Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982,
SJÓMENN íEYJUM TAKA UPP NETIN
—um leið og lundakarlarnir gera háf ana klára
Fyrir eiga þau Guðjón og Sigríður
Dodge Aspen bíl. Ég spurði þau að
því hvort þau ætluðu að halda báð-
um bílunum. „Nei, það getur meira
að segja verið að við þurfum að selja
báða þá báða. Við vorum að kaupa
okkur íbúð og vantar þvi auðvitað
peninga,” sagði Guðjón.
Akurnesingur hreppti Suzuki-jeppann ^
„Ég trúiþessu varta ennþá”
Við fórum með þeim hjónum inn í
Sundahöfn þar sem bílinn stendur í
geymsluporti. Eftir er að setja á hann
ýmsa aukahluti, skoða hann og
ganga frá öllum skjölum. Hjónin
geta hins vegar gert sér vonir um að
fara að aka á honum í næstu viku.
Við óskum jseim til hamingju með
bílinn. Satt bezt að segja trúum við
því ekki að þau tími að selja hann
þegar þau eru búin að prófa að aka
honum.
DS
Þegar vinningshafinn og fjölskylda hans skoðuðu Suzuki jeppann átti eftir að hengja á hann stuðara og ýmislegt fleira. En þeim leizt þó bærilega á gripinn.
—segir Guðjón Sólmundsson
,,Ég trúi þessu varla ennþá,” sagði
Guðjón Sólmundsson frá Akranesi.
Hann kom hér á ritstjórnina í gær að
vitja um Suzuki jeppann sem honum
hefði verið tilkynnt kvöldið áður að
hann hefði hreppt. Guðjón sendi inn
tvo seðla í áskrifendaleik DV og var
svo heppinn að annar þeirra var dreg-
inn út. Því er hann nú eigandi glænýs
Suzuki jeppa.
í för með Guðjóni voru kona hans,
Sigríður Kjaran Samúelsdóttir, og ein
þriggja dætra þeirra hjóna, Rannveig
Björk.
„Við höfum verið áskrifendur
siðan í ágúst. Til að byrja með var
það Vísir sem við keyptum og siðar
Dagblaðið og Vísir eftir sameining-
una,” sagði Guðjón.
Hann bætti því við að ekki hefði
þeim dottið í hug að áskriftin kynni
að leiða til þess að þau eignuðust nýj-
an bíl.
Óhætt er að segja að vetrarvertíðin
i Eyjum fjari út I rólegheitum.
Dæmalaus ótíð hefur verið síðuslu
vikurnar. Suðvestan og vestan átt
auk norðanáttar með sandbyl og öllu
tilheyrandi af meginlandinu. Hefur
það orsakað aigjöra ördeyðu því fisk-
ur hefur algjörlega horfið.
í vetur hafa verið gerðir út 51 bát-
ur, 37 á net og 14 á troll. Þegar ver-
tíðin var hálfnuð, leít út fyrir algjöra
metvertíð en botninn datt úr þessu i
apríl.
f apríl bárust nú á land samtals
11.145,6 tonn, sem er 5.783,5 tonn-
um minna en í apríl í fyrra. Þó er
heildarafli í vetur til aprilloka 326,5
tonnum meiri en á sama tíma í fyrra,
eða alls 32.025,7 tonn. Til gamans
má geta þess að aflinn er nú 12000
tonnum meiri en á sama tímabili
1979. Þótt afli hafi brugðizt í april
geta Eyjamenn verið kátir með ver-
tiðina þegar á heildina er litið. Um
mánaðamótin voru 3 bátar búnir að
landa meira en 1000 tonnum hver.
Þórunn Sveinsdóttir 1159, Suðurey
1112 og Ásey 1017. Af trollbátum var
Freyja aflahæst með 787 tonn en af
togurunum var Breki aflahæstur með
1542,6 tonn.
Þótt veður hafi verið válynd i vet-
ur, hefur gæfa fylgt hverju fleyi frá
Eyjum. Alls voru landanir bátanna
2499 og meðallöndun 10,7 tonn, sem
er það næsthæsta á sl. 4 vertíðum.
Á sama tima og sjómenn taka upp
net sín, setzt lundinn upp hver í sina
holu og lundakarlarnir gera háfana
klára fyrir næstu vertíð.
JGH/-ÁSM. FR.
