Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Qupperneq 36
Símamenn telja Ragnar hafa svikið: SJMVIRKJAR HYGGJA A SKÆRUVERKF0LL , .Simamenn eru mjög óánægðir og telja að þeir hafi verið sviknir m.a. um efndir á þeim loforðum sem Ragnar Arnalds gaf en hann sagði að kjör okkar ættu að vera sem líkust kjörum manna í svipuöum störfum á hinum almenna vinnumarkaði,” sagði Valgeir Jónasson hjá Félagi ís- lenzkra símamanna. Fundur í stjórn og trúnaðarmannaráði 5. deildar FÍS, telur úrskurð kjaranefndar í kjaramálum símvirkjastéttarinnar alls ófullnægjandi og mótmælir harðlega að stjórnvöld skyldu ekki standa við fyrirheit um samræmingu á kjörum símvirkja við kjör þeirra er vinna sömu störf á almennum mark- aði. „Við teljum aðalkjarasamninginn varla gildan vegna þessa og hugsum okkur til hreyfings upp úr miðjum mánuði með einhvers konar aðgerðir, hvort sem það verður í formi uppsagna eða einhvers konar skæru- verkfalla. Ég er ekki viss um að fólk geri sér grein fyrir því að símvirkjar setja ekki bara upp síma heldur hafa með allt sjálfvirka kerfi landsins að gera og geta með því að breyta sínum vinnuháttum valdið því að heilu landshlutarnir verði sambandslausir. Þetta er okkur mikið alvörumál því við þessi kjör getum viö ekki unað,” sagði Valgeir. Fyrir nokkru fór fram könnun á launum iðnaðarmanna sem vinna hjá ríkinu á ASl og BSRB kjörum. Þessi könnun var framkvæmd af fulltrúm BSRB og ríkisins og voru niðurstöður birtar i ársbyrjun 1982. Kom i ljós að rafvirkjar á launum Rafiðnaðar- samb. ísl. taka laun er svara til 20. lfl. BSRB, rafvirkjar RARIK skv. 18. lfl. á meðan símvirkjar fá laun sam- kvæmt 10. lfl. I aðalkjarasamningi BSRB voru gefin loforð um að leið- rétta þetta í sérkjarasamningi. Hann endaði I dómi kjaranefndar er dæmdi símvirkjum tvo launaflokka, sím- virkjameisturum einn lfl. og sama til annarra yfirmannastarfsheita sím- virkja. -gb. Lrf og fjör er í laugunum þessa dagana og þaö eru ekki sizt börnin sem njóta þess áð sprikia i heitu vatninu. öruggara þykir þó að hafa stuðning mömmu. DV-mynd Bjarnleifttr 750 MILUONIR í KÍSILMÁLMINN —f ramleiðsla á Reyðarf irði hef jist eftir þrjú ár Kisilmálmfrumvarpið var lagt fram á Alþingi i gær. Þar er ráðgerð verksmiðja á Reyðarfirði með 25 þúsund tonna framleiðsluafköst á ári og bryggja fyrir 20 þúsund tonna skip. Miðað er við aö framleiðsla hefjist eftir þrjú ár og við hana vinni 130 manns. Stofnkostnaður er áætl- aður 750 miiljónir króna og á ríkið aö eiga minnst 51% hlutafjár, allt aö 225 milljónir. Auk þeirra skuldbindinga sem ríkið tekur á sig, ef frumvarpið verður að lögum, um hlutafjárfram- lag má nefna 300 milljóna ábyrgðir, niðurfelling alls konar gjalda á fjár- festingarvörur og aðföng. Hins vegar er verksmiðjunni ætlað að greiöa ígildi aðstöðugjalds svo og venjulega skatta. Til samanburðar um stærð verk- smiðjunnar er að framleiðslugeta ál- versins í Straumjvlk er 85 þúsund tonn á ári og þar vinna nú um 700 manns. -HERB. Prestskosning á Óiafsfirði: Góð kjörsókn Atkvæði í prestskosningu á Ólafsfirði síðastliðinn sunnudag verða ekki talin fyrr en eftir páska. Samkvæmt lögum má ekki byrja talningu fyrr en á morgun en þá er helgidagur. Frestast því talningin. Séra Hannes örn Blandon, sem verið hefur starfandi prestur á Ólafsfirði í tæpt ár, var einn í kjöri. Kjörsókn var góð, 530 greiddu atkvæði af 731 á kjör- skrá. Er það 72,5% kosningaþátt- taka. Voru þó margir ekki í bænum, ýmist á sjó eða í ferm- ingarveizlum annars