Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Page 15
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR 26. JUNI1982.
15
Mihhuil Tal á shotshónum
Líklega er enginn erlendur skák-
meistari vinsælli hér uppi á Fróni en
leikfléttusnillingurinn frá Ríga,
Mikhail Tal. Frá því hann varð
heimsmeistari og ekki síst eftir að
hann tefldi á Reykjavíkurskákmót-
inu 1964 hefur dyggur hópur ís-
lenskra aðdáenda fylgst með ferli
hans. Það kom nefnilega í ljós að
maðurinn sjálfur var ekki síður
skemmtilegur en taflmennskan,
ávallt leiftrandi af lífi og f jöri.
Það eru því ánægjuleg tíðindi fyrir
marga, er Tal stendur sig vel. Hann
hefur alla tíð verið heiisuveill og
árangur hans því stundum ekki upp
á marga fiska. En þess á milli
„brillerar” hann og heldur aödáend-
um sínum við efnið. Síöasta ár var
gott ,,Tal-ár”, en afturkippur kom í
þróunina í byrjun þessa árs — hon-
um gekk t.a.m. herfilega á stórmót-
inu í Wijk aan Zee. Nú virðist hann
hins vegar aftur kominn á skrið, því
nýlega varð hann efstur á tveimur
stórmeistaramótum í Sovétríkjun-
um.
Þessir tveir sigrar Tals voru í
Jerevan og Moskvu. I Jerevan hlaut
hann 10 v. af 15 mögulegum, en jafnir
í öðru sæti voru Bagirov, Vladimirov
og Lputjan, sem allir fengu 9 v. Síöan
kom góðkunningi okkar Islendinga,
hinn hárprúði Abramovic, sem náði
stórmeistaraárangri á Reykjavíkur-
skákmótinu í febrúar. I Jerevan tap-
aði Abramovic þremur fyrstu skák-
unum, svo stórmeistaraárangurinn
var úr sögunni. En hann gafst þó
ekki upp og fékk 8 1/2 v. úr 12 síðustu
skákunum.
Mótiö í Moskvu var öllu sterkara,
en þar deildi Tal sigrinum meö landa
sínum Vaganian, með 9 v. Geller og
Knaak komu næstir, en alls tefldu 8
stórmeistarar á mótinu. Árangur
Tals því mjög góöur og nú bíöa menn
spenntir eftir millisvæðamótinu í
Moskvu í september.
Skákstíll töframannsins frá Ríga
hefur breyst mikið frá því á árunum
um 1960. Þá var hann frægur fyrir aö
taka mikla áhættu í skákum sínum
og hafði mjög í heiðri máltækið
„fóma fyrst og hugsa svo”. Síðan
hefur mikiö vatn runnið til sjávar.
Greina má sterk áhrif frá Karpov í
taflmennsku hans nú. Helst kýs hann
að hafa allt á hreinu, en leikfléttu-
hæfileikarnir em þó alltaf til staðar.
Hér kemur dæmigerð skák, tefld á
mótinu í Jerevan. Stuöst er við
athugasemdirTalsí „64”.
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: K. Grigorjan
Enskur leikur.
1. e4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. g3 Bb4
5. Rd5 Bc5 6. Bg2 d6 7. 0-0 0-0 8. e3 a5
9. b3 Rxd510. cxd5Rb4.
Hér kemur stöðumynd í „64”, en
fyrstu 10 leikirnir eru ekki gefnir
upp. Leikjarööin gæti því verið önn-
ur, en þaö skiptir ekki öllu máli.
Þetta er sama afbrigði og í 15. ein-
vígisskák Kortsnoj og Karpov í
Meranó.
11. d4 exd4 12. Rxd4 Bxd4 13. exd4
He8?
Svartur varð að reyna 13. -c6 14.
dxc6 bxc6, því nú lendir riddarinn í
vandræðum.
14. a3 Ra615. Bd2! b616. b4 Rb8.
Ekki er það fagurt, en eftir 16. -
axb4 17. axb4 er hótunin 18. b5 mjög
óþægileg. Tal gefur upp eftirfarandi
þvingað framhald: 17. -Bd7 18. Hel
Bb5 19. Bfl Dd7 20. Hxe8+ Dxe8 21.
Bxb5 Dxb5 22. Dfl Dxfl+ 23. Kxfl b5
24. Ha5 Kf8 25. Hxb5 og svartur fær
„þungt” endatafl.
17. bxa5 bxa518. Hel a419. Dh5! Bd7
Eöa 19. -Rd7 20. Bg5! Hxel+ 21.
Hxel Df8 22. Be7 De8 og nú 23. He3
eða 23. Ddl og svartur á ekkert svar
við 24. Bxd6.
20. Be4 g6 21. Dh6 Df6 22. Bg5! Dxd4.
22. -Dg7 er auðvitað svarað með 23.
Dh4 og síðan 24. Bf6.
23. Dh4 Dg7.
Hvað annað? Tal hafði hugsað sér
að svara 23. -Kg7 meö 24. Hadl Db2
25. Bd3 og svarti riddarinn kemst
ekki í leikinn — ef 25. -Ra6 26. Hxe8
Bxe8 27. Bxa6 Hxa6 28. Bh6+ Kg8 29.
De7! ogvinnur.
24. Bh6 Dh8.
25. Bf5!
Laglegur leikur. Svartur getur sig
hvergi hrært!
25. -Dc3 26. Hxe8+ Bxe8 27. Hcl De5
28. Dd8! gxf5 29. Kfl!!
Rúsínan í pylsuendanum. Svartur
á ekkert svar við hótuninni 30. Hel og
gafst því upp. Líklegt framhald er 29.
-Rd7 30. Dxa8 Rf8 31. Hel Bb5+ 32.