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Gleðivímu borgarmeirihlutans að Ijúka
Siðasti borgarstjórnarfundur í
Reykjavík á þessu kjörtímabili var
haldinn i gærkvöldi, og fara engin
sérstök tíðindi af honum. Kjörtíma-
bilið hefur verið óvenju kyrrlátt póli-
tískt og stafar það af því að ráðandi
flokkar hafa Iftið vilja hreyfa í
borginni og meðal borgarstarfs-
manna. Þeir hafa þó ákveðið að
leggja græna byltingu fyrrverandi
meirihluta undir byggingarlóðir en fá
þvi væntanlega ekki ráðið sé eitthvað
að marka spárnar um kosninganiður-
stöður. Þá hafa meirihlutaflokkar lit-
ið hreyft við stöðum og starfi á veg-
um borgarinnar en Ijóst er að við slíkt
verður ekki unað, haldi þríflokkarn-
ir meirihluta sínum næsta kjörtima-
bil.
Þótt Ijóst sé að Alþýðuflokkur og
Framsókn hyggist vinna með Al-
þýðubandalaginu næsta kjörtímabil
ef atkvæði duga, eru bæði Alþýðu-
flokkur og Framsókn að basla við
framboð. Hins vegar eru iíkur á því
að þeir, sem vilja vinstri meirihluta
kjósi Alþýðubandalagið beint, enda
yrðu fulltrúar hinna flokkanna
tveggja hvort sem er svo fáir, að þeir
fengju engu áorkað fyrir sitt fólk. Sú
hefur a.m.k. kosti orðið raunin í nú-
verandi samstarfi.
Mikill fögnuður greip um sig með-
al vinstri manna, þegar Sjálfstæðis-
flokkur tapaði meirihluta sínum i
borginni. Munu þá margir hafa von-
að að einhvers konar nýir timar hæf-
ust hjá borgarbúum. Og það varð orð
að sönnu. Ekki hefur linnt röfli um
skipulagsmál, tali um lokun Lauga-
vegar fyrir umferð, verndun Grjóta-
þorps, item taflaðstaða i Bernhöfs-
torfu. Hlandportin í Grjótaþorpi eru
enn á verndardagskrá og taflið biður
mannlaust eftir meisturum sinum. En
Laugaveginum hefur enn ekki verið
lokað. Nokkur gömul hús hafa verið
flutt í Vesturbæinn, þar sem skipu-
lagsséni Alþýðubandalagsins hafa
tekið sér bólfestu i fullri vissu þess,
að þeim beri að aðlaga sig gömlu
bæjaríhaldi. En það er ekkert gamal-
gróið við þessi séni annað en fbúðar-
húsin. Sum þeirra munu vara farin úr
þeim aftur.
Strætisvagnar hafa orðið að stór-
máli undir forustu Alþýðubandalags-
ins. Um tima leit út fyrir að leysa ætti
öll vandamál aldraðra og fatlaðra
með strætó. Inn í vagnamálin blönd-
uðust svo Ikarus-vagnar sem hafa
mætt andspyrnu bilstjóra. Annað
hefur ekki heyrst, nema hvað borgar-
stjórinn sjálfur er eitt af tilboðunum
fyrir kosningarnar. Nú setja a.m.k.
Framsóknarmenn traust sitt á hann
en atkvæðin í borginni hafa ekki
heyrt hans getið, svo liklegt er að
áróður Framsóknar fyrir borgar-
stjóra beini atkvæðum að Sigurjóni
Péturssyni sem er eini borgarfulltrú-
inn sem fær að koma nálægt jóla-
trénu á Austurvelli.
Að lokum hefur svo Alþýðubanda-
laginu tekist að koma upp kvenna-
lista sem er afleiðing af óánægjuþrasi
rauðsokka út af aðbúnaði kvenna á
vinstri heimilum, ef marka má skipun
listans. Borgarbúar eiga að axla þetta
sambúðarvandamál kvenna og karla i
Alþýðubandalaginu lfka með þvi að
kjósa lista sem sprottinn cr upp út af
dagheimilun og annarri samneyslu
banda skattgreiðendum að borga.
Sfðasta kjörtimabil hefur farið i
gleðivfmu yfir að vinna borgina af
Sjálfstæðisflokknum. í raun hefur
það ekki enst til annars. Þess er að
vænta að núverandi meirihluti taki
eitthvað til hendinni næsta tfmabil
fái hann völd áfram. En allt verður
það einskonar kattaklór. Sénf Al-
þýðubandalagsins flytja gömul hús á
sfðustu lóðirnar f Vesturbænum alveg
eins og Árbær hafi verið lagður nið-
ur, Laugavegi verður lokað,
Grjótaþorpið verður gert að
standandi nýlendusýningu með styrk
og taflmennirnir verða klæddir f föt
frá 19. öld, en hönnun þeirra, snið og
saumur munu kosta nokkrar milljón-
ir. Þannig mun takast að halda í
horfinu um þýðingarlitla hluti. Um
hafnarmannvirki og lóðir verður ekki
að ræða nema fyrirfinnist vegleg
sprungusvæði, svo eitthvert mark
verði hægt að taka á næsta jarð-
skjálfta.
Svarthöfði.