Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982.
HaMdór B/ðmnan tattmmOur hins
góða máhtaðar.
D V/myndir GS Akureyri.
„Tæknilega hefur upp-
færslan veriö erfiö, það
fer ekki hjá því, enda eru
hér ekki á ferðinni at-
vinnuleikarar. Hins vegar
bæta krakkarnir það
margfalt upp með leik-
gleðinni. Þau eru opin og
taka vel tilsögn, enda eru
þau ekki farin að lifa eftir
Hér er ieikhópurinn en Andrós Sigurvinsson Mkstjóri trórdr að stáifsögðu afst
„Gjammrassar
upp til hópa
Leikfélag MA frumsýnir Skýin
á sunnudaginn
stöðluðu lífsformi. Von-
andi gera þau það
aldrei.”
Tilvitnunin hér að framan er höfð
eftir Andrési Sigurvinssyni sem leik-
stýrir uppfærslu, Leikfélags Mennta-
skólans á Akureyri á Skýjunum eftir
gríska skáldið Aristofanes. Frumsýn-
ing verður í Samkomuhúsinu á Akur-
eyriásunnudaginn.
Aristofanes er ekki nútímahöfund-
ur. Hann samdi þetta verk fyrir nær
Valgarðsson. Gáfumanninn eða
gjammrassinn Sókrates leikur Gunn-
ar Þorsteinsson, eins og áður sagði,
og Skapti Hallgrímsson leikur hans
nánasta lærisvein. Haildór Björnsson
túlkar hinn góða málstað en Sigur-
þór Heimisson þann lakari. Önnur
hlutverk eru viðaminni, en alls taka
um 40 manns þátt í sýningunni.
Greinilegt er að konur hafa ekki skip-
að háan sess hjá Aristofanesi um 400
árum fyrir Krist, því kvenhlutverkin
eru meira til uppfyllingar og augna-
gamans, alla vega fyrir karlpening-
inn. Leikmyndin hefur verið unnin af
leikhópnum.
Frumsýning verður á sunnudags-
kvöldið, eins og áður sagði, en næstu
sýningar á Akureyri verða á þriðju-
dag, miðvikudag og á föstudag verða
tvær sýningar. Síðan verður haldið
suður yfir heiðar og væntanlega verð-
ur verkið sýnt i Kópavogsleikhúsinu
28.—29. marz. Loks heldur leikhóp-
urinn til Húsavíkur þar sem Skýin
verða sýnd 3.-4. apríl.
Erfrtt en gaman
,,Það hefur verið einstaklega
gaman að vinna með þessum krökk-
um,” sagði Andrés. „Það hefur gefið
mér mikið. Ég get nefnt sem dæmi að
til að hægt væri að byrja þurftu
krakkarnir að slá lán til starfseminn-
ar. Margir hafa líka verið okkur
hjálplegir þannig að mögulegt væri
að viðhalda þeim sið að menntskæl-
ingar setji á fjalirnar eitt leikrit á
vetri.
Eftir að hafa unnið að þessari upp-
færslu með krökkunum sér maður
hvað uppvaxandi kynslóð er vanmet-
in, það eru sko ekki vandamálin hjá
þessum krökkum,” sagði Andrés.
„Heyr,” kölluðu nokkrir úrleik-
hópnum sem hlustuðu á samtalið.
,,Ég meina það, mér finnst það
sorglegt hvað uppvaxandi kynslóð er
alltaf vanmetin. Mér fannst þetta líka
þegar ég var á þessum aldri. Það sem
mér finnst verst er að mín kynslóð er
að verða eins. Hún er farin að van-
meta þá sem yngri eru,” sagði
Andrés.
— Hvað með námið?
,,Við höfum reynt að komast hjá
því að æfingar rækjust á námið.
Vonandi verður leikstússið ekki til að
draga úr námsárangri hjá krökkun-
um. En mér dettur í hug sagan af
manninum sem féll tvisvar í niennta-
skóla. Það þótti honum ekki svo
ntikið mál. Ennþá minnisstæðari
urðu honum tvær leiksýningar sem
hann tók þátt í. Þær voru á við alla
skólagönguna,” sagði Andrés.
„Þetta er líka nám,” sagði þá
Gunnar Sókrates Þorsteinsson. Þar
með setjum við punktinn á eftir efn-
inu.
GS/Akureyri.
Gunnar Þorstainsson sem Sókrates í hópi iærisveina.
2.400 árum. Þrátt fyrir það hefur
verkið ekki verið fært upp á íslandi
fyrr en nú, enda ekki nema 2 ár siðan
Karl Guðmundsson leikari lauk við
þýðingu verksins. Sýning LMA er því
frumsýning verksins á íslandi.
Gjammrassar
— En um hvað fjallar verkið?
„Sko, þetta er ádeila á Sókrates,
hann er hæddur sundur og saman í
þessu verki,” sagði Andrés. „Það er
greinilegt að Aristofanes hefur verið
mikið á móti Sókratesi. Hann segir
að Sókrates og allt hans hyski geri
ekki annað en tala, tala og tala, en
framkvæmi aldrei neitt. Hann segir
þá „gjammrassa” upp til hópa.
Niðurstaðan er sú að allt þetta mál-
þras sé til einskis.
Ef við förum aðeins nánar í saum-
ana í verkinu, þá segir þar frá mið-
aldra bónda, Strepsiadesi. Hann er
að sökkva í skuldir vegna sonar
síns. Þá dettur honum það snjallræði
í hug að setjast á skólabekk í hugar-
vinnslustöð Sókratesar. Þar ætlar
hann að læra lymsku og kænsku til
að komast út úr skuldum vegna son-
arins. Hann er hugfanginn af speki
og orðhengilshætti Sókratesar, en
vonir hans um frama bresta. Hann er
sagður of gamall. Þá verðúr það ofan
á að sonurinn fer til náms hjá Sókra-
tesi. Hann á að gerast spakur. En
speki sonarins við heimkomuna veld-
ur föðurnum miklum vonbrigðum.
Hann hefur lært froðusullsfræði
sem gamli maðurinn skilur ekki.
Hvað er þá til ráða? Ég held að sýn-
ingin verði að svara því,” segir
Andrés.
EkkiaHir sem
hæddu Sókrates
Gunnar Þorsteinsson leikur Sókra-
tes. Hann vildi rétta hlut hans og
skaut því inn í samtalið að ekki hefðu
allir samtímamenn Sókratesar litið
hann jafnháðskum augum og Arist-
ofanes. Til að mynda hefði Platon
lofað hann í hástert.
Hjálmar Hjálmarsson leikur Strep-
siades bónda. Son hans leikur Eðvald
Konur aru hafðar td uppfySingar og augnagamans i varki Aristofanasar.