Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Page 28
40
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982.
Valborg Hajsted var fædd í
Stykkishólmi 19. september 1910.
Foreldrar hennar voru hjónin Margrét
Andrésdóttir og Jón Jónasson sjó-
maður. Valborg giftist færeyskum
manni, Jóni Hajsted, og eignuðust
þau 2 syni. Jón andaðist 1968. Valborg
andaðist í sjúkrahúsinu á Þórshöfn 18.
marz. Hún var jarðsungin frá
Halldórsvik v/Langasand 21. marz að
viðstöddu miklu fjölmenni.
Pátt Pálsson húsasmiðanteistari
' ‘ Söndum lezt 30. marz. Hann vo’-
tæddur aö Bulandsselt t Skaftártungu
19. marz 1909, sonur hjónanna
Margrétar Þorleifsdóttur og Páls Páls-
sonar. Hann kvæntist Jónínu Eyþórs-
dóttur árið 1946 en hún lézt 6 árum
síðar. Lengst af vann hann á trésmíða-
verkstæði hjá JP innréttingum í
Reykjavík.
Atli Árnason múrari, Reynigrund 27
Kópavogi, lézt laugardaginn 3. apríl.
Elin Thorarensen hárgreiðslukona,
Langholtsvegi 151, andaðist í Borgar-
spítalanum aðfaranótt 6. apríl.
Jósabef Katrin Guðmundsdóttir frá
Haga i Holtum, andaðist föstudaginn
2. apríl.
Tilkynningar
Opiö hús í Dvalarstofnunum
fyrir aldraöa á alþjóðaheil-
brigðisdaginn 7. aprfl 1982
Eftirtaldar dvalarstofnanir fyrir aldraöa vcröa
opnar fyrir almcnning í dag 7. apríl. Mun starfsfólk
á stofnunum svara fyrirspurnum, ef einhverjar eru
og sýna gestum húsakynni.
íbúflir fyrir aldrafla. Opíð hús verður að Norður-
brún l kí. 13—17. Er sérstaklega vakin athygli á
félagsstarfi eldri horgan spm er þar til húsa.
Dvalarheimi aldraflra ()piðhús verður á Hrafnistu-
heimilunum, dvalarheiiniium aldraflra sjómanna i
Reykjavik og Hafnarfirfli ki. 14—lf».
Langlegudeildir aldraðra. 1. Hafnarbuflir. Opið hús
verður í Hafnarbúðum kl. 13.30—14.30. 2.
öldrunarlækningadeild Landspítalans, Hátúni 10B.
Opið hús verður í öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni lOBkl. 14.30—15.30.
3. Sólvangur, Hafnarflrfli. Opið hús veröur aö Sól-
vangi, Hafnarfirði kl. 14.30—15.30. Tekið veröur á
móti gestum í tveimur hópum kl. 14.30 og 15.00.
Gestum verður sýndur spítalinn undir leiðsögn
starfsmanna.
Ferðafólag íslands
Dagsferðir í páskaviku, 8.—12. apríl:
1. 8. april kl. 13: Vífilsfell (656 m). Fararstjóri:
Tómas Einarsson. Skíðagönguferð í Bláfjöllum.
Fararstjórar: Hjálmar Guðmundsson og Guðrún
Þóröardóttir. Verð kr. 50.
2. 9. april kl. 13: Keilisnes—Staðarborg. Verð kr.
60. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. Skíðagönguferö í
Bláfjöll. Verð kr. 50. Fararstjórar: Hjálmar
Guömundsson og Guðrún Þórðardóttir.
3. 10 april kl. 13: Skarðsmýrarfjail (v/lnnstadal).
Fararstjóri: Ásgeir Pálsson. Skíðagönguferð á
Hengiissvæðinu. Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson.
Verð kr. 50.-.
4. 11. april kl. 13: Álftanesfjörur — Hrakhólmar. —
Verð kr. 30. Fararstjóri Sturla Jónsson.
5. 12. apríl kl. 13: Skíðagönguferö á Mosfellsheiði.
