Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Page 17
DAGBLAÐIÐ&VISIR. LAUGARDAGUR 26. JUNI1982.
17
Þegar ég fer á eftörMmm
get ég ehhi hugsað mér
töireruna án bama
Aðalheidur í Sókn segir frá hugmynd um tilraunablokk með kynslððablöndun.
Ehnfiremur frá reglum lifeyrissjöða §em bindra flmðabygguigar
Þessir þrir gæjar íkúrekaleik.... . . . verða smátt og smátt virðulegir borgarar sem horfa yfir
farinn veg.
„Það væri gaman, ef verkalýösfélög-
in byggðu tilraunablokk, þar sem
ólíkum aldurshópum væri blandað
saman,” sagöi Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir í Sókn, þegar við spuröum hana
ábts á byggingamálum aldraðra.
„Sjálfri fyndist mér dásamlegt aö
búa í íbúðum aldraðra eins og á Dal-
braut. Satt að segja langar mig oft að
verða þar eftir, þegar ég kem í heim-
sókn. Aöeins eitt mælir gegn því: ég
gæti ekki hugsað mér að eiga þess
aldrei kost að bjóða inn til mín bami.
Núna fer ég á mis við að njóta barna.
Vinnudagurinn er langur og maður er
orðinn of þreyttur til aö sinna þeim,
þegar amstrinu lýkur á kvöldin.
En þegar ég fer aö lifa á mínum
eftirlaunum get ég ekki hugsaö mér til-
verunaánþeirra.”
Gamlir og ungir mundu
hjálpa hverjir öðrum...
Nútíma hagræðing leiðir af sér að
hver kynslóð lendir í hólfi fyrir sig og
lítið samband á milli. Mörg börn í dag
þekkja ekkert gamalt fólk.
Erlendis er víöa farið aö byggja
bamaheimili og íbúðir aldraðra á
sama stað. Og frá Noregi heyrðum við
yndislegasögu: Þar brann barnaheim-
ili og meðan verið var að byggja nýtt
fengu litlu krílin inni á elliheimilinu.
Þegar aö því kom að þau áttu að flytja
til baka var táraflóð og sorg á báða
bóga og sár söknuður.
,,I tilraunablokk eins og þeirri sem
mig dreymir um yrðu ýmis félagsleg
vandamál leyst innan veggja. Eldra
fólkið gæti fengið heimilishjálp hjá
þeim yngri gegn sanngjömu gjaldi.
Það yrði hlýlegt fyrir börnin að geta
litiö inn hjá þeim eldri, en annars vildi
ég hafa sérstakt athvarf á daginn fyrir
skólaböm ísvona húsi.”
... og vandamál lykla-
barnanna yrðileyst
„Þaö er svo dapurlegt,” segir
Aöalheiöur „aö sjá krakka koma úr
skóla og enginn heima. Þau hringja
dyrabjöllunni, full eftirvæntingar á
svip. Síðan kemur vonbrigðaskeifa á
andlitið og litla höndin þreifar ofan í
vasa eða niður í hálsmálið eftir hús-
lyklinum.
Þess vegna ætti ein íbúðin í húsinu aö
vera notuö handa þeim á daginn.
Einhver húsmóðirin yrði fengin til að
taka á móti þeim, gefa þeim kakó og
hlusta á fréttir dagsins. Hún gæti
kannske þannig drýgt tekjurnar svo
henni yrði kleift að vera heima með
eigin böm.
Á kvöldin yröi þessi sama íbúð notuð
sem samkomustaöur fyrir þá eldri.
Þar gætu þeir hitzt til aö spjalla
saman, spila eða horfa á sjónvarpið.”
Lífeyrissjóðum
erbannaðað
byggja íbúðir
Aöalheiður segir, aö oft hafi komið til
tals innan verkalýöshreyfingarinnar
að byggja yfir eldri meðlimi, enda í
hópi þeirra margir, sem aldrei hafa
eignazt eigið húsnæði þrátt fyrir að
hafa unniö hörðum höndum alla ævi.
„Fyrir fáum missemm var samþykkt
á aðalfundi Sóknar tillaga frá stjóm-
inni um að byggja íbúðir fyrir aldraða
félaga. Skyldi fjármagniö koma frá
lífeyrissjóðnum.
En tillagan strandaði á almennri
reglugerö lífeyrissjóða. Þar segir að
þeir megi hvorki kaupa né byggja
önnur hús en þeir þurfa fyrir eigin
starfsemi.”
Hún bendir á að alþingi hefur gengið
lengra og lengra í að tryggja ríkisvald-
inu umframfjármagn lifeyrissjóöanna
með því að láta þá kaupa verötryggö
ríkisskuldabréf. Verkalýðsfélögin em
nú skyldug til að verja 40% af tekjum
lífeyrissjóðanna til kaupa á slikum
bréfum.
Verkamannabústaðir
í Laugarásnum
,,Um það er ekki að fást. Meiningin
með lífeyrissjóðnum var að tryggja
eftirlaunin og meö skuldabréfa-
kaupunum eru fjármunirnir vel
ávaxtaðir.
En ég veit að ýmsir meölimir verka-
lýöshreyfingarinnar eru með ágætis-
hugmyndir til lausnar á þessum
málum. Til dæmis hefurÁmi Jóhanns-
son, verkamaður í Dagsbrún, fyrir
löngu stungið upp á að verkamanna-
bústaðir verði reistir í Laugarásnum.
Mörgu eldra fólki — og reyndar ungu
líka — er illa við að flytja út fyrir
bæjarmörkin. Á þessum stað gæti það
einnig notið góðs af þjónustu sem boðin
er á Hrafnistu. Mér finnst þetta vera
hugmynd sem ekki hefur verið gefinn
eins mikill gaumur og vert væri.
En fólk er svo önnum kafið og flestir
búnir að kasta sér út í meira en þeir
geta — kannske gætu blöðin hjálpaö til
að leiða þá saman sem gætu hugsað
upp lausnir á þessum málum.
Okkur varðar svo miklu meira um
þaö hvernig fer um aldrað fólk í þjóðfé-
laginu okkar heldur en hvernig fötum
Rakel Welch og hennar líkar ganga í
daglega....”
ihh
REYKJAVÍK, í DAG KL. 4 E.H. Á MELAVELLIIMUM.
Á MORGUN - SUNNUDAG KL. 4 og KL.8 E.H.
ÞEIR ERU KOMNIR AFTUR
HINIR HEIMSFRÆGU
Htll BRIVtRS
Miðaverð
60 kr. fyrir
fullorðna,
30 kr. fyrir
sæti 20 kr
Storkostlegar aksturslistir.
Ekið á tveim hjólum: Stokkið á bilum
Mótorhjólastökk, trúðar ásamt fjölda
annarra aksturslista og skemmtiatriða
á 90 minútna sýningu.
Heimsins mestu ökugarpar i aksturslistum.
Stórkostleg skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Stykkishólmi
ísafjörður
29. júní þriðjud.
1. júlí fimmtud.
Sauðárkrókur
Akureyri
Húsavík
3. júlí laugard.
4. júlí sunnud.
5. júlí mánud.
LANDSSAMBAND ISLENSKRA AKSTURSlÞRÓTTAFELAGA.