Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982.
Spurningin
Gerir þú páska-
hreíngemingu?
Hildur KedUdóttir húsmóðir: Nei. Ég
geri einna helzt hreint fyrir jólin. Það
er ágætt að gera hreint jöfnum höndum
þegar timi gefst til.
Anna Olsen saumakona: Já, það geri
ég. Það þýðir ekkert annað en að þvo
og hreinsa bæði glugga og gardínur.
Guflrún L. Blöndal uppeldisfræflinemi:
Nei, ég geri hreint þegar ég er upplögð
til þess, hlusta oft á góða plötu um leið.
Iðunn Reykdal húsmóðir: Nei, ég geri
einna helzt hreint fyrir jólin. Mér finnst
ieiðinlegt að laga til.
Edda Jónsdóttir, fulltrúi útflutnings-
deilda SS: Nei, ég geri aðallega jóla-
hreingerningu. Mér finnst ekki svo
leiðinlegt að taka til, maður hefur
sjaldan nægilegan tíma tii þess. Ég vinn
úti allan daginn.
Nina Hjaltadóttir, i Landss. hjálparsv.
skáta: Nei, ég mála um páskana ef þess
þarf, geri hreint á vorin og haustin.
Lesendur Lesendur
Lesendur Lesendur
Vetur
í apríl
eða
—of saveður
ogflóð-
bylgjur
—heima er
kannski
bezt
Viggó Oddsson skrifar frá Jóhannesar-
borg, S-Afriku:
Á meðan fólk hefur verið að drepast
úr kulda allan veturinn á norðurhveli,
er ástandið lítið betra hér suður frá;
sumstaðar allt á kaft í vatni eða margra
ára þurrkar, uppskerubrestur, og víða
um lönd meiriháttar hungursneyð.
í Ástralíu var kaldast eina nóttina,
ein 32 stig á Celsius, og um 1000
(þúsund) sléttueldar samtímis og telst
það varla til tíðinda þar í landi. í S-
Afríku hefur veðrið verið eins síðan í
október: „skýjað með köflum og heitt
með dreifðum þrumuskúrum”. Og
skyndilega kemur vetur í apríl eða mai,
fé fennir og kartöflur frjósa fram í
ágúst, þá byrjar ballið aftur: AUt veður
í blómum, hitinn rýkur upp og ekkert
rignir, eöa allt fer á flot. Stundum
koma ofsaleg þrumuveður með 50 eld-
ingum á mínútu.
Haglá stmrö viö kaffíbolla
Stundum kemur þrumuveður á
sumrin, oft á takmörkuðum svæðum.
Á hásléttunum í Transvaal, í 1800
metra hæð, yfirhitnar loftið og streym-
ir upp í háloftin þar sem eru kannski
mínus 50 gráður, þá kólnar loftið og
þjappast i dropa og snjóköggla vegna
rakans í lægri skýjum. Þegar loftiö get-
ur ekki haldið rakanum uppi vegna
samþjöppunar hrynur allt niður aftur
og hleður utan á sig snjó og ís og getur
orðið að hagli á stærð viö hænuegg eða
kaffiboila áður en það bráðnar í neðri
1 • B H
1 V 1 1 > I
ili
hitalögum. Þannig kom ein bollaskúr
eða „él” á eitt borgarhverfi í
Jóhannesarborg og eyðilögðust 80
asbestþök, haglið fór í gegn og fólk
varð að húka undir borðum á meðan
óveðriö gekk yfir. Heilir búgarðar,
akrar og garðar eyðileggjast árlega í
svona veðrum.
Viku bö þurrka skyrtu
Stundum er lofthitinn um og yfir 30
stig mánuðum saman og getur tekið
viku að þurrka heytuggu eða skyrtu.
Það þornar ekkért yfir nóttina og kom-
„A meðan fóMí hefur verið eð
drepast úr kulda allan veturinn é
norðurhveli farðar er éstandið lítið
betra hór suðurfré; sums staðar allt á
kafi i vatni, eða margra ára þurrkar,
uppskerubrestur, og víða um lönd
meiriháttar hungursneyð," segir í
brófi frá Viggó Oddssyni i S-Afriku.
r
ÆFINGASKOR
Miög gott verð
Litur: Dökkblátt/hvítt/rautt
SftÆDi
LAUGAVEGI 74 SÍMI: 17345
Stærðir: 31-35 Kr. 210.-
36-46 Kr. 250.-
in rigning áður en maður kemst heim úr
vinnu.
Flóðir Hfandi
Eitt af því hörmulegasta við klaka-
regnið er að þetta eru oft egghvöss stór
flikki, ekki eins og hrísgrjón eða baun-
ir, þetta kemur niður með 100 km
hraða og flær villidýr og búpening
lifandi. Haglið strýkur skinnið af baki
dýranna í lófastórum flyksum eða
hreinlega rotar fugla og smærri dýr.
Einn nágranninn missti alla málning-
una af þakinu, þakið var eins og sand-
blásið. Á götum voru brotnar trjá-
greinar i ökkla og stór tré ennþá las-
burða eftir að fá þessi sleggjuhögg. Ein
borg í S-Afríku fékk ofsa þrumuveður .
Þar sést varla lækur á 5 ára fresti en eitt
kvöldið fór að rigna og allir hlupu nið-
ur að læk til að sjá vatniö renna undir
brúna. Skyndilega kom 10 metra flóð-
bylgja og sópaði öllu í burtu, húsum,
bílum, þúsundum af kindum og um 100
manns drukknuðu inni 1 miðri eyði-
mörkinni sem heitir Karoo.
Eins og í Vestmannaeyjum var
ekkert tryggt. En þeir sem komust af
lögðu nótt við dag að heimta styrki frá
skattborgurum, víðs fjarri, eins og
Vestmannaeyingar, svona er mannfólk-
ið andvaralaust og andlega vangefið, í
miðri eyðimörk í Afríku og á miðri eld-
fjallasprungunni í Atlantshafi. Og allir
aðrir eru eins, þegar eitthvað bjátar á
hjá nágrannanum, safna ótal milljón-
um og fá ekkert nema skammir og van-
þakklæti fyrir.