Verð kr. 50.- Fararstjóri: Hjálmar Guðmundsson.
Farið frá Umferðarmiöstööinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl.
Myndakvöld verður haldiö aö Hótel Heklu miö-
vikudaginn 14. apríl kl. 20.30.
Félagsmenn í íslenzka Alpaklúbbnum sýna
myndir og veita upplýsingar um starfsemi /\lpa-
klúbbsins.
Bach, Stravinsky og
Schubert í Bústaðakirkju
Nú stendur yfir á vegum Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar námskeið 1 hljómsveitarleik. Nám-
skeiöið hófst í síðustu viku og æfíngar hafa verið
þrisvar á dag en námskeiðið mun enda með tónleik-
um í Bústaða'r rkju á miðvikudagskvöldið (ath. í
kvöld). Stjómandi á tónleikunum verður George
Hadjinikos grískur hljómsveitarstjóri og píanóleik-
ari sem starfar sem prófessor við Konunglega tón-
listarskólann i Manchester.
Þetta er í þriðja skiptiö sem George Hadjinikos
kemur til íslands á vegum Tónskólans, en auk þess
að kenna ferðast hann mikið, leiðbeinir á námskeið-
um, stjórnar hljómsveitum og kemur fram sem ein-
leikari.
Þátttakendur á námskeiðinu eru auk nemenda
tónskólans frá flestum tónlistarskólum i Reykjavik
og nágrenni. Hljómsveitina skipa um 60 hljóöfæra-
leikarar.
Á efnisskrá eru þrjú verk S i nfónía í þrem þáttum
eftir Igor Stravinsky, Sinfónía í C'-dúr (stóra sinfón-
ían) eftir Franz Schubert og svíta í h-moll fyrir
flautu og strengjasveit eftir J.S. Bach. Einleikari á
flautu er Gunnar Gunnarsson.
Tónleikarnir veröa eins og áður sagði í Bústaða-
kirkju í kvöld miðvikudagskvöld 7. aprii og hefjast
kl. 20.30.
Sígaunabaróninn
eftir Jóhann Strauss veröur á fjölunum i Gamla biói
á annan páskadag kl. 20.
Nú hafa verið alls 37 sýningar á Sigaunabarón-
inum og er ekkert lát á aösókn.
Með helztu hlutverk fara Ólöf Kolbrún Harðar-
dó tir, Garðar Cortes, Anna Júlíana Sveinsdóttir og
Halidór Vilhelmsson.
Hljómsveitarstjóri sýningarinnar er Páll P. Páls-
son.
Aðgöngumiðasala er i Gamla bíói frá kl. 16 dag-
lega.
Leiklist
Svalirnar hætta
Aðeins tvær sýningar eru eftir á Svölunum eftir Jean
Genet, sem Nemendaleikhúsiö hefur sýnt að undan-
förnu i Lindarbæ við mjög góða aösókn og verða
þær sýningar á þriðjudags- og fimmtudagskvöld
eftir páska klukkan 20.30. Miöasala er opin á 2. i
páskum frá 17—19 og sýningardag frá kl. 17, sími
21971.
Nemendaleikhúsið er nú aö hefja æfíngar á
síöasta verkefni sinu i vetur, og ber þaö vinnuheitiö:
Þórdís þjófamóðir, börn, tengdabörn og barnabörn,
er það nýtt leikrit eftir Böövar Guðmundsson, leik-
stjóri Hallmar Sigurðsson. Frumsýning er áætluö
um miðjan mai.
Litli
leikklúbburinn
Annan dag páska, þann 12. apríl nk., mun Litli leik-
klúbburinn, Ísafírði, frumsýna i Félagsheimilinu
Hnífsdal nýtt íslenzkt leikrit: Or aldaannál eftir
Böövar Guðmundsson, leikstjóri Kári Halldór.
Verk þetta skrifaði Böðvar Guðmundsson nú í
vetur fyrir Litla leikklúbbinn, leiksviösmynd er eftir
Ieikstjórann og er hún mjög óvenjuleg og i anda
verksins.
