Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ& VlSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982.
Margir landar nota nú Amerícan Express greiðslukort
á ferðalögum erlendis:
„Þeir sem hafa þessi
kort njóta trausts
—segir Pétur Björnsson hjá Útsýn, sem er með umboð
fyrirgreiðslukortin
ff
„American Express greiðslukortið
er fyrst og fremst hugsað fyrir þá sem
þurfa að ferðast mikið, til dæmis
kaupsýslumenn, lækna, tæknimenn,
embættismenn og aðra sem oft þurfa
utan ýmissa erinda. Þetta kort er það
bezta sem boðið er upp á í greiðslu-
kortum og það er velþekkt um allan
heim,” sagði Pétur Björnsson hjá
Útsýn í spjalli um American Express
greiðslukortin. Fyrir skömmu
kynntum við VISA kort og nú er það
American Express.
Ferðaskrifstofan Útsýn er með um-
boð fyrir þessi kort hérlendis. Áhugi
á notkun greiðslukorta hefur vaxið
mjög hérlendis siðan Seðlabankinn
gaf leyfi fyrir notkun þeirra, með
vissum takmörkunum þó í samræmi
við þær gjaldeyrisreglur sem hér
gilda.
Þeir sem hafa áhuga á að verða sér
úti um American Express kort geta
snúið sér til Útsýnar og fengið þar
umsóknareyðublað. Fyrst verður við-
komandi þó að hafa aflað sér leyfís
hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans.
Þegar sótt er kort hjá American
Express þarf að gefa algengar per-
sónuupplýsingar, svo sem um at-
vinnu, tekjur og bankaviðskipti.
Umsækjendur þurfa að hafa sæmi-
legar tekjur og njóta trausts í við-
skiptum. Umsókn má síðan leggja
inn hjá Útsýn eða senda beint til
American Express í Stokkhólmi.
Skrifstofan þar kannar síðan hvort
upplýsingar umsækjenda eru réttar,
en fimm til sex vikur tekur að af-
greiða umsókn. Sé hún samþykkt
þarf að greiða 60 dollara í skrán-
ingargjald og ársgjald fyrir notkun
kortsins er einnig 60 dollarar.
Margvís/egt hagræði
,,Það er ótrúlega mikið hagræði af
notkun þessara korta. Það má taka
sem dæmi að með kortið í höndunum
er hægt að hringja á góð hótel og
panta gistingu með því að gefa upp
númer á kortinu. Ekki þarf frekari
staðfestingar við því ef viðkomandi
sýnir sig ekki er hægt að setja trygg-
ingaupphæð, sem oft er tekin, á við-
komandi kortanúmer. Bókun með
kortinu er örugg og sama er að segja
um bókun flugfarseðla, svo dæmi séu
nefnd. Einnig má geta þess að
American Express velur aðeins góð
hótel, traustar bílaleigur og önnur
þau fyrirtæki sem taka við kortinu
sem greiðsluloforði. American Ex-
press kort gefur til kynna að korthafi
njóti trausts og sé fær um að greiða
það sem hann þarf á að halda,” sagði
Pétur Björnsson.
American Express setur nánast
engar hömlur á notkun kortsins.
Menn geta þess vegna keypt sér 10
kádiljáka vestan hafs. En þeir í
Seðlabankanum væru þá fljótir að
yggla sig. íslendingar sem nota kortið
mega ekki láta skuldfæra hærri
upphæð en nemur samtals þrjú-
þúsund dollurum í hverri ferð og
kortið má aðeins nota til greiðslu á
venjulegum ferðakostnaði, s.s. flug-
ferðum og uppihaldi. Þar sem ekléi
eru sérstakar skrifstofur fyrirtækisins
fara viðurkenndar ferðaskrifstofur
með umboðið, sem jafnframt greiðir
mjög fyrir notkun þess hvað alla
ferðaþjónustu varðar.
Nokkur hundmð íslendingar bera nú American Express grotðs/ukort
Góð hótel um allan heim keppast við að auglýsa að þau takið við slíkum
kortum.
Nú, en það er ekki nóg að þeytast
um heiminn og veifa korti. Menn
þurfa líka að borga. Reikningar fyrir
notkun kortsins eru sendir korthafa
og hann fær síðan yfirfærslu í sínum
gjaldeyrisbanka og sendir skrifstofu
American Express.
,,Ég fullyrði að American Express
er bezta greiðslukortið sem völ er á
og það sem gengur víðast, til dæmis í
Bandaríkjunum. Það er mikið öryggi
í að hafa greiðslukort. Bæði sleppa
menn þá við að bera á sér mikla pen-
inga og svo er mikið öryggi í að hafa
kortið ef eitthvað óvænt kemur
uppá,” sagði Pétur Björnsson. -SG.
Fœreyska ferjan SmyriH
igjp! rikulegum ferðum Ologrra lanamu i surrmr.
Smyríll byrjar feröir 25- maí
Búið er að ganga frá áætlun
Smyrils fyrir sumarið. Verður farið
frá Seyðisfirði alla þriðjudaga frá 25.
maí til 7. september. Skipið siglir til
Færeyja, Noregs, Danmerkur og
Skotlands.
Far til Færeyja aðra leið kostar frá
770 krónum (á þilfari) og upp i 1.183
krónur þegar gist er í tveggja manna
klefa. Viðkomustaðir eru Þórshöfn í
Færeyjum, Bergen í Noregi, Flanst-
holm í Danmörku og Scrabster á
Skotlandi. Börn á aldrinum 7—14
ára greiða hálft fargjald. Margir fara
með bíla sína með Smyrli og má taka
sem dæmi að borga þarf 1.204
krónur fyrir venjulegan bil frá
Seyðisfirði til Hanstholm.