staðar. -KMU/Ásgeir, Ólafsfirðl. Torf usamtökin ræða við Eimskip: VERÐfJR 0PNAÐ UNGLINGA- DISK0TEK VIÐ SKÚLAGÖTU? Teikn eru nú á lofti um að áður en langt um líður veröi opnað unglinga- diskótek í miðbænum sem yrði til húsa I Skúlaskála, vörugeymslu Eimskipafélags íslands hf. við Skúla- götu. Eru það aðilar innan Torfu- samtakanna sem hug hafa á að taka Skúlaskála á leigu og reka þar slikan skemmtistað. ,,Það er rétt, við ætlum að leigja Skúlaskála,” sagði Þórður Magnús- son, framkvæmdastjóri fjármála- sviðs Eimskipafélagsins í samtali við DV. „Margir hafa sýnt húsnæðinu áhuga og þeirra á meðal eru Torfu- samtökin.” Skúlaskáli er 3000 fermetrar að stærð og sagði Þórður að hvort tveggja kæmi til greina að leigja skál- ann I einu lagi eða í einingum. — Hefði Eimskipafélagið eitthvað á móti þvi að I skálanum yrði rekið diskótek? „Það yrði að ræða það þegar þar að kæmi.” — Hefur það komið til tals? „Um það vil ég ekkert segja.” — Hvenær verður tekin ákvörðun um hverjum verður leigt? „Ja, húsnæðið gæti orðið tilbúið frá okkar hendi í vor eða sumar,” sagði Þórður Magnússon. -KÞ. frfálst, úháð daghlað MIÐVIKUD. 7. APRIL 1982. Banaslys á Akureyri Sjötíu og átta ára gömul kona lézt á sjúkrahúsinu á Akureyri í gærkvöld eftir umferðarslys sem hún lenti í um kl. 16.30 í gærdag. Konan var á gangi á Þingvallastræti er fólksbíl var ekið austur götuna vestan við Mýrargötu og lenti hann á konunni. Engir sjónarvott- ar voru að slysi þessu og er lögreglunni á Akureyri því ekki fullkunnugt um hvernig það atvikaðist. Konan var þegar flutt á sjúkrahúsið á Akureyri. Var hún meðvitundarlaus er þangað var komið og lézt síðan í gærkvöld eins og áður er getið. -ELA. Jóhann efstur á Skákþinginu Að loknum fimm umferðum í lands- liðsflokki á Skákþingi íslands er Jóhann Hjartarson efstur með fjóra og hálfan vinning. Jón L. Árnason og Sævar Bjarnason koma næstir, báðir með þrjá vinninga og betri stöðu í biðskák. Fimmta umferðin var tefld í gær- kvöldi. Jóhann Hjartarson vann Júlíus Friðjónsson, Jón L. Árnason vann Magnús Sólmundarson, Sigurður Daníelsson vann Sævar Bjarnason og Björn Þorsteinsson vann Benedikt Jónasson. Tvær skákir fóru I bið, skák Róberts Harðarsonar og Jóns Þorsteinssonar og skák Elvars Guðmundssonar og Stefáns Briem. Biðskákir verða tefldar í kvöld. Um páskahelgina verður teflt á hverjum degi og hefjast skákirnar klukkan fjórtán. Landsliðsflokkurinn er tefldur I Norræna húsinu. -KMU. Skíðasambandið fékk50 þúsund „Við höfðum um 50 þúsund krónur út úr þessari sýningu Volvo-skiða- mannanna,” sagði Hreggviður Jóns- son, formaður Skíðasambands íslands, I stuttu spjalli við DV eftir hina vel heppnuðu skemmtun í Bláfjöllunum um síöustu helgi. „Það komu um 9000 manns inn á svæðið en aðgöngumiðagjaldið var mjög lágt eða aðeins 20 krónur fyrir fullorðna og 10 krónur fyrir börn. Þegar allur kostnaður hafði verið greiddur er okkar hlutur um 50 þúsund krónur og við erum mjög ánægð með það og hvað þessi sýning tókst vel og vakti mikla athygli,” sagði Hregg- viður. -klp- w Næsta blað kemur út þriðjudaginn 13. april. Smáauglýsingadeild blaðsins er opin til klukkan 18 í dag. Allar deildir blaðsins eru lokaðar fram á mánudaginn 12. apríl en þá er smáaug- lýsingadeildin opin kl. 18—22 til mót- töku á smáauglýsingum sem eiga að birtast daginn eftir. LOKI Andstæðingum Blöndu- virkjunar cr nú hótað því að Ikarusvagnar vcrði kcyptir ti! að annast akstur skólabarna fyrir norðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.