Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Page 31
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982.
43
botnar vh>
fyrripart
1 jólakrossgátunni var fyrripartur
visu, sem við báðum fólk um að botna.
Mjög margir sendu botna með Iausn
sinni. Það hefur dregizt að við birtum
botna þessa, en nú ætlum við að gera
bót þar á, og birta litið brot af þeim botn-
um sem bárust. Fyrriparturinn var ekki
sem beztur og bauð ekki upp á mikla
fjölbreytni, og þess vegna var mikið af
botnum mjög líkt, sumir nánast alveg
eins. Fyrriparturinn var svona:
Ef ég lítinn óskastein,
œtti ég í fórum mínum.
Margir botnar enduðu á „grænni
grein”, og hér eru nokkrir:
Ragnar Þorsteinsson,
Hliðarv. 50, Kóp.
Vœri ég á grœnni grein,
og gróða vegi finum.
Steinþór Sigurðsson,
Kapaskjólsv. 53, R.
Vœri ég á grœnni grein,
og grœddi á þessum llnum.
Ásgerður Jónsdóttir,
Hrisholti 12, Selfossi.
Margur vœri á grœnni grein,
og gleymdi raunum sínum.
Svo voru líka margir sem enduðu á
„brautin bein”.
Margrét Ólafsdóttir,
Akurgerði 16, R.
Yrði gœfiibrautin bein,
böðuð rósum finum.
Þórður Jóhannesson,
Nesvegi 51, R.
Ltfs mins yrði braut þá bein,
björt með hreinum llnum.
Stefán Jónsson, Goðheimum 13, R.
Liggja myndi björt og bein,
braut að faðmi þlnum.
Svo var talsvert fjallað um „Manna
mein”.
Björn Ingólfsson,
Melgötu 10, Grenivik.
Öll hin stœrstu mannamein,
mundu hverfa sýnum.
Sæmundur Bjarnason,
Þinghóli, pr. Hvolsvelli.
Enginn framar öðrum mein,
ynni I huga sínum.
Höskuldur Egilsson,
Barnónsstíg 39, R.
Lœkna þjáðra mundi ég mein,
manna í raunum sínum.
Kristrún Hreiðarsdóttir,
Stóragerði 32, R.
Hann ég léti lifsins mein,
lœkna af krafti slnum.
Hallfríður Eysteinsdóttir,
Viðigrund 26, Sauöárkr.
Gœti ég læknað margra mein,
mœdda sjúkdóms pínum.
Og enn er botnað.
Guðfinna Árnadóttir,
Brimahlíð, S-Þing.
Opna skyldi ég Álfaheim,
með öllum Ijóma slnum.
Sverrir Haraldsson,
Selsundi, Rangárvöllum.
Vorsins undir vikasein,
vekti af dvala sínum.
Margrét Sigurgeirsdóttir,
Kirkjuv. 23, Selfossi.
Fœri ég margar ferðir ein,
fram með vegi þlnum.
Sigurgeir Jónsson,
Boðaslóð 15, Vestmannaeyjum.
Strax þá yrði stutt og hrein,
staka úrþessum Itnum.
Ingi E. Árnason,
Álftamýri 52, R.
Mundi ég sofa, silkirein,
sœll I faðmi þlnum.
Þorbjörg Daníelsdóttir,
Víghólastíg21,Kóp.
Blöndumenn með brölt og kvein,
blotnuðu á heiðum slnum.
Sigmar Hróbjartsson,
Brautarási 10, R.
Kysi ég unga auðarrein,
ásamt gnótt af vlnum.
Ragnar Lár,
Akureyri.
Kysi ég að kona ein
kynntist granna slnum.
Kristján Þorláksson,
Álfaskeiði 72, Hafnarf.
Kysi égfeitan fjalla-hrein,
og feikn — af Rlnarvlnum.
Og þá er það pólitíkin.
Valborg Guðmundsdóttir,
Tungufelli, Breiðdal.
Með landstjórn fteri Framsókn ein,
af friðar stólum slnum.
Þórunn Sigurðardóttir,
Stigahlíö 10, R.
Myndi stjórnin, sterk og hrein,
standa á fótum slnum.
Jón Pétursson,
Hafnarstr. 91, Akureyri.
Skyldi égþagga vœl og vein,
I valdahrokasvinum.
Halldóra ísberg,
Tómasarhaga 11, R.
Bónin kœmi ein og ein,
eftir vissum llnum.
Sigurgeir Þorvaldsson,
Mávabr. 8c, Keflavík.
Ég held ég keypti 100 bein,
og hundi gœfi þlnum.
Lára lnga Lárusdóttir,
Bergstaðastr. 28, R.
Fyndust engin framar mein,
faðir — I heimi þlnum.
Karl Stefánsson,
Álfaskeiði 93, Hafnarf.
