Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Side 32
Hjörleif ur rukkar ísal um 65-70 milljónir „Höfum syndakvittun í höndunum,” _ segirRagnarHalldórsson Alverið til sölu á 2y5milljarða „Ráðherra undirbýr riftun samninga við Alusuisser” segir ísal-forstjórinn Þetta er auðvitað makalaust ástand,” sagði Ragnar Halldórsson, forstjóri ísals, í samtali við DV í morgun. „Alusuisse lagði fram fyrir hálfum mánuði skýrslu brezku endurskoðendanna Price Water House og þar er okkur gefin hrein syndakvittun. Eltingaleikur við okkur út af ætluðum skattsvikum hefur engan tilgang nema þann að hlífa pólitískum ráðherra enn um sinn, með allt á hælunum. ” f samtali við Hjörleif Guttormsson iðanðarráðherra í morgun kvað hann ágreining um skattgreiðslu ísals 1975—80 nema um 67 milljónum króna í peningum, sem brezku endur- skoðendurnir Coopers og Lybrand teldu faila til við rétta reikninga fyrir súrál og rafskaut. „Þetta eru ekki svo litlir peningar,” sagði Hjörleifur. Megináherzlu lagði hann þó á hækk- un raforkuverðs til ísals sem þyrfti að þrefaldast eða allt að því. Það er nú 80 milljónir á ári og yrði 240 milljónir þrefaldað. „En það væri fráleitt að fram- fylgja ekki lagalegum rétti okkar þótt samningurinn við Alusuisse sníði okkur þröngan stakk,” sagði Hjör- leifur. Ragnar Halldórsson sagði hins vegar: „Alusuisse fékk Price Water House, sem er miklu stærra og þekktara endurskoðunarfyrirtæki en Coopers og Lybrand, til þess að yfir- fara hvern snepil í gögnum um þessi mál öll. Méð því að miða við sölu súráls og rafskauta milli óskyldra aðila er niðurstaða þeirra sú að gefa okkur hreina syndakvittun. Coopers og Lybrand byggðu hins vegar á lægsta fáanlegu verði sem finnanlegt var, samkvæmt pöntun ráð- herra.” „Alusuisse vildi ræða þessi mál út og komast að sameiginlegri nið- urstöðu en það vildi ráðherra ekki. Alusuisse hefur ékki á móti gerðardómi en hann hefur ekkert nema kostnað í för með sér. Málið liggur þannig fyrir,” ságði Ragnar. Er álverið til sölu? „Já, en að sjálf- sögðu á sanngjörnu verði.” Sem er? „2,5 milljarðar króna, þar af skuldum við 1,5 milljarð, síðan koma birgðir og annað þessu tilheyrandi,” svaraði Ragnar en bætti við: ,, Alusuisse er til í að ræða alla mögu- leika og bauð nýjan fund eftir mánuð en ráðherra lokaði á okkur í gær. Hann er nú með lögfræðing í New York við að undirbúa riftun samninga við Alusuisse.” HERB. Norðurlandameistaramót lögreglumanna í handknattieik var sett með viðhöfn í Laugardalshöllinni í morgun. Voru þar mættar harð- snúnar sveitir iögregiumanna frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og íslandi en þær keppa i dag og á morgun. Undir lúðrablæstri og fánahyllingu setti Sigurjón Sigurðsson lögreglustfóri mótið og voru þessar myndir teknar við þá athöfn imorgun. D V-mynd S Unglingahópur gekk ber- serksgang í Keflavík braut og bramlaöi ímörgum verzlunum, stal ogeyðilagði „Við gátum ekki ráðið við neitt. Þetta kom eins og snjóskriða hér yfir og tók allt sem hönd á festi,” sagði Þórður Guðmundsson, deildarstjóri í Kaupfélagi Suðurnesja við Hafnargötu í Keflavík, í viðtali við DV í morgun. Þessi „snjóskriða” eins og Þórður kallar hana var hópur barna og ungl- inga í Keflavík sem gekk hálfgerðan berserksgang á götum bæjarins í gær. Fóru krakkarnir m.a. inn í fleiri verzlanir og brutu þar og stálu vörum fyrir fleiri þúsund krónur. Lögreglan í Keflavík telur að þarna hafi