Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Síða 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 26. JUNl 1982.
— Unglingaknattspyrnan
19
4. FLOKKUR:
Valsmeim
uimu
baráttuglada
Fylkismenn
— í skemmtUegum leik 3-2
Valur náöi aö knýja fram sigur í
jöfnum og skemmtilegum leik gegn
Fylki. Valsmenn voru ívið sterkari aö-
ilinn í leiknum og áttu ágæt færi. Sókn-
arleikmenn Fylkis féllu anzi oft á rang-
stöðutaktik Valsmanna. I fyrri hálfleik
opnuöu Antony Karl Gregory og Jón
Grétar markareikning Valsmanna, en
Einar skoraði gott mark fyrir Fylki
undir lok fyrri hálfleiks. I upphafi
síöari hálfleiks skoraöi Guðmundur
Magnússon stórglæsilegt mark fyrir
Fylki og jafnaði þar meö leikinn. Rétt
fyrir leikslok skoraöi Antony síðan
þriöja mark Vals og þar meö var verð-
skuldaður sigur þeirra í höfn.
Frammarar sýndu mjög góöan leik
sem IR átti ekki svar við. Urslit leiks-
ins uröu 2—0 fyrir Fram. Matthías
Þorvaldsson og Jónas Bjömsson skor-
uöu mörk Fram, en þeir sem lögöu upp
færin eru ónafngreindir.
I leik Týs og Víkings skoraði Stein-
grímur Gauti Pétursson 2 mörk í 2—0
sigri Víkings. Er greinilegt aö Stein-
grímur stefnir aö markakóngstitlinum
í 3. flokki. Víkingar höföu nokkra yfir-
buröi þrátt fyrir aö þeir spiluðu á úti-
velli.
Akumesingar unnu sanngjaman sig-
ur á Þrótti, 2—1. Þaö var Sigurður
Jónsson sem skoraöi eina mark fyrri
hálfleiksins með góöu skoti sem endaði
efst í markvinklinum. I síöari hálf-
leiknum bætti Guöni Þ. Guðmundsson
við öðm marki ÍA en Finnur Pálmason
svaraöi fyrir Þrótt. Vonandi fara
Þróttararnir aö rífa sig upp úr þeim
öldudal sem liðið hefur verið í undan-
farið.
KR-ingar sóttu 2 stig til Keflavíkur
er þeir mættu IBK. Lokatölur urðu 2—
0. KR-ingar voru sterkari aöilinn í
leiknum og sigurinn því fyllilega verö-
skuldaður. Mörk KR skomöu Gunnar
Skúlason ogGísli Jónasson.
Leikur Fram og Týs á Fram-velli
var leikur kattarins aö músinni og yfir-
buröasigur Frammara 4—0 var sann-
gjarn. Mörk Fram skomöu Matthías
Þorvaldsson, Gauti Laxdal, Amar
Júlíusson og IngólfurSteingrímsson.
I B-riðli hefur Afturelding dregiö
þátttöku sína til baka. Selfyssingar
unnu stórsigur á Haukum, 4—0.
I leik FH og UBK brá fyrir góðri
knattspymu og skemmtilegum tökt-
um. FH-ingar vom öriítiö sterkari og
unnu 4—3. Fyrir FH skoruöu Hörður
Magnússon 3 og Sveinn Ámason. UBK
hefur kært leikinn vegna dómara leiks-
ins sem þeir telja réttindalausan.
Mörk UBK skoruðu Páll Gíslason, Ámi
Þór Árnason og Þórir Áskelsson.
IJrslit
2. flokkur
B-riðill
FH—Víkingur 1—1
FH—Fylkir 3. flokkur 2—1
A-riðill
ÍR—Fram 0-2
ÍBK—KR 0—2
Valur—Fylkir 3—2
Týr—Víkingur 0-2
Þróttur-lA 1—2
ÍBK—Týr 2-1
ÍBK—ÍA 3—1
Fram—Týr 4-0
B-riðill
FH—Njarðvík 2-2
Grindavík—FH 0—3
Selfoss—Haukar 4—0
Þór V.—Selfoss 2-0
Fá—UBK 4—3
4. flokkur
A-riðill
KR—ÍBK 2—1
Fram—ÍK 4-0
ÍBK—UBK 4-0
Víkingur—KR fr.
