Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Síða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982.
3
Innf lutningur á pizzum stöðvaður:
Samkeppnin aðeins fólgin í gæðunum
—segir Hrafn Bachmann í Kjötmiðstöðinni
tslenzkir pizzu-framleiðendur hafa
sent landbúnaðarráðuneytinu og
framleiðsiuráði landbúnaðarins
kvartanir vegna innflutnings á tilbún-
um pizzum, á þeim forsendum að um
ólöglegan innflutning á landbúnaðar-
vörumséað ræða.
Pizzur þessar, sem auglýstar eru
ameriskar, hafa fengizt í um 15
verzlunum á Reykjavíkursvæðinu.
Það eru nokkrir kaupmenn sem tekið
hafa sig saman um innflutninginn,
Hrafn Bachmann i Kjötmiðstöðinni
er einn þeirra:
„Þessi vara hefur likað frábærlega
og selst óhemju mikið, þrátt fyrir að
hún sé mun dýrari en islenzk fram-
leiðsla. Eina samkeppnin er því fólg-
in í gæðunum. Okkur finnst það
óneitanlega skjóta skökku við þegar
framleiðendur eru farnir að kæra
innflutning sem þennan. Þeir hefðu
ekkert að óttast ef vara þeirra stæðist
gæðasamanburð, en það er að tala
fyrir daufum eyrum að benda þeim á
leiðir til úrbóta og aukinnar sölu. is-
lenzkir framleiðendur láta allt slíkt
sem vind um eyrun þjóta.”
Um það hvort pizzurnar brytu í
bága við lög um innflutning á land-
búnaðarvörum, taldi Hrafn slíkt
hæpið. ,,Hér er flutt inn mikið af alls
kyns tilbúnum mat í dósum og pökk-
um, sem inniheldur bæði kjöt og
osta. Hlutfall landbúnaðarfram-
leiðsu í þessum varningi er svo lftið,
að mér finnst vafasamt að stöðva
innflutning á þeim forsendum, ”
sagði Hrafn.
Ingi Tryggvason hjá framleiðslu-
eftirliti landbúnaðarins kvað erindi
þessi verða tekin til umsagnar í dag.
Bjóst hann fastlega við að menn
væru sammála um að hér væri um
óþarfa innflutning að ræða, sem
stæði í beinni samkeppni við inn-
lenda framleiðslu. Almennt væri all-
ur innflutningur á kjöti og mjólkur-
vörum bannaður, enda þessi vara
flutt inn sem brauð á þeim forsend-
um að aðeins um 20% af hverri pizzu
flokkaðist undir landbúnaðarvöru.
-JB
!
1
!
<
í
!
<
Sviptingar í skemmtanabransanum
MANHATTAN
GEISPAR GOLUNNI
Paradístekurviö
Nýtt diskótek verður opnað á Stór-
Reykjavíkursvæðinu 21. apríl næst-
komandi eða síðasta vetrardag. Nefnist
diskótekið Paradís og verður í húsa-
kynnum Manhattan í Kópavogi.
Aðaleigandi og framkvæmdastjóri
Paradisar er Baidur Brjánsson og
honum til aðstoðar eru valinkunnir
menn úr Hollywood, meðal annars
Magnús Kristjánsson, sem verið hefur
skemmtanastjóri í Hollywood um ára-
bil. Þá mun einn plötusnúðurinn þaðan
snúa hljómplötunum í Paradis.
Paradís tekur um 500 manns og þar
standa yfir mikiar breytingar á húsa-
kynnum öllum. Staðurinn mun verða
rekinn sem diskótek og aldurstakmark
verður tuttugu ár. Ætlunin er að hljóm-
sveitir spili þar annað slagið og gerður
hefur verið hljómsveitarpallur. Mun og
fyrirhugað, að sérstök jasskvöld verði
þar einu sinni í viku. Þá verða ýmsar
nýjungar í mat og drykk, enda er full-
komið eldhús í húsnæðinu.
-KÞ
Ný langbyigju-
stöð kostar
lOOmilljónir
—ending gömlu stöðvarinnar eitt af
undrum veraldar
Ný langbylgjustöð fyrir Ríkisútvarp-
ið kostar 100 milljónir króna. Mennta-
málaráðherra mun beita sér fyrir þvi að
framkvæmdir við hana hefjist á næsta
ári. Ætlar hann að leita fulltings Al-
þingis og fjárstuðnings úr ríkissjóði.
Gamla langbylgjustöðin á Vatnsenda-
hæð er orðin 50 ára gömul og tækni-
mönnum þykja það mestu undur, að
möstur hennar skuli enn hanga uppi.
Þetta kom fram í svari menntamála-
ráðherra, Ingvars Gislasonar, á Alþingi
í gær, þegar hann svaraði fyrirspurn
Þorvaldar Garðars Kristjánssonar um
málið. í máli beggja, svo og Eiðs
Guðnasonar, bar á miklum ugg vegna
hins hrörlega ástands mastranna á
Vatnsendahæð. Var vitnað í skýrslur
sérfræðinga frá 1978, þar sem talið var
furðulegt að möstrin stæðu og því lýst
að þau gætu hvenær sem væri fallið í
snörpum vindi.
Fyrirspyrjandi og Eiður Guðnason
lögðu áherzlu á að ef möstur gömlu
stöðvarinnar féllu, myndi taka ófyrir-
sjáanlegan tima að koma aftur á lang-
bylgjusendingum. En það myndi svipta
marga landsmenn og sjómenn útvarps-
notum á meðan.
Ráðherrann kvað það sína skoðun,
að enda þótt FM stöðvar þjónuðu æ
stærri hluta landsins, dygði það ekki
og langbylgjustöð yrði ómissandi til
öryggis í útsendingum útvarps, ekki sízt
til sjómanna. Þess vegna teldi hann að
ríkissjóður ætti aö koma til skjalanna
og létta Rikisútvarpinu byggingu nýrr-
ar langbylgjustöðvar. Tók Eiður undir
það, en Þorvaldur Garðar kvað litlu
skipta hvaðan fé kæmi, þaö kæmi að
lokum úr vösum skattborgaranna.
Aöalatriöið væri að koma nýju stöð-
inni upp áður en áföll dyndu yfir.
HERB
Full búö af
sérkenmlegum
fermmgargjöfum
Látið blómin tala
á páskunum.
Allar skreytingar
unnar af fagmönnum.
OPIÐ UM PÁSKANA:
skírdag kl. 9—18
föstudaginn langa
Lokað
laugardag kl. 9—21
páskadag lokað
annan páskadag
kl. 9—18
Nœg bílastæði um helgar.
-BLÖM feftEmR
Hafnarstræti 3.
Símar 12717 og 23317.