Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Page 29
37
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 7. MAl 1982.
Slgriður Guðmundsdóttir er látin. Hún
vár fœdd að Kolstöðum í Hvítársíðu
15. nóvember 1891. Hún giftist
Magnúsi Finnssyni en hann lézt árið
1947. Þau eignuðust 10 börn. Útför
Sigríðar var gerð frá Fossvogskirkju í
morgun kl. 10.30.
Elín Einarsdóttlr lézt 28. april. Hún
fæddist i Reykjavík hinn 20. nóvember
1917. Foreldrar hennar voru hjónin
Ragnhildur Jónsdóttir og Einar
Tómasson. Elín útskrifaðist úr Verzl-
unarskóla islands árið 1936, hún giftist
Sigurhans Halldórssyni og eignuðust
þau 2 börn, síðustu árin starfaði hún
við símavörzlu á Landakotsspitala.
Útför hennar verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 15.
Katrín Oddsdóttlr lézt 27. apríl. Hún
fæddist á Heimaskaga á Akranesi. 17.
marz 1923. Foreldrar hennar voru
Sigríður Kristín Halldórsdóttir og
Oddur Björnsson. Katrín útskrifaðist
úr Verzlunarskóla Íslands árið 1940 og
hóf þá störf hjá Rannsóknarstofu Há-
skólans. Katrín giftist Eiríki G.
Asgeirssyni og eignuðust þau 4 börn.
Katrín sat i stjórn kvenfélags Áspresta-
kalls um nokkurra ára skeið. Útför
hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í
dag.
Ámi Björnsson matsveinn, Melabraut
■ 6, andaðist i Vífilsstaðaspítala að
morgni 5. maí.
Aðalsteinn Hjartarson frá Grjóteyri,
Sandabraut 6, Akranesi, sem andaðist
4. maí, verður jarðsunginn frá Akra-
neskirkju, laugardaginn 8. mai kl.
14.15.
Útför Aðalheiðar Vilbergdóttur,
Ásgerði 3 Reyðarfirði, fer fram frá
Reyðarfjarðarkirkju, laugardaginn 8.
maí kl. 14.
Útför Bergs Baldvinssonar, Hofsósi, er
lézt 27. apríl í sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki, fer fram frá Hofsós-
kirkju á morgun, laugardaginn 8. maí
kl.2.
Guðbjörg Magnúsdóttir, Haukabergi
Vestmannaeyjum, andaðist á sjúkra-
húsi Vestmannaeyja 5. maí.
Rannveig Gisladóttlr lézt 27. april.
Hún var fædd á Bíldudal 27. september
árið 1918, dóttir hjónanna Jóhönnu
Ólafsdóttur og Gísla Jónssonar.
Rannveig giftist Hálfdáni G. Viborg og
eignuðust þau 2 börn. Útför hennar
verður gerð frá Fossvogskapellu í dag.
70 ára er í dag Guðmundur Pétursson
frá Ófeigsfírði, Guðmundur er kvænt-
ur Elínu Elísabetu Guðmundsdóttur og
hafaþau eignast 8 böm.
80 ára er í dag, 7. mai, Svelnn
Guðnason fyrrum ljósmyndari á
Eskifirði, nú til heimilis að Mávahlíö
39 hér í Rvik. — Hann er að heiman í
dag.
70 ára afmæli á á morgun, 8. maí,
Hulda Gunnarsdóttir verzlunarmær,
Gautlandi 11, Reykjavík. Hulda hefur í
40 ár starfað hjá fyrirtæki Ásbjarnar
Ólafssonar hf. Hún mun vera í röð
þeirra kvenna, sem fyrstar urðu til þess
að taka hér ökuréttindapróf á bifreið-
ar, en það mun hafa verið árið 1931.
Hulda dvelur um þessar mundir hjá
ættingjum og vinum í Danmörku.
Heimilisfang hennar þar er: Lundel 16,
2900 Hellerup.
I gærkvöldi í gærkvöldi
Tímí leikara að ganga í garð
Oddur Björnsson reið á vaðið með góðu leikriti í gærkvöldi
Eftir að hafa hlustað á útvarpið í
gærkvöldi, án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af leiðinlegri dagskrá, sem
tröllríður nú sjónvarpinu á öllum
dögum nema fimmtudögum, vaknaði
sú spurning, hvort það væri ekki
óhætt að sjónvarpið verði „lokað”
fleiri daga en fimmtudaga. Er ekki
nóg að hafa sjónvarpið opið á laugar-
dagskvöldum og t.d. á föstudags-
kvöldum, þegar nógu margir „trúð-
ar” frá Alþingi eru tilbúnir að láta
gamminn geisa — skammast út í allt
og alla og þrengja hugmyndum sín-
um inn á aimenning. Maður bíður nú
spenntur eftir því, að allir þeir snill-
ingar, sem taka þátt i sveitarstjórnar-
kosningum, fari að dásama það sem
þeir hafa gert og ekki gert. Þá verður
kátt í höllinni, eins og heyrnadaufi
maðurinn sagði.
Nóg um það. Við skulum snúa
okkur að útvarpsdagskránni í gær-
kvöldi. Oddur Björnsson bauð hlust-
endum upp á mjög gott leikrit
„Krabbinn og sporðdrekinn”. Odd-
ur á hrós skilið fyrir framlag sitt.