verið um 150 til 200 krakkar þegar mest var. Voru krakkarnir úr gagn- fræöaskólanum að fagna því að loksins væri runninn upp síðasti kennslu- dagurinn í skólanum en þau yngri fylgdust með og slógust svo í hópinn. „Hér hjá okkur hirtu þau allt sem þau gátu náö í og stungið inn á sig. Sælgæti og gosdrykki sáu þau sjálf um að sporðrenna en eggjum, sjampói matarolíu og ýmsu öðru sem þau stálu hentu þau hér út um allar götur,”sagði Þórður. Verzlunin hans var ekki sú eina í Keflavík sem varð fyrir barðinu á þessum hópi. Flestallar verzlanir í Keflavík fengu heimsókn og sumar oftar en einu sinni um daginn. Hópurinn lét ekki nægja að heim- sækja verzlanirnar. Starfsmenn Áfengisverzlunar ríkisins, sem voru að losa bíl fullan af áfengi við útsöluna þar voru ekki nógu fljótir að læsa og loka öllu. Náðu einhverjir úr hópnum að hafa hendur á nokkrum vínflöskum áður en þeir gripu í taumana. Ógjörningur er að meta tjónið sem krakkarnir ollu. Málið hefur verið kært til skólanefndar og lögreglunnar og var rannsóknarlögreglan í Keflavík að hefja nánari rannsókn og yfirheyrslur í morgun. -Idp-i ■ ■ ' i m frjálst, óhúð dagblað FÖSTLDAGUR 7. MAÍ1982. Þinglausnir ídageða á morgun? — enn langur listi á dagskrá í neðri deild „Það hlýtur að vera von til þess að þingi ljúki í dag eða á morgun. Síðustu mál eru nú komin á dagskrá og það ræðst af afgreiðslu mála í deildunum nú fyrir hádegi hvernig framhaldið verður,” sagði Jón Helgason, forseti sameinaðs þings, í samtali við DV í morgun. Fundur var boðaður í báðum deildum klukkan tíu í morgun. 1 efri deild var frumvarp um kísimálmverk- smiðju á Reyðarfirði helzta mál á dagskrá og þá til annarrar og þriðju umræðu. Málalisti í neðri deild er tals- vert lengri. Þar á eftir að fjalla um lyfjadreifingu, skattskyldu innlánsstofn- ana, norræn fjárfestingarlán, sykur- verksmiðju, fóðurverksmiðju og Hæstarétt islands. Eru þessi mál mjög misjafnlega á vegi stödd, sum allt að því útrædd og afgreidd. Þingfundum lauk á níunda tímanum i gærkvöldi. Stærsta mál dagsins í gær var atkvæðagreiðsla um frumvarp um virkjanatilhögun, þar sem breytingar- tillaga atvinnumálanefndar var sam- þykkt samhljóða. Tillögu sjálfstæðis- manna um hagnýtingu orkulinda til stóriðju var vísað með atkvæðagreiðslu til ríkisstjórnarinnar. Þá urðu miklar umræður utan dagskrár um álverið í Straumsvik. Fundur hefur ekki enn verið boðaður í sameinuðu þingi og verður það ekki gert fyrr en útséð er um afgreiðslu í deildunum. -JB Eldurídönskum togara við Faxagarð Snemma í morgun kom upp eldur í danska togaranum Helen Basse sem lá við Faxagarð og var að taka olíu og vatn. Kom eldurinn upp í vistarverum frammi í skipinu og urðu þar töluverð- ar skemmdir. Skipið var að fara á Grænlandsmið en verður nú annað hvort að fá viðgerð hér eða halda aftur heim til Danmerkur. -klp- ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ Staðnirað verki viðað stelaspilum Tveir ungir piltar voru staðnir að verki við innbrot í fornbókaverzlun í vesturbænum í nótt. Sást til þeirra þar sem þeir voru að gramsa í gömlum bók- um en samt voru það ekki þær sem þeir höfðu áhuga á. í búðinni eru seld spil með myndum af ansi léttklæddum stúlkum og öðru í þeim dúr, það voru þau sem þeir höfðu áhuga á en ekki gömlu íslenzku bækurnar. -klp- I 1 : i ■ I ■ 3 LOKI / allri vinsemd er Hjörleifi bent á Sparisjóð Hafnarfjarð- ar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.