Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 26. JUNI1982.
LAXVEIÐI Á
VATNASVÆÐI LÝSU
SVFR SNÆFELLSNESI
Stangfcveiðifélag Reykjavíkur býður um 4 stangir
daglegi á þessu vinsæla vatnasvæði frá 1. júlí til
20. sept. 1982. Árleg meðalveiði sl. 4 ár er 225 lax-
ar. Veiðiferð á Snæfellsnes er fyrir alla fjölskyld-
una. Ýmsir gistimöguleikar: Svefnpokapláss með
eldunaraöstöðu að Lýsuhóli (þar er heit ölkeldu-
sundlaug), tjaldstæði að Hraunsmúla eöa hótelið
aðBúöum.
Verð veiðileyfa aöeins kr. 300,-. Frá Akranesi að
vatnasvæði Lýsu er um 2ja klst. akstur. Ösvikin
ævintýraferð fyrir veiðimanninn, makann og
börnin.
Leitið upplýsinga í síma 86050/83425.
Stangaveiöifélag Reykjavíkur.
HÉRAÐSBÚAR, AUSTFIRÐINGAR:
VATNASVÆÐI BREIÐDALS
A veiðisvæðinu eru boðnar 5—6 stangir í laxi á bil-
inu frá kr. 120 til kr. 380, auk 2ja stanga í silungi á
kr-. 80.
Arleg meðalveiöi sl. 4 ár er 213 laxar.
Pantanir og sala veiöileyfa á Hótel Staöarborg,
sími 97-5683, eða hjá Stangaveiöifélagi Reykjavík-
ur, sem gefa allar nánari upplýsingar.
SKYNDIHJÁLPAR
KENNARANÁMSKEIÐ
Á SUÐURLANDI
Rauöi kross íslands heldur kennaranámskeið í al-
mennri og aukinni skyndihjálp á Selfossi dagana
23.-29. júlí nk. Þetta námskeið er ætlaö félags-
mönnum Rauða krossdeilda á Suöurlandi.
Inntökuskilyrði er almennt skyndihjálparnám-
skeið.
Áhugafólk hafi samband við Rauða krossdeild á
viðkomandi stað eða skrifstofu Rauða kross ís-
lands, sími 26722 fyrir 12. júlí.
Rauði kross íslands.
W'í'í 2~ribH í 20, KG
LEIKTÆKI
r bVltíflð
Þú lætur hugmyndaflugið ráða og býrð tilþitt eigið
leiktæki.
Póstsendum.
Opið kl. 18 —20. Hentar úti sem inni.
V
G. ÞÓRÐARSON
Sævangi 7 — P.O. Box 424
222 Hafnarfjörður
Sími53424
„VIDSTi )NDUM
EINSOG AULAR”
— segir Ástþór, eigandi Myndiðjunnar, sem ekki fær
að veita fólki verðlaun
„Við stöndum eins og aular með 28
sólarlandaferöir í höndunum,” sagði
Ástþór Magnússon, eigandi Mynd-
iðju Ástþórs. Hvemig stendur á því?
„Við fórum af stað með verðlauna-
samkeppni þar sem þúsundasti hver
viðskiptavinur okkar átti aö fá sólar-
landaferö í verðlaun. Það eina sem
hann þurfti að gera var að svara
einniléttri spurningu. Viðauglýstum
þetta í vörulista sem við sendum
heim til fólks. Neytendasamtökin
komust í málið og sendu verölags-
sjóra bréf og kæröu þetta, töldu þetta
varöa við lög og kölluöu þetta ólög-
mæta viðskiptahætti. ”
Og hvað sagði verðlagsstjóri? „Að
þetta mætti ekki því að það væri
einungis tilviljun sem réði því hver
ynni. Ut af þessu stöðvaði hann sjón-
varpsauglýsingu sem viö vorum bún-
ir að gera. Þá breyttum við aug-
lýsingunm og ákváöum að fólk
ætti að senda inn góð auglýsingaslag-
orð og fengi þá sólarlandaferð að
launum. Vikulega ætluðum við svo
að veita höfundi bezta slagorðsins
verðlaim. Þetta héldum viö aö væri
sárasaklaust þar sem allir gætu tek-
iö þátt í þessu. Þetta var mjög sak-
laust. Fólk átti aðeins aö senda inn
einhver slagorð sem segðu frá því
t.d. hvers vegna fyrirtækiö væri gott
o.þ.u.l. En verðlagsstjóri stöðvaði
þessa auglýsingu líka.”
Hvaö gerirðu þá næst? „Ja, viö
stöndum eins og aular meö 28 far-
seðla til sólarlanda og fáum ekki aö
gefa fólki þá.” Þú ert þá ekkert að
hugsa um að fara út í feröabrans-
ann? „Nei, ætli það, ég hugsa að ég
fari nú ekki að standa í samkeppni
við ferðaskrifstofurnar,” sagði Ást-
þór að lokumdaufur í dálkinn.
-EG.
DV-mynd: Ólafur Guðmundsson.
Litlu munaði aö þessi Wartburg-bíll
hafnaði í Borgarfirðinum eftir árekst-
ur. Ökumaður bílsins missti stjóm á
honum á úppfyllingunni við Borgar-
fjarðarbrúna á þriðjudag með þeim
afleiðingum að hann skall aftan á
Bronco-jeppa. Við áreksturinn hentist
Wartburg-bíllinn út af veginum. Sand-
bingur stöövaði bílinn áður en hann
hafnaöi í sjónum. Ökumann bílsins
sakaði ekki.
-JH.
LITLU MUNAÐIAÐ BÍLL-
INN HAFNAÐI í SJÓNUM
Flugdagur á Selfossi
Fyrirhugað er að halda flugdag á
Selfossflugvelli í dag kl. 14 ef veður
verður hagstætt, en til vara á morgun,
sunnudag. Sitthvað verður til
skemmtunar, m.a. gefst gestum kost-
ur á að fara í stuttar flugferðir á
kostnaðarverði. Eins og á öðrum flug-
dögum verður aðgangur ókeypis.
13 flugvélar eru nú í eigu félaga í
flugklúbb Selfoss, en um 100 félagar
eru í klúbbnum. Jón Guðbrandsson
dýralæknir, einn fyrsti áhugamaður
um flug á Selfossi, hefur undanfarin ár
unnið aö endursmíði lítillar flugvélar
ásamt Gisla Sigurössyni kennara.
Þeirri smíði er ekki lokið en komin þaö
vel á veg að hægt verður að sýna vélina
á flugdaginn.
Eins og áður segir hefst sýningin kl.
14.00 en kl. 11.00 ætla félagar að fljúga
á vélunum í halarófu tvo til þrjá hringi
umhverfis Selfoss til aö vekja athygli á
deginum. Formaður Flugídúbbs Sel-
foss frá upphafi er Jón Guðmundsson
yfirlögregluþjónn.
KE Selfossi.
Áburðarflugvél á flugvellinum á Selfossi. Hún nauðlenti þrisvar sinnum hér á
landi og síðast á Eyrarbakkavegi. Vélin var kyrrsett á Selfossveili vegna skulda.
DV-mynd: Kristján Einarsson.