Ekki skemmdi það, að það voru úr-
vals leikarar sem léku i leikritinu, þó
að það hafi vantað leikara á borð við
Sigurjón Pétursson, Sjöfn Sigur-
björnsdóttur, Gerði Steinþórsdóttur,
Davíð Oddsson og hvað allir hinir
leikararnir heita, sem eiga eftir að
vera í sviðsljósinu næstu daga, með
hópsýningar í sjónvarpi — eða þá
einleiksþætti.
„Frá Fjallaskaga til Verdun”
Finnbogi Hermannsson ræddi við
Valdimar Kristinsson, bónda og sjó-
mann á Núpi í Dýrafirði. Þetta var
góður viðtalsþáttur og ekki skemmdi
það í lok dagskrárinnar, að Sveinn
Einarsson kom með „Kvöldstund”
sína, sem er alltaf góð.
Sigmundur Ó. Steinarsson
65 ára er í dag, 7. maí, Steingrimur
Karlsson veitingamaður í Skíöaskál-
anum í Hveradölum. — Hann er til
heimilis í Njörvasundi 38 hér í bænum,
en er að heiman í dag.
Tónlist
Frá Tónlistarfólaginu
í vetur höfum viö þegar haldiö 10 tónleika fyrir
áskrifendur.
Laugardaginn 8. maí verða tónleikar í Gamla bíó
kl. 2.30. Efnisskrá: Mozart: Sónata í B-dúr KV. 454
Cl. Dubussy: Sónata S. Prokofieff: Fiðluverk op.
356 J. Brahms: Sónataop. 108.
Miðasala er í Gamla bíói á auglýstum opnunar-
tíma og við innganginn. Verð kr. 70,—
Ferðalög
Ferðafólag
íslands
Miðvikudagurinn 12. maí kynnir Ferðafélag íslands
i máli og myndum ferðir félagsins sumarið 1982 aö
Hótel Heklu kl. 20.30 stundvislega. Þeir sem hafa
áhuga geta komið með fyrirspurnir um ferðirnar á
þessari kynningu. Allir velkomnir. Veitingar í hléi.
Minningarspjöld
Frá Minningarsjóöi
um Þorgerði S. Eiríksdóttur
; Minningarsjóðurinn um Þorgerði S. Eirfksdóttur
var stofnaður fyrir 10 árum og hefur að meginmark-
miði að styrkja efnilega tónlistarnemendur, er
stundað hafa nám við Tónlistarskólann á Akureyri,
til framhaldsnáms.
Styrkveitingar hófust fyrir Fimm árum og hafa 9
nemendur hlotið styrki úr sjóðnum og stundaö
námiö ýmist heima eða erlcndis.
Tekjur sjóösins byggjast á sölu minningarkorta,
frjálsum framlögum og ekki sizt tónleikahaldi tón-
listafólks i sjálfboöavinnu.
Ákveðið er að veita einum til tveimur nemendum
styrk úr sjóðnum sem afhentur verður við skólaslit
Tónlistarskólans þann 20. maí nk.
Umsóknir um styrkinn þurfa að hafa borizt til
Tónlistarskólans á Akureyri, pósthólf 593, 602
Minningarkort
Styrktarfólags vangefinna
fást á eftirtöldum stööum: Á skrifstofu félagsins.
Háteigsvegi 6. Ðókabúð Braga Brynjólfssonar,
Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnar-
stræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers Steins, Strand-
götu 31 Hafnarfiröi.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að
tekið er á móti minningargjöfum i sima skrifstof-
unnar, 15941, og minningarkortin siðan innhcimt
þjá sendanda með giróseöli.
Minninga- og heillaóskakort
Gideonfélagsins
eru til í flestum kirkjum Stór-Reykjavíkursvæðisins,
ennfremur fást þau i Kirkjufelli, Klapparstig, simi
21090, Bólstrun Ingólfs Aðalstræti, simi 27090, Skó-
verzlun Steinars Waage Domus Medica, sími 27114,
og hjá Steinari Þórðarsyni í bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, simi 18880.
Minningarkort Kvenfélags
Bústaðasóknar
lást hjá Stellu Guðnadóltur, Ásgarði 73, Verzl. Ás-
kjöri, Ásgarði 22, Garðs Apóteki, Bókabúð Grims-
bæjar, Oddrúnu Pálsdóttur, Sogavegi 78 og i Bú-
staðakirkju hjá kirkjuverði.
Minningarspjöld
Landssamtakanna
Þroskahjálp
eru til sölu á skrifstofu samtakanna Nóatúni 17, simi
29901.
= Leiklist
Garðaleikhúsið: Karlinn í
kassanum
Garðaleikhúsið sýnir á laugardaginn kl. 20.30 Karl-
inn í kassanum i Tónabæ. Fer nú hver að verða sið-
astur að sjá þetta frábæra gamanleikrit því sýning-
um fer að Ijúka.
ÚTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð styrkingar og
bundins slitlags í Reykjanesumdæmi.
Útboðið nefnist:
SLITLÖG1982
YFIRLAGINIIR í
REY KJAIM ESUMDÆMI
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Burðarlag 5.000 m3
Olíumöl 67.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi siðar en 1. september
1982.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vegagerðar
ríkisins, Borgartúni 5, Reykjavík, frá og með föstudeginum
7. maí nk., gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eða breyt-
ingar skulu berast Vegagerð ríkisins skriflega eigi siðar en
14. mai. .
Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila i
lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar ríkis-
ins, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir kl. 14.00 hinn 19. mai
1982, og kl. 14.15 sama dag verða tilboðin opnuð þar að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Rcykjavík i mai 1982.
Vegamálastjóri.