Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Side 33
45
, DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982.
—
Sviðsljósið Sviðsljósið 0 Sviðsljósið
Raza Cyms: Tahir að nýr eiginmaður móður Pmna gmtl rmynit hontMtt hmttm-
legur keppinautur um hisætið.
Farah Diba hyggur
á nýtt hjónaband
Llfið hefur ekki verið neinn dans á
rósum fyrir Farah Diba, fyrrverandi
keisaraynju af fran, siðan maður henn-
ar lézt fyrir 1 1/2 ári. Á þessu tímabili
komst hún þó að því að hún átti vissu-
lega vin að i raunum sínum þar sem var
Hamid Serwan, ofursti (48 ára).
Serwan ofursti var einn af þeim sem
fylgdu keisaranum og fjölskyldu hans
út á flugvöllinn i Teheran 1979 er flótti
var orðinn eina undankomuleiðin.
Skömmu seinna varð oiúrstinn sjálfur
að flýja land og skildi hann þá við
eiginkonu sína.
Þau Farah og ofurstinn hafa verið
óaðskiljanleg undanfarna mánuði.
Farah býr nú ásamt börnum sínum i
Egyptalandi og nýlega fullyrti blað eitt
í Kairó að hún og ofurstinn hygðu á
hjónaband.
Farah fékkst ekki til að tjá sig um
málið en hins vegar varfl elzti sonur
hennar, Reza Cyrus (21 árs) óður og
uppvægur. Hann tilkynnti samstundis
að móðir hans mundi aldrei giftast aft-
ur.
Og hann hefur vissulega sinar
ástæður fyrir þvi að banna móður sinni
að giftast. Hann telur sig réttmætan
arftaka að hásætinu i fran en óttast aö
nýr eiginmaður móður hans ætti greið-
ari aðgang aö huga og hjarta irönsku
Farah Diba (42 áraj: ástfangin af
írönskum ofursta.
þjóðarinnar en hann sjálfur. Iranir höt-
uðu keisarann ákaft, en hins vegar naut
Farah ætfð mikilla vinsælda. Sérstak-
lega töldu iranskar konur sig eiga henni
að þakka það aukna frelsi er þær fengu
á siðustu valdaárum keisarans. Frelsi,
sem Khomeini hefur aftur rænt þær, en
þær gætu vel hugsað sér að endur-
heimtaáný.
Karólína
pantar
brúðarkjólinn
Eiginlega var það talið vist að trúlof-
un þeirra Karolínu prinsessu af
Mónakó (25) og Robertinos Rosselini
(32 ára) yröi ekki tilkynnt fyrr en á hinu
árlega Rauðakrossballi i Mónakó i
ágúst. En nú virðist prinsessunni liggja
mun meira á að komast í það heilaga
því að nýlega pantaði hún sér brúðar-
kjól hjá tizkuhúsinu Dior í París.
Robertino hefur notað tfmann til að
sækja um ríkisborgararétt í Mónakó og
þykir lítill vafi á því að hann fái hann
þar sem Rainer fursti hafði áður boðið
honum að sækja um hann.
Karólina hefur lika látið breyta hús-
inu sínu i Monte Carlo i hólf og
gólf. Enda telja kunnugir að hún sé
ákveðin i þvi að flytja sem fyrst úr höll
foreldranna í eigið húsnæði. Og nú
bendir allt til þess að hún ætii að drifa
sig i það heilaga til að geta deilt þvi með
Robertinó.
Karólina og Robertino fyrir framan höU GrimaMi-œttarinnar i Monte
Cario.
Boðað til grímudansleiks
Það fór ekki hjá þvi að vegfarendur stöldruðu við er þessi káti hópur ungmenna fór um götur Kaupmannahafn-
ar. Hann skemmti fólki lika með söng, dansi og spili og afhenti dreifibróf. Tilgangurinn með þessari uppákomu
var að ná sarnan fólki á ákveðnum stöðum næstu dagana til að undirbúa grímudansleik mikinn sem halda skal á
götum borgarinnar innan nokkurra vikna.
(DV-myndRR)
Maríon Michaol sem
frumskógastúlkan
Liane 1956.
Hin fertuga Maríon
segist hafa fundið
takmark og tiigang
með Hfi sínu í Aust-
ur-Beríín.
Hún
f lúði til
Austur-
Berlínar
Henni skaut upp á stjörnuhimininn
15 ára að aldri í hlutverki hinnar
fögru og kynæsandi frumskógar-
stúlku Liane. 17 ára gömul hafði hún
efni á að kaupa sér rándýrt einbýlis-
hús og ári síðar átti hún álitlegt safn
sportbíla.
En nú er Marion Michael orðin fer-
tug og hefur snúið baki við fyrra lífi
sínu. Hún hefur flutt sig um set aust-
ur fyrir járntjaldið og vinnur sem að-
stoðarleikstjóri í Austur-Berlín.
— Hér liður mér vel. Lífið vestan
megin tjaldsins var orðið mér óbæri-
legt, segir Marion.
Og vinir hennar segja, að hún hafi
lengi verið trúaður kommúnisti, til-
búin til að fórna öllu fyrir flokkinn.
Marion hvarf skyndilega austur
fyrir tjald. Síðustu tveir áratugirnir
höfðu verið henni erfiðir. Á sjöunda
áratugnum sá hún slúðurblöðunum
svo sannarlega fyrir nægu efni: Brúð-
kaup, skilnaður, barn utan hjóna-
bands og ótal ástarævintýri með
þekktum leikurum. Hins vegar gekk
henni illa á leikbrautinni og á áttunda
áratugnum ákvað hún að snúa sér að
öðru. Hún reyndi fyrir sér sem að-
stoðarstúlka læknis, fóstra og um
sjónarmaður barnatima í þýzka sjón-
varpinu. En hún var sifellt tauga-
veiklaðri og hætti svo alveg að vinna.
Loks varð hún að draga fram lífið á
atvinnuleysisstyrk.
Hún gerði misheppnaða sjálfs-
morðstilraun en fékk eftir það vinnu
á umboðsskrifstofu fyrir leikara. Þar
útvegaði hún fyrrverandi kollegum
hlutverk sem hana hafði sjálfa áður
dreymt um að leika.
— Mér hafði lengi boðið við því
lífi sem ég lifði, segir Marion.
Jafnvel þegar bezt gekk á leikferli
mínum var ég aldrei annað en nakti
kroppurinn Liane. Ég varð að finna
mér takmark og tilgang annars stað
ar.
Og það telur Marion sig sem sagt
hafa fundið með því að „flýja” til
Austur-Berlínar.