Það er ferðaskrifstofan Úrval sem
er með umboð fyrir Smyril og veitir
allar nánari upplýsingar. Vert er að
vekja athygli á ódýrum vikuferðum
til Færeyja með Smyrli dagana 25.
mai, 1. og 8. júní. Ferðin kostar
aðeins 1.900 krónur fyrir barn á
grunnskólaaldri. Innifalið er sigling
til og frá Seyðisfirði, gisting í fimm
nætur á farfuglaheimili í Þórshöfn og
fjórar skoðunarferðir um Færeyjar.
-SG.
P&0 lætur byggja nýtt farþegaskip:
Smíðin kostar 85 milljónir punda
Brezka skipaútgerðin P & O hefur
boðið út smíði á risastóru farþega-
skipi, sem mun verða eitt það glæsi-
i»oasia sem sézt hefur á heimshöf-
unum. Brúttóstærð skipsins verður
40 þúsund tonn. Það á að vera 224
metra langt og 29 metra breitt. Af
þessum tölum má nokkuð marka
Teikning af fyrirhuguðu farþegasklpl PfrO, sem t að hrýsa IJOOfatþegai
lúxusíbúðum og klefum.
stærð þessa risaskips.
Nýja skipið er einkum ætlað til
siglinga við Norður-Ameríku,
Evrópu og á Kyrrahafi. Um borð
verður rúm fyrir 1.200 farþega og í
engu til sparað hvað aðbúnað snertir.
Það var finnsk skipasmíðastöð sem
átti hagstæðasta tilboðið í smíðina,
Wáartsilá’s Helsinki. Upphæðin
hljóðar upp á 85 milljónir sterlings-
punda. Má af þessu sjá að Bretar eru
þess fullvissir að tími lystiskipanna sé
síður en svo liðinn undir lok. Smíð-
inni á að ljúka innan fárra ára.
-SG.
Ferðamál
Sæmundur Guðvinsson
Áætlunarf lug milli
Færeyja og Skotlands
Skozka fiugfélagið Air Ecosse
áætlar að hefja reglubundið flug
milli Skotlands og Færeyja í maímán-
uði. Er nú beðið eftir formlegu leyfi
danskra stjórnvalda, en brezk yfir-
völd hafa fyrir sitt leyti veitt félaginu
heimild til flugsins. Flugfélag fslands
fiaug á sínum tíma milli Vágar í
Færeyjum og Glasgow, en það fiug
aflagðist er Danir fóru að millilenda
á Orkneyjum og hröktu þar með
Flugfélagið burt af leiðinni.
Air Ecosse ráðgerir að lenda í Sum-
burgh á Shetlandseyjum, Wick í
Norður Skotlandi,í Aberdeen. Frá
Abeerden er auðvelt að komast
áfram með flugi til Englands.
Farseðill milli Vágar og Aberdeen
mun kosta um 1.800 danskar krónur.
Með afsláttarmöguleikum getur
verðið farið niður i 1.300 krónur. Þá
hefur Air Ecosse í hyggju að bjóða
„stand by” fargjöld fyrii 730
krónur. Fargjöld til Wick og Sum-
burth eru 1.000—1.500 krónur.
-SG.
Til Liverpool í
fótspor Bítlanna
Ákafir aðdáendur Bítlanna geta nú
aldeilis fengið eitthvað við sitt hæfi
leggi þeir leið sína til Bretlands. Hægt
er að kaupa sérstaka helgarpakka í
Liverpool og feta í fótspor Bitlanna
þar í bæ.
Við komuna er þátttakendum boð-
ið til hádegisverðar og síðan farið í
Cavern Mecca, sem er Bítlamiðstöðin
þarna i Liverpool. Síðan rekur hver
viðburðurinn annan. Farið er um
hverfin sem Bítlarnir ólust upp i.
Hver kannast ekki við Penny Lane og
Strawberry Fields? Margt fieira er á
dagskránni. „Pakkinn” kostar 39
pund og 50 pence og innifalið er gist-
ing með morgunmat í tvær nætur,
dinner og þjónustugjöld. Þeir sem
hafa áhuga á þessu geta pantað eða
skrifað eftir nánari upplýsingum til:
The Tourism Development Office,
Merseyside County Council, Tithe-
barn House, Tithebarn Street, Liver-
pool L2 2PH, England.
-SG.
NEWS FR0MICELAND:
BLAÐAUKIUM
VESTMANNAEYJAR
í febrúarhefti News from Iceland
er 16 síðna blaðauki í máli og
myndum um Vestmannaeyjar. Þar er
ágrip af sögu eyjanna, viðtal við Pál
Zóphóníasson bæjarstjóra og margt
fleira er að finna í þessum blaðauka.
News from Iceland hefur áður látið
fylgja blaðauka, til dæmis um Akur-
eyri ekki alls fyrir löngu. Blaðið er
gefið út á ensku og dreift víða um
heim. Þetta er áttundi árgangur
blaðsins, sem er ótrúlega fjölbreytt
að efnisvali. Útgefandi er Iceland
Review, en á bak við þessa útgáfu er
Haraldur J. Hamar. Hefur hann
lengi unnið mikið og merkt land-
kynningarstarf með vandaðri útgáfu
tímarita, blaða og bóka um ísland á
erlendum málum.
-SG.
ilÍiÍk'iílÍliÍÍIÍlÍliiJJÍlttSiU
Ifliifiiitií