Eins og heiti verksins bendir til sækir Böövar
efnið í annála. Það byggir á gamalli sögu sem gerðist
í Múlaþingi upp úr móöuharðindunum 1784 til
1786, þegar allsleysi og hungur var vel þekkt fyrir-
bæri. Lýst er þversneið af mannfélaginu og þeim
aöstæöum sem fólk bjó viö. Þarna er á feröinni
glæpamál og er gefín innsýn i hvernig þaö kemur við
líf fólks, ekki aðeins þeirra sem þátt áttu I brotinu.
Þarna er einnig fjallaö um það sem gerist þegar fólk
hefur ekkert að borða, hversu lágt mannskepnan
getur lagzt og hvaö lagt er í sölurnar fyrir magafylli
eða jafnvel fyrir roð eða tóbak.
Þarna fjallað um heitar tilfinningar vinnukonu og
umrennings, prests og sýslumannsfrúar, svo og
kvensaman sýslumann. í verki þessu eru mjög
spennandi kvenhlutverk og þau gefa mjög breiöa
mynd af lífi konunnar þó ekki sé farið aftur til
móðuharðinda.
Böövar Guðmundsson hefur meö þessu verki
skrifað margbrotið leikrit sem gerir öllum persónum
sinum góð skil. Sú samvinna leikstjóra og höfundar
sem komst á, meðan verkið -'ar í smíöum hefur gert
báðum gott og gerir þessa uppsetningu að ógleyman-
legum listviðburði, ekki aðeins í sögu Litla leik-
klúbbsins heldur brýtur blað í sögu áhugaleikfélaga.
.lónas Tómasson tónskáld hefur samið tónlist við
verkiö. Leikmyndin, sem er mjög frábrugðin því
sem við eigum að venjast, er ekki aöeins á sviði því
áhorfendasalur verður færöur í leikmynd og leikið
frammi í sal. Hlutverk i leiknum eru 10 sem 9 leik-
arar fara með.
Alls vinna um 30 meölimir Litla leikklúbbsins aö
þessari uppsetningu því aö mörgu er aö hyggja.
Leikhópurinn naut raddþjálfunar hjá Hilde
Helgason, sem hélt námskeið fyrir hópinn i upphafi
æfínga.
Eins og áður er fram komið verður frumsýnt
annan dag páska ki. 20.30 og verður salnum lokað
þegar sýningar hefjast, því upphaf leiksins er í
salnum.
Litli leikklúbburinn hvetur nágranna sina sem
aðra landsmenn til að koma til ísafjarðar á sýningar
því ekki veröa tök á aö fara meö verkið um næsta
nágrenni, það sjá þeir sem mæta.
Gert hefur verið plaggat fyrir verkið og er það
unniö af Jenny Guðmundsdóttur Grafíker.
Fyrir þá sem hefðu hug á að koma til ísafjaröar
má geta þess að hótelþjónusta á ísafírði er aö
blómstra meö tilkomu tveggja nýrra hótela, Hótels
Isafjarðar og Hótels Hamrabæjar, með veitingar og
gistiþjónustu.
Myndlist
Graffkaýning á
(safirði.
Laugardaginn, 4. apríl, opnaði Jenný Guðmunds-
dóttir sýningu i bókasafninu á ísafiröi á vegum
menningarráðs ísafjarðar. Jenný stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands og Myndlista-
skólann í Rvk, framhaldsnám viö listaháskólann í
Stokkhólmi hún hefur tekið þátt í sýningum á
Norðurlöndunum, Þýzkalandi, Póllandi og Banda-
rikjunum. Þetta er fyrsta einkasýning Jennýjar og
stendur hún yfir frá 4.—18. apríl. Sýningin er opin á
timum bókasafnsins og frá 2—6 yfir hátíðirnar,
lokað föstudaginn langa. Flestar myndirnar eru til
sölu.
