Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982. öllu rafmagnskerfi veitingastofunnar er stýrt úr heljarmiklum rofaskáp sem áöur var í svipuðu hlutverki um borö i flugvél. Þröngt setinn bekkurinn á barnum. Yfir barnum eru lugmannahúfurnar f röðum. Byrjaðiá Loch Ness með Valgeiri Bak við barinn á Cockpit Inn stendur snaggaraleg stúlka og hand- leikur stjórntæki gömlu sexunnar kunnáttusamlega svo úr þeim freyðir glitrandi öl. Hér er komin Guðrún íris Þorkelsdóttir. íris eins og hún er kölluð, byrjaði með Valgeiri á Loch Ness árið 1977, þá var hún þar i eitt ár, síðan lá leiðin suður til ísrael þar sem hún var á kibbutz. ,,Það var vel þess virði að vera með ísraelsmönnum segir íris,” sérstak- lega voru friðarsamningarnir minnis- stæðir. Það var haldið upp á þá með mikilli hátíð en ekki hefur trúin verið of mikil því um nóttina var vörðurinn tvöfaldaður.” Kom til að hjáipa íbyrjun og er enn Eftjr dvölina í ísrael hélt íris aftur til Evrópu með nokkrum stoppum en þegar til Luxemborgar var komið voru peningarnir búnir. „Þá frétti ég af því að Valgeir væri kominn með þennan nýja stað og fékk vinnu. Hér var ég síðan i byggingarvinnu allt sumarið, skrap- aði og málaði, og hér er ég enn.” Iriser einn af stofnendum Vinafé- lags íslandsog Luxog tók virkan þátt i íslandskynningunni sem þar var haldin þessa dagana. Hún hefur verið að þreifa fyrir sér með innflutning á ullarvörum frá íslandi og er umboðs- maður Röskvu í Lux. Röskva átti ullarvörur á tízkusýningunum á ís- landshátíðinni ásamt Álafossi og heiri aðilum. „Það er slæmt að ekki er hægt að vinna úr ullinni heima í stað þess að flytja hana óunna út. Hér eru á markaðr vörur að heiman. Þýzkur maður hefur umboð fyrir Álafoss um alla Evrópu en er einnig með á sínum snærum þýzkt fyrirtæki, Viking, sem er með sömu mynstur og Álafoss. Ullin nýtur hér mikilla vinsælda og lopapeysan er þjóðbúningur landans hér í Lux.” En það var nóg að gera og írisi var ekki til setunnar boðið, gestirnir köll- uðu. Framnti i litlu eldhúsinu hitti ég fyrir listakokk staðarins, Sigurvin Gunnarsson. ,,Ég kom hér í byrjun til að hjálpa Valla af stað, en einhvern veginn hefur það æxlazt svo að ég er hér enn.” Venni, eða Sigurvin, er maður hógvær og gefur litið út á mat- argerðarlistina eða aðstöðuna. Eldhúsið er á stærð við lítið heimilis- eldhús en samt koma þaðan allt að 100 matarskammtar á kvöldi og fær hver og einn þeirra konunglega meðhöndlun. Sigurvin lærði á sínum tima í Kaupamannahöfn og þar vann hann í nokkur ár. Þaðan lá leiðin til Sviss og þar voru þeir samtíma Valgeir og hann. Siðar lágu leiðir þeirra saman á Gottað vera ís- lendingur í Lux. Ég er sannfærður um að það eru orð að sönnu sem þau Valgeir og íris létu falla að gott sé að vera íslending- ur í Lux. Luxemborgarar eru oþnir fyrir útlendingum enda er mikið af þeim starfandi í landinu. Annars er veitingamaðurinn í Cocpit-Inn, Tomas (en svo kjósa þar- lendir að kalla hann) Vaigeir Sigurðs- son, efni í heila bók. Hugmyndir hans um framtíðina eru ntiklar, um byggingu stærri staðar í Lux en okkar Broadway. Hvað úr þeim verður er ekki gott að segja en það á eftir að heyrast meira frá honum í framtíð- inni. Ég sannreyndi það á Íslandshátíð- inni að við eigum ekki marga jafn- ötula talsmenn gamla Fróns í útlönd- um eins og Valgeir er, svo óþreyt- andi sem hann er í að gera veg Íslands sem mestan. Þegar ég geng út í nóttina frá Cocpit-Inn finn ég að þar er að finna svolitinn snert af íslandi sem ekki verður auðveldlega þurrkaður út. Manni finnst maður vera „heitua” þegar þar er staldrað við. Það er vel þess virði ef landinn á leið hjá garði að líta þar við eina dagstund og njóta þess sem staðurinn hefur upp á að Séö fr»m úr vritingahdmingnum fram 4 barínn. Vinstra mcgin viö tröppurnar niöur I bjóða. stendur áttaviti úr togara sem strandaði viö tsland. ' Jóhannes Reykdal. Við eigum ekki marga talsmenn Islands I útlöndum sem eru eins ötulir og Valgeir. Hér er hann aö útbýta upplýsingum um tsland á tslandskynningunni sem staöið hefur undanfarnar tvær vikur I Luxemborg. A bak viö hann hangir 120 kilóa lúöa úr Breiöafirðinum sem vakti mikla eftirtekt. aðstoðarmaður hans Helgi Helgason hafa til untráða myndi ekki hljóta náð hjá íslenzkum reglugerðaryfir- völdum, jafnvel ekki þótt kikirinn væri settur fyrir blinda augað. En, þeir félagar segja þetta góðan vinnustað, svona sé siðurinn hér. Eitt er víst að þeim félögum tekst að töfra frant hinar ótrúlegu kræsingar þótt ekki sé þar allt fyrir augað. ,,Hér höfum við úr góðu hráefni að spila og það gerir gæfumuninn, segja þeir félagar að lokum. Hótel Sögu en þar var Sigurvin yfir- matreiðslumeistari um árabil. Eldhúsið sem Sigurvin og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.