ÍBK—Víkingur 3—1
B-riðill
Selfoss—Valur 0—5
Valur—Snæfell 8—2
Týr—FH 1—0
Selfoss—Njarövík 5—0
Þróttur—Haukar 1—1
5. f lokkur
A-riðill
Fram—Víkingur 5—2
Fylkir—KR 0—0
ÍK—Þróttur 2—6
Valur—Leiknir 9—0
B-riðill
Týr—Selfoss 4—3
Selfoss—UBK 3—1
Afturelding—Stjaman 1—8
Týr—Grótta 12-0
E-riðill
Valur—Sindri 0-8
Sindri—Austri 11—0
C-riðill
Baldur—FH 1-3
GARÐAUÐUN
„Enginn er annars bróðir í leik” eins og sjá má á þessari mynd úr leik Þórs og Týs
í 6. fl. (Mynd Guðm. Sigfúss. Vestm.).
5. FLOKKLR:
Þórir skor-
aði þrennu
fyrir Þrðtt
í 6-2 stgri þetrra á máti ÍK
4.FLOKKLR:
Arnljótur
sýndi
skenunti-
lega takta
— er Fram
sigraði IRK
4-0
Fram vann öruggan sigur á IBK á
Framvellinum. Frammarar höföu
nokkra yfirburði mestallan leikinn og
spumingin var bara hve mörg yrðu
mörkin. Staöan í hálfleik var 2—0.
Amljótur Davíðsson átti mjög góöan
leik og er hér greinilega mikiö efni á
ferð. Arnljótur skoraöi 2 mörk, Páll
„grimmi” Grímsson 1 og Ivar
Guðjónssonl.
Selfoss vann stórsigur á
Njarövíkingum, 5—0, á Selfossi.
Selfoss-strákarnir voru mun frískari
og ákveönari á boltann. Oft á tíðum
sáust skemmtilegir samleikskaflar hjá
þeim.
Mörk Selfoss geröu Páll Guömund-
son2,EiöurGuömundssonl ogHalldór
Róbertsson 1.
Þórir Eggertsson var í banastuöi er
Þróttur sigraöi IK í bráðskemmtileg-
um leik á Þróttarvellinum. Þórir skor-
aöi helming markanna eöa þrjú alls.
Þórir hefur staöið sig mjög vel í sumar
og skoraö í hverjum leik meö góöri
hjálp félaga sinna. Nafni hans, Þórir
Ingólfsson, skoraði 2 mörk og Amar
Halldórsson 1.
Fram sigraöi Viking nokkuö örugg-
lega í miklum markaleik, 5—2, á
Fram-velli. Víkingar byrjuöu leikinn
meö miklum krafti en tókst ekki aö
nýta sér þaö sem skyldi. Frammarar
náöu síöan undirtökunum og héldu
þeim síöan út leikinn. Staðan í hálfleik
var 2—1, Fram í vil. Haukur Pálmason
skoraöi 2 mörk fyrir Fram, Gunnar
Andrésson 1 og hinn knái leikmaöur,
Hólmsteinn Jónasson 1. Fyrir Víking
skoruðu Arnar Hjaltested og Steinar
Aenarsson.
Valur sigraöi Leikni 9—0 á Vals-
velli. Leiknisstrákamir vom þjálfara-
og búningslausir. En f yrir velvild dóm-
arans fengu þeir aö spila í sínum eigin
fötum. Þetta er til háborinnar skamm-
ar og ættu forráðamenn félagsins aö
sjá sóma sinn í því aö huga betur aö
þessum flokki. I B-riðli sigraöi Selfoss
UBK í skemmtilegum leik, 3—1. Staö-
an í hálfleik var 2—1 fyrir Selfoss.
Fyrir Selfoss skoraði Siguröur F.
Guönason 2 og Ragnar Hjálmtýsson 1.
Mark UBK geröi B jöm Víöisson.
Týr sigraöi einnig Gróttu örlítiö
stærra. Lokatölur 12—0. Markahæstur
Týsara var Þorsteinn Sverrisson og
skoraöi hann hvorki meira né minna
enömörk.
I D-riðli sigraöi efnilegt liö Sindra
Val 8—0. Mörk Sindra geröu Hermann
Pálsson 5, Sveinn Björnsson 2 og Rafn-
kell Guttormsson 1.
KR-ingar sigruöu IBK sanngjamt á
KR-velli 2—1. Keflvíkingar stóöu fyrst
í KR-ingunum en buguðust er leið á
leikinn og sigur KR því staðreynd. KR-
ingar hafa á aö skipa einu sterkasta
liöinu í 4. flokki og eru þeir líklegir til
stórafreka í sumar. Mörk KR skoruöu
Böðvar og Hilmar Kristinsson.