Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982. Petrea Richardsdóttir, sautján ára starfsmaður í tízkuverzlun. D V-mynd Friðþjófur Föstudagsmyndin: DREYMIR UM AÐ VERÐA MODEL Snyrting, föt og módelstörf er það sem hæst er skrifað hjá stúlkunni sem prýðir föstudagsmyndina okkar að þessu sinni. Já, þetta er nýtt. Á hverjum föstudegi í sumar verða birtar myndir af fólki, körl- um jafnt sem konum, vonandi sem flestum til yndis- aukaogánægju. Petrea Richardsdóttir heitir hún þessi unga mær, hefur lifað full 17 ár og starfar í tízkuverzluninni Quadro. Hún stefnir á snyrtinám hér heima með haustinu og jafnvel frekara nám erlendis síðar. Þegar færi gefst skreppur hún í bíó hittir kunningjana eða annað sem til fellur. Nú bíður hún spennt eftir úrslit- um í fyrirsætukeppninni sem tízkublaðið Lif og Eileen Ford gangast fyrir, því að þar er hún meðal þátttakenda. En í sumar á að afgreiða föt, föt og meiri föt og kveðst Petrea hafa mikla ánægju af því starfi. Og til gæti komið að skreppa til Long Island í Bandaríkjun- um, þar sem hún á marga ættingja og hefur dvalið öll sumur síðastliðin fjögur ár. Eftirgrennslan kanadíska Rauða krossins ber loks árangur: Framboðsfundur í sjónvarpssai á sunnudag: „ Týndu Víetnam- amir” em fundnir í Kanada Húsbóndinn vonast nú til að fá atvinnuleyf i þar og þá kemur f jölskyldan ekki af tur til Islands Rauði krossinn í Kanada hefur nú loks haft upp á hinni íslenzk-víet- nömsku fjöldskyldu, sem kom þangað ólöglega inn í landið í fyrra eftir skemmtiferð frá íslandi. Fjöldskylda þessi sendi fyrir nokkrum vikum bréf til Rauða krossins hér, þar sem hún bað um aðstoð til að komast aftur heim til ísiands. Hafði hún hvorki dvalarleyfi né atvinnuleyfi í Kanada og var ástandið sagt mjög bág- borið hjá henni. Rauði krossinn í Kanada var fenginn til að hafa upp á fólkinu og ræða við það og athuga hvernig það vildi -haga heimferðinni til íslands. Var þá hljóðið í henni öllu betra og gerði hún sér vonir um að fá að dvelja eitthvað lengur í Kanada. „Við töluðum við húsbóndann, Tam Van Do, eða Tómas eins og hann var skírður hér á íslandi, í síma” og var liann bara hress,” sagði Jón Ásgeirs- son, framkvæmdarstjóri Rauða kross- ins, í viðtali við DV. „Tómas sagði okkur, að hann væri jafnvel að fá at- vinnuleyfi í Kanada og biði hann nú bara eftir þvi. Ef þetta atvinnuleyfi fæst ekki, mun Tómas og fjöldskylda hans koma aftur til íslands, og hvort af því verður eða ekki ætti að komast á hreint einhvern næstu daga.” sagði Jón framkvæmdarstjóri. -klp- Frambjóðendur sitja fyrir svörum og f lytja ræður — íbeinni útsendingu „Við héldum fund með kosninga- stjórum frambjóðenda og á honum var formið á þættinum ákveðið,” sagði Sólveig Pétursdóttir dagskrár- gerðarmaður, er hún var innt eftir hvernig fyrsti framboðsfundur, sem sjónvarpið verður með fyrir þessar kosningar, hafi verið skipulagður. Þátturinn verður í beinni útsendingu á sunnudag kl. 16. Þessi fyrsti fram- boðsfundur í sjónvarpssal er ein- göngu með frambjóöendum í Reykjavik. „Frambjóðendurnir hafa tvo tima til umræðu. Fyrstu þrjátíu mínúturnar verða ræður og hefur hver flokkur sex minútur. Síðan veröa spurningar i klukkustund þar sem fréttamaður frá sjónvarpinu spyr og hefur þá hver flokkur tólf mínútur til að svara. Að lokum eru ræður í þrjátíu minútur,” sagöi Sólveig. Dregið var um röðina hjá flokkun- um og skiptist hún þannig: í fyrstu umferð er það V-listinn (Kvenna- framboð) sem er fyrstur, þá B-listinn (Framsókn), A-listinn (Alþýðuflokk- ur), G-listinn (Alþýöubandalag) og D-listinn (Sjálfstæðisflokkur.) í spurningunum er röðin þannig: A-listinn, D-listinn, V-listinn, B-list- inn og G-listinn. Og í lokatimanum er það: D-listinn, G-listinn, A-listinn, B-listinn og V-listinn. Hver flokkur hefur einn til tvo ræðumenn í fyrri umferö og sömuleiöis i þeirri seinni. Þá hefur einnig hver flokkur einn til tvo menn til að svara spurningum. Spyrill sjónvarpsins er Helgi E. Helgason. Sunnudaginn 16. maí verða fram- boðsfundir með frambjóðendum I Hafnarfirði og á Akureyri. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.