Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Síða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982.
3
Eigendaskipti
hjá útgáfufé-
laginu Frjálsu
framtaki hf.
— erf iðleikar hafa steðjað að
f yrirtækinu að undanf örnum
Eigendaskipti hafa nú orðið á
útgáfufyrirtækinu Frjálsu framtaki hf.
Jóhann Briem sem verið hefur forstjóri
og aðaleigandi fyrirtækisins frá stofn-
un hefur nú látið af störfum og selt
fyrirtækið Magnúsi Hreggviðssyni við-
skiptafræðingi sem tók við stjórn
félagsins í gær. Jóhann Briem mun þó
starfa að ákveðnum verkefnum fyrir
Frjálst framtak hf. um óákveðinn tíma.
Að undanförnu hafa vissir erfið-
leikar steðjað að rekstri félagsins. Hinn
nýi eigandi hyggst bæta úr því á næst-
unni og efla rekstur fyrirtækisins til
muna.
Þegar Frjálst framtak hf. var
stofnað fyrir 15 árum gaf það í byrjun
út aðeins eitt sérrit, Frjálsa verslun. Á
þessu árabili hefur fyrirtækið orðið
þriðja stærsta fjölmiðlafyrirtæki lands-
ins. Það gefur nú út atvinnulifssérritin
Frjálsa verslun, Sjávarfréttir og
Iðnaðarblaðið, Tískublaðið Líf, bíla-
blaðið Öku-Þór í samvinnu við Félag
íslenskra bifreiðaeigenda, barnablaðið
ABC í samvinnu við skátahreyfinguna
og íþróttablaðið í samvinnu við
íþróttasamband íslands, auk þess sem
fyrirtækið gefur út upplýsingaritið
íslensk fyrirtæki.
Otgáfu allra timaritanna og sérrit-
anna verður haldið áfram. -JH.
Vestfirðingar
krefjast úrbóta
í samgöngumálum
— þingmönnum kjördæmisins af hentar
nær 18 hundruð mótmælaundir-
skriftir
Vestfirðingar eru óánægðir með
vegamál í fjórðungnum og hafa á
átjánda hundrað Vestfirðinga skrifað
undir mótmælaskjal vegna slæmra
samgangna. Listarnir voru afhentir
þingmönnum kjördæmisins nú í þing-
lok.
Vestfirðingarnir skora á þingmenn
kjördæmisins að vinna nú þegar að
bættum samgöngum milli byggðarlaga
með varanlegri tenginu Vestfjarða við
vegakerfi landsins. Forgangsverkefni í
samgöngumálum héraðsins telja þeir
vera endurbætur á veginum yfir
Breiðadalsheiði eða jarðgöng, ásamt
brú yfir Dýrafjörð frá Lambadalsodda
að Litlanesi.
Vestfirðingar krefjast þess að njóta
sömu mannréttinda og aðrir lands-
menn, en hingað til hafa þeir verið inni-
lokaðir, hvað vegasamband snertir, í
5—6 mánuði á ári. Þeir segja áð ef
byggð eigi að þróast í fjórðungnum
verði að vinna að samgöngubótum
þessum hið bráðasta.
K m -JH
Vcstfirðingar telja að meðal fórgangs-
verkefna sé að bæta veginn yfir
Breiðadalsheiði. Þannig aka menn nú
yfir heiðina gegnum margra metra há
jarðgöng. DV-mynd GVA
Athugasemd landlæknis:
Mannfjöldatölur
í Krist janíu f rá
bæjaryfirvöldum
Ólafur Ólafsson landlæknir óskar að eru fengnar frá bæjaryfirvöldum i
taka það fram vegna fyrirspurna, að Kaupmannahöfn, samkvæmt manntali
tölur um fjölda Islendinga í Kristjaníu 9.6. 1981. -JH.
MOTOROiA
Altcrnatorar
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 — Sími 37700.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
<
i
i
t
i
i
!
i
i
dief pepsi
SYKURLAUST 1 1
MNVE6NA!
Ertþúá réttrí línu?