Orðinn vœri að ungum svein,
álitlegur sýnum.
Ómerktur.
Vœri þessi veröld hrein,
og veitul börnum slnum.
Ogað lokum.
Haraldur Ingólfsson,
Bifröst, Borgarnes.
Þá yrði ég ekki svifasein
að sofa hjá Jóni mtnum.
Svo þökkum við kærlega þessa miklu
þátttöku og biðjum þá að fyrirgefa okk-
ur, sem ekki sjá sína botna hérna.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndi
Fjalakötturinn:
MyntSr frá Suóur-Amer-
íku sýndar næstu viku
Nú um páskahelgina, nánar til-
tekið á laugardag, hefst 1 Fjalakettin-
um dagskrá með myndum frá og um
Suöur-Ameriku. Á þessari dagskrá
eru bæði leiknar myndir og heimild-
armyndir, leiknu myndimar eru þrjár
frá Bóliviu, Uruguay og Kúbu.
Sú bóliviska er eftir leikstjórann
Antonio Eguino og heitir CHUQUI-
AGO. CHUQUIAGO var bezt sótta
myndin i Bóiivíu fyrr og siðar þegar
hún var sýnd þar og hefur hlotið
mikið lof bæði hins almenna áhorf-
anda svo og gagnrýnenda um heim
allan.
STATE OF SIEGE heitir mynd
eftir hinn fræga leikstjóra, Costa
Gavras. Hún á að gerast i Uruguay
og fjallar um hóp skæruliða sem
ræna nokkrum erlendum starfs-
mönnum í þeirri von að fá pólitíska
fanga látna lausa i þeirra stað.
Kúbanska myndin heitir DE
SIERTA MANERA og er fyrsta
myndin sem leikstýrð er af konu þar í
landi, Söm Gomes. Myndin fjallar
um mannleg samskipti og þá sérstak-
lega samskipti kynjanna.
Heimildarmyndirnar á þessari dag-
skrá eru alls fimm talsins, þar af
þrjár frá eða um EL SALVADOR.
Tvær þeirra eru frá árinu 1980, E1
Salvador — Fólkiö mun sigra og E1
Salvador — Bylting eða dauði. sú
fyrri er gerð af Instituto Cinemato-
graficio del Salvador Revoluciario en
sú síðari er gerð af hollenzkum kvik-
Chuquiago er bezt sótta myndin í Boliviu fyrr og síóar.
myndagerðarmanni Frank Diamond.
Þriðja myndin frá E1 Salvador heitir
E1 Salvador — Ákvörðun um að
sigra. Þessi mynd er glæný, einungis
nokkurra mánaða gömul, og fjallar
eins og hinar tvær um þá miklu róst-
urtíma þar i landi sem öllum ætti að
vera vel kunnugt um. Að öllum lfk-
indum er hér um frumsýningu þessar-
ar myndar i Evrópu að ræða.
Fjórða heimildarmyndin er frá
NICARAGUA og heitir FRJÁLST
LAND EÐA DAUÐI. Hún er gerð af-
Antonio Yglesias & Victor Vega árið,
1979 og fjallar um borgarastyrjöld-
ina.
Að lokum er svo þriðji hlutl
BARÁTTUNNAR UM CHILE sem
ber nafnið AFL FÓLKSINS. Barátt-
an umChileættiað vera kunn flestum
kvikmyndaáhugamönnum. Tveir
fyrri hlutar hennar hafa verið sýndir
hjá klúbbnum, auk þess sem þessi
mynd hefur hlotið einna flest
verðlaun allra síðari tíma heimildar-
mynda.
Dagskráin stendur yfir frá 10. tU
18. apríl. Sýnt er í Tjamarbíói.
OP I Ð
K VÖ LD v10
I JliHÚSINU I í JISHÚSINU
0PIÐ DEILDUM TIL KL10 í KVÖLD
NÝJAR VÖRUR IÖLLUM DEILDUM
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
JIB
Jón Loftsson hf.
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
/A A A A. A A
, tn m m b Eii i
1 t:l i.Jf
Hringbraut 121 Sími 10600
0PIÐ LAUGARDAG FYRIR PÁSKA FRÁ KL.9-12
interRent
car rental
Akureyri: Tryggvabr 14 - S. 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31615. 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður atslátt
á bilaleigubílum erlendis
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 112., 114. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 og 4. tbl. þess
1982 á hluta 1 Hraunbæ 102G, þingl. eign Þorláks Einarssonar o.fl., fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni sjálfri miðviku-.
dag 14. april 1982 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sogavegi 138, þingl. eign Alexanders Sigurðssonar, fer
fram eftir kröfu G.ialdheimtunnar í Reykjavik, Guðmundar Þórðarsonar
hdl., Landsbanka íslands og Inga lngimundarsonar hrl. á eigninni sjálfri
miðvikudag 14. april 1982 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.