Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 26. JUNt 1982.
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Bahhliðin á farqjjaldastríðinu:
ÞJÓTWSTA SKORIN NIÐUR
FARÞEGAR RORGA TAFIR
Litir að hið þekkta bandaríska
flugf Hraniff fór á hausinn,
nokkiuin niánuöum eftir að Laker
fór sömu leið, hafa augu manna
beinzt meira að bakhlið fargjalda-
stríðsins. Fram til þessa hafa flestir
einblint á lækkun fargjalda, en nú er
einnig farið að vekja athygli á ýms-
um hvimleiðum fylgifiskum.
Þar er ekki aðeins átt við gjaldþrot
flugfélaga, sem hefur í för meö sér
mikið fjárhagslegt tap fjölmargra
aðila og atvinnumissi fjölda fólks,
heldur einnig að mörg flugfélög hafa
skoriö niður þjónustu með ýmsum
hætti.
Má nefna sem dæmi að jafnvel
þekkt flugfélög hafa látið þau boö út
ganga að framvegis fái farþegar
ekki mat né gistingu á kostnað flug-
félaganna þótt fella veröi niður ferð-
ir eöa seinka þeim mjög vegna
bilana ellegar illviöris. Smærri flug-
félög, sem slá um sig með auglýsing-
um um ódýr fargjöld, fella niður
áætlunarferðir landa á milli án nokk-
urs fyrirvara ef farþegar reynast of
fáir.
Ennfremur má nefna ýmsa minni-
háttar skerðingu á þjónustu, svo sem
það aö sum félög hafa hætt að bera
fram ókeypis mat eða glas af víni.
Önnur hafa fækkaö starfsfólki
meira en góðu hófi gegnir meö þeim
aflciðingum að allri þjónustu hefur
hrakað. Á þetta ekki sízt viö um
Bandar in, en þaó var einmitt þar
sem hið ohetta fai-gjaldastríð var
innleitt. Stærri flugfélög þar í landi
eru nú farin aö auglýsa dýrari
farrými í auknum mæli og leggja
áherzlu á aö þar sé veitt góð þjón-
usta. Það sama gerir SAS. Ef svo
heldur fram sem horfir verður þess
varla langt að bíða að þeir sem
hlaupa eftir ódýrustu fargjöldunum
verði aö sætta sig við þriðja flokks
þjónustu. Fyrir utan það að þessir
farþegar geta oröið fyrir miklum
aukaútgjöldum þegar ferðir eru
felldarniðurfyrirvaralaust. -SG
í slenzkar konnr
með barrekstur
á Mallor ka
Tll Ástralíu
með aMætti
Allmargir Islendingar eiga
ættingja í Ástralíu. Þangað er hins
vegar langt og dýrt að feröast og því
lítiö um gagnkvæmar heimsóknir.
En þeir sem hyggja á ferö til Astra-
líu geta hæglega dregið úr þessum
mikla feröakostnaði.
Til er sérstakt félag sem heitir
,,SkandinavLsk-Australsk/New Zea-
landsk Venskabsforening” (Stuttog
laggott nafn) .Það gengst fyrir ýms-
um ferðum til andfællinga okkar og
býður félagsmönnum verulegan
afslátt frá venjulegu verði. I þessu
félagi eru nú um sjö þúsund manns í
Noregi, Svíþjóö og Danmörku og
mun Islendingum velkomið að slást
í hópinn. Ritari félagsins heitir
Annelise Dam Larsen og heimilis-
fangiö er Box 7, 7500 Holsterbro,
Danmark. Ef menn vilja frekar
hringja en skrifa þá er símanúmerið
07-425105.
-SG
músík og myndir með ensku tali í
vídeói. Við biöjum að heilsa.
-SG
Stóru flugfélögin keppast nú viÖ aö auglýsa beztu farrýmin. Þar er rúmgott og veizlumatur fram borinn.