Valgarflur sýnir oHumálvark í
Nýlistasafninu
Valgarður Gunnarsson opnar sýningu i Nýlistasafn-
inu Vatnsstig 3b, föstudaginn 9. april kl. 16. Sýning-
in veröur opin kl. 16—22 virka daga og kl. 14—22
um helgar. Sýningunni lýkur sunnudaginn 18. april.
Valgarður Gunnarsson útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla íslands áriö 1979. Stundaði
framhaldsnám viö State University of New York og *
Empire State College árin 1979—1981.
Þetta er fyrsta einkasýning Valgarðs, en hann
hefur áður tekiö þátt i tveimur samsýningum.
Sýnd eru olíumálverk, unnin á striga.
Tónleikar
TónMkar
Tónleikar verða haldnir i Bústaðakirkju i kvöld kl.
20.30. Þetta eru sinfóniskir tónleikar og á efnisskrá
verk eftir Bach, Schubert og Stravinski. Stjórnandi
tónleikanna er Georg Hadjinikos. Hann hefur hald-
ið námskeiö undanfarið hjá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og eru tónleikarnir afrakstur þess
námskeiðs. Á milli fímmtiu og sextíu manns koma
fram á tónleikunum. Myndin var tekin á æfingu nú i
vikunni.
Árnað heilla
Tónleikar f
Ffladelfíu
Antonio Corveiras heldur orgeltónleika í Flladelfíu-
kirkjunni 1 Reykjavik laugardaginn 3. april kl. 17. á
efnisskrá eru ýmis þekkt verk. Þá heldur Corveiras
ennfremur tónleika laugardaginn 10. april og laugar-
H«|inn |7_ »|>rU
TónMkar afl HMgarfli
Freyr Sigurjónsson og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir halda tónleika að Hlégarði á vegum Tónlistar-
skólans í Mosfellssveit laugardaginn 10. apríl kl.
14.30. Freyr lauk cinleikaraprófi í flautuleik frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1978 og hefur
síöan stundað nám í Manchester. Anna Guðný starf-
ar í London sem undirleikari viö Guildhall School of
Music and Drama en hún hefur stundaö nám við
þennan skóla undanfarin ár. Á efnisskránni eru
meðal annars verk eftir frönsku tónskáldin Couper-
in, Pixis, Widor og Jolivet. Tónlistarfólkið mun
einnig leika á Akranesi 17. apríl og í Norræna hús-
inu sumardaginn fyrsta.
Nýlega voru gefin sanian í hjónahand
af séra Sigurpáli Óskarssyni í Hofs-
kirkju, Ciuðrún María IJnberg
Runolfsdollir og Sleinþór Virtar Sigur-
björnsson. Heimili þeirra er að Kára-
stíg 5, Hofsósi.
Fundir
Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur afmælis-
fund 15. apríl klukkan 20 stundvíslega I húsi SVFÍ á
Grandagarði. Góð skemmtiatriði og matur. Konur
eru beðnar að hringja sem fyrst og tilkynna þátttöku
I sima 73472 (Jóhanna), 85476 (Þórdís) og 31241
(Eygló) eftir klukkan 17 eða í sima SVFÍ á skrif-
stofutíma.
Stjórnin.
Einstaklingar
Kynningarfundur veröur haldinn í Félagi einstakl-
inga að Hótel Esju, 2. hæð, miðvikudaginn 7. april
klukkan 20. Venjuleg fundarstörf. Glens og gaman.
Allir velkomnir. Stjórn E-klúbbsins.
Hjálpræðisherinn
Föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30. Golgata
samkoma. Brigader óskar Jónsson talar. Laugar-
dagskvöld, kl. 23.00, miðnætursamkoma, páskadag
11. april kl. 8.00 f.h. upprisufögnuður, páskadag kl.
20.30 lofgjörðarsamkoma, Ríkharður. Ingibjörg
Jónsdóttir talar. AHir velkomnir.
Kvenfólag Kópavogs
heldur fund, fímmtudaginn 15. apríl klukkan 20.30,
að Kastalageröi 7. Eiríka Sigurhannesdóttir spjallar
um iöjuþjálfun. Mætiö vel og stundvislega.