Kg2! og mátið blasir við. Eins og
lokastaðan í skákinni ber með sér,
fékk svartur engan frið til þess að
koma mönnunum drottningarmegin
í spilið. Svona á að tefla skák!
Landslið íslands valið
Ingi R. Jóhannsson, landsliös-
einvaldurinn í skákinni, hefur nú
kunngert skipan íslenska landsliðs-
ins sem teflir við Englendinga í
Middlesborough 11. og 12. júli nk.
Skák
Jón L Árnason
Keppnin er liður í Evrópukeppni
landsliða í skák og ræður úrslitum
um það hvor sveitin kemst áfram í
úrslitin, sem fram fara á næsta ári.
Englendingar hafa hálfs vinnings
forskot á íslensku sveitina. Teflt er á
8 borðum, tvær umferðir og hefur
Ingi valiö eftirtalda skákmenn til
keppninnar; innan sviga er núver-
andiEló-stigatala:
Stórmeistarana Friðrik Ölafsson
(2530) og Guðmund Sigurjónsson
(2435); alþjóðlegu meistarana Jón L.
Ámason (2445), Inga R. Jóhannsson
(2435), Helga Olafsson (2430), Mar-
geir Pétursson (2415) og Hauk
Angantýsson (2400); og „hálfa al-
þjóðameistarann” Jóhann Hjartar-
son (2425). Varamenn verða þeir
Sævar Bjamason og Elvar
Guðmundsson.
Þetta er áreiöanlega sterkasta
skáksveit sem Islendingar hafa
nokkm sinni stillt upp. Búast má þó
við aö róðurinn verði þungur, því
Englendingar standa framarlega á
skáksviöinu. Sterkustu menn þeirra
eru Miles, Nunn, Stean, Keene,
Speelman og Mestel, sem allir em
stórmeistarar.
Myndin er af norsku bridgemeisturunum Lien og Breck, sem margir álíta besta
par norska liðsins. Á milli þeirra er Baldur Kristjánsson, þáverandi form.
Bridgefélags Reykjavíkur.
Island í
þridjasætiá
Míbrídge
Noregur vann yfirburðasigur í nýaf-
stöðnu Norðurlandamóti í bridge, enda
engir aukvisar þar á ferð — Breck og
Lien, Hellnes og Stabell, Aaby og
Norbye. Sama lið gæti hæglega unnið
Evrópumeistaratitil hvenær sem væri.
ísland jafnaði sinn besta árangur í
Norðurlandamóti til þessa og fjór-
menningamir Jón-Valur-Þorlákur-
Sævar eiga lof skilið fyrir góða
frammistööu. Þriðja sætið í þetta
sterku móti er enn ein skrautfjöður í
hatt þeirra félaga. Þaö er hins vegar
athyglisvert að svo mikill var yfir-
burðasigur Norömannanna að þriðja
sætið vinnst á 19 stigum undir meðal-
skor.
Röö og stig þjóöanna vóru annars
þessi:
1. Noregur229
2. Svíþjóð 163
3.1sland 141
4. Danmörk 136
5. Finnlandll4
Spilaðir voru fjórir 20 spila leikir
milli þjóðanna og var árangur Islands
eftirfarandi:
Noregur Svíþjóð Danmörk Finnland
10-10 5-15 13- 7 12- - 8
3-17 5-15 3-17 10- -10
1-19 20-2 13- 7 ' 10- -10
8-12 5-20 20-1 13- - 7
22-58 25-48 49-30 45- -35
Árangur Islands er talinn á undan.
Sviþjóð sigraði örugglega í kvenna-
flokki með 214 stigum, en Danmörk
varð í ööm með 161 stig.
Sveit Rosenkranz vann
Vanderbiltbikarinn
Nýlega lauk einu virtasta landsmóti
Bandaríkjamanna — Vanderbilt-
keppninni. Sigurvegarar aðþessusinni
varð sveit undir forystu G. Rosen-
kranz, en ásamt honum spiluðu Pre-
cisionstjömurnar Rodwell og Meck-
stroth, Jacoby, Passell og Wold.
Rodwell og Meckstroth eru tveir af
núverandi heimsmeistumm í bridge
og hér er spil frá mótinu sem Rodwell
leysti vel.
Austur gefur/a-v á hættu
Nordur * A94
0 ÁDG95
Vkstur * ÁK962 AtJ-TPl!
♦ D7632 A G8
V ÁK6 ’ 10854
0 K43 ” 108762
* 104 SlJIHJR á K105 * DG
r: DG9732 0 — * 8753
Með Meckstroth og Rodwell n-s, þá
gengu sagnir á þessa leiö:
Austur Suður Vestur Noröur
pass pass 1S 2G
pass 3L pass 3S
pass 5L pass 6L
pass pass pass
Vestur spilaöi út hjartaás og sagn-
hafi trompaði. Hann trompaði síöan
tígul heim, fór inn á trompás og horfði
TÖ Bridge
Stefán Guð johnsen
með áhuga á trompdrottninguna frá
austri. Síðan trompaði hann annan tíg-
ul og spilaði hjartadrottningu. Þegar
vestur lagði ekki á, þá trompaði hann í
blindum og spilaði þriðja tíglinum og
trompaöi með síðasta trompinu heima.
Síðan trompaði hann hjarta, tók
trompkóng og átti afganginn af slögun-
um
Það lærdómsríkasta við spilið er þó
sennilega það að ekki er ráölegt aö
opna á hindrunarsögn með jafngóð spil
og suður hefur í reynd. Það sýndu
sagnimar á hinu borðinu sannarlega.
Suður opnaði í annarri hönd á þrem-
ur hjörtum og fékk að spila þau. Hann
fékk reyndar tíu slagi, en það var lítið
upp í slemmuna á hinu borðinu.