Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 36
Framkvæmdir stöðvast við Hallgrímskirkju —Tvær milljónir vantar til að hægt verði að halda áf ram ,,Já, það er rétt að þetta er í fyrsta skipti í tuttugu ár sem framkvæmdir við bygginguna stöðvast vegna fjár- ^ skorts,” sagði Hermann Þorsteinsson formaður bygginga- nefndar Hallgrímskirkju i samtali við DV. Fyrir sköntmu voru allir smiðir kirkjunnar sendir heim, utan eins sem starfað hefur við smíðina allt frá upphafi, eða í tæp fjörutiu ár. Astæðu þessarar stöðvunar nú kvað Hermann vera þá; að næsti áfangi sem ráðast þyrfti i væri svo dýr að enn væru ekki til nægir fjár- munir í hann. Þar er um að ræða byggingu gotneskra hvelfinga innan á kirkjuþakið, en í það verk er fyrir- hugað að ráða sænska sérfræðinga. Áætlaður kostnaður við hvelfingar þessar er hátt í fjórar milljónir króna en þeir fjármunir sem til eru eru ekki nema helmingur þeirrar upphæðar, þrátt fyrir fjárveitingu Alþingis til kirkjunnar hafi verið þrefölduð, gagngert vegna þessara fram- kvæmda. Hermann sagði að í undirbúningi væri að leita til landsmanna með gíróherferð nú á föstunni og sjá hvort ekki næðust inn þær tvær milljónir sem upp á vantar. Takist það verður byggingu hvelfinganna lokið i sumar og má þá búast við að allri ytri smíði Ijúki á næstu tveimur til þremur árum. Um það, hvenær kirkjan yrði endanlega tilbúin, sagði Herntann: „Það veit enginn, varla Guð, hvað þá við hinir, en í desember 1985 eru fjör- tíu ár liðin frá þvi að byggingin hófst og við vonum að þetta taki ekki öllu lengri tíma.” -JB. Sá stutti kominn heim Flugvél í nauðum Flugmaður lítillar eins hreyfils flug- vélar, TF-FTB, á leið frá Akureyri til Reykjavíkur, sendi út neyðarkall um hádegisbil í gær. Taldi hann sig vera yfir jökli og í þann veginn að verða eldsneytislaus. Flugstjórn gerði þegar ráðstafanir til björgunar. Flugvél Flugmálastjórnar, sem þá var á Húsavík, fór þegar i loftið, Fokker-vél frá Flugleiðum sneri af leið, þyrla Landhelgisgæzlunnar fór i loftið og björgunarsveitir varnarliðs- ins voru látnar vita. Flugvélin var miðuð út og kom í ljós að hún var við Langjökul. Þar sem eldsneytismælar vélarinnar sýndu litla hreyfingu var flugmaðurinn talinn á að fljúga áfram. Er hann kom' yfir Þingvelli tók hann það til bragðs að nauðlenda á malbikuðum vegi. Þvrla Landhelgisgæzlunnar settist skömmu síðar þar hjá og kont þá í Ijós að eldsneyti var eftir til klukkuslundar llugs. Fór flugmaðurinn því aftur í loftið og flaug til Reykjavíkur. -KMU. Togskipið, Sjóli RE-18, kom til landsins í fyrsta sinn í fyrrakvöld. Sjóli er nokkuð einkennilegur útlits, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, en því fylgir skrýtin saga. Þannig var að útgerðarmaðurinn hafði heimild til að flylja inn 39 metra langt skip. Hann fékk augastað á tíu ára gömlum norskum togara en sá galli var á honum að hann var tæpum metra of langur eða rétt tæpir 40 metrar. Út- gerðarmaðurinn fékk enga undanþágu, reglur eru reglur, sögðu stjórnvöld. Eigandanum datt þá snjallræði i hug. Hann ákvað einfaldlega að stytta togarann um þennan tæpa metra því þetta skip ætlaði hann sér að fá. Og það varð úr að skipið var sett í slipp í Þrándheimi til styttingar. Sjóli verður gerður út frá Hafnar- firði. Hann er um 300 lestir að stærð og fer á veiðar innan skamms. -KMU. Sjóli í Hafnarfjarðarhöfn i gær. Ekki var iaust vM mé ýnmum Mtykkibromi vör þegar þeir sáu stefni skipsins. DV-mynd Einar Ólason. r Austurland: RUTUFERÐIR HAFNARÁNÝ Sérleyfishafar á Austurlandi hófu akstur á ný um hádegisbil í gær eftir að fundi hjá Steingrími Hermannssyni samgönguráðherra lauk. Ekki leystist deilan en málsaðilar urðu ásáttir um að setjast saman í nefnd og reyna að útkljá þannig dciluna. Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytis- stjóri boðar fundi nefndarinnar en aðr- ir í henni eru Óskar Sigurjónsson, frá Austurleið á Hvolsvelli, Gísli Jónsson, frá Sérleyfisbílum Akureyrar, en frá Austfirðingum sitja í ncfndinni Vil- hjálmur Hjálmarsson, fyrrum ráðherra og formaður Sambands sveitarfélaga á Auturlandi, og Sveinn Sigurbjarnar- son, bílstjóri á Eskifirði. Auk þess verður í hópnum Einar Ögmundsson úr samgönguráðuneytinu. Sérleyfishafarnir hættu akstri síðast- liðinn mánudag til að leggja áherzlu á kröfu sína um að Austfirðingar fái sér- leyfi á tveim leiðum úr fjórðungnum sem nú eru í höndum fyrirtækja utan Austurlands. -KMU. írjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982. Ljósmæður ætlaað segja upp Á fundi Ljósmæðrafélags Islands, fyrir skömmu var samþykkt tillaga þar sem allar ljósmæður innan félagsins eru hvattar til að segja upp störfum til að knýja á um bætt kjör. Í frétt frá Ljósmæðrafélaginu kemur fram að ljósmæður eru mjög óánægðar með seinagang í sérkjara- samningum. Þær hafi frá aldaöðli verið láglaunastétt en nú sé þolinmæði þeirra á þrotum. Þær séu orðnar lang- þreyttar á skilningsleysi stjórnvalda og því vanmati sem sé á störfum þeirra. Þau séu óumdeilanlega jafnmikilvæg og annarra heilbrigðisstétta og það sé vægt til orða tekið. -SG. Bflvelta íElliðavogi Óvenjumikið var um árekstra þrátt fyrir góða veðrið í Revkjavík í gær. Enginn þeirra var þó mjög alvarlegur og ekki vitað um slys á fólki. í einu til- felli fór þó betur en á horfðist því tveir bilar lentu santan í Elliðavogi og fékk annar þeirra væna veltu i framhaldi af því. Bifreiðin skemmdist en fólkið slapp. -JB Ekið á barn Ekið var á barn á gangbraut viö Sundlaugaveg um klukkan hálfþrjú i gærdag. Ökumaður virti ekki biðskyldu gang- brautarinnar sem er rétt til móts við sundlaugarnar í Laugardal. Barnið slasaðist nokkuð við ákeyrsluna og var samstundis flutt á slysadeild. -JB. LOKI Ríkisstjómin ku hafa faríó í bíó í gmrkvökfi og sóð mynd- ina Endfess Love. hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.