Stjórnin.
Hátíðarfundur
AA samtakanna
Afmælisfundur A.A samtakanna verður haldinn að
venju föstudaginn langa, 9. apríl í Háskólabió, kl.
21.00 — Þar koma fram ýmsir A.A félagar og einnig
koma fram gestir frá Al-Anon og Al-Ateen samtök-
unum. Kaffiveitingar verða eftir fundinn.
íslensku A.A samtökin voru stofnuð á föstudag-
inn langa 1954, eða fyrir 28 árum. Síðan er þessi
dagur hátíðis- og afmælisdagur samtakanna, alveg
sama hvaöa mánaðardag hann ber uppá.
A.A. samtökin segja þetta um sig sjálf:
AA-samtökin (Alcoholics Anonymous) eru félags-
skapur karla og kvenna, sem samhæfa reynslu sina,
styrk og vonir, svo að þau megi leysa sameiginlega
vandamál sin og séu fær um að hjálpa öðrum til að
losna frá áfengisbölinu.
Til þess að gerast AA-félagi þarf aðeins eitt:
Löngun til að hætta að drekka.
Inntöku- eða félagsgjöld eru engin, en með inn-
byrðis samskotum sjáum við okkur efnalega far-
borða.
AA-samtökin eru sjálfstæð heild og óháð hvers-
kyns félagsskap öðrum. Þau halda sig utan viö þras
og þrætur og taka ekki afstöðu til opinberra mála.
Höfuðtilgangur okkar er að vera ódrukkin og að
styöja aöra alkóhóiista til hins sama.
Enginn getur hætt drykkjuskap nema hann vilji
það sjálfur.
í dag eru á annað hundrað A.A. deildir hér á landi
sem hver um sig heldur að minnsta kosti einn fund á
viku, sumar oftar, og þessa fundi sækja alltfrá 10—
15 manns upp i 150 manns, vanalegur fjöldi er 30—
40 manns á fundi. — Hér í Reykjavík eru margir
fundir á dag og byrja fyrstu fundirnir á morgnana
og þeir síðustu um miðnætti. Upplýsingar um fundi
og fundarstaði er hægt að fá á skrifstofu A.A. sam-
takanna í Reykjavik, Tjarnargötu 5b, sími 12010.
Opin 1—5 e.h. alla virka daga.
Afmæli
70 ini cr i dag Hafrtelnn Guðmunds-
son. Hann fæddist í Vestmannaeyjum
á páskadag, sonur hjónana Guðrúnar
Kristjánsdóttur og Guðmundar Helga-
sonar
Árið 1932 lauk Hafsteinn námi í
prentiðn, hann réðst sem prentsmiðju-
stjóri hjá Prentsmiðjunni Hólum árið
1942. Árið 1954 stofnaði Hafsteinn
ásamt nokkrum félögum bókaútgáfuna
Þjóðsögu. Hann hefur verið einkaeig-
andi fyrirtækissins frá 1961. Hann
kenndi fagteikningu prentara við Iðn-
skólann 1 um 20 ára skeið.
70 ira er i dag, 7. aprfl Haaaes J.
Jóaasoa matreWslamaðar frá Lútrum i
Aðalvík, nú til heimilis að Stóragerði
10 hér i Rvik Kona hans er Pálmey
Kristjánsdóttir frá Látrum. Hannes er
að heiman.
75 ira er i dag Öskar Ólafsson
trésmiður, til heimilis að Iðjumörk 1,
Hveragerði. Hann er kvæntur Kristínu
Þórðardóttur. Óskar er að heiman í
dag.
75 ira er i dag Kristinn Guðjónsson,
forstjióri, Viöimel 55. Hann er einn af
frumkvöðlum nútimaiðnaðar, var
fyrstur manna í allri Evrópu til að hefja
framleiðslu fiúrlampa. Það var árið
1940. Kristinn hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir iðnaðinn.