Hagur þeirra sem kaupa farseðla á útsöluprisum verður hins vegar stöðugt ótryggari.
Mallorka hefurtil margra ára ver-
ið annaö heimili fjölda Islendinga
yfir sumarmánuðina. Þess eru nokk-
ur dæmi að Iandar hafi setzt þar að
og standi hinum megin við barborö-
ið. Alla vega er okkur kunnugt um
tvo „íslenzka” bari þarna suöurfrá.
Raunar var það Páll Stefánsson,
hinn ötuli auglýsingastjóri DV, sem
færöi ferðasíöunni þessa vitneskju.
Sólbrúnn og sællegur, nýkominn af
sólarströndum, hlammaði Palli sér
niöur hjá fölbleikum ferðasíðumanni
og fór aö segja frá íslenzku börunum
á Mallorka. Auðvitað ætti að fleygja
svona mönnum út sem koma með há-
stemmdar lýsingar þarna sunnan að
Ferðamál
Sæmnndnr
Guðvinsson
skrlfar
Fernando, Aldis og José á Paradisarbar.
þegar maður situr sjálfur norður á
klakanum. En hvað um það. Bezt að
segja stuttlega frá þessum stöðum
fyrst Islendingar eiga í hlut og land-
in n s vo tíður gestur þarna.
Fyrir nokkrum vikum var Para-
dísarbarinn opnaöur á Magaluff
ströndinni. Eigendur eru hjónin
Aldís H. Matthíasdóttir og José
Luis Ixjpez ásamt meö Fernando
Gutierres. Aldís er Reykvíkingur en
hefur búið á Mallorka í fimm ár. Þau
José eiga eina dóttir, Sylvíu Dúu.
Paradísarbarinn er opinn frá kL
19 og fram eftir nóttu og Aldís vinnur
sjálf við afgreiðslu. Annan bar eiga
þau hjón rétt hjá Palma svo þau geta
brugðiö sér milli eigin bara hvenær
sem er. Eflaust öfunduö af mörgum
ísIenzkumMallorkaförum.
Hinn íslenzki barinn nefnist Tinna-
bar. Hann er einnig á Magaluff og
eigendur hans eru hjónin Halla
Sigurðardóttir frá Keflavík og
Antonio Penalver. Þau eiga dóttur
sem heitir Tinna og heitir barinn í
höfuðið á henni. Á Tinnabar er hægt
að kaupa ýmsa smárétti auk
drykkjarfanga. Þar er leikin íslenzk
íslendingar fá sér hressingu utandyra við Tinnabar.
(DV-myndir: Palli).
Ferðamálaráð-
stefnan á Isafir ði
Við minnum á, að Ferðamálaráð-
stefnan 1982 verðurhaldin á Isafiröi í
ár. Ráðstefnan verður sett föstudag-
inn 27. ágúst og lýkur síðdegis á laug-
ardaginn. Rétt er aö taka fram aö
ráðstefnan er opin öllum sem hafa
áhuga á feröamálum og ferðaþjón-
ustu. -SG
Edinborgarhátíðin:
La Scala frá Mflanó
Það verður ítalskt yfirbragð á
Edinborgarhátíðinni sem fram fer
dagana 22. ágúst til 11. september.
Þar kemur fram hópur frá La
Piccola Scala í Mílanó auk leikhópa
frá leikhúsum í Róm, Sardiníu og
Mílanó.
Fjórar erlendar óperur senda
listafólk á Edinborgarhátíðina.
Fyrir utan Scala má nefna óperuna í
Dresden ásamt hljómsveitinni
Dresden Staatskapelle sem kemur
nú í fyrsta sinn á þessa miklu lista-
hátíð.
Peter Ustinov setur upp nýtt og
óvenjulegt leikrit eftir sjálfan sig á
hátíðinni og fer þar sjálfur með hlut-
verk. Að venju verður mikið úrval
listamanna á Edinborgarhátíðinni
og margt að sjá og heyra.
-SG.