hún ofmetnast held- ur ekki þegar hún vinnur mig og hún fer ekki i fýlu þótt hún tapi stöku sjnnum. Það sem ég met þó mest við hana er reglusemin; hún drekkur sem sé ekki frá mér vínið þegar við erum að tefla,” segir Andrés með blik i auga. Krataraunir Enn hefur Alþýðuflokknum á Akureyri ekki tekizt að berja saman framboðslista til bæjarstjórnarkosn- inganna i vor. Eins og áður hefur verið greint frá í Snjókorni voru úr- slitin í prófkjöri þeirra á dögunum ekki bindandi. Kom það sér vel fyrir flokksapparatið því að það sér rautt vegna árangurs Tryggva Gunnarsson- ar verkamanns sem felldi Ingólf Árnason í baráttunni um annað sætið i prófkjörinu. Hvað erþá tffráða? Kratar skipuðu 7 manna uppstill- ingarnefnd sem fengið var þáð erfiða verkefni að stilla upp lista, eins og nafn hennar bendir til. Það hefur gengið erfiðlega og hver fundur nefndarinnar á eftir öðrum hefur sprungið í loft upp. Allavega hefur „soðið upp úr” eins og Bárður Hall- dórsson, formaður nefndarinnar, orðaði það. Samkvæmt því sem síðast fréttist sér Bárður ekki nema eina lausn á þessu máli. Hún felsi í því að „dusta rykið” af Braga Sigurjónssyni, fv. þingmanni, bankastjóra, ráðherra og bæjarfulltrúa flokksins, og Steindóri Steindórssyni, fv. skólameistara og bæjarfulltrúa. Báðir eru þeir komnir á eftirlaunaaldurinn. Yrði þetta því sterkur mótleikur við framlag íhalds- ins til árs aldraðra með framboði Jóns G. Sólnes. Það er hins vegar mesti misskilningur að þessir kappar séu rykfallnir, því að allir eru þeir sem unglömb í anda. Skera, skera... Nú er verið að endurskoða löggjöf um félagsmál. Jón Björnsson, félags- málastjóri á Akureyri, fékk leyfi frá störfum nyrðra til að vinna að endur- skoðuninni. Ég hitti Jón á förnum vegi. „Ég er að skera niður,” sagði Jón. „Skera hvað?” hváði ég. „Skera niður nefndir,” sagði þá Jón. Það þótti mér gott að heyra. „En hve margar?” „Ég er búinn aö skera niður rúm- lega niu hundruð,” sagði Jón. „Niu hundruð nefndir,” át ég eftir í forundran. „Hvaða nefndir eru það?” „Það eru um tvð hundruð barna- verndunarnefndir, annað eins af framfærslunefndum og svipaður fjöldi af áfengisvarnarnefndum. Svo er ein nefnd hér og önnur þar. Alls eru þetta rúmlega niu hundruð nefndir,” sagði Jón og var svolítið upp með sér. Dugandi maður, Jón. Það er svo spurningin hvort farið verður að til- lögum hans um einföldun á félagslög- gjöfinni. Þetta gerir mönnum óneit- anlega erfiðara fyrir að komast i nefnd. Fyrírgefðu, Þorsteinn I snjókorni um siðustu helgi sögð- um við frá fyrirhugaðri för Þorsteins Friðþjófssonar, tæknifræðings hjá Akureyrarbæ, til Húsavikur. Allt var þar satt og rétt, nema hvað Þorsteinn var sagður Friðjónsson. Að sjálf- sögðu kenni ég prentvillupúkanum um þessi mistök. En sem sagt; Þor- steinn er Friðþjófsson. Bið ég hann velvirðingar fyrir hönd púkans. Alfter hey í harðindum Heilbrigðisnefnd Akureyrar hefur gefið leyfi til reksturs skemmtistaðar í gamla, góða Alþýðuhúsinu. Alþýðuhúsið var á sinum tíma byggt upp úr brunarústum þvottahúss og var á toppnum sem skemmtistaður á 6. áratugnum. Nú hefur Sigurður Sigurðsson, fyrrum vert í Sjálfstæðis- húsinu, tekið húsið á leigu og fengið Guðmund Guðmundsson í lið með sér. Hafa þeir félagar dubbað húsið upp en ekki er heilbrigðisnefnd ánægð. í bókun hennar segir: „Hreinlætis- og vinnuaðstaða er þar mjög léleg en vegna mikils skorts á veitingahúsum í bænum var þrátt fyrir það ákveðið að heilbrigðisnefnd veitti fyrir sitt leyti starfsleyfi til bráðabirgða.” Hvar heilbrigöisnefndarmenn hafa fundið þennan „skort” vitum við ekki en víst er að dansstaðir Akur- eyringa, H-100 og Hótel KEA hafa ekki þurft að vísa frá. Ef til vill er þetta þeirra eigin skemmtanaþrá. Það er líka skortur á hótelrými á Akureyri. Synd að það skuli vera búið að rífa Norðurpólinn. Gottgeturorðið vont Heilbrigðisnefnd hefur einnig heimilað Mjólkursamlagi KEA að lengja geymslutima á mjólkurvörum vegna þess að „fyrir liggur að mjólk- urvörur frá þessum framleiðanda eru mjög góðar”. Það er að vísu alveg hárrétt hjá nefndinni en lengi getur gott versnað ef þaö súrnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.